Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986.
11
Breytingar á starfsemi
Samvinnuskólans
Frá Siguijóni Gunnarssyni, frétta-
ritara DV í Borgarnesi:
„Á sumri komanda, 1986, verða
inntökuskilyrði Samvinnuskólans á
Bifröst aukin og munu miðast við
að umsækjandi um skólavist hafi
áður lokið tveggja vetra framhalds-
skólanámi á viðskiptasviði eða
öðrum sambærilegum undirbúningi,
en Samvinnuskólapróf eftir tveggja
vetra nám í skólanum verður stúd-
entspróf sem m.a. veitir rétt til
háskólanáms." Svo segir í fréttabréfi
frá Samvinnuskólanum.
Þegar er hafinn undirbúningur að
þessum breytingum og ljóst má vera
að fjölga verður kennurum enda
stendur til að byggja þrjú íðbúðar-
hiis í sumar fyrir kennara. Sam-
vinnuskólinn var framhaldsskóli og
á Bifröst var stundað nám er jafng-
ilti tveggja vetra námi í framhalds-
skóla. I Reykjavík var síðan
svokölluð framhaldsdeild og var þar
Samvinnuskólinn Bifröst. Inntökuskilyrði miðast nú við að útskrifa stúdenta eftir tveggja vetra nám.
tveggja vetra nám er lauk með stúd-
entsprófi. Hér er því verið að lyfta
skólanum um tvö ár í skólakerfinu.
Inntökuskilyrði að skólanum
breytast því í samræmi við þetta og
verða nemendur, er hyggjast hefja
nám við skólann, að hafa lokið „al-
mennu verslunarprófi" eða sam-
bærilegum áfanga.
Samvinnuskólinn hefur haft þá
sérstöðu að í skólanum er lögð mik-
il áhersla á félagsmál og félagsmála-
kennslu auk samvinnufræða.
Svona rétt til fróðleiks er rétt að
benda á það að margir mætir menn
hafa verið í skóla þessum og sumir
klifið „hið pólitíska fjall“ og náð á
tindinn. Má t.d. nefna að í ríkis-
stjóm Steingríms Hermannssonar
em þrír ráðherrar með samvinnu-
skólapróf. Það em þeir Alexander
Stefánsson, Albert Guðmundsson og
Halldór Ásgrímsson en þetta var
reyndar aðeins smá útúrdúr.
Flugog
hvað?
Flug og skip. Flug ú% skip heim, skip út og flug heim,
eÖa eins og þú vilt.
Ferðaskrifstofa ríkisins og Flugleiðir bjóða nú enn
einn ferðamöguleikann, - flug og skip.
Við bjóðum þér að fljúga með Flugleiðum og sigla
með Norrænu, hvort heldur þú vilt heiman eða heim.
Þú gætir t.d. flogið innanlands, siglt út og flogið heim,
eða flogið út og siglt heim.
Möguleikarnir eru margir. Hafðu alla þína hentisemi.
Flugið er fljótlegra, en skemmtisigling með Norrænu
er óneitanlega freistandi.
Nota má „Flug og skip“ til þess að komast til og
frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Færeyjum.
ánægjuleg tilbreyting á ferðamáta landsmanna.
H Leitið upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu Ríkisins, Flugleiðum og ferðaskrifstofum.
fim Ferðaskrifstofa Ríkisins FLUGLEIÐIR