Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Blaðsíða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986.
Sigurgarðar Sturluson lést 21. apríl
sl. Hann fæddist í Amarfirði 15. jan-
úar 1923, sonur hjónanna Sturlu
Kristóferssonar og Ölafíu Kristínar
Sigurðardóttur. Eftirlifandi eigin-
kona Sigurgarðars er Ina Böðvars-
dóttir. Útför Sigurgarðars verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Jakobina Hermannsdóttir lést 22.
f' apríl sl. Hún var fædd 28. júní 1934
á Seyðisfirði. Foreldrar hennar voru
■ Valgerður Hallgrímsdóttir og Her-
mann Hermannsson. Hún giftist
Helga Elíassyni 1957 og eignuðust
j þau sex böm. Útför Jakobínu verður
t gerð frá Hafnarfjarðarkirkju mið-
vikudaginn 30. apríl kl. 13.30.
Ásmundur Brynjólfsson, Hólakoti,
Hmnamannahreppi, lést á heimili
sínu 24. apríl.
Bárður Óli Pálsson frá Skógum, Há-
teigsvegi 32, andaðist 26. apríl.
Helga Þórðardóttir, húsfreyja frá
Eystri-Hól í Landeyjum, andaðist í
Landakotsspítala sunnudaginn 27.
apríl.
Helga M. Níelsdóttir ljósmóðir lést
f
Knútur Ragnarsson, lést í gjörgæslu-
deild Borgarspítalans 26. apríl.
Kristinn Hákonarson, fyrrverandi
yfirlögregluþjónn, Arnarhrauni 2,
Hafnarfirði, lést mánudaginn 28.
apríl í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Magnús V. Sörensen, Laugarásvegi
5, Reykjavík, lést á heimili sínu að-
faranótt 26. apríl.
Jón Egill Sveinsson skósmíðameist-
ari, írabakka 4, sem andaðist 19.
apríl á legudeild Landspítalans, Há-
túni 10B, verður jarðsunginn frá
Garðakirkju, Álftanesi, þriðjudaginn
29. apríl kl. 14.
Sigurður Bjartmar Arnmundsson
lést 17. apríl í Sjúkrahúsi Akraness.
Jarðarförin hefur farið fram.
Sigríður Einarsdóttir frá Vestri-
Garðsauka, Blönduhlíð 23, Reykja-
vík, andaðist á heimili sínu 14. apríl
sl. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að beiðni hennar.
Sigurborg Sveinsdóttir, Austurbrún
4, áður Hjallavegi 34, lést 26. apríl.
Stefanía Hansen, Bergþómgötu 16,
lést 27. apríl.
Gunnar Jónsson, fyrrverandi hús-
vörður Verslunarskóla íslands,
síðast vistmaður á Hrafnistu, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni mið-
vikudaginn 30. apríl kl. 13.30.
Jóna Daníelsdóttir, Austurbrún 2,
verður jarðsungin frá Kristskirkju,
Landakoti, miðvikudaginn 30. apríl
kl. 13.30.
Séra Leó Júlíusson,fyrrverandi pró-
fastur, Borg á Mýrum, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 30. apríl kl. 15.
Vilborg Bjarnadóttir, Hátúni 10A,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 30. apríl kl. 10.30.
Útför Soffiu Rús, fer fram frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 30. apríl
kl. 15.
Tilkynningar
Ganga og fundur
gegn fóstureyðingum
1. maí nk. verður haldinn útifundur
gegn fóstureyðingum, við Miðbæjar-
skólann í Reykjavík. Fundurinn
byrjar með göngu frá Arnarhóli strax
að afloknum fundi ASÍ á Lækjar-
torgi, gengið verður um Lækjargötu
að Miðbæjarskóla. Meðal ræðu-
manna verður m.a. Hulda Jensdóttir,
forstöðukona Fæðingarheimilis
Reykjavíkur. Fjölbreytt tónlist verð-
ur einnig á fundinum og mun Hjalti
Gunnlaugsson t.d. kynna plötu sína
Sannleikurinn í mínu lífi. Það er
útgáfufyrirtæki tímaritsins Básúna
sem stendur fyrir fundinum.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur fund fimmtudaginn 1. maí nk.
