Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Blaðsíða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986.
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Kjamorkuverið á Þriggja mílna-eyju, þar sem eitt mest umtalaða slysið
varð á Vesturlöndum.
Slys í kjarnorku-
iðnaði bæði aust-
anogvestantjalds
Slysið í sovéska kjamorkuverinu, sem er á allra vörum í dag, er það
nýjasta af mörgum óhöppum, sem orðið hafa bæði austan tjalds og vestan
síðan kjamorkuvæðingin hófst fyrir þrjátíu árum. Þeirra á meðal vom
þessi:
1957 - Versta slysið í kjamorkuiðnaði Vesturlandabúa varð í Windscale-
verinu breska sem nú er kallað Sellafield. Eldur eyðilagði kjamann í öðr-
um tveggja kjamakljúfa, sem framleiða plútóníum, og orsakaði mikinn
geislaleka út í andrúmsloftið. Mörgum árum síðar viðurkenndu yfirvöld
að geislamengunin kunni að hafa valdið tylft krabbameinsdauðsfalla.
1957-8 - Að mati vestrænna sérfræðinga varð þennan vetur alvarlegt
slys hjá Sovétmönnum skammt frá borginni Kyshtym í Úralijöllum. Rúss-
neski erfðafræðisérfræðingurinn, Zhores Medvedev, sem fyrstur sagði frá
slysinu, telur að hundmð hafi látist af völdum geislaeitrunar eftir spreng-
ingu í verinu. Stórt svæði umhverfis borgina lagðist í eyði og telja vestrænir
sérfræðingar að enn gæti þar geislamengunar.
1975 - Eldur kom upp í stjómherbergi Browns Ferry-kjamorkuversins
við Aþenu í Alabama.
1979 - Versta kjamorkuslys Bandaríkjamanna varð við verið á Þriggja
mílna eyju við Harrisburg í Pennsylvanía. Þar bráðnaði að hluta einn
kjamaofninn og leiddi til geislaleka út i andrúmsloftið. íbúar nærliggj-
andi svæðis neyddust til þess að flýja heimili sín. - Umræðan sem fylgdi
í kjölfarið hafði lamandi áhrif á bandaríska kjanorkuvæðingu sem hefúr
ekki borið sitt ban- síðan.
1983 - Sellafield-verið breska komst aftur í fréttimar eftir að sleppt hafði
verið af slysni geislavirkum úrgangi í Irlandshaf. Fólki var ekki talið
óhætt að ganga um strendur.
Moskva gengst
við kjarnorkuslysi
og manntjóni
Sovétríkin hafa viðurkennt að slys
hafi orðið við eitt af kjamorkuvemn-
um þar í landi og að það hafi orðið
manntjón. Greindi Tass-fréttastofan
' stuttlega frá því í gærkvöldi að einn
af kjamaofhunum í Chemobyl-verinu
skammt frá Kiev hefði bilað, en ekki
var sagt nákvæmlega hvenær.
Jafhframt var sagt að ráðstafanir
hefðu verið gerðar til að hjálpa hinum
slösuðu og ennfremur að stjómskipuð
nefnd mundi rannsaka orsakir slyss-
Geislamengun á Norðurlöndum
Snemma í gærdag var tilkynnt á
Norðurlöndunum að þar mældist
Óvenjulega mikil geislamengun. í
fyrstu kom mönnum í hug sænskt
kjamorkuver, en það reyndist ekki
vera, svo að menn tók að gruna að
slys hefði orðið í Sovétríkjunum. Af
geislamenguninni sýnist mönnum að
þama hafi orðið stórslys því að geisla-
mengunin mældist ámóta og þegar
tilraunir vom gerðar með kjama-
sprengjur í andrúmsloftinu.
Sórfræðingar í Moskvu segja að ekki
sé ástæða til neins uggs á Norðurlönd-
unum en við flestum blasir að ástandið
hlýtur að vera mjög alvarlegt við
Chemobyl sem er smáþorp skammt
norður af Kiev. - f Kiev og næsta
nágrenni búa um 3,5 milljón manna.
Óvenjulega opinskáir
Tony Barber, fréttamaður Reuters,
kom til Moskvu frá Kiev í gærkvöldi
og sagði að borgarbragurinn hefði
virst með eðlilegum hætti.
