Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Blaðsíða 32
68*78*58 Hafir þú ábendingu eða vitn- eskju um frétt - hzingdu þá í sima 687858. Fyrir hvezt fréttaskot, sem birtist eða ez notað í DV, greiðast 1.000 krónuz. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólazhringinn. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986. Skipsyórarhefja verkfall í dag "" Skipstjórar á skipum í íslenskri lögsögu hófú verkfall um hádegi i dag og á það að standa til miðnætt- is á morgun. Þeir hafa boðað annað tímabundið verkfall 5.-7. maí næst- komandi ef ekki semst áður. Undirmenn á farskipum hafa einn- ig boðað verkfall, ótímabundið, sem hefjast á aðfaranótt 1. maí. Aðrir yfirmenn en skipstjórar, stýrimenn, vélstjórar, lofskeytamenn og brytar, hafa ekki boðað verkfall en hafa fellt samningana. Fyrsti sáttafúndur annarra yfirmanna en skipstjóra verður haldinn hjá sátta- semjara ríkisins klukkan 16.30 í dag. Sáttasemjari hefúr einnig boðað skipstjóra og undirmenn á farskipum '*á sáttafund í dag á sama tíma. Samkvæmt upplýsingum frá sátta- semjara ríkisins ber bæði skipstjór- um og undirmönnum og viðsemjend- um þessara hópa ennþá mikið á milli. -KB Langferða- bílstjórar í verkfall? Langferðabílstjórar í félaginu Sleipni sátu langan fund hjá sátta- semjara ríkisins í gær ásamt við- semjendum sínum, sérleyfishöfum. Ekkert þokaðist í deilunni. Lang- ferðabílstjórar vilja fá sama kaup og steypubílstjórar. Samkvæmt upplýs- ingum hjá Sáttasemjara ríkisins ber mikið í milli og ekki líklegt að semj- ist fyrir miðnætti annað kvöld. Þá hafa langferðabílstjórar boðað tveggja daga verkfall, dagana 1. og 2. maí. Sáttasemjari hefúr boðað sáttafúnd í deilunni á morgun klukkan 10.00 árdegis. -KB Banaslys við Eyvindará Nítján ára Egilsstaðabúi, Erlend- ur Gauti Vilbergsson, lést á sunnu- daginn. Hann missti stjóm á bifreið sinni við brúna yfir Eyvindará á Fljótsdaishéraði. -S0S Oeriö uerösamanburö og pantiö ur LOKI Alltaf er hann afgerandi, Seglbúðabóndinn! Málefhi Landhelgisgæslunnar: Jón hlynntur raðum Steingrims „Það verður að rannsaka þetta, eins og fosætisráðherra hefúr sagt,“ sagði Jón Helgason er DV hafði samband við hann til Istanbul í Tyrklandi vegna þeirrar hörðu gagnrýni sem komið hefúr fram á störf Landhelgisgæslunnar og boð- aðra aðgerða Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra til þess að komast til botns í málinu. Jón Helgason situr nú ráðstefnu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Istanbul og er væntanlegur heim um helgina. Steingrímur gegnir embætti dóms- málaráðherra í fjarvem Jóns. Jón Helgason hafði einhverja hug- mynd um þetta mál áður en hann fór. „Ég sá ekki grein Jóns Sveins- sonar, fyrrum starfsmanns Gæslunn- ar, þar sem allar ásakanimar á Gæsluna koma fram, en ég vissi af henni. Ég hafði því samband við for- stjóra Landhelgisgæslunnar og bað hann að sjá til þess að slíkir at- burðir kæmu ekki fyrir aftur en það verður að framfylgja því sem forsæt- isráðherra hefúr sagt. Ég mun sjá til þess þegar ég kem heim,“ sagði Jón Helgason. -KB „Betri er einn hettumávur í hendi en tveir úti á sjó.“ Mávurinn veiddist ekki á flugustöng. DV-mynd JGH Mávur kom á stöngina „Betri er einn hettumávur í hendi en tveir úti á sjó,“ sagði Akureyring- urinn sem fékk hettumáv á stöngina hjá sér þegar hann var að dorga í kvöldsólinni við Akureyrarhöfn á laugardagskvöldið. Línunni hafði hann kastað út með beitu, sökku og öllu tilheyrandi. En hið ótrúlega gerðist, herra Hattur festist í lín- unni. Við svo búið var ekki annað að gera en draga í land, losa Hatt úr flækjunni og gefa honum frelsi. íslenskt afrek í Bandarikjunum: Á lista með bestu náms- mönnumíUSA „Það þykir víst heiður að komast á þennan lista. Sumir segja að þetta auðveldi manni að komast i fram- haldsnám," sagði Gísli Hjábntýsson sem hefúr unnið það afrek að kom- ast á lista með fremstu námsmönn- um í Bandaríkjunum, National Dean-listann svonefnda. „Það eru að visu 80 þúsund nöfn á þessum lista, sem er reyndar heil bók. Listinn er gefinn út á hverju ári og sendur til allra helstu fyrir- tækja í Bandaríkjunum. Hugmyndin er víst sú að fýrirtækin velji sér starískrafta eftir listanum." Gísli Hjálmtýsson er 22 ára gamall og stundar nám í stærðfræði og tölv- unarfræðum við Rochester-háskóla í New York fylki. Nýlega fékk hann A í öllum greinum er hann þreytti próf í: „Það em fleiri en ég sem fá A í öllum greinum. Þó ekki meirihluti nemenda,“ sagði Gísli sem er sonur hjónanna Hjálmtýs Guðmundsson- ar, kerfisfræðings hjá IBM, og Iðunnar Gísladóttur. „Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Ef maður væri Kani og lyki doktorsprófi lægi beinast við að fara í rannsóknir. Slíku er ekki til að dreifa á íslandi. Ætli maður vinni ekki við það sem býðst.“ -EIR Veðrið á morgun: Litlar breytingar á veðri Á morgun verður ríkjandi austlæg átt á landinu. Við suðurströndina verða skúrir og rigning á Austur- landi og vestast á Vestfjörðum Annars staðar verður þurrt. Hitastigið verður á bilinu 4-6 stig og léttskýjað vestanlands en skýjað þegar austar dregur. Veður breytist því lítið frá því sem verið hefur . -S.Konn. Safnast hafa 80 milyónir í Arnarflug Milli 40 og 50 aðilar höfðu í gær- kvöldi lofað samtals 75 til 80 milljón- um króna í nýtt hlutafé Amarflugs. Vantar því lítið á að þær 95 milljón- ir króna náist sem stjómvöld gerðu að skilyrði fyrir ríkisábyrgð að 100 milljóna króna láni. Svokallaður níumannahópur er ekki til lengur. f hans stað hefur myndast breiðfylking sem líklegt er að fleiri eigi eftir að bætast í á næstu dögum. Stjóm Amarflugs hefur ákveðið hluthafafúnd 12. maí, eftir hálfan mánuð. Fyrir fundinn verður lagt að færa núverandi hlutafé niður í tíu prósent af nafhvirði. -KMU 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.