Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Page 15
DV; FÖSTUDAGUR; 18.»APRlL, ip§6.< , 15 Kaupleiguíbúðir Kaupleiguíbúðir gefa fólki val um hvort heldur sem er að leigja slíkar íbúðir eða kaupa þær. - Ef fólk kýs leigu þá yrði leigugjald 4.670 krónur á mánuði fyrir láglaunafólk eða aðra sem af félagslegum ástæðum þarfri- ast aðstoðar við húsnæðisöflun, en leiga á almennum markaði yrði 7. 180. Þessi leiga fer til að greiða nið- ur afborganir og vexti af lánum úr byggingarsjóðunum. - Kjósi fólk að eignast kaupleiguíbúðir þá greiðir það viðbótargjald við leiguna. Við- bótargjaldið yrði frá 2.084 krónum á mánuði upp í 4.909, allt eftir því hvað viðkomandi kýs að eignast íbúðina á löngum tíma, en greiðslu- tími getur staðið í allt að 30 ár. Viðbótargjaldið fer til að greiða niður hluta sveitarfélagsins eða framkvæmdaaðilans sem er 20% af byggingarkostnaði. - Þegar að fullu er uppgert við framkvæmdaaðilann fær viðkomandi afsal af íbúðinni og yfirtekur eftirstöðvar af áhvílandi lánum við byggingarsjóðina. Sem dæmi má nefna að greiðsla leigu og viðbótargjalds fyrir lág- launafólk yrði samtals 6.754 krónur á mánuði ef viðkomandi kýs að eign- ast hluta sveitarfélagsins á 30 árum og 9.578 krónur á mánuði ef hlutur framkvæmdaaðilans yrði greiddur niður á 10 árum. Heildargreiðslur (leiga og viðbót- argjald) vegna kaupleiguíbúða á almennum markaði yrðu samtals 9. 264 krónur ef hlutur framkvæmda- aðilans er greiddur niður á 30 árum og 12.089 ef viðkomandi kýs að eign- ast íbúðina á 10 árum. Fjármögnun kaupleiguíbúða Framlög sveitarfélaganna m.v. þá framkvæmdaáætlun að byggðar yrðu 600 kaupleiguíbúðir á hverju ári næstu 10 árin yrðu 276 milljónir króna á ári. Ætla verður að hlutur sveitarfélaga á hveiju ári yrði ekki svo mikill því hér er um svo hag- stæðan kost að ræða fyrir launafólk að nokkuð víst má telja að laun- þegasamtök, lífeyrissjóðir eða önnur félagasamtök hefðu áhuga á að ger- ast framkvæmdaaðilar, sem þá minnkaði hlut sveitarfélagsins. Að auki má benda á að útgjöld sveitar- félaga minnka árlega í hlutfalli við endurgreiðslu viðbótargjalds en endurgreiðslan gæti þá runnið til áframhaldandi framkvæmda við byggingu eða kaup á kaupleiguíbúð- um á næstu árum, eins og fram- kvæmdaáætlunin gerir ráð fyrir. Erfiðleikar sveitarfélaganna við Ijármögnun yrðu þvi mestir í byijun meðan verið væri að hrinda áætlun- inni af stað. Til að auðvelda sveitar- félögum framkvæmdir gerir tillaga Alþýðuflokksins því ráð fyrir að eignaskattsauki verði lagður á félög og fyrirtæki, svo og á stærri eignir eða nettó skuldlausar eignir yfir 7 milljónir króna næstu 2 árin. Fjár- magn, sem þannig fengist, yrði 600 milljónir hvort árið um sig - og verð- ur að telja eðlilegt að 2-300 milljónir á ári eða allt að 600 milljónir af því fjármagni renni til sveitarfélaganna til að tryggja að framkvæmdaáætlun um byggingu eða kaup 600 leigu- íbúða verði að veruleika. Að því er byggingarsjóðina varðar þá er áætlað aq verulega aukið fé komi til sjóðanna í tengslum við nýgerða kjarasamninga gegnum skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna. Ætla verður að samstaða geti náðst um það að 5-600 milljónir af þessu fé renni árlega til kaupleiguíbúða JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR ÞIIMGMAÐUR FYRIR ALÞÝDUFLOKKINN sem fyrst og fremst kæmu láglauna- fólki til góða, en það er það fjármagn sem til þarf að koma frá Húsnæðis- stofnun til að tryggja að við þessa iframkvæmdaáætlun verði hægt að standa. Af því sem hér hefur verið lýst er ljóst að kostir kaupleiguíbúða eru ótvíræðir. Nýir möguleikar skapast í greiðslukjörum og menn fá jafii- fiamt að velja sér eignar- eða leigu- fyrirkomulag í húsnæðismálum, allt eftir efnum og ástæðum, sem kemur í veg fyrir það ástand sem nú er, að mörg heimili í landinu eru að kikna undir oki gífurlegra fjárskuldbmd- inga. - Að auki á að vera auðvelt að gera fólki kleift að flytja með sér áunnin réttindi. Með því móti er fólki auðveldað bæði að stækka og minnka við sig íbúðir, sem og að flytjast innan og milli sveitarfélaga ef það svo kýs. Víst er að sú nýja lausn, sem hér hefur verið lýst og Alþýðuflokkurinn boðar, mun gjörbreyta því ástandi sem nú ríkir í húsnæðismálum. Að því mun Alþýðuflokkurinn vinna að pólitísk samstaða náist um þessa nýju lausn - þennan valkost i hús- næðismálum, sem tryggir fólki húsnæðisöryggi án skuldabasls og vinnuþrældóms. Jóhanna Sigurðardóttir Breytingar á sjóðakerfi sjávarútvegsins: Tekjur sjómanna af seldum afla Eðlilega velta sjómenn því fyrir sér hvaða áhrif endurskoðun sjóðakerf- isins hefiir á tekjur þeirra. Sú breyting á sjóðakerfinu, sem hér er lögð til, mun hafa litlar breytingar í för með sér á tekjum sjómanna þegar á heildina er litið. Hins vegar verður um verulega einföldun á sjóðakerfinu að ræða.. Skv. frum- varpinu er ekki gerður munur á skiptaverði á bátum 240 brl. og minni annars vegar og stærri en 240 brl. hins vegar. Til að halda tekjum sjó- manna óbreyttum eftir að skipta- verðið er orðið það sama á minni og stærri bátunum verður gerður viðbótarsamningur við útvegsmenn um að skiptaprósentan á minni bát- unum hækki nálægt 1%-stigi, en samhliða lækkar skiptaverðið á þeim í það sama og á stærri bátun- um. Með þessu móti verða aflahlutir sjómanna óbreyttir eftir sem áður. Sem dæmi um þetta má taka tvo báta sem stunda togveiðar. Annar er 220 brl. en hinn 270 brl. Skiptapró- sentan er 28,5% m.v. 14 menn. Það sem skiptist á mennina m.v. 10 tonn af slægðum 1. flokks þorski er sýnt í töflu 1. Eins og hér kemur fram verður hlutur sjómanna eftir einföldun sjóðakerfisins um 1,3% hærri en áður úr hveiju kg af þorski. Hér á eftir í töflu 2 eru tekin dæmi af nokkrum fisktegundum og sýnt hvert brúttóverðið og skiptaverðið er nú og hvert það verður eftir ein- földun sjóðakerfisins. Sú aðferð, sem notuð er til að reikna upp nýtt fiskverð, er að taka lágmarksverð Verðlagsráðs, að við- bættum hálfum verðbótunum og hækka það síðan um 58%. Með því móti eru þær fjárhæðir, sem nú renna gegnum sjóðakerfi sjávarút- vegsins, teknar inn í fiskverðið. Eins og glöggt sést í töflunni hækkar skiptaverð þeirra fisktegunda, sem hafa 6% verðbætur, um 1,3%. Hins vegar lækkar skiptaverð á ufsa um 3,8% og karfa um 2,5%. Skiptaverð þeirra fisktegunda, sem engar verð- bætur hafa nú, hækkar um 3,8% við breytinguna. Ástæða þessa er að með þeirri aðferð, sem notuð er til að reikna upp nýtt fiskverð, jafiiast