Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Page 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
hildur.
Hjá Eggert var um tvo stærðar-
flokka að ræða, 28-33 mm og 33-45
mm. Sá fyrmefndi kostar 49 kr. kg en
sá síðari 55 kr. kg.
Hjá Ágæti voru einnig tveir stærðar-
flokkar. 28-33 mm kostuðu í heildsölu
916 kr. (25 kg sekkir), einnig pakkað
4 kg í kassa á 216 kr.
Stærri gerðin, 35-45 mm, kostar
1133,50 kr. í heiídsölu, 25 kg sekkur-
inn, og 4 kg í kassa 260 kr.
Hægt er að láta kartöflumar spíra
í kössunum og em kartöflumar fljótar
að taka við sér.
Ágæti sér um útleigu á kartöflu-
geymslum í Ártúnshöfðanum þar sem
300 hólf em í gangi. Hólfin verða leigð
út aftur í ár. I fyrra var leigan 300 kr.
og verður um einhverja óvemlega
hækkun að ræða að sögn Ólafs Stef-
áns Sveinssonar.
-A.Bj.
Nú er kominn sá tími að fólk fer að
huga að útsæðinu, en samkvæmt upp-
lýsingum Ólafs em horfur á að skortur
geti orðið á útsæði þegar fram í sækir.
Auk Ágætis selur Eggert Kristjáns-
son hf. einnig útsæði. Er það í fyrsta
sinn sem aðrir en „opinberir" aðilar
selja útsæði. Þeirra útsæði er frá
Homafirði.
„I Eyjafirði er ákveðin stofhrækt
útsæðis sem keyrt er beint til annarra
bænda en fyrirsjáanlegur er mikill
skortur á útsæði," sagði Ólafur.
Sem stendur em til rauðar íslenskar
og gullauga, helga og bintje og einnig
innfluttar premier kartöflur. Þær em
snemmsprottnar og frekar stórar en
em fyrst eftir uppskem vatnsmiklar.
„í hittifyrra komu þessar kartöflur
á markaðinn snemma en vom vatns-
miklar og féllu þær neytendum ekki
alltof vel í geð. En ef þær fá að vera
í friði og bíða svolítið eftir upptöku
jafna þær sig og verða að úrvalskart-
öflumsagði Ólafur.
Homafjarðarkartoflumar hjá Egg-
ert Kristjánssyni em með heilbrigðis-
vottorð „upp á vasann". „Kartöflumar
em fluttar í sótthreinsuðum umbúð-
um, koma aldrei í hús, em geyrr.dar í
gámum hér fyrir utan hjá okkur,“
sagði Svanhildur Ámadóttir hjá Eg-
Þarna er verið að afgreiða útsæði til viðskiptavinar úr kæligáminum fyrir utan fyrirtækið Eggert Kristjánsson hf.
DV-mynd KAE
...að pota útsæðinu niður.
Utsæðið frá Eyjafirði,
Hornafirði og nokkr-
um bæjum í Hreppum
„Það útsæði sem við erum með er
að langmestu leyti úr Eyjafirði og
einnig smávegis úr Hreppunum, frá
nokkrum bæjum sem hafa leyfi frá
Rannsóknastofhun landbúnaðarins,"
sagði Ólafur Stefán Sveinsson hjá
Ágæti í samtali við DV.
gert Kristjánss)mi í samtali við DV.
Þar vom til þrjár tegundir, helga,
gullauga og premier, seldar í 10 og 25
kg sekkjum.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við erum
með útsæðiskartöflur. Það hefur verið
mjög góð sala hjá okkur og við emm
ánægð með móttökumar," sagði Svan-
Aðeins fyrir horgrindur
Ef ykkur er alveg sama um „línum-
ar“, eða emð hugsanlega einhverjar
horgrindur, höfðar eftirfarandi upp-
skrift sannarlega til ykkar. Þetta er
uppskrift að ostahring en hver
skammtur inniheldur hvorki meira né
minna en 1375 hitaeiningar (51 gr
eggjahvítuefhi). Réttur þessi heitir
Gougére á útlendu máli. Hér er upp-
skriftin:
50 g smjör
75 g hveiti
1,5 dl vatn
3 egg
75 g ostur skorinn í bita
Byrj ið á því að hita ofninn í 150 gráð-
ur C. Látið smjörið í pott með 1,5 dl
vatni og hitið rétt að suðumarki. Tak-
ið þá pottinn af plötunni og látið allt
hveitið út í. Hrærið mjög vel með tré-
sleif þar til deigið sleppir pottinum.
