Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Qupperneq 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986.
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fvflasirkus í Bergen?
„Þá er þessum fíflasirkus lokið.
Þetta geri ég ekki aftur.“ Þannig
voru íyrstu viðbrögð eins íslenska
þátttakandans í söngvakeppni ev-
rópskra sjónvarpsstöðva er úrslit
lágu fyrir seint á laugardagskvöldið.
Ummælin voru að vísu dregin til
baka er taugamar höfðu jafnað sig
eftir herfilega útreið Icy-hópsins í
atkvæðagreiðslu kvöldsins. Tuttugu
þjóðir gáfú samtals 1160 stig, ísland
fékk 19.
Sigur í botni?
Islendingamir í Bergen trúðu þvi
fram á síðustu stundu að Gleðibank-
inn myndi blanda sér í baráttuna
um efstu sætin. Fimmta og sjötta
sætið þótti vænlegur kostur. Reynd-
ar sigur.
„Við sigrum þótt við lendum í 20. .
sæti,“ sagði Egill Eðvarðsson daginn
er lokaæfingin fór ffarn. „Það eitt
að taka þátt í þessari keppni í fyrsta
sinn og standast allar þær kröfúr
sem hér eru gerðar er sigur út af
fyrir sig.“ Hrafn Gunnlaugsson var
sama sinnis, íslendingar hreppa
fyrsta sætið áður en yfir lýkur. Þetta
er aðeins byrjunin.
Tækniafrek
Reyndar er söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstöðva margt annað
en keppni um besta dægurlag álf-
unnar á hverjum tíma. Söngva-
keppnin er ef til vill fyrst og fremst
tækniafrek í fjölmiðlun er nær aug-
um og eyrum 600 milljóna manna í
beinni útsendingu. Enda líktist Gri-
eg-höllin í Bergen meira geimskipi
en tónleikahöll síðustu vikuna áður
en söngvakeppnin fór ffarn. Fjöl-
þjóðleg söngvakeppni er gott sjón-
varpsefni, svona svipað og
hestamannamót þykja eftirsóknar-
verð til sveita. Munurinn er sá að á
hestamannamótum sigrar sá er kem-
ur fyrstur í mark. í söngvakeppni
sjónvarpsstöðva eiga keppendur allt
undir misvitrum dómnefúdum allra
keppnislandanna. Sá er sigrar er svo
bundinn í báða skó við að syngja
lagið sitt þar til næsta keppni fer
fram. Enda var Eiríkur Hauksson
hræddur um að vinna. Hann var
ekki tilbúinn að kyrja Gleðibankann
í 12 mánuði án afláts.
Yfirborðskennt
Eðli málsins samkvæmt verður öll
umfjöllun fjölmiðla um keppni sem
þessa ákaflega yfirborðskennd. Hver
þjóð heldur með sínu lagi og kepp-
Sandra Kim þreytuleg á blaðamannafundi morguninn eftir sigurinn: Var hún 13 eða 14 ára? AUa vega bakar amma hennar bestu kökur í heimi.
DV-myndir GVA
endur eru kynntir sem vissir sigur-
vegarar - allir sem einn. Enda getur
enginn séð úrslit fyrir á meðan vali
dómnefnda er háttað eins og raun
ber vitni. Að þessu sinni sigraði
Sandra Kim ffáBelgíu. Hún á ekki
sjö dagana sæla ef miða skal við
meðferðina er hún fékk hjá hálfri
heimspressunni morguninn eftir sig-
urkvöldið. Þá var fyrsti ffétta-
mannafúndur sigurvegarans
haldinn og þeir eiga eftir að verða
fleiri áður en yfir lýkur.
Blaðamannafundur
I raun og veru varpaði þessi fund-
ur skýru ljósi á það fyrirbæri sem
söngvakeppnin er. Mikilsverð mál-
efni voru ekki til umræðu. Sigurveg-
arinn er fyrst og síðast markaðsvara
sem verður að selja snarlega áður
en sá næsti verður krýndur. Þama
sat 14 ára gömul belgísk stúlka
snemma morguns, þegar búin að
veita þijú útvarpsviðtöl og á henni
dundu spumingar fféttamanna sem
ekkert botnuðu í hvers vegna hún
hafði unnið en ekki einhver annar.