þær verðbætur, sem nú eru greiddar, yfir allar fisktegundimar. Vegna mismunandi verðbóta á fisktegund- unum er ekki mögulegt að gera þetta á annan hátt með einföldum hætti. Þetta þýðir að tekið er af verðbótum þeirra tegunda, sem nú hafa háar verðbætur, eins og ufsi og karfi, og fært yfir á þær tegundir sem engar verðbætur hafa, eins og t.d. rækja. Það skal þó tekið fram að sú lækk- un, sem verður á ufsa og karfa, gildir aðeins í hálfan mánuð eða frá því að lögin taka gildi hinn 15. maí og fram að næstu fiskverðsákvörðun sem tekur gildi 1. júní. Einnig má benda á að sú hækkun, sem verður á öðrum tegundum en ufsa og karfa, vegur mun þyngra en sú lækkun sem verður á ufsa og karfa. Aflasamsetn- ingin ræður því mestu um það hvort aflahlutur hækkar eða ekki. Sam-' hliða breytingunni verður þó ekki um neinar verulegar tilfærslur að ræða milli sjómanna og útvegs- manna. Til að halda hlut sjómanna svo til óbreyttum frá því sem nú er verður skiptaverðið 70% af brúttó- verðinu. Hægt verður því með þessari einföldun á sjóðakerfinu að taka fram í tilkynningu Verðlags- HÓLMGEIR JÓNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI SJÓMANNA- SAMBANDS ÍSLANDS ráðs hvert brúttóverðið er annars vegar og hvert skiptaverðið er hins vegar. Þessi einföldun hlýtur því að vera mjög til hagsmóta fyrir sjó- menn. Rétt er þó að taka skýrt fram að með þeirri einföldun, sem hér á sér stað, er ekki verið að fallast á af hálfu sjómannasamtakanna að það sem nú er utan skipta verði það til frambúðar. Eins og menn muna voru á árinu 1983 sett lög um 29% kostnaðarhlut útgerðar vegna hækkandi olíuverðs og mikils íjár- magnskostnaðar. í dag koma 10,5% af 29% kostnaðarhlut til skipta á bátum 240 brl. og minni en 18,5% ekki. Á bátum stærri en 240 brl. koma 6,5% af kostnaðarhlut til skipta en 22,5% ekki. Það er alveg ljóst að þá kostnaðarhlutdeild, sem nú er utan skipta, eiga sjómenn eftir að sækja. Samfara lækkandi olíu- verði og minni fjármagnskostnaði hjá útgerð hlýtur krafa sjómanna í næstu samningum að vera sú að sú kostnaðarhlutdeild, sem enn er utan skipta, komi til skipta. Kostnaðar- hlutdeildin, sem enn er utan skipta, samsvarar um 12-14% af því fisk- verði sem gildir eftir að einföldun sjóðakerfisins hefur átt sér stað. Afla landað erlendis Þogar siglt er með afla á erlendan markað er frádráttur vegna sölu- kostnaðar, tolla og útflutningsgjalda nú 13% skv. bátakjarasamningi, nema þegar bræðslufiski er landað erlendis, þá er þessi frádráttur 6,5%. Skv. samningunum á stóru togurun- um er þessi frádráttur 18% þegar afla er landað erlendis. Heildar frá- dráttarprósentan, þegar lögbundn- um frádrætti hefur verið bætt við, er því 35% á bátum og minni togur- um en 40% á stóru togurunum. Þegar bræðslufiski er landað erlend- is er þessi frádráttur 28,5%. Sam- hliða einföldun sjóðakerfisins er gert ráð fyrir að við sölu erlendis komi 64% af brúttósöluverðmæti til hluta- skipta, aflaverðlauna og aukaafla- verðlauna. Þegar bræðslufiski er landað erlendis er gert ráð fyrir að skiptaverðið verði 70% af brúttó- söluverðmæti. Eins og þama kemur fram er ætlunin að eftir einföldun sjóðakerfisins verði sami frádráttur á öllum skipum þegar botnfiskafli er