Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Qupperneq 28
Andlát
Utvarp_____________Sjónvarp
Það var nú mest lítið sem ég heyrði
af útvarpsdagskránni i gær, ég
hlusta mjög lítið á útvarp, já, nánast
ekki neitt. Það er aðeins þáttur Sig-
urðar Sverrissonar, Bárujám, á rás
tvö á laugardögum. Hann er eigin-
lega eini þátturinn sem ég hlusta
virkilega á, ég er meira fyrir sjón-
varpið. En í gær fór ekkert fyrir
því, svo ég fór að glápa á vídeó og
sá einhverja spennumynd, það var
ágætis mynd sem ég man ekki hvað
heitir.
Ég horfði á dagskrána á miðviku-
daginn - úr því Ólafur Þórarinsson
hafði ekki séð neitt af henni ætla
ég að segja að Nýjasta tækni og vís-
indi finnst mér voðalega þreyttur
Ymislegt
Leikrit Shakespeares
í þýðingu Helga Hálfdanarsonar
4. bindi komið út
Ekki er vafi á því að þýðingar
Helga Hálfdanarsonar á öllum leik-
ritum Williams Shakespeare, 37 að
tölu, eru eitthvert glæsilegasta þýð-
ingarafrek sem unnið hefur verið á
íslensku fyrr og síðar. Þessar framúr-
skarandi þýðingar eru nú að koma
út í 8 bindum hjá Almenna bókafé-
laginu og er 4. bindið nýkomið út.
Þau 4 bindi, sem eftir eru í flokknum,
koma út á næstu 2-3 árum.
Þær Shakespeares-þýðingar Helga,
sem áður hafa verið prentaðar, eru
endurskoðaðar í þessari nýju útgáfu
og allmikið breyttar. Þessi eina gerð
þýðinga Helga er leyfileg til notkun-
ar í leikhúsum og á prenti.
Leikritin í þessu 4. bindi eru harm-
leikirnir sem Shakespeare samdi á
tímabilinu 1604-8 og byggjast þeir
fyrstu á ævisögu Plutarks, þ.e. Kor-
íólanus, Júlíus Sesar og Anton og
Kleopatra, og gerast allir í Róm og
grennd, og svo er hér Óþelló sem
gerist í Feneyjum og fjallar um
Óþelló, hinn göfuga Mára í þjónustu
Feneyjaríkis, Desdemónu, konu
hans, og illmennið Jago.
Með þessu bindi eru komin út 16
af þeim 37 leikritum sem Shakespe-
are samdi, þ.e. konungaleikritin öll
(í 1. og 2. bindi) og Rómeó og Júlía,
Hamlet, Lér konungur og Makbeð í
3. bindi. Þýðingar hinna leikritanna
Afmæli
DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986.
Indriði sextugur
Sextugur er í dag Indriði G. Þor-
steinsson rithöfundur. Hann fæddist
18. apríl 1926 að Gilhaga í Lýtings-
staðahreppi í Skagafirði, sonur
hjónanna Þorsteins Magnússonar og
Önnu Jósepsdóttur.
Á unglingsárum dvaldist Indriði á
Akureyri og gerðist þar verslunar-
maður og bifreiðastjóri. Blaðamaður
í Reykjavík varð hann 1951, fyrst á
Tímanum, síðan á Alþýðublaðinu og
loks aftur á Tímanum og þá sem rit-
stjóri. Árið 1974 varð hann fram-
kvæmdastjóri þjóðhátíðarinnar, sem
haldin var það ár.
Kunnastur er Indriði þó sem rit-
höfundur. Fyrsta rit hans, Sæluvika,
smásagnasafn, kom út 1951. Sjötíu
og níu af stöðinni, sem síðar var
kvikmynduð, kom út 1955. Síðan
hefur hver bókin rekið aðra, svo sem
Land og synir, sem einnig var kvik-
mynduð. Síðustu árin hefur Indriði
sinnt mjög kvikmyndum og fjölmiðl-
um og er einn helstu eigenda Isfilm.
Kona Indriða er Þórunn Friðriks-
dóttir, skólastjóra Sjómannaskólans,
Ólafssonar. Þau eiga uppkomin börn.
