Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Blaðsíða 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986.
Peningamarkaðurinn
innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnurcikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjömu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafhvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja. mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum,- 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
hætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun e;
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn veröbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 -4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóöa
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 1S-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
•10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel örðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir em frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun. um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21 .-30.04. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM — 1 !i
SJÁ SÉRLISTA il 11 ll ií ii íi !l II t!
INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
SPARISJÚDSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsögn 10.0 10.25 10,0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6mán. uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0
12 mán.uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR- LÁNSRÉTTUR Sparaft J-5 mín. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.6mán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avísanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁNVERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán. uppsögn 3.5 3.0 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.5 7.0 6.5 7.5 7.0 7.0 6.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5 10,5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 8.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLAN ÓVERÐTRYGGÐ ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15,25 15,25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextír) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15,5 15,5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20.0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
útlAn VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21 /2 árí 4.0 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
útlAntilfraivileiðslu sjAneðanmAlsi)
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur-
þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%,
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta-
skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim
bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Fimm milljónir í
hagnað hjá Brunabót
4,9 milljóna króna hagnaður varð
af rekstri Brunabótafélags Islands á
síðasta reiknisári en það er betri
útkoma en á árinu 1984. Það ár varð
tap á rekstrinum upp á tæpar 18
milljónir króna.
Iðgjöld hækkuðu um 36,9% frá ár-
inu áður og námu þau 485 þúsund
krónum. Heildartjónagreiðslur á ár-
inu námu 336 þúsund krónum.
Mestar urðu tjónagreiðslur í bif-
reiðatryggingum en á árinu urðu
ekki neinir stórir brunar.
Stjórn Brunabótafélagsins ákvað
að veita eftirtöldum einstaklingum
heiðurslaUn Brunabótafélagsins en
fjölmargar umsóknir bárust: Helgi
ívarsson, slökkviliðsstjóri í Hafnar-
firði, og Hrólfur Jónsson, vara-
slökkviliðsstjóri í Reykjavík, hlutu
saman heiðurslaun í 3 mánuði, Karl
Þorsteins, alþjóðlegur skákmeistari,
hlaut heiðurslaun í 2 mánuði, Lára
G. Oddsdóttir, fulltrúi á ísafirði,
hlaut heiðurslaun í 3 mánuði í því
skyni að kynna sér erlendis fræðslu
í umhverfismálum og náttúruvemd,
Óli Valur Hansson skógræktarmað-
ur hlaut heiðurslaun í 2 mánuði og
Sigríður Ásgeirsdóttir myndlistar-
maður hlaut heiðurslaun í 2 mánuði.
-EH
Þeir sem hlutu heiðurslaun B.í ásamt fors.töðumönnum og stjórnarmönnum félagsins. í fremri röð frá vinstri:
Valur Hansson, Hrólfur Jónsson, Lára G. Oddsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Karl Þorsteins og Helgi fvarsson.
Þín verðgæsla-vöm gegn verðhækkunum“
Verðkönnun
í Ámessýslu
f kjölfar kjarasamninga ákváðu
launþegasamtökin, þ.e. ASÍ og BSRB,
að beita sér fyrir auknu verðlagseftir-
liti í samvinnu við Neytendasamtökin
undir kjörorðunum „Þín verðgæsla".
Aðildarfélög þessara samtaka munu
fá senda vörulista reglulega með hin-
um ýmsu vörutegundum og verða
verðkannanir á vegum þessara aðila
gerðar um allt land.
f samræmi við þessa ákvörðun gerðu
launþegasamtökin í Ámessýslu og
Neytendafélag Selfoss og nágrennis
nýlega með sér samkomulag um að
standa sameiginlega að verðgæslu og
verðkönnunum í Ámessýslu. f sam-
komulaginu er gert ráð fyrir að
verðkannanir verði gerðar reglulega,
bæði á vörum og þjónustu, og að þær
verði birtar í héraðsblöðum og dag-
blöðum. Ætlunin með þessu er að efla
verðskyn neytenda svo og að veita
þeim sem selja vöm og þjónustu að-
hald. (Fréttatilkynning)
Verðkönnunin sem hér bhtist var
gerð mánudaginn 21. apríl sl. og tók
til 15 verslana á Selfossi, Hveragerði,
Eyrarbakka, Höfti i Homafirði, Þor-
lákshöfn og Stokkseyri. Mestur munur
á sömu vöm var 70% á kartöflum,
lægsta verð 30,- krónur en það hæsta
51,- króna. Minnstur reyndist munur-
inn vera á flatkökum, eða 6,3%.
-S.Konn.
KÖNNUN VERÐLAGSSTOFNUNAR VERÐCÆSLA VERE
Vörutegundir Algengt verð í kjörbúðum á höfuðb.svæðinu Algengt verð í stórmörkuðum á höfuðb.svæðinu Nafn á búð: Vöruh.KÁ Nafn á búð: Höfn h.f. Nafn á búð: Hornió Nafn á búð: Ká Laugarv Nafn á búð: KÁ Eyrarb.
Kjötfars nýtt 1 kg 195 kr. 170 kr. 193.00 178.00 178.00 193.00 193.00
Kindabjúgu 1 kg 285 kr. 285 kr. 285.00 225.00 280.00 285.00 290.00
Niðursn. svínask. pókkuð 1 kg 684 kr. 687 kr. 784.90 * 677.00 x 672.00 797.00 784.90
Karlóflur lkg poki 48 kr. 46 kr. 46.90 34.50 48.80 48.30 42.90
Hvítkál 1 kg 34 kr. 34 kr. 39.00 33.00 39.00 49.00
Afrúrkur 1 kg 228 kr. 150-205 kr. 96.00 91.00 85.00 108.00 110.oo
Ota haframjöl 475 gr 41 kr. 40 kr. 42.15 41.95 43.95 42.20 42.15
Flatkókur I pk. 27 kr. 25 kr. 27.10 ?fi . 25 27.10 27.00
Frón kremkex, venjulegt 1 pk 54 kr. 49 kr. 54.00 55.50 55.50 fifi.nn 53.60
Gunnars majones 400 gr 59 kr. 55 kr. 58,50 56.40 60.70 58.50 58.45
Royal karamellubúðingur 1 pk. 27 kr. 25 kr. 25,95 25.90 27.95 28.20 28.20
Sanítas iarðarberjasulta 410 gr 87 kr. 80 kr. 74.15 89.70 76.70
S'iius átsúkkulaði 100 gr 62 kr. 62 kr. 59.00 55.00 62.00 62.00 43.00
Prins Póló súkkulaðikex stórt 24 kr. 23 kr. 22.00 24.00 24.00 23.00
Opal pakki 1 pk. 20 kr. 20 kr. 20.00 20.00 20.00 20.00 20.00
Brjóstsykur frá Nóa, Pralín 24 kr. 24 kr. 24.00 22.00 24.00 24.00
Coca cola. innihald 100 d 49 kr. 49 kr. 51.00 51.00 53.00 51.00
Egils appelsín innihald 25 d 15 kr. 15 kr. 16.00 1 6 nn 17.00 17.00 16.00
Sanítas pilsner innihald 33 d 29 kr. 29 kr. 30.00 30.00 33.00 33.00 30.00