Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Síða 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986.
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Samkvæmt skoðanakönnun DV fær Sjálfstæðisflokkurinn mun meira fylgi til
borgarstjómar en Alþingis. Hvaðan kemur þetta viðbótarfyigi Davíðs?
Skoðanakönnun DV:
Hvaðan
fær Davíð
fýlgið?
- fær jafnvel atkvæði alþýðubandalagsmanna
Eðlilegt er, að fólk spyrji, hvaðan burðafylgi, ef nú væri kosið til borgar- inn fylgi 65,5 prósenta þeirra, sem taka
komi hið mikla fylgi D-listans í borgar- stjómar, þótt nokkuð hafi dregið úr aístöðu. Alþýðuflokkurinn fengi 7,9
stjómarkosningum í Reykjavík. forskoti D-listans, síðan DV gerði sams prósent, Framsóknarflokkurinn ekki
Samkvæmt nýbirtri skoðanakönnun konar könnun í janúar. I síðustu nema 1,4 prósent, Alþýðubandalagið
DV fengi Sjálí'stæðisflokkurinn yfir- könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkur- 18,7 prósent og Kvennalistinn 6,5 pró-
%
60 j
I
Alþýðu- Framsóknar-
flokkur flokkur
30
20
10
T
i
I
i
T
I
ic
Bandalag Sjálfstæðis- Alþýðu- Kvenna-
jafnaðarmanna flokkur bandalag listi
Súluritið sýnir fylgi listanna, ef kosið yrði til Alþingis í Reykjavík, samkvæmt skoðanakönnuninni nú, skoðanakönn-
un DV í janúar síðastliðnum og úrslit síðustu þingkosninga í Reykjavík.
í dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari
Bílar lækka - bílasalar hækka
Undarleg stétt þessir bílasalar. Nú
á tímum verðstöðvunar og verð-
lækkana taka þeir sig til og hækka
sölulaun um flórðung. Fimm þúsund
krónur takk sem lágmarkssölulaun
fyrir að selja gamlan bíl. Ástæða
hækkunarinnar er sögð sú að notað-
ir bílar hafi lækkað i verði, aukin-
heldur að það þurfi að ýta gömlu
druslunum út af sölunum. Einkenni-
leg rök að tarna. í fyrsta lagi ætti
verðlækkun að ýta undir meiri sölu
og þar með fengju bílasalar meira í
kassann. í öðru lagi hafa þeir ekki
látið sig nokkru skipta til þessa hve
gamall bíllinn sem þeir eru með á
skrá sé. Það hefur hingað til ekki
verið mottó bílasala að taka ábyrgð
á þeim bílum sem þeir selja. Það eru
einfaldlega seljandi og kaupandi sem
gera út um málið og saliirn sér ein-
göngu um að koma viðskiptunum
á. í DV í gær kemur fram að sumir
bílasalar kunna ekki aðrar skýringar
á hækkim sölulauna en þau hækki
eins og annað. Sér eru nú hver rök-
in. Samkeppni í bílasölu er vafalaust
hörð, en fáar stéttir veita jafnlélega
þjónustu og bílasalar.
Þeir sem hyggja á kaup á notuðum
bíl snúa sér gjaman að næstu bila-
sölu til að kanna hvað þar er á
boðstólum. Oftar en ekki er þessi
starfsemi rekin í skúrum. Þegar inn
er komið slær fyrir brjóst af nýjum
og gömlum tóbaksþef. Bilasalinn sit-
ur ábúðarmikill og talar í síma en
tveir aðrir símar hringja stanslaust.
Á bekk til hliðar sitja vanalega tveir
til flórir atvinnubraskarar í faginu
og ræða um bíla fram og til baka.
Tilvonandi kaupandi bíður kurteis í
hálftima þar til bílasalinn gerir hlé á
símtölum, kveikir í nýrri sígarettu
og spyr: Hvað viltu? Kaupandinn til-
vonandi stynur upp erindinu. Mig
vantar bíl á svona hundrað og fimm-
tíu þúsund. Bílasalinn grípur hendi
niður í lúið kartótek, flettir spjöldum
um hrið og segir svo fastmæltur: Eg
á héma handa þér prýðisgóða Lödu.
Þú getur fengið hana á hundrað og
sjötíu. Viðskiptavinurinn fer hjá sér
og segir lágróma: Ja, ég var nú
kannski að hugsa um einhveija aðra
sort. Braskaramir á hliðarbekk hafa
hætt samræðunum og hlusta opin-
mynntir. Einn blandar sér strax í
málið. Ég skal sko segja þér að þessi
Lada er alveg súperkerra. Nýbúið að
taka upp vélina og þú færð ekki betri
bíl. Ég var sjálfur með hana í sigti.
Bílasalinn er aftur kominn í sím-
ann. Reynir að fullvissa sveitamann
fyrir norðan um að ekki sé enn búið
að selja Land-Roverinn hans, en sala
hljóti að fara fram innan tíðar. Þegar
simtalinu lýkur segir einn braskar-
inn spyrjandi: Var hann að spyija
um jeppann sem við seldum Bjössa
í Keflavik í síðasta mánuði? Blessað-
ur vertu, Bjössi er búinn að selja
hann þrisvar siðan þá.
Viðskiptavinurinn fer að óróast og
veltir fyrir sér auðveldri Ieið til að
sleppa úr greipum bílasalans og hans
manna. Stynur upp: Ja, ég ætla nú
að hugsa þetta aðeins betur með
Löduna. Kem bara aftur. En nú reis-
ir bílasalinn sig upp og segir með
þunga. Hvaða ragl er þetta, maður.
Ég skal koma bílnum niðrí hundrað
og fimmtíu fyrir þig. Vertu bara að-
eins rólegur. Snýr sér aftur að
kartótekinu, blaðar í því um stund.
Finnur kortið og hringir. Halló! Er
hún Jóna þama? Hvað segirðu. Er
hún dáin? En hvemig er með Löduna
hennar - hún ætlar samt að selja
bilinn er þaekki? Hlustar um stund,
skellir síðan á og snýr sér að kúnn-
anum: Þessi Lada sem þú vildir
endilega kaupa er ekki lengur til sölu
því eigandinn er dáinn. Hefur senni-
lega keyrt á bílnum yfir ha ha ha...
Braskarar hlæja líka dátt. Kúnninn
grípur tækifærið feginshendi og
skondrar í átt til dyra um leið og
hann þakkar viðskiptin - semraunar
vora engin. Það síðasta sem hann
heyrir þegar hann leggur aftur hurð-
ina er rödd bílasalans: Vertu ekki að
flýta þér svona, maður. Ég á héma
alveg frábæran Fíat sem þú getur
fengið strax í dag. Það er sett á hann
tvöhundrað en ég get reynt.... Já.
Það er undarleg stétt þessir bilasal-
ar.
Dagfari.