Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Page 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 4. JtJLÍ 1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Bandarikjaforseti lýsti í gær yfir aukinni bjartsýni sinni um raun- verulegan árangur i viðræðum við Sovétmenn á næstunni Reagan bjartsýnni eftir bréf Gorbatsjov Reagan Bandaríkjaforseti lýsti í gær yfir bjartsýni sinni með að árangur myndi nást á fyrirhuguð- um leiðtogaiundi stórveldanna sem miðað er að að halda íyrir árslok. Ummæli forsetans koma á sama tíma og sovéskir embættismenn lýsa yfir nauðsyn þess að raun- verulegur árangur í afvopnunar- málum náist á leiðtogafundinum. Sovétmenn lýstu því yfir í gær að þeir væru reiðubúnir að halda undirbúningsfund utanríkisráð- herra ríkjanna við fyrsta tækifæri til undirbúnings leiðtogafundin- um, og vilja Bandaríkjamenn nú ákveða dagsetningu slíks undir- búningsfundar. f blaðaviðtali í gær segir Banda- ríkjaforseti að bjartsýni sín um árangur í kjölfar annars fúndar með Gorbatjov hafi aukist eftir einkabréf fiá Sovétleiðtoganum er nýr sendiherra Sovétmanna í Was- hington færði forsetanum fyrir skömmu. Fyrirsát á Filippseyjum Sjö stjómarhermenn á Filipps- eyjum féllu í fyrirsát yfir 50 skæruliða kommúnlsta í norður- hluta landsins í gær. Haft er eftir yfirmanni í hemum að hermennimir hafi verið á heim- leið til stöðvar sinnar úr eftirlits- ferð er skotið var á þá úr launsátri beggja megin vegarins. Arásin í gær var síðasta árás skæmliða kommúnista í röð svip- aðra árása undanfama viku á Filippseyjum þar sem á annan tug stjómarhermanna hefur fallið. Talið er að með árásum sínum vilji skæruliðar sýna fram á styrk sinn áður en gengið verður til samningaviðræðna við stjómvöld. Noregur: Sjúklingur myrðir lækni Héraðslæknirinn í Lillehammer í Noregi var myrtur í sjúkravitjun í gærkvöldi. Um fimm leytið í gær- kvöld var hann kallaður í vitjun til 45 ára gamals sjúklings í ná- grenninu. Skömmu eflár að hann var kom- inn á staðinn kom hann helsærður út úr húsinu með stóran hníf í brjóstinu. Kona, sem einnig var í íbúðinni þar sem morðið var fra- mið, hjálpaði lækninum út og náði í sjúkrabíl. Þegar sjúkrabfllinn kom á staðinn var læknirinn dá- inn. Konan, sem var í íbúðinni, situr nú í yfirheyrslu hjá lögreglunni því hún er eina vitnið að morðinu. Skotið á þýska sjónvavps- menn í Santiago Aukið ofbeldi í kjolfar mótmælaaðgerða gegn Pinochet Nú hafa sjö manns fallið á síðustu tveim sólarhringum í átökunum og fjöldamargir særst. Öryggissveitir í fátækra- hverfum Pinochet forseti skipaði öryggis- sveitum hersins í fyrradag að halda vörð um verkamannahverfi höfuð- borgarinnar Santiago þar sem vart hafði orðið töluverðs óróa á meðal íbúa. Þar höfðu stjómarandstæðingar hafið skothríð á hermenn auk þess sem imglingar hlóðu götuvígi og köstuðu grjóti að farartækjum hers- ins. Haft var eftir presti f La Pegua fátækrahverfinu í Santiago í morgun að hann hefði séð hermenn skjóta ungling til bana í gærkvöldi. Heim- ildir af sjúkrahúsum og yfirvalda geta ekki nánar um á hvaða hátt þeir fjórmenningar féllu er staðfest var að hefðu látið lífið í nótt. Mótmælaaðgerðir gegn herfor- ingjastjóm Pinochets hafa sett svip sinn á daglegt líf í Chile undanfama daga. Hafa mótmælin truflað sam- göngur og verslun í landinu og haft er eftír forystumönnum verkalýðs- félaga að mótmælaaðgerðimar að undanfömu séu án efa þær mestu í landinu frá því Pinochet komst til valda fyrir 13 árum. Skotið á sjónvarpsmenn Yfirvöld hafa staðfest að átt hafi sér stað 75 sprengjutilræði, og 13 bensínsprengjuárásir í landinu síð- ustu