Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Síða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986.
Telja Gleði-
bankann eitt
Svíar spá íslendingum velgengni í sönglagakeppni Evrópu:
albesta lagið
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- son, stærsti plötuútgefandi Svía, við Sydsvenska dagblaðið í gær.
ritara DV í Svíþjóð: telja íslenska lagið Gleðibankann Þeir eru sammála um að lögin frá
Lasse Holm, fúlltrúi Svía í söng- eittafalbestulögunumíkeppninni. íslandi, írlandi, Danmörku og Sví-
lagakeppni Evrópu, og Bert Karls- Þetta kemur fram í viðtali þeirra þjóð muni bítast um sigurinn.
Grieghöllin i Björgvin þar sem sönglagakeppnin fer fram laugardaginn 3.
maí, eftir hálfan mánuð.
Annars segjast þeir félagar telja
lögin í keppninni i ár vera með al-
slakasta móti. Bert Karlsson segist
raunar veðja á írska lagið „You can
count on me“ sem sigurvegara í
keppninni.
En athyglisvert er að Karlsson,
sem er þekktur fyrir að fara nærri
um rétt úrslit í sönglagakeppni Evr-
ópu, skuli telja íslenska lagið eiga
svo góða möguleika.
-KMU
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Reynslufíug gekk vel
íkomi Landhelgisgæslunnar, Ecureuil-þyrlan TF-GRÓ, fór í sitt fyrsta flug hérlendis á þriðjudag. Gekk þetta reynslu-
flug vonum framar, að sögn yfirflugvirkja Gæslunnar. Ný sjúkraþyrla hefur þar með bæst í þjónustu landsmanna.
KMU/DV-mynd PK.
Eldhúsdagsumræður:
Steingrímur boðar
enn meira góðæri
1 útvarpsumræðunum i gærkvöld
notuðu margir þingmenn tækifærið til
að minna kjósendur á komandi bæjar-
og sveitarstjómarkosningar og upp-
lýstu þá um leið um ágæti sinna
flokka. Einnig skiptust þeir á að dá-
sama eða skammast út í nýgerða
kjarasamninga. Og margt fleira bar á
góma.
Karl Steinar Guðnason, Alþýðu-
flokki, hóf umræðuna. Hann sagði að
Alþýðuflokkur og verkalýðsforystan
hefðu gegnt mikilvægu hlutverki í
kjarasamningunum. Hér væri um ný
viðhorf að ræða og breytt vinnubrögð.
Þetta verður að takast en stóra hættan
er ríkisstjómin og að henni þarf að
gæta, sagði Karl Steinar. Flokksfélagi
hans, Eiður Guðnason, tók fyrir upp-
lýsingar um fátækt og skattsvik. Hann
sagði að þessi stjóm hefði fjölgað fá-
tækum og gert þá fatækari.
Salóme Þorkelsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki, sagði það vera rangt að flokkur
hennar bæri ekki hag bama og kvenna
fyrir brjósti og nefhdi fjölmörg dæmi
því til stuðnings. Birgir ísleifúr Gunn-
arsson sagði að auðveldara væri að
hleypa skriðu af stað en að stoppa
hana og átti þá við að ríkisstjómin
hefði tekið við af seinustu ríkisstjóm,
sem hefði verið búin að koma öllu í
óefrii.
Kristófer Már Kristinsson mælti fyr-
ir Bandalag jafnaðarmanna. Hann
gagnrýndi harkalega kjarasamning-
ana og kallaði þá stærstu blekkingu
sögunnar. Hann sagði að ráðherramir
væm á sex mánaða verðhjöðnunar-,
fylliríi og þeir hirtu ekki um að
undirbúa sig undir timburmenn aldar-
innar í nóvember. Kolbrún Jónsdóttir
í sama flokki gagmýndi stjómkerfíð.
Nú væri svo komið að til alls þyrft
leyfi.
Svavar Gestsson, Alþýðubandalagi,
sagði að Sjálfstæðisflokkurinn væri
með Framsóknarflokkinn í tjóður-
bandi. Þúsundir heimila væm á
vonarvöf og eini valkosturinn væri að
koma Alþýðubandalaginu til valda.
Steingrímur Hermannsson, Fram-
sóknarflokki, boðaði enn meira góðæri
og taldi að verðbólga yrði komin niður
í 6% í lok ársins. Hann vitnaði í nýja
spá Þjóðhagsstofnunar og sagði að þar
kæmi fram að þjóðartekjur yrðu að
líkindum mun meiri en ráð hafði verið
fyrir gert. Viðskiptahalli yrði minni
og nú væri talið að að einn milljarður
yrði umfram á viðskiptareikningi.
Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista,
gerði vígbúnaðarkapphlaupið að um-
talsefni. Hún sagði það vera óhugnan-
legt að nú í byijun friðarárs væri
heimsfriðnum stefnt í hættu. Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir gagnrýndi
kjarasamningana og taldi að konur
kæmu verst út úr þeim.
Kristín S. Kvaran, sem er utan
flokka, sagði að það hefði gleymst að
gera ráð fyrir því í kjarasamningunum
að laun nægðu fyrir brýnustu nauð-
synjum. -APH
Ef Hemtann Bjötgvinsson
snýr ekki aftur:
Framsal
vonlaust
- segir dr. Gunnlaugur Þórðarson
„Það verður vonlaust að fá Her-
mann Björgvinsson framseldan.
Samkvæmt lögum verður lág-
marksrefsing að vera árs fangelsi til
að framsal komi til greina,“ sagði
dr. Gunnlaugur Þórðarson sem hef-
ur allnokkra reynslu af framsalsmál-
um.
Eins og fram hefúr komið í fréttum
ætla íslensk yfirvöld að fara þess á
leit við bandarísk stjómvöld að Her-
mann Björgvinsson verði framseldur
snúi hann ekki aflur heim. Ekki er
enn ljóst hvort Hermann dvelur í
frí'i í Bandaríkjunum eða ætlar að
setjast þar að til frambúðar. Skyld-
menni hans segjast sannfærð um
að Hermann komi aftur á meðan að
ýmsir félagar hans og vinir þykjast
þess fullvissir að brottför Hermanns
af landinu hafí verið skipulögð og
hann komi ekki aftur í bráð. -EIR
Dr. Gunnlaugur Þórðarson.
Okurmálið:
65 bíða eft-
ir ákæru
í Reykjavík
Dómarar og fúlltrúar sakadómara-
embættLsins í Reykjavík munu innan
tíðar birta 65 einstaklingum ákærur
í okurmálinu svonefnda. Samtals eru
ákærumar 55. Þegar hefúr ein
ákæra verið birt átta starfemönnum
Flugleiða og þeim gefið að sök að
hafa veitt Henpanni Björgvinssyni
22 sinnum lán með 75,7 prósent árs-
vöxtum þegar lögleyfðir vextir voru
18,5 prósent. Höðfu þeir 663 þúsund
krónur upp úr krafeinu.
Gunnlaugur Briem yfirsakadómari
hefúr deilt okurmálunum 55 niðui4 á
níu dómara og fúlltrúa við embætti
sitt. Er ráðgert að birta ákærumar
nú eina af amiarri.
„Mér liggur ekkert á. Ég læt þessi
mál ekki hafa neinn forgang. Þau
eru ekkert merkilegri en mörg önnur
mál sem bíða afgreiðslu á borði
mínu,“ sagði Sverrir Einarsson
sakadómari í samtali við DV.
-EIR