Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Side 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986.
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65*69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
•verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hveija þijá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparíbók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10.8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaðq verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og brcytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%. eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársQórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9*X> cða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphaíð reiknastalmennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávÖxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun e:
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 óg
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfúðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum firanka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skvlda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aöeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum-lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. A endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Visitölur
Lánskjaravísitala í maí 1986 er 1432 stig
en var í mars 1428 stig, í febrúar 1396 og jan-
úar 1364 stig. í apríl var hún 1425 stig. Miðað
er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%)
01.-10.05. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJ0RUM
SJA sérlista
liiíihl
innlAn óverðtryggð
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsogn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mén.uppsogn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.0 10.0
12mén.uppsogn 14.0 14,9 14,0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Spaiað3-5rain 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mén. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsógn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mén.uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadollarar 8.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.5 10.0 10.0 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 7.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLAN ÓVERÐTRYGGÐ ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kg« 19,5 kfl* kfle kfl« kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20.0 kge 20.0 kge kge kge kge 9.0
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Aö 2 1 /2 éri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ér 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRANILEIÐSLU SJANEÐANMALSI)
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur-
þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%,
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta-
skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim
bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Ljósmyndari DV fékk ekki að koma inn í fyrirtækið í Hveragerði til þess að mynda. Innandyra er varðveitt fram-
leiðsluleyndarmál Jim Turncrs, „slönguna sem grætur“.
DV-mynd Kristján.
S
»
Leynifýrirtæki
í Hveragerði
- framleiðir bandarískt vökvunarkerfi
Það hvílir mikil leynd yfir fram-
leiðslunni. Engum er hleypt inn í
verksmiðjuna, sem er í Hveragerði,
nema starfsmönnum. Það er verið að
varðveita framleiðsluleyndarmálið á
„Leaky pipe“ sem er vökvunarkerfi
eftir bandarískan uppfinningamann
sem heitir Jim Tumer. íslenskt fyrir-
tæki hefur fengið einkaleyfi til fram-
leiðslu á þessu kerfi. Eitt af frumskil-
yrðunum fyrir samningnum eru þessar
varúðarráðstafanir til þess að ekki sé
hægt að stela hugmyndinni.
Engar myndatökur
„Myndatökur eru ekki leyfðar og
það fær enginn að koma inn í verk-
smiðjuna nema í fylgd með starfs-
mönnum okkar. Það er enginn
stórkostlegur leyndardómur þama á
ferðinni heldur em þessi skilyrði í
samningi okkar við Tumer,“ sagði
Ámi Svavarsson hjá Entek en íslenska
fyrirtækið heitir í höfuðið á móðurfyr-
irtækinu í Bandaríkjunum.
Slangan grætur
„Kveikjan að hugmyndinni að þessu
neðanjarðarvökvunarkerfí er hálfrar
aldar gömul og í raun sáraeinföld. Ef
mynduð er smárás í jarðveginn, t.d.
með hrífu, er hægt að koma vökvunar-
slöngunni þar fyrir og hylja síðan.
Þegar vatnið er sett á grætur öll slang-
an. Vatnið lekur í gegnum örsmá
holrúm sem ná í gegnum veggi slöng-
unnar. Holrúmin em þannig útbúin
að hvorki sandur getör stíflað slöng-
una né rætur vaxið inn í hana.“
Hittu Turner
Ámi sagði að íslensku aðilamir
hefðu hitt Tumer og farið þess á leit
við hann að fá einkaleyfi á þessari
framleiðslu. Tumer væri sjálfur með
fyrirtæki sem framleiddi fyrir Banda-
ríkjamarkað en Entek á Islandi væri
eini framleiðandinn fyrir utan Tumer.
Vökvimarkerfið hefúr verið sett upp í
löndum eins og Saudi-Arabíu, Kuwait,
Oman, Spáni og Ítalíu og lofar mjög
góðu. Þá má geta þess að Leaky pipe
mun vökva gróðurinn í Kew Gardens,
hinum fræga grasagarði í London.
Breskur framkvæmdastjóri
Stjómarformaður Entek á íslandi er
Ingvar J. Karlsson. Aðrir í stjóm em
Jón G. Zoega lögfræðingur og Haukur
Hjaltason. Framkvæmdastjóri er
Barry Charles-Woodrow, breskur
efhafræðingur. Þess má að lokum geta
að fyrirtækið selur ekki beint til neyt-
enda hér á landi heldur í gegnum
umboðsaðila sína sem em Sölufélag
garðyrkjumanna og heildverslun G.Á.
Pétursson.
-EH
Bifreiöaeftirlitið í önnum:
150 nýir bílar skráðir á dag
Gífurlegar annir em hjá bifreiðaeft-
irlitsmönnum um þessar mundir. I
kjölfar tollalækkunarinnar hefúr bíl-
um, sem komið er með í nýskráningu,
fjölgað svo um munar, að sögn Rúnars
Guðmannssonar hjá Biffeiðaeftirlit-
inu.
„Hingað koma um 150 bílar á dag
þegar mest er að gera. Á föstudaginn
var komið með hátt á annað hundrað
nýja bíla í skráningu. Rúnar sagði að
mest væri að gera' á föstudögum því
allir vildu fá bílana afgreidda fyrir
helgina.
Bílnúmer í Reykjavík em nú komin
upp í R-73400 en reyndar segir það
ekki alla söguna því mikið er um eyð-
ur á milli. Ætla má að í kringum 42000
bílar séu á skrá með R-númeri.
-EH
Það er þröngt á stæðinu fyrir framan Bifreiðaeftirlitið þessa dagana. Þangað
er komið með 150 bíla á dag til skráningar þegar mest er að gera. Viö þetta
bætast svo bílar sem komið er með í venjulega skoðun. DV-mynd KAE