Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Síða 32
44
DV. FÖSTUDAGUR 18. APRll. 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Olyginn
sagði...
Madonna
var beðin um að koma fram á
tónleikunum Live Aid II sem verða
haldnir með baráttu gegn vimu-
efnaneyslu á oddinum. Sú góða
kona hafði engan áhuga á mál-
efninu og er nú leitað að annarri
slikri súperstjörnu - kvenkyns -
sem hugsanlega vildi berjast
gegn eiturvágestinum meðal ung-
menna.
Patti Davis
seldi fyrstu bókina sina í níutíu
þúsund eintökum á fyrstu þremur
dögunum og núna er þriðja prent-
un á leiðinni. Vinsældirnar eru
aðallega þvi að þakka að í bók-
inni fjallar hún um einkamál
foreldra sinna - sem eru Nancy
og Ronald Reagan. Hún vill ólm
skrifa aðra bók og það er vonandi
að kúrekinn hangi lengur í emb-
ætti svo dóttirin geti setið skáld-
fákinn um sinn.
Paula Ciccione
Madonnusystir vill ólm verða
stjarna. Hún syngur af krafti í New
York og stundar þar fyrirsætustörf
meðal beðið er að fylgihnöttur
frægðarinnar nema staðar yfir
kollinum á henni.
.
Fyrstu suiukv ©nusskt 6tin
Yngsta kynslóðin skemmti sér hið besta á
grímudansleik Dansskóla Auðar Haralds
sem haldinn var í Hollywood fyrir skömmu.
Þarna stigu margir smávaxnir sín fyrstu
skref í samkvæmislífinu og höfðu nánustu
vinina þétt við hlið. Enda vissara að hætta
sér ekki á hálan ís svona í upphafi ferilsins.
Fyrstu skrefin eru oft erfið og
betra að hafa einhvern annan
sér til halds og trausts.
Eins og tveir vatnsdropar.
Tom Petty
þurfti að leggja i hljómleikaferð en þjáðist af heimþra á
sama tima. Samherji hans sagði það ekkert vandamál að
leysa úr bráðum vanda, halda bara hljómleikana á heima-
slóðum. Því erTom alsæll að pakka niður í töskurnar, kúrsinn
tekinn á Nýja-Sjáland og partnerinn, sem er goðið Bob Dyl-
an, lætur sér vel líka. Þannig að þeir sem vilja sjá Dylan i
aksjón verða að heimsækja andfætlinga okkar hinum megin
hnattarins.
Mam Mafían -
Frank Sinatra er í öngum sínum vegna bókar sem skrif-
uð hefur verið um fartíð hans þar sem móðirin er mikið
í sviðsljósimt. Málaferli sem höfðuð voru til þess að
stöðva útkomuna urðu árangurslaus og nú er þess
beóið með eftirvæntingu að hryilingurinn um
imæsku söngvarans og uppeldi líti dagsins ljós.
Sitthvað hefur þegar kvisast og þá aðallega
tengt hinni aðsópsmiklu Dolly móður hans
sem var af gömlu ítölsku gerðinni. Stjómaði
eiginmanni og syni með harðri hendi og
kunnugir segja hana hafa ráðið bókstaf-
lega öllu um framgang söngvarans.
„Frankie þurfti aldrei á Maftunni
að halda,“ segir einn vinur hans bit-
ur. „Hann hafði mömmu gömlu og
það var meira en nóg.“ Sá góði
maður neitaði eitt sinn Dolly
um greiða og hún notaði pólit-
ísk sambönd tii þess að boia
öllum plötum hans af spila-
listum útvarpst vöðv-
anna. Sömu samböndin
útveguðu föðurnum
Anthony vinnu og
komu Frank áfram-
Frank Sinatra - þegar
orðinn frægur- með
foreldrum sinum,
Dolly og Anthony, á
gullbrúðkaupsdaginn
1964.
Doliy mamma með gítar í efri röð
og sonurinn Frank sitjandi yst til
hægri.
færi sem
skeramti-
krafti. „Hún var
hræðilega frek og
drykkfelld, orðbragðið
ítalska, sem notað var við
sum tækifæri, er nokkuð sem
ekki er hægt að hafa eftir,“ segir
annar gamall vinur. „En samt var
þetta ágætiskerling."
Sögur herma að hún hafi ekki haft miklar
áhyggjur af syninum þegar hann var yngri, kom-
ið honum í fóstur svo mánuðum skipti og eftir að
hann stækkaði var allt á sömu bókina lært.
„Frankie var alltaf einn,“ er haft eftir Nancy, systur hans,
og fleiri taka í sama streng. En söngvarinn þolir ekki umta-
lið um móðurina og reynir ennþá að stoðva útkomu
bókarinnar þrátt fyrir litla von um árangur.
Kate Burton
gjst hafa elskað föður sinn í gegnum tíðina þrátt fyrir
lislegt rangt sem hann gerði að hennar mati. Þessi dóttir
:hards og Sybil Burton lætur hafa eftir sér aö líf hins fræga
)ur hafi verið ein kennslustund í þvi hvernig ekki á að
rja lífinu. „Hann var eins og gullfiskur i keri sem aldrei
mst upp úr til þess að taka eigin sjálfstæðar ákvarðanir.
ð mun ekkí henda mig, ég lærði af mistökum hans.“
ite er sagnfræðingur að mennt en sneri síðar við blaðinu,
rði líka leiklist og starfar við listina síðan.
m