daga auk þess sem yfir 600 stjómarandstæðingar hafi verið handteknir. Haft er eftir vestur-þýskum sjón- varpsmönnum í morgun í Santiago að í gærkvöldi h'afi hermaður skotið á bifreið þeirra úr vélbyssu þar sem þeir vom á ferð í miðborginni. Sagði einn Þjóðverjanna, Rolf Pflucke frá sjónvarpsstöðinni rás tvö, að í árás- inni hafi innfæddur ökumaður sjónvarpsmannanna særst töluvert auk þess sem bifreið þeirra sé illa farin af kúlnagötum. Talsmaður stjómvalda sagðist í morgun engar fregnir hafa af árás á þýska sjónvarpsmenn. Fréttamenn i námabænum Chuqu- icamata, sem meðal annars er þekktur fyrir stærstu kopamámu heims sögðu í morgun að hundmð verkamanna er ætluðu í mótmæla- göngu til nágrannabæjarins Calama hafi verið snúið við af hermönnum gráum fyrir jámum er handtóku yfir 30 göngumenn. Yfirvöld í Chile hafa nú takmarkað mjög allan fréttaflutning af óróanum í landinu og bera við neyðarlögum vegna óffiðarástandsins. Jarðsprengja drepur þrjátíu og tvo Skriðdrekasprengja, sem skæmlið- ar, sem njóta stuðnings Bandaríkj- anna, komu fyrir varð 32 að bana, sem vom í fólksflutningabifreið í norðaust- ur hluta Nicaragua að því er tilkynnt var í vamarmálaráðuneytinu í gær. í tilkynningu frá ráðuneytinu sagði að'meðal fómarlamba hefðu verið 12 böm og 12 konur. Aðeins einn lifði sprenginguna af. Einnig skýrði ráðuneytið frá því að einn óbreyttur borgari hefði beðið bana og sjö farþegar slasast er skæm- liðar réðust á farþegafeiju á Escondido ánni um 200 kílómetra austur af Managua. Þessar fréttir koma í kjölfar ákvörð- unar Bandaríkjaþings, að veita skæmliðum 100 milljón dollara aðstoð í baráttunni við hina vinstri sinnuðu stjóm landsins. I maí fómst 16 manns af völdum jarðsprengja í norðurhluta landsins, en embættismenn í Nicaragua segja að skæmliðar hafi aukið mjög notkun jarðsprengja á síðustu tveimur mán- uðum. Frakkar fagna aldar- afmæli Frelsisstyttunnar Frakkar munu fagna þjóðhátíðar- degi Bandaríkjanna á morgun með jasshljómleikum, ókeypis drykkjum fyrir Bandaríkjamenn, flugeldum, dansi á götum úti, útgáfu á frímerki til heiðurs Frelsisstyttúnni, sem Frakkar gáfu Bandaríkjamönnum fyrir einni öld, og mörgu fleiru. Sambúð Bandaríkjamanna og Frakka hefur ekki verið með besta móti á þessu ári en aldarafinæli Frelsisstyttunnar mun hafa bætandi áhrif á hana. Styttan er tákn fyrir tvö hundmð ára vináttu og sameig- inlegar hugsjónir þjóðanna tveggja. Frakkar gáfu styttuna, sem mynd- höggvarinn Auguste Bartholdi gerði, árið 1886 sem tákn um vináttu. Reagan, forseti Bandaríkjanna, hefur boðið Mitterrand, forseta Frakklands, að vera viðstaddUr há- tíðahöldin vegna afinælis styttunnar og opnun hennar sem ferðamanna- staðar að nýju. Franskar sjónvarpsstöðvar munu verða með þeinar útsendingar frá hátíðahöldunum í New York. í vínræktarhémðum Frakklands verða bandarískum ferðamönnum gefhar flöskur af víni og Hilton hót- elið í París gefúr hvequm þeim Bandaríkjamanni, sem þar gistir nóttina 4. júlí, eina flösku af Kali- fomíuvíni. Veitingahús eitt í París gengst fyr- ir skógarferð með dæmigerðum bandarískum mat og algengt er að eplabaka sé meðal eftirrétta á mat- seðlum í París þessa dagana. Frelsistyttan er „þemað“ í frönsku til gamans geta þess að á miðnætti frelsi" á veitingahúsinu „Móðir skemmtanalífi þessa dagana og má annað kvöld verður krýnd „ungfrú Jörð“ í París. Nú eru liðin 100 ár síðan Frakkar færöu Bandaríkjamönnum að gjöf Frelsistyttuna. Hún hefur nú verið gerð upp og á morgun, á þjóðhátiöardegi Bandaríkjanna, verður hún formlega opnuð á nýjan leik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.