Sovéskir fjölmiðlar nefndu kjam-
orkuslysið ekki einu orði í morgun en
Tass-fréttaskeytið í gærkvöldi þykir
bera vott um óvenjulega opinskáa af-
stöðu sovéskra yfirvalda og í anda
hinnar nýju stefnu Gorbatsjovs um
meiri hreinskilni í ótíðindum. Tass
birti ennfremur lista yfir nýju kjam-
orkuslysin á Vesturlöndum.
Fréttastofan uppástóð að þetta væri
fyrsta slíka slysið í Sovétríkjunum.
Vestrænir sérfræðingar eru hins vegar
á því að meiriháttar slys hafi orðið i
Úralfjöllum seint á sjötta áratugnum,
þar sem stórt svæði umhverfis borgina
Kyshtym hafi breyst í auðn.
Ekki eins rammbyggi-
leg kjarnorkuver
Sérfræðingum kemur helst í hug að
kjamakljúfurinn í Chemobyl-verinu
hafi bráðnað algerlega en aðrar minni
bilanir gætu samt hafa valdið þetta
miklum leka. Þeir telja að kjamorku-
ver í Sovétríkjunum séu ekki eins
rammbyggilega úr garði gerð og á
Vesturlöndum og því geti bilanir þar
valdið stærri vanda.
Sovétmenn, sem eiga við erfiðleika
að etja í olíuframleiðslunni, hafa áætl-
anir um aukna kjamorkuvæðingu
fram til ársins 2000. Kjamorka sér
fyrir 10% af orkuþörf Sovétmanna.
Um 30 kjarnorkuver
Mikil leynd ríkir um kjamorkuáætl-
anir og fjölda kjamorkuvera í landinu.
Sérfræðingum reiknast samt til að þau
muni ekki færri en þrjátíu. Samtök
um umhverfisvemd og andstæðinga
kjamorku finnast ekki í Sovétríkjun-
um. Þó gekkst Kremlstjómin í fyrra
inn á að leyfa alþjóðlegri nefhd að
skoða öryggisbúnað í tveim kjarn-
orkuvera Sovétmanna.
Novska stjórnln riðar til falls
Björg Eva Eriendsdóttir, fréttaritari
DV í Osló:
Trúlega mun minnihlutastjómin hér
í Noregi biðjast lausnar frá störfu eft-
ir fund í stórþinginu i dag.Kare
Willoch forsætisráðherra lagði í gær-
kvöldi fram síðasta tilboð ríkisstjóm-
arinnar til málamiðlunar í sambandi
við fjárhagsáætlun norska ríkisins, en
Verkamannaflokkurinn sagði nei.
Síðustu vikur hefur stórþingið lagt
Vilja rannsókn á kjam-
orkuáætlun Sovétmanna
mikla vinnu í að komast að samkomu-
lagi um fjárhagsáætlunina og spamað
er henni þarf að fylgja. Hægristjómin
hefur komið til móts við stjómarand-
stöðuna á ýmsum sviðum en Gro
Harlem Brundtland, formaður Verka-
mannaflokksins tilkynnti eftir fund
flokksins seint í gærkvöld að Willoch
hefði ekki gengið nógu langt og
Verkamannaflokkurinn gæti ekki
sætt sig við tillögumar.
Ef stjómin fer frá ríkir alger upp-
lausn á norska stórþinginu. Þó að
hægristjómin sé minnihlutastjom, er
samt hægri meirihluti til staðar á
þinginu. Willoch ætlar, ef hann leggur
uppsagnarbréf sitt fyrir konunginn í
dag, að leggja til að formaður Verka-
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
Geislavirk ský komu inn yfir alla
Skandinavíu í gær í kjölfar kjamorku-
slyssins í Úkraníu. í fyrstu var ekkert
vitað um uppmna geislavirkninnar,
en það var klukkan sjö í gærmorgun
sem óvenjulega há geislavirkni mæld-
ist við kjamorkuverið í Fossmark í
Svíþjóð. Yfir 600 starfsmenn versins
vom þegar í stað fluttir á brott. En
fljótlega bárust fréttir af því að geisla-
virkni hefði mælst viðar í landinu og
einnig í Noregi og Finnlandi.
Hafði geislavirkni raunar mælst
kvöldið áður í Finnlandi en ekki verið
skýrt frá því opinberlega.