seldur erlendis. M.v. að þetta verði gert skerðist skiptaverð um 1%-stig af brúttóverði á bátum og minni tog- urum. Einnig eykst frádrátturinn á skipum, sem selja bræðslufisk er- lendis, um 1,5% stig. Rétt er þó að benda á að þrátt fyrir lækkun á skiptaverði, þegar afli er seldur er- lendis, vegur hækkun skiptaverðs- ins, þegar afli er seldur innanlands, það fyllilega upp. Við sölu á afla erlendis lækka aflahlutir um 1,5% á skipum 240 brl. og stærri en hækka um 2% á bátum undir 240 brl. vegna hækkaðrar skiptaprósentu. Þegar fiskiskip selur afla, sem unninn er og frystur um borð, er skiptaverðmætið 70% af fob-verð- mæti skv. frumvarpinu. Þetta hlut- fall er nú 72,25% á frystiskipum, öðrum en þeim sem vinna rækju um borð en þar er þetta hlutfall 68,25%. Hér er því um hækkun að ræða þeg- ar rækja er unnin um borð en lækkun þegar annar afli er unninn um borð. Lokaorð Þegar á heildina er litið er það mitt mat að sú einföldun á sjóðakerf- inu, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, eigi eftir að verða til mikilla hags- bóta fyrir sjómenn þegar til lengri tíma er litið. Við þær breytingar, sem væntanlega verða á sjóðakerfinu, reynir meira á einstök fyrirtæki þar sem ekki verður upp á sjóðakerfið að hlaupa ef illa gengur. Með þessu munu því best reknu fyrirtækin njóta sín, meðan þau lakar reknu heltast úr lestinni. Gangi þetta eftir mun það tvímælalaust auðvelda sjó- mönnum baráttuna fyrir bættum kjörum í framtíðinni. Hólmgeir Jónsson. a „Þegar á heildina er litið er það mitt ™ mat að einföldunin á sjóðakerfinu, sem fi’umvarpið gerir ráð fyrir, eigi eftir að verða til mikilla hagsbóta fyrir sjómenn þegar til lengri tíma er litið.“ TAFLA 1. Hásctahlutur úr 10 tonnum af slægðum þorski fyrir og eftir sjóðakerfisbreytingu. minni báturinn stærri báturinn B B af b27. Vcrðlagsráðsverð m.v. 10 tn. 166.200 kr. 166.200 kr. Verðbætur6% 9.972 " 9.972 " Kostnaðarhl. til skipta 17.451 " 10.803 " Skiptaverð 193.623 kr. 186.975 kr. Skiptahlutfall 28,5% 28,5% 3.806 kr. Hásetahlutur m.v. 14 menn 3.942 kr. Nýtt fiskverð eftir breytingu a) brúttóverð 270.500 kr. 270.500 kr. b) skiptaverð 70,0% af brúttó 189.400 " 189.400 Nýtt skiptahlutfall 29,5% 28,5% Hásctahlutur cftir breytingu 3.991 kr. 3.856 kr. Hækkun % 1.3% 1.3% TAFLA 2. Dæmi um breytingu verð. á fiskverði nokkurra fisktegunda. Miðað er við slægðan 1 . flokks fisk. hæsta Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Loðna Rækja Lágmarksvcrð 16.62 17.91 8.08 7.94 830 31.80 Verðbætur* 1.00 1.02 1.62 1.27 50 0.00 Kostnhl.(6,5%) 1,08 1.11 0.53 0.52 54 2.07 Skiptavcrö 18.70 19.17 10.23 9.73 934 33.87 StofnQársj. 1.66 1.70 0.81 0.79 83 3.18 Kostnhl. (22,5%) 3.74 3.83 1.82 1.79 186 7.16 Bætur Aflatrsj. 1.33 1.36 0.65 0.64 66 2.54 Samtals 25.43 26.06 13.51 12.95 1269 46.75 Nvtt fiskverð 27.05 27.73 14.95 13.55 1351 50.24 Nýtt skiptaverð 70,0% af brúttó 18.94 19.41 9.84 9.49 946 35,17 Bre>-ting skiptav. 1.3% 1.3% -3.8% -2.5% 1.3% 3.8% * Veröbætur á ufsa eru 20#,» i febrúar og mai. en engar i mars og april. Vei-dbietur á karfa eru 16°o. en 6#/o á öðrum botnfisktegundum og loönu og sild. Á ödrum tegundum eru engar verðba‘tur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.