Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 18
18 DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986. íþróttir I þróttir þróttir i þróttir í Iþrótti • Jakob Jónsson skoraði sex mörk fyrir Stavanger. Sveiflur í bik- arnum í Noregi l>að hafa verið sveiflur hjá „íslend- ingaliðunum" í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í hand- knattleik. Síðari icikir liðanna voru á mánudag - úrslit fengust ekki og þarf því þriðja leikinn til í báðum til- fcllum til að fá úr því skorið hvaða lið komast í úrslit um norska meist- aratitilinn. Stavanger IF lék í Skien við Skiens Ball og sigraði, 27-26, eftir að Skiens Ball hafði haft yfir, 15 11, í hálfleik. Kjetil Severeide og Hans Inge Skad- berg voru markahæstir hjá SIF með átta mörk hvor. Jakob Jónsson kom næstur með sex. Sveinn Bragason skoraði eitt mark. I fyrri leik liðanna í undanúrslitum sigraði Skiens Ball, 27-24. Driója leikinn þarf því til og verður hann í Skien. í hinum leiknum í undanúrslitum á mánudag sigraði Urædd Fredens- borg Ski. 29-21, í Porsgrunn. Fred- ensborg, sem Gunnar Einarsson þjálfar, sigraði. 31-27, í fyrri leikn- um. Sama þar, þriðji leikur milli liðanna og verður hann í Porsgrunn. hsím Hlínvarð meistari Hlín Bjarnadóttir, Gerplu, varð ný- lega íslandsmeistari í fijálsum æfingum unglinga í fimleikum. Hlín hlaut samtals 35 stig en íslandsmeist- arinn í kvennaflokki, Hanna Lóa Friðjónsdóttir, varð önnur með 34 stig. Hlín sigraði í þremur greinum af fjórum. Hún hlaut 9,00 í einkunn í stökki, Hanna Iáa varð önnur með 8,80 og í þriðja og íjórða sæti urðu jafnar þær Linda Björk Pétursdóttir og ólöf Ásta með sömu emkunn, 8,80. Hlín sigraði á tvíslá, hlaut 8,55 í einkunn eins og Hanna Lóa sem varð önnur. Linda Björk varð þriðja með 8,05. Hanna Lóa sigraði í æfingum á slá og fékk 8,50 í einkunn. Hlín Bjarna- dóttir varð þar önnur með 8,40 og Lára Sif Óskarsdóttir þriðja með eínkunnina 8,35. Og þriðja sigur sinn á Islandsmót- inu vann Hlín Bjarnadóttir í æfing- um á gólfi þar sem hún hlaut 9,05 í einkunn. Lára Sif varð önnur með 8,85 og Linda Björk þriðja með ein- kunnína 8,80. -SK AmarRíkharðsls- landsmeistari Arnar Ríkharðsson tryggði sér fyr- ir skömmu íslandsmeistaratitilinn í unglingaflokki í billiard en leikið var á billiardstofu Hafnarfjarðar. Atli Bjarnason varð annar og Björgvin Hallgrímsson hafnaði í þriðja sæti. Næsta mál á dagskrá billiardmanna er íslandsmót 1. flokks en það hefst á Ingólfsbilliard á morgun klukkan eUefu fyrir hádegi og er búist við mjög spennandi keppni. -SK Bremen lækkar flugið - tapaði stigi gegn Giadbach í gærkvoldi. Hannover féll í 2. deild Toppliðið í vestur-þýsku knatt- spyrnunni, Werder Bremen, náði ekki að vinna sigur á heimavelli sín- um í gærkvöldi þegar liðið fékk Borussia Mönchengladbach í heim- sókn. Hvort lið skoraði eitt mark. Werder Bremen hafði mikla yfir- burði í gærkvöldi og Frank Neubarth náði forustunni á 64. mfnútu. Hans 20. mark á keppnistímabilinu. Átta mínútum síðar náði Christian Hoch- staetter að jafna metin fyrir Glad- bach. Bremen hefur nú 48 stig eftir 32 leiki, Bayern Múnchen er með 45 stig eftir 31 leik og Gladbach er í þriðja sætinu með 43 stig eftir 32 leiki. Tvær umferðir eru eftir og þar á meðal leikur Werder