Þó geislavirknin í Skandinavíu væri
sögð að minnsta kosti sex sinnum yfir
eðlileg mörk lögðu sérfræðingar á það
áherslu að heilsu fólks stafaði ekki
hætta af geislavirkninni. Fljótlega
bámst böndin að Sovétríkjunum og
töldu sænskir sérfræðingar meðal
annars með tilliti til vindáttarínnar
og hve geislavirknin væri mikil yfir
Skandinavíu að mjög alvarlegt kjarn-
orkuslys hlyti að hafa átt sér stað í
Sovétríkjunum. Staðfesting Sovét-
manna í gærkvöldi á að kjamorkuslys
hefði orðið kom því engum á óvart.
„Við fengum enga viðvörun og það
er engan veginn viðunandi. Alþjóðleg-
ar samþykktir kveða á um hvemig
skuli bregðast við í tilfellum sem þess-
um“ sagði Birgitta Dahl orkumálaráð-
herra Svíþjóðar í gærkvöldi og sagði
að sænska stjómin myndi bera fram
mótmæli við Sovétríkin og krefjast
aukinna upplýsinga um málið.
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
Káre Willoch lagði fram sitt síðasta
tilboð til málamiðlunar.
mannaflokksins reyni að mynda
stjórn. Það verður ekki auðvelt og
getur aldrei orðið annað en minni-
hlutastjóm.
Verkamannaflokkinn langar varla
til þess að komast í stjom núna því
margar erfiðar blikur em nú á lofti í
norskum eíhahagsmálum og á lækk-
andi olíuverð þar stærstan hlut að
máli.
Stjóm sem þarf að spara er aldrei
vinsæl og síst von um að vel gangi
þegar samsetning þingsins er þannig
að ekki fæst vinnufriður.
Nú er Framfaraflokkurinn, lítill
flokkur á hægri væng stjómmálanna,
eina von ríkisstjómarinnar. Hagen
formaður Framfaraflokksins hefur áð-
ur bjargað ríkisstjóminni frá falli en
trúlegt er að hann muni ekki gera slíkt
í dag. EF hann fellir tillögur stjómar-
innar er það af öðrum ástæðum en
vinstri hluti þingsins gerir það.
Hagen finnst Willoch hafa teygt sig
of langt til vinstri og vill ekki sam-
þykkja þá auknu skatta sem hægri
stjómin var búin að leggja til í tilraun
sinni til að semja við stjómarandstöð-
una.
Vinstri flokkamir segjast ekki geta
sætt sig við tilboð Willochs vegna þess
að forsætisráðherrann vill ekki skatt-
leggja þá hærra launuðu meira en
býðst þess í stað að leggja á auka bens-
ínskatt sem jafnt kemur niður á öllum.
HLUTABRÉF TIL SÖLU
Hlutabréf í (shúsfélagi ísfirðinga hf. eru til sölu.
Um er að ræða hlutabréf í eigu Togaraútgerðarfélags ísafjarð-
ar hf., sem eru að nafnverði kr. 1.272.110,- og teljast 13,5%
af heildarhlutafjáreign.
Tilboð skal senda Tryggva Guðmundssyni hdl., Hrannargötu
2, ísafirði, s. 94-3940, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar
ef óskað er.
Fékk ekki Ivfeyri eftir
hinn myrta eiginmann
Ketilbjöm Tryggvason, fréttaritari
DV í V-Berlín:
Ekkja ein hefur höfðað mál fyrir
dómstóli í Kassel í V-Þýskalandi á
hendur tiyggingafélagi þar í borg
því að félagið greiddi henni ekki líf-
eyri fyrrverandi eiginmanns hennar.
Samkvæmt almennum lögum hér-
lendis hlýtur ekkja eftirlaun hins
framliðna lífsfómnautar.
Þannig virtist við fyrstu sýn málið
einfalt úrskurðar en við nánari at-
hugun komu í ljós skrýtnar flækjur.
Ekkjan hafði neíhilega að yfirlögðu
ráði fyrirkomið bónda sínum nokkr-
um árum fyrr. - Fundust engin
fordæmi þess í réttarsögu Þýska-
lands að einhver hefði myrt maka
sinn og síðan gert kröfú til lífeyris
fyrir að missa fyrirvinnuna.
Dómarar komust að þeirri niður-
stöðu að tryggingafélaginu væri
ekki skylt að greiða konunni sem
væri morðingi og beinlínis valdur
að tjóni tryggingafélagsins.
Þar með var þó ekki allt búið því
að konan lumaði á fleiri kröfúm.
Sótti hún þær á hendur öðm trygg-
ingafélagi og í þetta sinn fyrir fyrri
eiginmanninn. En hún hafði þó ekki
myrt hann.