kl. 20.30 að Ásvallagötu 1. Spilað
28. apríl að Droplaugarstöðum. verður bingó.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Hjallabraut 15, 3. h. t. v., Hafnarfirði, þingl. eign Aðalheiðar Jóns-
dóttur, fer fram eftir kröfu Brunabótafélags islands á eignínni sjálfri föstudaginn
2. maí 1986 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Breiðvangi 10, 4. h. A, Hafnarfirði, þingl. eign Helgu Gestsdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu Ólafs Thoroddsen hdl„ Veðdeildar Landsbanka ís- lands, Guðjóns Steingrímssonar hrl., Innheimtu ríkissjóðs, Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, Útvegsbanka Íslands, Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Hafnarfjarðar- bæjar á eigninni sjálfri föstudaginn 2. maí 1986 kl. 16.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Breiðvangi 12, 4. h. t. v„ Hafnarfirði, þingl. eign Sigrúnar Hansen, fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 2. mai 1986 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Breiðvangi 22, 3. hæð A, Hafnarfirði, þingl. eign Björns Möller, fer
fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. og Bjarna Ásgeirssonar hdl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 2. maí 1986 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Breiðvangi 20, 4. hæð B, Hafnarfirði, þingl. eign Gunnlaugs Sig-
fússonar o.fl., fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands, Veðdeildar Lands-
banka íslands og Arnmundar Backman hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 2.
maí 1986 kl. 16.45.
________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Tónleikar á ísafirði
Fjórðu og síðustu áskriftartónleikar
Tónlistarfélags ísafjarðar á þessu
starfsári verða í Álþýðuhúsinu á
Isafirði föstudagskvöldið 2. maí kl.
20.30. Að þessu sinni verða heima-
menn í sviðsljósinu: Margrét Bóas-
dóttir sópransöngkona og Margrét
Gunnarsdóttir píanóleikari. Á fjöl-
breyttri og skemmtilegri efnisskrá
er píanósónata op. 22 eftir Schu-
mann, og söngiög eftir ýmsa höf-
unda, innlenda og erlenda. Áskrift-
arkort gilda að tónleikunum á
föstudaginn, en einnig verða miðar
seldir í bókaverslun Jónasar Tómas-
sonar og við innganginn. Þær
nöfnurnar munu flytja þessa sömu
efnisskrá á tónleikum í Bolungarvík.
Þeir tónleikar verða í félagsheimil-
inu á miðvikudagskvöldið 30. apríl
og hefjast kl. 20.30. Miðasala við inn-
ganginn.
200 ára afmælis
Reykjavikur minnst
Nk. miðvikudagskvöld, 30. apríl, kl.
20.30 mun Félagið Ingólfur (stofnað
1934) efna til fundar þar sem minnst
verður 200 ára afmælis Reykjavíkur.
Ingólfur hefur fengið Guðjón Frið-
riksson, sem starfar hjá Reykjavík-
urborg við að skrá sögu hennar, til
að flytja fyrirlestur um húsið Aðal-
stræti 8 sem á sér lengri sögu en
sjálfur kaupstaðurinn. I sögu þessa
húss endurspeglast saga bæjarins.
Guðjón rekur sögu Aðalstrætis 8 í
máli og myndum og segir frá fræg-
ustu íbúum þess, svo sem Einari
hattara, Jónasi Hallgrímssyni, Sig-
urði Breiðfjörð, Benedikt Gröndal,
Valgarð Breiðfjörð og Jóhanni
,,próka“. Valgarð stækkaði húsið og
byggði aftan við það leikhús sem
kallað var Fjalakötturinn. Saga Að-
alstrætis 8 gefur innsýn í atvinnu-
og menningarsögu höfuðstaðarins.
Fundurinn verður haldinn í Stúd-
entakjallaranum við Hringbraut. Á
undan erindinu verður efnt til aðal-
fundar Ingólfs en fyrirlesturinn hefst
kl. 21 og er öllum opinn.
Snæfellingafélagið í Reykjavík
Mörg undanfarin ár hefur skemmti-
nefnd Félags Snæfellinga og Hnapp-
dæla gengist fyrir því að bjóða eldri
héraðsbúum til sameiginlegrar kaffi-
drykkju. Hafa þessar samkomur
verið mjög vel sóttar. Að þessu sinni
verður kaffiveislan haldin í hinu
nýja félagsheimili Sóknar að Skip-
holti 50a sunnudaginn 4. maí nk. kl.
