Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Qupperneq 33
DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986.
45
iljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Hér sést knattspyrnustjarnan ásamt
eftirlætinu sinu, syninum Laurent.
í glæsilegu einbýlishúsi ásamt
konu sinni, Christéle, og tveimur
börnum þeirra.
Morðhótanir
Óttinn gerði fyrst vart við sig
fyrir tveimur árum þegar ítalskir
hryðjuverkamenn hótuðu að ræna
syni Platinis, Laurent, og kreíjast
lausnargjalds sem væri geysihátt.
Síðar var honum sjálfum hótað líf-
láti og nú er svo komið að allir í
íjölskyldunni hafa fengið morð-
hótun. Platini segir að kona sín sé
mjög óttaslegin og sjálfum standi
honum ekki á sama því ítalskir
hryðjuverkamenn eru vanir að
fylgja orðum sínum eftir fyrr eða
síðar. „Við munum dvelja hér í
Torino í eitt ár í viðbót og viðhafa
allar hugsanlegar öryggisráðstaf-
annir. Að þeim tíma liðnum mun
ég hverfa aftur til Frakklands og
þá sem veitingamaðurinn Micha-
el,“ segir þessi ofsótta knatt-
spymustjama.
Ævintýrið sem umbreyttist í
hrollvekju
Líf Platinis var ævintýri líkast áð-
ur en hótanirnar tóku að berast.
Hann var (og reyndar er) þjóðhetja
í Frakklandi, af flestum talinn besti
knattspymumaður Evrópu og lifði
hamingjusömu íjölskyldulífi. Hann
hafði haft góðar tekjur en eftir að
hann gekk til liðs við Juventus frá
Ítalíu margfölduðust þær og urðu
geysimiklar. Lífið hreinlega brosti
við honum og fjölskyldu hans. Nú
lifa þau hins vegar í stöðugum ótta.
Hvert sem þau fara, hvar sem þau
em fylgja þeim lífverðir og þau
geta hvenær sem er átt von á hinu
versta. „Konan mín er mjög tauga-
spennt vegna þessa og þetta em
ekki ákjósanlegustu uppeldisað-
stæðumar fyrir börn,“ segir Plat-
ini.
Hann virðist vera búinn að fá nóg
af lífinu á bak við velgengnisljóm-
ann, a.m.k á meðan það er líf í
heljargreipum óöryggis og ótta.
*-
Michael Platini eins og við þekkjum hann, ógnvaldur allra varna.
Ólyginn
sagði . . .
Clint
Eastwood
hinn nýi bæjarstjóri Carmel
í Kaliforníu hefur sýnt að
hann er undurfljótur að ná
tökum á hinu flókna tafli
stjórnmálanna. Eftir að hafa
einungis setið 7 vikur í emb-
ætti sagði hann upp 4
ósamvinnuþýðum fulltrúum
í áætlunarnefnd bæjarins og
skipaði nýja í þeirra stað.
Clint hreinsaði einnig dekkið
á fleiri stöðum og er nú harð-
lega gagnrýndur af pólitísk-
um andstæðingum sínum.
Segja þeir hann hafa svikið
það loforð að koma með
kurteisi inn í stjórnmálin,
hann hagi sér eins og hver
annar Dirty Harry.
jpmaður
tjórnmálum
annars þætti sem enn eru sýndir
hjá frönskumælandi þjóðum.
Það er á allra vörum að Cyrille
muni ekki láta hér við sitja. Hann
ætlar sér áfram á framabrautinni
og meðal metnaðarmála hans er
að verða ráðherra einhvern daginn
og þá frekar fyrr en seinna. Fáir
efast um að hann nái þessu tak-
marki sínu og hver veit nema
sjálfur Francois Mitterrand megi
fara að vara sig.
Cyrille de Vignemont, undrabarn
franskra stjórnmála.
w blaðsölustöðum
/ium allt land.
„
hbbb t, i t| 7 Timarit fyrir aUa
7. _
„téZ45TL\1M986 - VERÐ KR. 175
skop.................f\ Hiyqqilegui samleto
'ZESÉSr- :í:........3/\ umtieúsuíai
KE— V \ imgtoga
Mislukkað fafflúifarstökk / \ BlS. o
Sex hindurvitni sem l \ .
eyðileggja hjónabandið. / \ « „ ■hmdUrVltlU
Unaðssemdir \ DeX UU^ •
móðurhlutverksms 7 \ semeyoueggja
Geislavirkni: \ ViÍÁr\abaildlÖ
Nýfundin hætta í sígarettum ..35/ \ íljOUaU'
Hugsuníorðum........... / \
Nýjaruppfirmmgar \ ..
TUITC \ Unaðssemdii
SSS..........V WIW \ móðurblut-
mi iiromi\;*
Efþúlendiríflugráni JZ ■ W ■ 1 ■ f| \ QgggXadVOl
5S£ssr 7 TTVWTtOP P \
SStT..../ lvlN PVIVl \áíerödag
lítilsöín.90/ Bls. 51
Litliogstóri ...94/
Úrval
LESEFNI
VIÐ ALLRA HÆFI
í rúminu,
flugvéliimi,
bílnum,
kaffitímanum,
útilegurmi,
ruggustólnum,
inni í stofu.
Áskriftar-
síminn er
27022