Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Side 4
44
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986.
Eyjan sem beðið er eftir
Frjálst.óháð dagblað
SMAAUGLYSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna paö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, paö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐHD
Þú hringir.., ViÖ birtum... ÞaÖ ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Oplfl:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
Árið 1946 lauk seinni heimsstyrj-
öldinni með því að jarðarbúar
sprengdu sig inn í atómöld af slíkum
reginkrafti að jafnvel vísindamenn
skildu ekki til fullnustu. Til frekari
prófana á þessu ægilega vopni valdi
bandaríski herinn kóralrifið Bikini,
afskekktan eyjaklasa i Kyrrahafinu.
Eyjarskeggjar samþykktu að yfir-
gefa heimili sín þegar þeir voru
fullvissir um að þeir gætu snúið aftur
er tilraununum lyki. Nú eru liðin 40
ár og 23 tilraunasprengingar og enn
bíða Bikinibúar á lítilli einangraðri
eyju í 500 mílna fjarlægð frá heim-
kynnum sínum.
Ástæða þess að Bikini var valin
var sú að hún er einangruð frá hefð-
bundnum sjávar- og loftleiðum og
vindar við rifið blása í þær áttir að
stjórn má hafa á geislavirku úrfelli.
En í eitt skipti breyttist vindátt á
meðan á tilraun stóð og þess vegna
eru Bikinibúar enn strandaglópar þó
liðin séu 40 ár. Þetta var þegar Bravo
var sprengd.
Bravo var fyrsta árangursríka til-
raun Bandaríkjamanna með vetnis-
sprengju. Afl sprengjunnar jafnaðist
á við 15 milljón tonn af sprengiefninu
TNT (sprengjan sem varpað var á
Hiroshima jafnaðist á við 15 þúsund
tonn af TNT). Hin óvænta vindátt
dreifði geislavirku úrfelli yfir gríðar-
stórt svæði, sennilega u.þ.b. 50.000
fermílur. Innan þessa svæðis voru
250 íbúar á eyjunum Rongelap og
Utirik, 28 veðurathugunarmenn á
Rongerik og 23 fiskimenn á japanska
bátnum Daigo Fukuryu Maru en
einn þeirra lést strax vegna geislun-
ar. Enn þann dag í dag ógnar Bravo
lífi fórnarlamba sinna og harmleik-
urinn er bandarískum stjórnvöldum
í fersku minni.
Að gleðja guð
Nú eru 40 ár liðin frá sunnudegin-
um þegar Ben Wyatt, sjóliðsforingi
í bandaríska flotanum, færði eyjar-
skeggjum tíðindin. Hann sagði að
eyjuna þeirra ætti að nóta í þágu
mannkyns og gaf í skyn að jafnvel
guð almáttugur myndi gleðjast ef
þeir samþykktu að fara.
Bikinibúar voru bæði guðhræddir
og góðviljaðir, enda svaraði höfðingi
þeirra, Juda, á þann veg að ef banda-
ríska ríkisstjórnin og vísindamenn
heimsins vildu nota eyjuna þeirra og
kóralrifið til tilrauna sem með guðs
hjálp myndu verða öllu mannkyni til
góðs þá skyldi fólkið með glöðu geði
flytjast í burtu. Allir íbúamir, 161
að tölu, voru í skyndi fluttir á aðra
eyju. Með sér tóku þeir aðeins strá-
þökin af húsum sínum auk sameigin-
legrar kirkju og samkomuhúss sem
fljótlegt var að taka í sundur og setja
saman.
Þann 1. júlí 1946, aðeins sex mánuð-
um seinna, kom B-29 sprengjuflugvél
hersins fljúgandi yfir lónið. Úr maga
hennar féll undarlegur hlutur og
þaut með miklum hraða í átt að einu
af 93 ómönnuðum fljótandi skot-
mörkum á lóninu. Klukkan 34
sekúndur yfir níu um morguninn
sprakk þessi hlutur í 150 metra hæð
yfir vatnsfletinum og í nokkur ógn-
arleg augnablik á eftir var alveg eins
og sólin hefði komið upp í annað sinn
þennan morgun.
Þar með hófust kjarnorkutilraunir
Bandaríkjamanna á Kyrrahafi. Á
næstu 12 árum voru sprengdar meira
en 60 tilraunasprengjur, flestar í
kóralrifinu Enewetak í Marshall
eyjaklasanum. Ein af þeim 23 sem
sprengdar voru við Bikini var Bravo,
aflmesta sprengja sem Bandaríkja-
menn hafa nokkurn tíma sprengt.
Sameinað afl allra sprengja í öllum
styrjöldum veraldarsögunnar mætti
sín lítils i samanburði við afl Bravo.
Þegar tilraununum lauk og allir
vísindamenn, hermenn og aðstoðar-
menn voru farnir, skotmörkin á
lóninu sokkin eða á bak og burt og
síðasta höggbylgjan hafði riðið yfir
kóralrifið var eyjan Bikini enn á sín-
um stað með öll kókoshnetu- og
pálmatrén sín, lýsandi dæmdi, að því
er virtist, um að lífið gengi sinn gang
þrátt fyrir allar kjamorkusprengjur.
Á Kili, fjarri heimahögum
En þessi eyja og 22 aðrar eyjur á
kóralrifinu voru ekki samar og eru
ekki enn þann dag í dag. í jarðvegin-
um eru geislavirk efni sem gera þær
óbyggilegar og nú, þegar 40 ár eru
liðin, búa Bikinibúar enn á lítilli
óhrjálegri eyju, fjarri heimahögum.
Eyja þessi heitir Kili, hún hefur ekk-
ert sjávarlón og er aðeins um 100
hektarar að stærð.
Einu sinni voru Bikinibúar frábær-
ir sjómenn sem sigldu litlum kanóum
sínum margar mílur til að heimsækja
aðrar eyjar í rifinu. Þeir veiddu fisk
og söfnuðu skjaldbökueggjum og
borðuðu auk þess kókoshnetur og
örvarætur. Við þessa miklu breyt-
ingu á lífsháttum urðu þeir landfastir
og siglingakunnáttan dó með gömlu
mönnunum. Bandaríska landbúnað-
arráðuneytið sér þeim fyrir matvæl-
um sem oft á tíðum eru óæskileg
vegna sjúkdóma sem herja á eyjar-
skeggja s.s. sykursýki.
Þeir eru líka orðnir örvæntingar-
ýncj j'o íutn u)tui