Guðmundur Hannes Hannesson, nemi MH:
Bávujám eini þátturinn
þáttur. Svo horfði ég á Á hðandi
stundu, sem er ágætis þáttur, það
er að segja: Ég held að hann gæti
verið það - miklu betri - ef...Ag-
nes Bragadóttir væri ekki. Hún er
svo voðalega frek og leiðinleg finnst
mér.
Hótel er bandarísk þvæla í Dall-
asstíl sem er allt í lagi að horfa á
einstöku sinnum. Að lokum vil ég
taka fram að ég horfi yfirleitt á ungl-
ingaþætti nú orðið. Þeir eru ágætir,
þó þeir séu allir mjög svipaðir. En
það er nú reyndar svo að ég hef
bæði ákaflega lítinn tíma og sömu-
leiðis áhuga á að dvelja yfir þessum
fjölmiðlum, útvarpi og sjónvarpi.
-JSÞ
Þórunn Jóhannesdóttir lést 9. april
sl. Hún fæddist 22. september 1899 í
Lambhaga í Mosfellssveit. Foreldrar
hennar voru hjónin Ragnhildur
Steinunn Þórðardóttir og Jóhannes
Þorláksson. Þórunn var tvígift. Fyrri
maður hennar var Bjarni Jóhann
Bogason, en hann lést árið 1938.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið. Seinni maður Þórunnar var
Jón Bjarnason, lést hann árið 1978.
Utför Þórunnar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Jóhannes Hleiðar Snorrason, Klapp-
arstíg 1, Njarðvík, andaðist í Borg-
arspítalanum miðvikudaginn 16.
apríl.
Sigríður Ólafsdóttir, Narfakoti,
Njarðvík, verður jarðsungin frá Inn-
ri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn
19. apríl kl. 13.30.
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
ALLIANCE FRANCAISE
Seinni námskeið vorannar hefjast
mánudag 21. apríl.
- 8 vikna námskeið
- Kennt verður á öllum stigum
- Bókmenntaklúbbur (10 vikur)
Innritun fer fram á bókasafni Alliance Francaise alla
virka daga frá kl: 3-7 og hófst fimmtudag 10. apríl.
Nánari upplýsingar í síma 23870.
Veittur er 10% staðgreiösluafsláttur og 15% stað-
greiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
£□£□□□□ □[!!□□□ □ □
r) x’ i m uwi,I\\ \ «•—-
□
□
□
0
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
iiamx
§232
I
iw
Biaðbera vantar
Ránargata
Bárugata
STRAX
Vortónleikar Karlakórsins
| Stefnis
.Karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit
heldur sína árlegu tónleika í Fólk-
vangi, Kjalarnesi, þriðjudaginn 22.
apríl kl. 20.30 í Hlégarði, Mosfells-
sveit, fimmtudaginn 24. apríl og
sunnudaginn 27. apríl, báða dagana
kl. 20.30. Efnisskráin er fjölbreytt að
vanda. Söngmenn úr röðum kórfé-
laga syngja einsöng. Stjórnandi
Karlakórsins Stefnis er Helgi R. Ein-
arsson en undirleikari er Guðni Þ.
Guðmundsson.
Bræðraborgarstígur g
Holtsgata □
KÓPAVOGUR:
Sæbólsbraut
Marbakkabraut
Hraunbraut
Kársnesbraut 1—39
Frjálst.oháÖ dagblaö
AFGREIÐSLA n
Þverholti 11 - Sími 27022 Ll
Gjöf til Slysavarnaskóla
sjómanna
Stjóm Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands ákvað nýverið á
fundi sínum að afhenda Slysavarna-
félagi Islands kr. 250 þúsund tii
Slysavarnaskóla sjómanna sem verið
er að koma á fót um borð í v/s Þór.
Þar um borð er unnið að ýmsum
breytingum til að skapa sem besta
aðstöðu, bæði til bóklegrar kennslu
og verklegrar þjálfunar er lýtur að
öryggismálum sjómanna. í byrjun
maí nk. er ráð fyrir gert að nauðsyn-
legum breytingum verði lokið um
borð í skipinu þannig að námskeið
um öryggismál sjómanna geti farið
þar fram.
liggja allar fyrir og munu koma út á
næstu 2-3 árum. 4. bindið er alls 472
bls. Safnið er gefið út í sérstökum
bókaflokki Almenna bókafélagsins
sem nefnist Úrvalsrit heimsbók-
menntanna. Annað sem komið hefur
út í þeim flokki er Don Kíkóti i þýð-
ingu Guðbergs Bergssonar.