15. Til skemmtunar verður m.a. að
kór félagsins syngur nokkur lög und-
ir stjóm Friðriks Kristinssonar.
Kórinn mun í vor fara í söngferð á
Snæfellsnes og halda tónleika 10.
maí á Hellissandi og í Breiðabliki.
Hlutavelta í
Garðabænum
„Getið þið á DV ekki komið þessari
gjöf frá okkur til Krabbameinsfélags
Islands,“ sögðu fjórir hressir krakk-
ar, sem litu inn á ritstjórn DV um
helgina. Þau höfðu gengist fyri
hlutaveltu í Garðabænum í síðustu
viku og ágóðinn nam 1250 krónum,
sem þau afhentu DV til framvísunar.
Á myndinni eru frá vinstri Omar
Björgvin Ómarsson, Sigríður Dögg
Sigmarsdóttir, Margrét Sóley Sig-
marsdóttir og Stefanía ómarsdóttir.
Systkinin eru úr Garðabæ — systkin-
in frá Miðhjáleigu í Austur-Land-
eyjum og dvöldu í Garðabænum um
tíma.
Kaffisala
Mígrenissamtakana
Mígrensamtökin minna á hina ár-
legu kaffisölu sína að Hallveigar-
stöðum 1. maí frá kl. 14. Tekið á
móti kökum frá kl. 10.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í safnaðar-
heimili kirkjunnar fimmtudaginn 1.
maí kl. 20.30. Frú Guðrún Ásmunds-
dóttir leikkona kemur á fundinn og
talar um Kaj Munk, þá verður ein-
söngur: Sigrún Þorgeirsdóttir
söngkona syngur. Kaffi og að lokum
hugvekja sem sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson flytur.
Tapaó-Fundið
Karlmannshjól fannst
SCO karlmannsreiðhjól með barna-
stól aftan á fannst fyrir rúmum
tveimur vikum. Eigandi vinsamleg-
ast hringi í síma 26615.
Afmæli
70 ára afmæli á í dag, 29. apríl, Ang-
antýr Elíasson, yfirhafnsögumaður í
Vestmannaeyjum, Ásvegi 18, þar í
bænum. Kona hans er Sigríður
Björnsdóttir en bæði eru þau Vest-
mannaeyingar. Angantýr er að
heiman.
Ferðalög
Smáauglýsingadeild DV,
Þverholti 11, sími 27022,
verður opin miðvikudaginn
30. apríl til kl. 22.
L0KAÐ verður
fimmtudaginn 1. maí.
Smáauglýsingar, sem birtast
eiga í blaðinu föstudaginn 2.
maí, þurfa að berast fyrir kl. 22
Ferðafélag íslands
Helgarferð 2.-4. maí
Skíðagönguferð á Mýrdalsjökli verð-
ur helgina 2.-4. maí. Gist í Skag-
fjörðsskála. Nýstársleg ferð í
stórbrotnu umhverfi. Farmiðasala og
upplýsingar á skrifstofunni, Öldu-
götu 3.
ÚTIVIST
10 ÁRA
Útivistarferðir
Helgarferðir út í óvissuna 2.-4. maí.
Byrjum sumarið á hressilegri göngu-
ferð á nýjum slóðum. Skemmtilegar
gönguleiðir við allra hæfi. Gist í
húsi. Uppl. og farm. á skrifst., Lækj-
argötu 6, símar 14606 og 23732.
Dagsferðir 1. maí
Kl. 10.30 Hraunsselsleið-Drykkjar-
steinn. Þjóðleið maímánaðar. Fjöl-
breytt og skemmtileg gönguleið á
Reykjanesskaga sem allir ættu að
kynnast. Verð kr. 450. Kl. 13 ísólfs-
skáli-Selatangar. Með merkustu
minjum um útræði fyrri alda. Refa-
gildrur, sérstæðar klettaborgir o.fl.
markvert að skoða. Létt ganga. Verð
450 kr., frítt f. börn með fullorðnum.
Munið Reykjavíkurgöngu Útivistar
11. maí. Gengið úr Grófinni kl. 13
um BSl, öskjuhlíð, Fossvogsdal og
Elliðarárdal. Ferð í tilefni 200 ára
afmælis Reykjavíkurborgar. Frí ferð.
Brottför í ferðir frá BSÍ, bensínsölu.
Sjáumst.