Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Norska skipið Christian Radich siglir inn á höfnina i New York fyrr i vikunni. Það var fyrsta segiskipið sem kom til New York í tilefni hundrað ára afmælis Frelsisstyttunnar. í baksýn má sjá turnana tvo i World Trade Center. Frelsissfyttan: Mikið um dýrðir HaHdór Valdimarssan, DV, DaQas I gær hófust í Bandaríkjunum fjögurra daga hátíðahöldi í tilefni hundrað ára afinælis Frelsisstytt- unnar i New York. Mikið var um dýrðir við styttuna sjálfa þar sem fjölmargir listamenn komu fram og lauk hátíðahöldum dagsins með því að Ronald Reagan Bandaríkja- forseti tendraði að nýju ljós í kyndli styttunnar. Undanfarin ár hefur verið unnið að viðgerð og fegrun styttunnar, sem var orðin illa farin, bæði af völdum veðurs, elli og skemmdar- verka. Gífurlegum fjármunum hefur verið varið til þessarar við- gerðar, að mestum hluta hefur fé það fengist með framlögum frá ein- staklingum og fyrirtækjum. Við athöfnina í gærkvöldi minntist Reagan forseti þeirra milljóna innflytjenda sem komið hafa til Bandaríkjanna gegnum höfiiina í New York. Mörgum þeirra er Frelsisstyttan tákn allra þeirra vona sem þeir bundu við Ameríku. í gær voru víða um Bandaríkin athafnir þar sem þús- undir fengu bandarískan ríkis- borgararétt. í viðtölum, sem Qölmiðlar höfðu við það fólk, kom greinilega fram að Frelsisstyttan vekur enn svipaðar tilfinningar í brjóstum innflytjenda og hún gerði fyrir hundrað árum. Hátíðahöldin munu standa yfir alla komandi helgi. Meðal þátttak- enda eru áhafiiir hundruða skipa, þar á meðal fjölda seglskipa, sem siglt hafa til New York víðs vegar að úr heiminum til að heiðra af- mælisbamið. Sjónvarpað var beint frá athöfri- inni í New York í gær. Sjónvarps- stöðvar ABC samsteypunnar vörðu miklum hluta kvöldsins til útsendinga frá henni og athöfhum annars staðar í Bandaríkjunum enda hafði samsteypan keypt einkarétt á þeim. Samkvæmt sér- stökum samningi varð ABC að veita NBC og CBS hlutdeild í út- sendingunum og var því allnokkur röskun á efni þeirra sjónvarps- stöðva líka. í gærkvöldi Norðmenn hætta hvalveiðum New York Times gagnrýnir Sovétríkin Bandaríska blaðið The New York Times gagmýndi í morgun Sovétríkin fyrir að halda banda- mönnum sínum undir ströngu eftirliti og hvatti Kremlarbúa til að slaka á tökunum. I leiðara segir að aðfórin gegn Samstöðu staðfesti að „Brezhnev aðferðin" sé enn í heiðri höfð og fylgt sé valda- og hemaðarstefnu þeirri sem keisararnir framfýlgdu á 19. öldinni en Lenin kallaði veldi þeirra „fangelsi þjóða“. Blaðið sagði: „Nú, þegar eftir- menn Lenins stjóma fangelsinu, heitir það „sósíalískt þjóðfélag". Andinn er hins vegar sá sami, það hefur ekkert breyst. „Undir stjórn Kremlar er Aust- ur-Evrópa nokkurs konar kúguð nýlenda með grimma nýlendu- herra yfir sér.“ I leiðaranum vom neftid dæmi um harðneskju og yfirgang í ölltun ríkjum austan járntjalds og sagt að ekki væri á góðu von því Gor- batsjov væri í þessu sambandi engu betri en fyrirrennarar hans. Páfinn til Ástralíu Jóhannes Páll páfi annar mun heimsækja Canberrá og allar höf- uðborgir fylkja í heimsókn sinni til Ástralíu síðar á þessu ári, að því er haft var eftir Bob Hawke í morgun. Hawke sagði í útvarpsviðtali að páfinn kæmi til landsins frá Nýja- Sjálandi þann 24. nóvember og færi frá Perth þann 1. desember. „Það er viðeigandi að páfinn suli heimsækja Ástralíu á þessu