Breskur blaðamaður: - Faðir þinn
tjáði mér í veislu er haldin var hér
í Grieg-höllinni í gærkvöldi að þú
værir fædd í október árið 1972. Þú
ert þá 13 1/2 árs en ekki 14 eins og
umboðsmenn þínir hafa viljað halda
fram. Hvers vegna ertu að ljúga til
um aldur?
Umboðsmaður Söndm: - Hún er
14 ára.
Portúgalskur blaðamaður: - Eig-
um við ekki að láta Söndm svara
Fréttaljós
Eiríkur Jónsson
Þannig vom þau í Bergen. Sungu sig i 16. sætið.
þessari spumingu? Er hægt að fá að
sjá vegabréf hennar?
Umboðsmaðurinn: - Hún er ekki
með það.
Sandra Kim: - Ég er 14 ára. Fædd
1971. Ég veit sjálf hvað ég er gömul.
‘ Barnaheimili í Brussel
Þýskur blaðamaður: - Má búast
við að komið verði á fót barnaheim-
ili í Bmssel þegar næsta söngva-
keppni fer ffam ef stefnan er sú að
sigurvegarar þurfi að vera svona
ungir?
Umboðsmaðurinn: - Nei, það er
ekki ráðgert að koma á fót bama-
heimili í Bmssel á næsta ári. Hvers
vegna er ekki spurt um neitt nema
aldur Söndm. Það þykir ekkert at-
hugavert í íþróttum að affeksfólk sé
ungt. Hvers vegna þykir þetta svona
undarlegt á tónlistarsviðinu?
Blaðamennimir, allir sem einn, á
minnst fimm tungumálum: - En er
stúlkan nógu þroskuð til að taka
þessum mikla sigri. Eyðileggur þetta
ekki bamæsku hennar?
Kökubakstur í Belgíu
Og svo koll af kolli. Þama komu
ffam merkilegar upplýsingar um
uppáhaldsijómaís bamastjömunnar
og uppáhaldsrétt sem reyndist vera
sérstök belgísk kaka sem enginn
kann að baka nema amma hennar.
Einnig fékk heimspressan svör við
spumingum sínum um uppáhaldslit,
uppáhaldssöngkonu, uppáhaldsdýr
og uppáhaldshljóðfæri ungu stúlk-
unnar. Sandra Kim sagði að sig
dreymdi drauma um að verða
trommuleikari. Og svo geispaði hún.
Það var annar blaðamannafundur
eftir hádegi.
Mikil auglýsing
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva er ekki lítið fyrirtæki.
Það hefur Henrik J. Lisæth, borgar-
stjóri í Bergen, fengið að reyna.
Þúsundir manna streymdu til borg-
arinnar, þar af um 500 erlendir
blaðamenn sem sendu fréttir til síns
heima um allt milli himins og jarðar
um þessa norsku borg er telur álíka
marga íbúa og ísland allt. Allt í borg-
inni tengdist á einn eða annan hátt
söngvakeppninni, matseðlar, föt og
borgarbragur allur. Á efstu hæð
Grand Hotel var búið að innrétta
sérstakan blaðamannaklúbb fyrir
útlendingana og þar sátu menn í
góðu yfirlæti með glas og lax og
ræddu um mannlíf í Bergen og hugs-
anlega sigurvegara í sjálffi keppn-
inni.
14 Fóstbræður
Sumir höfðu þá lífsreynslu í pússi
sínu að hafa fylgst með 19 söngva-
keppnum og jusu úr þekkingar-
brunni sínum. Menn voru yfirleitt
sammála um að belgíska lagið myndi
sigra. Ungur aldur söngvarans virt-
ist skipta þar mestu. Nú var spum-
ingin hvaða eiginleiki væri
vænlegastur til árangurs næst. Tvær
ófrískar konur? 16 gamalmenni? 3
AIDS-sjúklingar? Eða kannski 14
Fóstbrseður?
Vegir söngvakeppninnar eiu
órannsakanlegir. -EIR