Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Qupperneq 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLl 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Fasteignaverð:
Hækkar líklega
um tíu prdsent
Verð á fasteignum mun að öllum
líkindum hækka með haustinu í
kjölfar nýrra laga um útlán Hús-
næðisstofnunar. Erfitt er að segja til
um hversu mikil hækkunin verður,
en ekki þykir ólíklegt að hún verði
a.m.k. 10%.
„Eftirspumin hefur farið vaxandi
undanfarið og nú er svo komið að
það vantar eignir til sölu. Það er oft
undanfari hækkunar á verði fast-
eigna,“ sagði Viðar Friðriksson
fasteignasali.
Viðar sagði að erfitt væri að spá
um hækkanir í haust. Margir þættir
hefðu áhrif á það. Mikil þensla hefúr
verið á þessu ári í sambandi við bíla-
kaup og utanlandsferðir og hún
gæti unnið á móti aukinni eftirspum
á fasteignamarkaði.
Ekki er búist við að um stökk-
breytingu verði nð ræða hvað
verðbreytingar á fasteignum varðar.
Líklegt er þó að hækkunin komi
fram í október eða nóvember.
Verð á fasteignum hefúr verið
nokkuð stöðugt í byrjun þessa árs
og hefur reyndar ekki verið lægra
sl. 15 ár. Verð á íbúðum hefur verið
breytilegt undanfama áratugi. Það
hækkar og lækkar eftir því hvemig
aðstæður em á hverjum tíma. Nú
er verðið að jafnaði um 35% lægra
en það var 1982 og um 25% lægra
en það varð hæst 1984.
-APH
Spáð er verðhaekkunum á fasteignamarkaði. Núna er því rétti tíminn að festa sér hús - a.m.k. fyrir þá sem
geta komið því við.
Stefán Ingótfsson:
„Ekki varanleg
hækkun“
„Ef fasteignaverð hækkar eitthvað
í haust þykir mér ólíklegt að það
verði til frambúðar. Ástæðan er fyrst
og fremst sú að nettóaukning 'fjár-
magnsins á fasteignamarkaðinum er
ekki í samræmi við hækkun lánanna
hjá Húsnæðisstofnun," sagði Stefán
Ingólfsson hjá Fasteignamati ríkis-
ins í samtali við DV.
Að sögn Stefan er talið að brúttó-
veltan á fasteignamarkaðinum verði
um 9 milljarðar á þessu ári. Af þess-
ari upphæð er raunveruleg peninga-
þörf um 3 milljarðar. Það kemur til
af því að um 2/3 hlutar veltimnar
fara í skipti á fasteignum. Reiknað
hefur verið út að af þessum þremur
milljörðum sé aukningin vegna nýja
lánakerfisins ekki nema 300 milljón-
ir, eða 10% af nettóveltunni.
Nýja lánakerfið hefúr í för með sér
að meira fé kemur í fárra hendur.
Að sögn Stefan er ljóst að það kem-
ur fyrst og fremst þeim til góða sem
eru að koma sér þaki yfir höfúðið í
fyrsta skipti.
Stefan segir að þrátt fyrir þessi
nýju lög hafi ekki verið tekið á þeim
þáttum sem valdið hafa greiðslu-
byrði undanfarin ár. Útborgun mun
ekki lækka, bankalánum mun ekki
verða breytt í langtímalán og eftir-
stöðvalánin verða ófram þungbær.
Útborgun á fyrsta ári er nú um 72%.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að þetta hlutfall eigi eftir að lækka.
Líldega á það frekar eftir að hækka.
Ef útborgunin yrði hins vegar lækk-
uð í 50% myndi fjárþörfin á fast-
eignamarkaðinum lækka um 1200
milljónir," sagði Stefán.
-APH
Það borgar
sig að
kaupa núna!
Allt bendir til þess að það borgi
sig að kaupa sér íbúð núna áður en
fasteignaverð hækkar í haust eins
og spáð er.
Eins og skýrt hefur verið frá í DV
eiga þeir sem þegar hafa sótt um lán
hjá Húsnæðisstofnun kost á að end-
umýja umsóknir sínar eftir 1.
september og fá lán samkvæmt nýju
skilyrðunum. Rétt er þó að benda á
að þessir aðilar verða að hafa verið
í lífeyrissjóði undanfarin tvö ár. Ef
þau skilyrði eru ekki fyrir hendi
getur verið skynsamlegra að sækja
núna um lán ef því verður viðkomið.
Hjá Húsnæðisstofnun fengust ekki
skýr svör við því hvort betra væri
að sækja um núna eða bíða með
umsóknina eftir gildistöku laganna.
Hins vegar ráðleggur stofnunin þeim
sem ætla að kaupa núna að bíða
með umsóknir fram yfir 1. septemb-
er. Ekki er heldur ljóst hvort þeir
sem sækja um núna fá fyrr af-
greiðslu en þeir sem sækja um eftir
1. september.
