Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1986, Síða 10
54
DV. LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986.
Sálræn ævisaga
Howard Hughes
Andleg vandamál, höfaðáverkar og lyfjaneýsla breyttu
snjöllum milljarðamæiingi í sjúka mannafælu
Eftír Raymond D. Fowler
Howard Robard Hughes fæddist 24.
desember 1905. Hann lést 5. apríl
1976 um borð í einkaþotu sem var ó
leið fró Acapulco í Mexikó til Hous-
ton í Texasríki þar sem har.n var
fæddur. Hughes, sem hafði hlotið
heimsfrægð ó yngri órum, hafði
brevst mjög með aldrinum og síðari
hluta ævinnar forðaðist hann nóin
kynni og vildi ekki ekki vera i sviðs-
ljósinu.
Eftir því sem minna var vitað um
einkamál hans jukust sögusagnir.
Sumir töldu að Hughes bæri búinn
að vera látinn árum saman, aðrir
héldu að hann stjórnaði enn fjár-
málaveldinu sem hann átti cg enn
aðrir voru sannfærðir um að hann
væri sálsjúkur og hjálparvana og
meira eða minna á valdi starfsmanna
sinna.
Áhugi lögfræóinga
Lögfræðingar Hughes fengu mik-
inn áhuga á andlegri heilsu hans
eftir dauða hans vegna lögfræðilegra
flækja sem þeir þurftu þá að leysa.
Engin erfðaskró fannst þótt hann
hefði skilið eftir sig miklar eignir og
þar við bættist að margir töldu hann
hafa verið andlega sjúkan. Andrews
and Kirth, lögfræðifyrirtækið í
Houston, sem lengi hafði gætt hags-
muna Hughes á viðskiptasviðinu,
þurfti því að fá eins nákvæmar upp-
lýsingar um andlega heilsu hans og
hægt var að afla. Það sneri sér því
til Raymonds D. Fowler, þáverandi
forseta sálfræðideildar Alabamahó-
skóla, höfundar þessarar greinar.
Var hann beðinn að gera sálfræðilegt
yfirlit þar sem greint yrði frá and-
legri heilsu Hughes frá vöggu til
grafar.
Þannig sá teiknari hann fyrir sér á siðustu árum ævi hans.
. _ t jri
Byggt er á mörgu
Þegar slíkt yfirlit er gert er byggt
á bréfum, hegðunarlýsingum, sam-
tölum við vini og samstarfsmenn og
margvíslegum gögnum sem koma við
starfi og einkalífi. Áreiðanleiki yfir-
litsins er því að miklu leyti kominn
undir því hve mikilla gagna er hægt
að afla um viðkomandi. Um Hughes
var til afar mikið af gögnum, allt frá
þvi hann var ungur og fram á hinstu
stund. Nær öll skjöl, sem sögðu frá
uppvexti hans, höfðu varðveist og á
þeim árum er hann var kaupsýslu-
maður og milljarðamæringur þó
voru allar skipanir hans skráðar,
skýrslur haldnar um símtöl hans og
nær allt sem við kom starfi hans og
einkalífi skráð. Lögfræðingar Hug-
hes sóu til þess að hægt var að
rannsaka þessi gögn og viðtöl feng-
ust við fólk víða í Bandaríkjunum
og einnig erlendis sem kynnst hafði
þessum óvenjulega manni.
Truflanir á sálarlífi í æsku
Niðurstaðan af þessum rannsókn-
um varð meðal annars sú að Hughes
hefði allt frá því í æsku átt við erfið
sálfræðileg vandamál að stríða sem
hefðu svo orðið erfiðari viðfangs síð-
ar á ævinni meðal annars vegna
höfuðóverka og óhóflegrar lyfja-
neyslu. Er talið að rannsóknirnar
hafi sparað dánarbúinu milljónir
dala.
Howard Hughes Jr. var sonur glað-
lynds og úthverfs föður sem var oft
að heiman og hæglátrar konu sem
beindi nær allri athygli sinni að
einkabarni sínu. Móðirin, Allene,
kallaði hann Sonny og hún hafði
stöðugar áhyggjur af heilsufari hans.
Tíu ára gamall fór hann í sumar-