alþjóðlega friðarári því Ástralía heftir vissulega lagt sitt af mörk- unum í þágu friðar í heiminum,“ sagði Hawke. Björg Eva Ertendsdóöir, DV, Stavangri. Norska ríkisstjómin hefúr ákveðið að leggja niður allar hvalveiðar frá lokum þessarar vertíðar og fram til ársins 1990. Rannsóknum á stofninum verður haldið áfram og ef að niður- stöður úr þeim sýna að stofhinn þoli meiri veiði segir ríkisstjómin að hval- veiðar verði teknar upp aftur eftir 1990. Það er hins vegar þiýstingur frá bandarískum stjómvöldum en ekki stærð stofnsins sem gerir það að verk- um að hvalveiðar verða bannaðar í Noregi héðan í frá. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna átti að leggja fram ákveðnar tillögur um efhahagslegar þvinganir handa Noregi fyrir 10. júlí. Nú gerist þess ekki þörf. Kurt Mosbakk, norski viðskiptaráð- herrann, segir að ekki hafi verið réttlætanlegt að vemda hvalveiðamar með því að leggja allan mikilvægasta fiskútflutning Norðmanna að veði en Bandaríkjamenn ætluðu að hætta að kaupa lax frá Noregi, ef hvalveiðum yrði haldið áfram. Hosni Mubarak, forseti Egypta- lands. reynir nú að miðla málum milli Arafats og Husseins Jórdan- iukonungs en stirt hefur verið milli þeirra síðan í febrúar. Mubarak miðlar málum Yasser Arafat, leiðtogi PLO, sendi fyrir helgina skilaboð til Hosni Mubaraks, forseta Egypta- lands, um sáttaumleitanir milli PLO og Jórdaníu, að þvi er haft er eftir heimildum í utanríkisráðu- neyti Egyptalands. Áðalráðgjafi Arafats, Hani Al- Hassen, afhenti Osama Baz, aðalráðgjafa Mubaraks, skilaboð- in. Þetta var svar við tillögum Mu- baraks um sættir milli PLO og Jórdaníu, en síðustu fimm mánuði hefur andað köldu þar á milli. Ekkert hefur verið gefið nánar upp um innihald skilaboðanna. Mubarak sagði fyrr í vikunni að hann heföi sent Arafat tillögur um það hvemig bæta mætti sambúð PLO og Jórdaníu og að hann von- aðist enn til að fá jákvæð svör frá Arafat. Mubarak hefúr reynt að vera milligöngumaður milli Jórdaniu og PLO en í febrúar síðastliðnum sleit Hussein Jórdaníukonungur viðræðum við PLO. Mubarak er náinn vinur bæði Arafats og Husseins. Suður-Afríka: Yfir hundrað fallið frá skipan neyðariaga Nú hafa yfir hundrað manns fallið i Suður-Afriku frá því yfirvöld boðuðu neyðarlög i landinu vegna óróa i blökkumannabyggðum. Langflestir fall- inna eru úr röðum blökkumanna. Nú hafa yfir hundrað manns látið lífið í átökum blökkumannaog her- manna hvítu minnihlutastjómar- innar í Suður-Afríku frá því yfirvöld gripu til þess ráðs að setja neyðarlög fyrir þrem vikum. Skæmliðar blökkumannasam- taka, er berjast gegn stjómvöldum, hafa að undanfömu komið fyrir átta sprengjum í hverfum hvítra í bæði Durban og Jóhannesarborg og Höföaborg. Tveir hvítir lögreglumenn særðust í gær er sprengja sprakk við varð- stöð þeirra í úthverfi Höföaborgar og nokkrar óeirðir urðu í hverfum blökkumanna við borgina, að því er segir í tilkynningu upplýsingastofn- unar er nú hefur ábyrgð á öllum fréttaflutningi frá landinu vegna fréttabanns stjómvalda af kyn- þáttaátökum. Svissneski bankamaðurinn Fritz Leutwiler sagði í gær af sér starfi sínu sem málamiðlari á milli stjóm- arinnar í Pretóríu og lánardrottna hennar á Vesturlöndum. Ástæðuna fyrir afsögninni sagði Leutwiler vera hægagang og viljaleysi stjómvalda í Suður-Afiíku við að koma á raun- vemlegum endurhótum í landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.