Ljóst er að þeir sem sækja um
núna, eða strax eftir gildistökuna,
fá ekki afgreidd lán fyrir en eftir
áramót eða þegar allir lífeyrissjóðir
munu örugglega greiða fullan kvóta,
eða 55% af ráðstöfunarfé sínu, til
Húsnæðisstofnunar.
-APH
Lán á
fimm ára
fresti
Samkvæmt nýju lánareglum Hús-
næðisstofnunar er gert ráð fyrir að
hægt verði að sækja um lán þar að
jafnaði á fimm ára fresti.
Núverandi reglur gera hins vegar
ráð fyrir að aðeins sé hægt að sækja
um tvisvar sinnum og engin tíma-
takmörk tilgreind. Rétt er að benda
á að þeir sem þegar hafa fengið lán
frá Húsnæðisstofnun geta sótt um
lán aftur strax eftir gildistöku nýju
laganna. Fimm ára reglan tekur ekki
gildi fyrr en lögin ganga í gildi 1.
september.
-APH
Sigla eftir
Hvítá frá
jókli niður
að sjó
Tuttugu manna hópur Breta og
Islendinga ætlar á neestu vikum
að sigla eftir Hvítá frá Langjökli
og niður að sjó. Með í förinni verða
sjö fatlaðir Bretar, allt þekktir
iþróttamenn.
Lagt verður af stað ofan af jökli
núna um helgina. Reiknað er með
að ferðin niður að ósum taki þrjár
vikur. Farið verður á kajökum,
gúmbátum, svifdrekum og snjó-
sleðum, auk þess sem notast verður
við sérsmíðaða faUhlíf í upphafi ti!
að draga ferðalangana á skíðum
eftir Ijangjökli.
Hugmyndina að leiðangrinum
átti Bretinn Paul Vander-Molen
sem skipulagði ferðina „Iceland
Breakthrough“ árið 1983. í þeim
leiðangri fór hópur fólks yfir
Vatnajökul og niður Jökulsárglúf-
ur á svifdrekum og kajökum.
Vander-Molen lést úr hvítblæði í
fyrra og hafe félagar hans nú
ákveðið að fylgja eftir hugmynd
hans um Hvítár-leiðangur.
Fjöldi fyrirtækja og stofnana
styrkir þessa ferð sem leiðangurs-
menn segja að sé farin til að sýna
að fatlaðir geti tekið þátt í þrek-
raunum sem þessum ekki síður en
aðrir. Þá mun breska sjónvarps-
stöðin „Channel 4“ ætla að gera
heimildarmynd um ferðina sem
sýnd verður á Bretlandseyjum
snemma á næsta ári.
Þetta er í fyrsta sinn, svo vitað
sé, að farið er á bátum eftir Hvítá
endilangri.
-EA
Rainbow málið:
Leysist
deilan
um
mánaðamót?
„Mér sýnist að þeir séu að gera
tiíraun til þess að ná samkomu-
lagi,“ sagði Matthías Á. Mathiesen
utanríkisráðherra í samtali við DV
Á fundi Hans G. Andersen sendi-
herra og Derwinskys, sérlegs
ráðgjafa bandaríska utanrikis-
ráðuneytisins, sem haldinn var í
fyrradag, kom fram að Bandaríkja-
menn stefna að því að breyta
útboðsreglum varðandi vöruflutn-
inga til vamarliðsins þannig að
íslendingum verói gert kleift að
taka þátt í þeim. Breytingamar
eiga að taka gildi fyrir næstu mán-
aðamót.
„Ég mun hafe vakandi auga með
málinu, fylgjast vel með því í
hveiju breytingamar verði fólgnar
og hvort útkoman sé viðunandi
lausn fyrir okkur Islcndinga,"
sagði Matthías Á. Mathiesen.
-KB
Skinka og egg á Keflavíkurflugveili:
Eg fékk salmonellu
ff
„Mér er sama hvað yfirkokkurinn
segir um fæðið í „Messanum“. Ég
borðaði skinku og egg hjá honum á
miðnætti 16. júní, varð fórveikur um
morguninn og lá með kvölum í tvo
daga. Nú er ég búinn að fó úrskurð
frá sjúkrahúslækninum í Keflavík og
hann segir að ég hafi fengið salmon-
ellu,“ sagði íslenskur starfsmaður á
Keflavíkurflugvelli í samtali við DV.
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu
í gær féllu fimmtán bandarískir her-
menn í rúmið eftir að hafe neytt
skinku og eggja í „Messanum“, mötu-
neyti óbreyttra hermanna á Keflavík-
urflugvelli. I samtali við DV sagði
Indriði Adolfsson, verkstjóri í mötu-
neytinu, að skinkan hefði verið send
til Danmerkur í rannsókn og reynst
óskemmd. Hér hefði verið á ferðinni
venjuleg uppgangspest sem kæmi
matnum í „Messanum" ekkert við.
„Ég veit ekki hvar ég hefði átt að
kk
fá salmonellumar ef ekki í „Messan-
um“. Félagi minn, sem borðaði með
mér, varð einnig veikur,“ sagði ís-
lenski starfsmaðurinn sem nú hefur
fengið fullan bata.
-EIR