Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Blaðsíða 32
DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Svið
44
Sviðsljós
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
söngkonan sem hertekið
hefur toppsæti vinsældalist-
anna víða um heim segist
varla þola að skrifa eigin-
handaráritanir. Hún segir
það vera eyðslu á tíma, bæði
hennar svo og safnaranna.
Hún vill fyrir alla muni ekki
vera trufluð af uppáþrengj-
andi fólki þegar hún fer út
að borða og neitar að gefa
eiginhandaráritanir við slík
tækifæri. Whitney Houston
finnst þetta stefna í að verða
stórvandamál og hefur mikl-
ar áhyggjur af einkalífi sínu.
Whitney
Houston
.i
sá er lék m.a. einn af gárung-
unum í hinum geysivinsælu
sjónvarpsþáttum „MASH"
virðist vera sá leikari sem
amerískir sjónvarpsáhorf-
endur sakna mest. Nýleg
könnun staðfesti þetta og
vildi obbi þátttakenda í
könnuninni fá „MASH" aft-
ur á skjáinn. Alda, sem lítið
hefur sést á skjánum í nokk-
ur ár, telur að fjarlægðin
geri fjöllin blá og mennina
mikla og þannig beri að
túlka niðurstöðurnar.
Nancy
Reagan
fékk sína fyrstu tilsögn í
hinni göfugu sjálfsvarnar-
íþrótt, karate, þegar hún
heimsótti Martin Luther
King-skólann í Washington.
Forsetafrúin sýndi íþróttinni
mikinn áhuga og fékk leyfi
til að koma síðar, óopinber-
lega. Segja kunnugir að
hana langi mikið til að læra
meira í þessari íþrótt og ekki
síst til að hún geti talað við
öryggisverði, þá er sífellt
fylgja henni, á máli sem þeir
skilja.
Er velgengnin þess virði?
Heimsmeistarakeppninni í knatt-
spymu er nú lokið eftir um fjögurra
vikna baráttu. Milljónir manna
.fylgdust með þessari mestu íþrótta-
keppni heims, áttu sín uppáhalds-
lið, uppáhaldsleikmenn og jafnvel
uppáhaldsdómara. Keppnin kost-
aði bæði svita og tár og skammt
var á milli gleði og sorgar. Nýjar
stjörnur fæddust og aðrar brunnu
út. Michael Platini er einn þeirra
leikmanna sem við komum til með
að minnast frá þessu heimsmeist-
aramóti. Hann er stjarna franska
liðsins, fyrirliði og mikill „karakt-
er“. Franska liðið var eitt hið allra
skemmtilegasta og átti miklum
vinsældum að fagna og sjálfur er
Platini hátt skrifaður af öllum sem
á annað borð fylgjast'með bolta-
sparki. Honum hefur gengið vel,
er hátt launaður en samt sem áður
veltir hann nú fyrir sér hvort vel-
gengnin sé þess virði.
Vill lifa í næði og ró
Æðsta ósk Platinis er að fá að
lifa í næði og ró í faðmi fjölskyld-
unnar án þess að vera umkringdur
lífvörðum eða vopnuðum lögreglu-
mönnum. Hann dreymir um að
kaupa lítinn veitingastað í suður-
hluta Frakklands og vera bara
réttur og sléttur Michael aftur. „Þá
yrði ég eins og hver annar og
hryðjuverkamenn myndu missa
áhugann á mér. Ég er mikið að
velta þvi fyrir mér að hætta knatt-
spymuiðkun. Ég á nóg af pening-
um en ég elska það að leika
fótbolta," segir Platini sem varð 31
árs þann 21. júní síðastliðinn.
Hann býr í úthverfi Torinoborgar
Platini brosir sjaldan, óttinn nagar
sálartetrið sí og æ.
Platini ásamt konu sinni, Christéle.
„Karlinn"
hefur líka krafta
í kögglum
Allir kannast við kraftakarlinn
Jón Pál Sigmarsson og varla er til
sá maður hérlendis sem efast um afl
hans. Jón Páll ,á þó ekki langt að
sækja kraftana því faðir hans, Sig-
mar Jónsson, hefur svo sannarlega
líka krafta í kögglum. Um daginn
átti Sigmar i baráttu við einn 20
punda lax og þó laxinn berðist um
af öllum kröftum var Sigmari í lófa
lagið að innbyrða þann stóra. Laxinn
veiddist í Norðurá í Borgarfirði og
er sá stærsti sem veiðst hefur það sem
af er sumri. Víst er að sjálfur Jón
Páll mætti hafa sig allan við ef hann
ætti að standast „karlinum“ snúning
við veiðamar.
Hér hampar Sigmar fengnum hlut
og gerir það með léttum leik.
Mynd Bragi Jónsson.
íþróttamiðstöðin í Laugar-
dal tekin í notkun
Hin glmsilefia nýbygging íþróttamiöstöðvarinnar.
Nýlega var hinn nýja bygging
íþróttamiðstöðvar ÍSÍ tekin í notkun
og mun þetta nýja húsnæði vonandi
reynast íslensku íþróttalífi lyfti-
stöng. Á fyrstu hæð hússins eru
gistiherbergi sem geta rúmað tæp-
lega 30 manns og eru hugsuð fyrir
íþróttahópa, innlenda jafnt sem er-
lenda, er leið eiga um Reykjavík til
æfinga eða keppni. Á annarri hæð
em fundarsalir, kennsluherbergi og
kaffitería fyrir 60 manns. Á þriðju
hæð em svo skrifstofur ÍSÍ og
Ólympíunefndar íslands. Húsnæði
þetta kemur til með að bæta úr
brýnni þörf, auk þess sem kaffiterían
verður opin frá 8-13 og 16-21 og
verða þar ýmsar veitingar á boðstól-
um. Er ekki að efa að íþróttamenn
og forystumenn íþróttafélaganna
munu líta á hana sem kærkominn
stað til að hittast á til skrafs og ráða-
-gerða. ......
Margir Frakkar em alveg sann-
færðir um eigið ágæti og myndug-
leik. Segja sumir að engin þjóð sé
framagjarnari en Frakkar og
óframfæmi sé óþekkt hugtak með-
al þeirra. Þessi trú styrktist til
muna hjá þeim sem sáu Cyrille de
Vignemont spyrja Mitterrand
Frakklandsforseta spjömnum úr í
sjönvarpi fyrir skömmu. Það væri
kannski ekki í frásögur færandi að
Mitterand kæmist í hann krappan
ef fyrirspyrjandi hans hefði ekki
verið 15 ára unglingur. Fljótlega
eftir sjónvarpsþáttinn fékk Cyrille
starf hjá ráðherranum Herve de
Charette sem fer með málefni fjöl-
miðla og almannatengsla.
Fulltrúi fjölmiðlafyrirtækis
einungis 12 ára. -
Þegar Cyrille var 12 ára gamall
fékk hann starf sem fulltrúi amer-
ísks fjölmiðlafyrirtækis í Frakkl-
andi. í því starfi átti hann mikilli
velgengni að fagna og gerði meðal
Á Cyrille eftir að velgja Mitterrand
aftur undir uggum?