Bremen og Bayern Múnchen á heimavelli Brem- en. • Hannover féll í 2. deild í gær- kvöldi er liðið náði aðeins marka- lausu jafntefli á heimavelli sínum gegn Eintracht Frankfurt. -SK Robertino langar til íslands Einn besti körfuknattleiksmaður Italíu, Robertino Bertini, hefur mik- inn áhuga á að flytjast til íslands og þjálfa íslenskt félagslið hér og leika jafnframt með því ef slíkt er leyfilegt. Bertini þessi er 195-sentímetrar á hæð og mun leika stöðu bakvarðar og kantmanns. Hann á að baki lands- leiki fyrir Ítalíu og þykir mjög snjall leikmaður. Sem stendur er erlendum Jafntefli HM-liðsAlsír -Belloumi meðáný HM-lið Alsír í knattspyrnunni gerði í gær jafntefli við brasilíska liðið Fluminense frá Ríó í Alsír-borg. Ric- ardo náði forustu fyrir Brassana á 24. mín. Rabah Madjer jafnaði á 33. mín. Áhorfendur 25 þúsund. Lakhdar Belloumi, sem um langt árabil hefur verið besti leikmaður Alsír, lék með landsliðinu á ný eftir árs fjarveru vegna meiðsla. Fótbrotnaði í lands- leik við Líbýu í mars í fyrra. Sýndi það í leiknum að hann mun styrkja HM-lið Alsír mjög í Mexíkó. Þess má geta að Rachid Harkouk hjá Notts County (áður Crystal Palace og QPR) lék ekki að þessu sinni en verður í HM-liði Alsír í Mexíkó. hsím körfuknattleiksmönnum ekki heim- ilt að leika með íslenskum liðum. Þess má geta að Robertino Bertini er giftur íslenskri konu og myndu hjónin flytjast hingað til lands um leið og Bertini mætti leika hér á landi og jafnvel fyrr til að þjálfa. -SK • Pétur Guðmundsson heldur áfram að gera það gott hjá Lakers. í nótt fékk hann tækifæri með La- kers gegn San Antonio og nýtti það vel, skoraði 10 stig og hirti 3 frá- köst. • Robertino Bertini. Hann vill koma til íslands og þjálfa íslenskt félagslið. NAMSKEID A AKRANESI Knattspyrnudeild ÍA heldur al- mennt knattspyrnunámskeið fyrir þjálfara helgina 26.-27. apríl næst- komandi. Aðalkennari verður Jim Barron, þjálfari Skagamanna. Auk þess verða fyrirlestrar um íslenska knattspyrnu fyrr og siðar, um íþróttameiðsl og meðferð þeirra. Námskeiðið hefst kl. 12 laugardaginn 25. apríl. Lýkur kl. 14 á sunnudag. Þátttökugjald er kr. 3000 og þátttöku- tilkynningar þurfa að berast til Harðar Jóhannessonar, sími 93-2243, Jóns Gunnlaugssonar, sími 93-2243, og Harðar Helgasonar, sími 93-2326 (á kvöldin). Góðartölu Pétri Guðm -skoraði 7,3 stig að meðaltali hjá Lak Pétur Guðmundsson körfuknatt- leiksmaður kemur mjög vel út úr tölulegu yfirliti sem nýlega var birt í Bandaríkjunum eftir að deilda- keppninni lauk í NBA körfuboltan- 1 þessu yfirliti (statistik) kemur meðal annars fram að Pétur lék átta leiki með Los Angeles Lakers á keppnistímabilinu í samtals 128 mínútur og skoraði samtals 58 stig eða 7,3 stig að meðaltali í leik sem er afbragðsgóður árangur. Pétur tók alls 37 skot í leikjunum átta og hitti úr 20 þeirra sem gerir 54,1% nýtingu sem er þriðja besta nýting hjá Lakers í vetur. Pétur fékk 27 víti og hitti úr 18 sem gerir 66,7% nýtingu sem er í meðallagi. Hann náði 17 varnarfráköstum og 21 sóknarfrákasti eða samtals 38 frá- köstum. Athygli vekur að Pétur nær fleiri sóknar- en varnarfrá- köstum. Hann gaf þrjár sendingar sem gáfu körfu, hlaut í allt 25 vill- ur og einu sinni 6 villur í leik og varð þá að víkja af