Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Blaðsíða 8
Náttúrufegurð í Búlgaríu er mikil, einkum eru skógamir fagrir, með mörgum tegundum af trjám. Hver blettur er ræktaður en mikil ávaxta- og vínrækt er í landinu. Búlgaría er rík af sól og jarðargróðri, loftið og sjórinn er hreint. En götumyndin er ekki jafnsólrík, almenningur með þyngra yfirbragði en gengur og gerist hér hjá okkur og bílamir em yfir- mátta lítið skemmtilegir. Engir glæsi- vagnar, ekkert nema gamlar Lödur, Moskóvítar og Trabantar. Það var dálítið spaugilegt að sjá löggumar, þær vom á gömlum Moskóvítum. Perla Svartahafsins Ferðinni var heitið til staðar er nefh- ist. Elenite og er við Svartahafið. Haldið var frá Islandi með Flugleiðum til Lúxemborgar og stigið þar um borð í flugvél frá Balkanair. Eftir að hafa verið á Saga farrými Flugleiðavélar- innar vom þetta mikil viðbrigði en öll þjónusta um borð var alúðleg. Fyrsti áfangastaður okkar í Búlgaríu var stórborgin Vama sem hefur verið nefnd perla Svartahafsins en þaðan er farið með áætlunarbíl til Elenite. I hópnum vom ijórir blaðamenn og ein ferðaskrifstofuhjón. Við vorum í eins konar könnunarleiðangri, ætluð- um að kynnast nýjum sumardvalar- stað sem íslendingum er nú boðið upp á, sem er Elenite. Á flugvellinum tók á móti okkur kona nokkur, sem var leiðsögumaður okkar þann tíma sem við dvöldum í Búlgaríu. Hún var jafnframt túlkur okkar og hjálparhella og hét Kossy Orthodoxova, en við kölluðum hana Kossy. Hún galdraði okkur í gegnum tollskoðun með einni setningu og svaraði fýrirspumum okkar greiðlega. Kossý er fulltrúi Balkantourist sem er búlgarska ferðaskrifstofan, ríkis- rekin eins og önnur fyrirtæki í Búlgaríu. Veðrið var mjög gott, hlýtt og sólsk- in. Við vorum farin að þrá að komast á leiðarenda enda höfðu allir þurft að fara á fætur um miðja nótt til að ná fluginu til Lúx. Við ókum nú sem leið lá í áttina að Elenite, utan í The Balk- an Range, eins og Kossý kallaði Balkanfjallgarðinn sem Baíkanskagi dregur nafn sitt af. Við ókum í gegnum blómleg land- búnaðarhémð, þar sem vin og ávaxta- ekrur voru áberandi. Búlgaría er sjálfri sér nóg með landbúnaðarvörur, enda sauðfjárrækt mikil í landinu. Búlgarir em duglegir að notfæra sér hinar ýmsu sauðfjárafurðir. Hvíti ost- urinn, sem borinn er fram með flestum máltíðum, er búinn til úr kindamjólk. Finnsk hönnun Sumardvalarstaðurinn Elenite er alveg glænýr af nálinni. Þetta er ann- að sumarið sem hann er starfræktur. Búlgarar hafa á undanfömum árum verið að byggja upp aðstöðuna til þess að taka á móti ferðamönnum. Þeir sjá í þeim möguleika á að auka við gjald- eyrisöflun sína. Til baðstaðanna í grennd við Elenite er nefnist Sunny Beach koma árlega 600 þúsund ferða- menn. Þar af em fjölmargir ferðamenn frá Svíþjóð, Finnlandi og Bretlandi. Á sl. ári komu þrjátíu íslendingar til Sunny Beach. Þetta kom fram á blaða- mannafundi sem haldinn var með aðalforstjóra Balkantoiuist, Jani Ni- kolov. Þar kom einnig fram að 70% hótela í landinu em á strönd Svarta hafsins. Það vom Finnar sem hönnuðu og byggðu sumardvalarstaðinn Elenite. Búlgarar hafa gert nokkuð að því að fa öðrum þjóðum í hendur það verk- efni að reisa hótel og sumardvalar- staði. Það em þá þjóðir sem eiga greiðari aðgang að lánsfé en þeir sjálf- ir. Þama em svokallaðar stúdíóíbúðir í eins konar raðhúsum. Hver íbúð hefur sér inngang og annaðhvort eigin verönd eða svalir. Ibúðimar em allar með kæliskáp og eldunarplötu, rúm- góðu herbergi með ágætu rúmi. Hægt er að búa um þriðja aðila í íbúðinni án fyrirhafnar. Húsgögnin em einfold, líkust því að þau væm keypt hjá IKEA. Hægt er að leigja sjónvarpstæki fyr- ir einn dollara á dag, en við vitum ekki hvemig sjónvarpsdagskráin er í Búlgaríu, nema hyað þar em sýndar vestrænar myndir með búlgörskum texta. Rúmgóð strönd Eftir að allir höfðu komið sér fyrir var safnast saman í veitingasal hótels- ins eða þjónustumiðstövðarinnar í Elenite. Þar var borinn fram veislu- matur eins og raunar alla dagana sem við vorum_í landinu. Var það jafnvel svo að ýmsum þótti nóg um allar mál- tíðimar. Daginn eftir skoðuðum við baðað- stöðuna. Sjórinn er hreinn og sömu- leiðis ströndin. Eitt af séreinkennum Svartahafsins er að þar gætir ekki flóðs eða fjöm. Hafið er líka minna salt en gengur og gerist um úthöf og öldumar því „létt- ari“ en í saltari sjó. En auðvitað er Svartahafið ekki svart frekar en Rauðahafið er rautt. Svartahafið fékk nafh sitt í árdaga. Þá var sú þjóð sem settist að þar sem nú er Búlgaría ekki sæfarendur og var meinilla við hafið. Þeir áttu ekki nógu góð skip til þess að sigla á hafinu og kunnu ekki að notfæra sér fiskinn sem þar var að fá. Þess vegna kölluðu þeir hafið Svartahafið, - svart var eitthvað sem var slæmt. Þótt þjóðimar við Svartahafið hafi síðar lært að notfæra sér afurðir þess og einnig að notfæra sér hafið sem samgönguleið var nafninu ekki breytt. Fyrir þá sem ekki vilja baða sig í sjálfu hafinu á Elenite er þar sundlaug sem fyllt er með sjó. Mjög góð aðstaða er þama til hvers konar heilsubótar og líkamsræktar. Þama er hægt að fara á sjóskíði, sigla og svífa um loftin blá í fallhlíf o.fl. Staðurinn virðist sérlega heppilegur Baðstrendurnar eru mjög hreinar og gróði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.