Kælið smástund en hrærið þá eggjun-
um út í, einu í senn. Deigið á að vera
Þessi réttur er af ítölsku bergi brotinn eins og nafnið ber með sér og er mjög hitaeiningaríkur eins og títt er um ítalskan mat.
það stíft að það haldi lagi, þannig að
hugsanlega má ekki láta allt þriðja
eggið út i; það fer eftir stærð eggj-
anna. Bætið þá tveim þriðju hlutum
af ostinum út í, en hann var áður skor-
inn í litla bita.
Látið nú deigið í hring á vel smurða
bökunarplötu. Látið afganginn af
ostabitunum ofan á hér og þar. Styðjið
við deigkransinn með því að láta
ræmu af smjörpappír utan með, svo
deigið renni ekki út heldur lyfti sér.
Látið plötuna í miðjan ofninn og
hækkið hitann í 200 gráður. Bakið
hringinn í ca 40 mín. Slökkvið þá á
ofninum, skiljið dymar eftir opnar og
látið hringinn kólna í 5-10 mín. Setjið
hann þá á volgt fat og berið fram með
tómatsósu.
Tómatsósan
15 ml jurtaofía
1 meðalstór laukur
1 msk hveiti eða heilhveiti
1,5 dl soð eða vatn
450 gr tómatar
1 lárviðarlauf
1 hólf hvítlaukur
salt, pipar og nýmalaður svartur pipar
ögn af sykri
Hitið olíuna í pönnu og steikið lauk-
inn þar til hann er glær. Hrærið
hveitinu saman við og vatninu eða
soðinu smám saman saman við. Hrær-
ið í þar til sósan er orðin þykk. Bætið
þá tómötunum, lárviðarlaufinu og
hvítlauknum (pressuðum) út í. Krydd-
ið og látið sjóða í um það bil 30 mín.
Ef notaðir eru ferskir tómatar verður
að flysja þá og skera í báta. Einnig
má nota niðursoðna tómata.
Hver skammtur af þessari sósu inni-
heldur um 230 hitaeiningar og aðeins
7 gr af eggjahvítu. -A.Bj.
Lög-
fræði-
handbók
fyrir
heimilin
Bókin Lög og réttur eftir Ólaf
Jóhannesson er nýkomin út. Er
þetta Qórða útgáfa sem Hið ís-
lenska bókmenntafélag sér um
en Sigurður Líndal bjó bókina
til prentunar. Einstakir þættir
bókarinnar hafa verið endur-
skoðaðir af Amljóti Bjömssyni,
Guðrúnu Erlendsdóttur, Jónat-
an Þórmundssyni, Lúðvik
Ingvarssyni, Páli Sigurðssyni,
Pétri Hafstein og Stefáni Má
Stefánssyni, auk Sigurðar Línd-
al.
Lög og réttur skiptist í sjö
þætti: I. Stjómskipun og stjóm-
sýsla, II. Réttaraðild og lögfræði,
III. Sifjaréttur, IV. Erfðaréttindi
og óskipt bú; V. Fjármunarétt-
indi; VI. Refsivarsla; VII.
Dómgæsla og réttarfar.
Bókin er rúmar 4000 bls. að
stærð og er ætluð almenningi
sem uppsláttarrit.
Bókin kostar 2.500 kr. út úr
búð.
-A.Bj.
Heilla-
ráð
... þegar þú œtlar að saxa
harðsoðin egg smátt, eins
og t.d. í eggja- eða kartöfl-
usalat, er tilvalið að gera
það með eggjaskeranum.
Skerið eggið fyrst í sneiðar
á hefðbundinn hátt, takið
eggið svo í einu lagi úr
eggjaskeranum og snúið því
á hinn veginn og skerið aft-
ur...
... til þess að koma í veg
fyrir að tárin renni þegar
verið er að skera lauk er
gott að skera hann ofan í
köldu vatni...
... kókosmjöl er gott í ýms-
an mat, bœði bakstur og
daglegan mat. Nota má
kókosmjöl í vanilluhringi J
staðinn fyrir möndlur. Ur
því koma góðar og ódýrar
smákökur...
... ef þú finnur smákökur
sem farnar eru að linast á
búrhillunni má bjarga kök-
unum með því að bregða
þeim inn í ekki alltofheitan
bakarofn. Þá verðaþœr qft-
ur stökkar og ems og
nýbakaðar...