leikvelli. Þrí- Jafntefli PSG og Bordeaux Paris Saint Germain, sem senni- lega verður franskur meistari í knattspyrnunni í kvöld í Metz, tókst ekki að sigra Bordeaux í fyrri leik lið- anna i undanúrslitum frönsku bikarkeppninnar á miðvikudag á lei- kvelli sínum í París. Jafntefli varð, 1—1, þrátt fyrir þunga sókn París SG lengstum í leiknum. Senegalmaðurinn Omar Sene náði forustu fyrir PSG á 13. mín. Hann hefur skorað í hverjum leik að und- anförnu. Fleiri urðu ekki mörk liðsins í leiknum þrátt fyrir allgóð færi. Bordeaux, Frakklandsmeistar- ar tvö síðustu árin, tókst að jafna á 35. mín. Þjóðverjinn Uwe Reinders skoraði. Bordeaux lék án frönsku landsliðsmannanna þekktu, Alain Giresse og Bernard Lacombe. Liðin leika síðari leikinn í undanúrslitum í Bordeaux á þriðjudag. ; Edbergvann Ivan Lendl i T I I Marseilles, sem oftast hefur sigrað í frönsku bikarkeppninni, lék á heimavelli gegn Rennes og sigraði, 1-0. Eina mark leiksins skoraði Antoine Martinez, fyrr- um leikmaður Bordeaux, beint úr aukaspyrnu á 23. mín. Síðari leikur lið- anna í undanúrslitum verður einnig á þriðjudag í Rennes. Michel Hidaígo, sem gerði franska landsliðið að stórveldi á ný í alþjóðlegri knattspyrnu, tekur al- veg við stjórninni hjá Marseilles í sumar en síðustu vikurnar hefur verið hjá félag- inu og er eflaust maðurinn bak við velgengni Marseilles á þeim tíma. hsím I I' I _ Stefan Edberg, sem nú er senni- ■ I lega orðinn bestur ungu, sænsku I tennisleikaranna, gerði sér lítið | ■ I Olympia í 1. deildina 'I I I fyrir í gær og sigraði Ivan Lendl, Ibesta tennisleikara heims, í I keppni í Tokýo. Sigraði í tveimur * I lotum, 6-3 í báðum. Edberg varð | * ástralskur meistari i tennis fyrst ! | á árinu. Hann er nú talinn fimmti | J besti tennisleikari heims sam- ■ z kvæmt skrá alþjóðatennissam-1 I bandsins. Lendl, John McEnroe, | IMats Wilander og Boris Becker i raðað á undan honum. Tveir aðr- I Iir Svíar meðal 10 bestu, Joakim I Nyström sjötti og Anders Jarryd ■ | áttundi. hsím | I I IFrá Gunnlaugi A. Jónssyni, | fréttamanni DV í Svíþjóð. | Olympia, sænska handknatt- I leiksliðið, sem Brynjar Harðar- | I I I son lék með í vetur, tryggði sér : Ií vikunni sæti í 1. deild næsta I keppnistímabil með sigri á Al- * I ingsás. Sigraði, 36-26, og í þeim I Isænskum blöðum þar sem ég hef I séð frásagnir af leiknum var sagt ! I að Brynjar hefði verið besti leik- | maður Olympia eins og oftast í > I vetur. Hann skoraði sjö mörk í | Ileiknum. Þá varð Olympia einnig ■ Skánarmeistari fyrr á leiktíma-1 ■ bilinu. hsím g 100 Frakkartil íslands Frakkar virðast hafa mikinn áhuga á Evrópuleiknum gegn ís- Icndingum í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvelli i sum- irmsmsm nasi J L : KKfifii HBHð l J L Fyrir skemmstu voru hér tveir | af forráðamönnum franska | landsliðsins að líta á aðstæður I og skoðuðu þeir meðal annars ■ Laugardalsvöllinn og könnuðu I aðstæður á hótelum höfuðborg- * arinnar. | Með franska landsliðinu hing- _ að til lands koma margir stuðn- | ingsmenn þess og er reiknað með ■ því að þeir verði um eitt hundrað. I ' -SK. | msm mmm wam æ ama tmsa bsbb i • Símon Ólafsson skoraði 9 fyrstu í Portúgal er Joao Seica, einn leiðinli komið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.