Utliti Shakespeareleikritanna hef-
ur Hafsteinn Guðmundsson ráðið en
bækurnar eru unnar í Prentsmiðj-
unni Odda.
18 apríl er alþjóðadagur radíó-
amaöra
Þann dag voru alþjóðasamtök þeirra,
IARU, stofnuð í París árið 1925. Rad-
íóamatörar hafa tekið próf í morsi
og radíótækni og mega stunda rad-
íósambönd sín á milli á sérstökum
bylgjum. Margir þeirra stunda ýmiss
konar tilraunir í radíótækni og sjálf-
mennta sig á því sviði. Radíóamatör-
ar geta dags daglega rætt á heimilum
sínum við félaga sína víðs vegar um
heiminn. Þannig geta þeir brúað bil
stjórnmálaskoðana, trúarbragða,
kynþátta, kynslóða, stétta og fjar-
lægða á sérstæðan hátt, sem vart á
sér hliðstæðu á öðrum vettvangi.
Félagið „íslenskir raíóamatörar“
(Í.R.Á.), sem er hið íslenska aðildar-
félag í IARU, var stofnað árið 1946
og er því 40 ára á þessu ári.
Félag einstæðra foreldra
Munið að tilkynna þátttöku á árs-
hátíðina fyrir mánudaginn 21. apríl
nk.
Námsmeyjar - Löngumýri
veturinn ’65-’66.
Hafið samband í tilefni 20 ára af-
mælis við eftirtaldar: Viddý s. 74800,
Elfa s. 622269, Dóra s. 82896, Ellen
s. 671028 eftir kl. 20 sem allra fyrst.
Aðalfundur Múrarameistara-
félags Reykjavikur
var haldinn að Skipholti 70 föstudag-
inn 11. apríl. Fram kom að afkoma
félagsins er góð. Fráfarandi formað-
ur, Þórður Þórðarson, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs og voru honum
þökkuð góð störf í þágu félagsins.
Þá fór fram stjórnarkjör og er stjórn-
in þannig skipuð: Friðrik Andrésson
formaður, Björn Kristjánsson vara-
formaður, Páll Þorsteinsson ritari,
Viðar Guðmundsson gjaldkeri og
Einar Einarsson meðstjórnandi.
Varastiórn Þórarinn Hrólfsson,
Gylfi Ó. Héðinsson og Guðjón Þor-
valdsson.
Fundir
Bræðrafélag Bústaðasóknar
heldur fund mánudaginn 21. apríl í
safnaðarheimili Bústaðakirkju og
hefst hann kl. 20.30.
Kvenfélag Neskirkju
heldur fund nk. mánudagskvöld kl.
20.30 i safnaðarheimilinu.
Soffia G. Vagnsdóttir frá Hesteyri,
Sléttuhreppi, lést á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund 15. apríl sl.
María Guðmundsdóttir frá Mýrar-
koti, Grímsnesi, Ártúni 13, Selfossi,
lést sunnudaginn 13. apríl sl. Útförin
fer fram frá Selfosskirkju laugardag-
inn 19. apríl kl. 11.
Útför Ásu Emmu Magnúsdóttur, 111-
ugagötu 71, Vestmannaeyjum, sem
lést 13. apríl, verður frá Landakirkju
Vestmannaeyjum laugardaginn 19.
apríl kl. 16.
Auður Erla Albertsdóttir og Erla
Björk Pálmarsdóttir, sem létust aí
slysförum laugardaginn 5. apríl sl.,
verða jarðsungnar frá Isafjarðar-
kirkju laugardaginn 19. apríl kl. 14.
Elín Skaftadóttir, Sörlaskjóli 56,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 21. apríl kl. 10.30.
Tapað-Fundið
Páfagaukur fannst
Ljósblár páfagaukur fannst við
Kópavogsskóla á miðvikudagskvöld-
ið sl. Eigandi er vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma 45806.