Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Side 6
46
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986.
Það flæðir ört að og strandfuglarnir
flestir horfnir.
r ’ Tímikominntilþessaðfaraámiðinog N _
nota væng ina.1
Boris Becker - hin nýja hetja Þjóðverja
Það fer ekki á milli mála hver
er aðalstjarna þýskra íþrótta nú á
síðustu tímum. Það er óumdeilan-
. lega gullkálfurinn Boris Becker
sem skaust upp á stjörnuhimininn
í fyrra þegar hann sigraði á
Wimbledon tennismótinu aðeins 17
ára að aldri. Þar með braut hann
blað í sögunni því hann var yngsti
sigurvegari frá upphafi á þessu
frægasta tennismóti allra tíma.
Reyndar nær frægð Wimbledon
Iangt út fyrir raðir tennisáhuga-
manna. Mótið er einn af stærri
íþróttaviðburðum hvers árs og
verður sífellt umsvifameira. Það er
einnig orðið að einum stærri sjón-
varpsviðburðum í Englandi og
athyglin sem sigurvegararnir fá er
gífurleg.
Becker náði að sigra á mótinu
aftur í ár og var sigur hans nú
ekki síður mikilvægur en í fyrra.
Hann þurfti á þessum sigri að halda
til að sanna sig því árangur hans
frá því í fyrra hefur verið upp og
ofan. Og til að kóróna sigurinn
vann hann Tékkann Ivan Lendl í
úrslitunum. Lendl er af flestum
talinn besti tennisleikari í heimi
en hefur gengið illa á grasvöllum
og hafði reyndar ótrúlega lítið í
Becker að segja í úrslitaleiknum.
Becker-æði
Það sem er hvað athyglisverðast
við sigra Beckers er hvemig landar
hans hafa brugðist við þeim. Hann
hefur verið hafinn upp til skýjanna
og dýrkaður'meira en aðrir afreks-
menn í Þýskalandi. Aðdáenda-
■ klúbbar spmttu upp út um allt
Þýskaland og nafn hans var á allra
vörum. Hefur þetta. Beckers-æði
gengið svo langt að samtök hafa
verið 'stofnuð til að berjast gegn
dýrkun á Becker!
Þá hafa íþróttamenn eins og Mic-
hel Gross, sundkappinn frábæri,
kvartað yfir þeirri athygli sem
Becker fær. Gross sagði meðal ann-
ars að hann þyrfti að setja eitt
heimsmet á dag til geta keppt við
Becker. Meira að segja þýska
knattspyrnulandsliðið hefur fallið
í skuggann af Becker og er það þó
vanalega miðpunktur athyglinnar
í íþróttum í Þýskalandi.
Aðrir íþróttamenn em að vonum
ekki hressir með að þurfa að sitja
í skugganum. Og svo spila auðvitað
peningar inn í því enginn fær aug-
lýsingatekjur í líkingu við Becker.
Og þetta hleður utan á sig. Eftir
því sem Becker fær meiri umfjöllun
fær hann meiri auglýsingar sem að
mörgu leyti ýta honum enn frekar
fram í sviðsljósið.
Er fyrst og fremst þýskur
En af hverju er hann svona vin-
sæll? Ástæða þess er auðvitað sú
að hann slær í gegn í gífurlega vin-
sælli íþrótt. En þó að tennis hafi
mikið verið stundaður í Þýskalandi
hafa Þjóðverjar aldrei eignast af-
reksmann í líkingu við Becker í
íþróttinni. Hann nýtur því þess að
vera fyrstur í röðinni.
Þá er Becker ákaflega þýskur á
allan hátt. Hann er auðvitað þýsk-
ur í útliti og hátterni og ber hið
mjög svo þýska nafn Boris. Þá þyk-
ir hann ákaflega heppileg fyrir-
mynd fyrir ungt fólk í Þýskalandi.
Það er ekki yfir honum þessi
þreytulegi vinstri „mótmælablær“
sem hefur verið svo ríkjandi meðal
þýskra ungmenna allt frá dögum
stúdentauppreisnanna. Becker er
nefnilega „uppi“ - ungur maður á
framabraut.
Becker er í miklu uppáhaldi með-
al ráðamanna í Þýskalandi sem
fylgjast vel með ferli hans. Eftir
sigurinn á Wimbledon að þessu
sinni sendi Helmut Kohl kanslari
honum heillaóskaskeyti og sparaði
ekki lýsingarorðin þegar hann var
að lofa frammistöðu hans við
fréttamenn. „Frammistaða Beckers
er einstök og hann er Þýskalandi
til sóma. Hann hefur sýnt hverju
einstaklingurinn fær áorkað svo
framarlega sem hann er tilbúinn
að leggja hart að sér,“ sagði Kohl.
Margmilljónamæringurinn
Becker
Becker þykir hafa sýnt mikið
fjármálavit sem er þó ekki hvað
síst að þakka fjármálastjóra hans,
Rúmenanum Ion Tiriac. Á þessu
eina ári síðan hann vann á
Wimbledon hefur hann unnið eina
Það eru mikil átök þegar Becker leikur tennis. Baráttan og sigurviljinn eru griðarleg og krafturinn er hans
aðalsmerki. Einbeitni Beckers er einnig viöbrugðið og hann er í fullkomnu jafnvægi fyrir hvern leik.
milljón dollara í verðlaun sem er
þó aðeins brot af því sem hann
hefur í tekjur af íþróttinni. Þessi
milljón er þó met hjá svo ungum
íþróttamanni
Tilboðum um auglýsingar rignir
inn og í raun annar hann engan
veginn eftirspurn. Það gerir honum
hins vegar kleift að velja úr. Um
daginn bauð Puma fyrirtækið, sem
framleiðir íþróttavörur Beckers,
rúmar 120 milljónir kr. fyrir að
auglýsa vörur þess. Það er því ekki
nema von að þýskir bankar næst-
um sláist um að láta Becker
auglýsa fyrir sig.
Ekki sá besti
Þrátt fyrir að Becker hafi afrekað
ýmislegt sem helmingi eldri menn
væru stoltir af þá eru skiptar skoð-
anir um getu hans á íþróttavellin-
um. Stíll hans, sem er kraftalegur
og stórkarlalegur (þýskur?), þykir
ekki skemmtilegur á að horfa.
Hann skortir tækni en kemst þetta
langt á ótrúlegum baráttuvilja,
snerpu og krafti. Hann er frægur
fyrir geysifastar uppgjafir og í úr-
slitaleiknum á móti Lendl réðu þær
úrslitum. Lendl hafði fyrir leikinn
sagt að hann yrði að stöðva upp-
gjafirnar og þá gæti hann sigrað.
Það tókst honum ekki og tapaði.
Þrátt fyrir ýmsa annmarka sem
tennisleikari þá hefur Becker
skráð nafn sitt á spjöld sögunnar.
Og hann er enn mjög ungur að
árum. í raun veit enginn hverju
Becker getur áorkað á tennisvell-
inum í framtíðinni. Hann þarf
heldur ekki að hafa áhyggjur af
fjármálunum sínum það sem eftir
er. Þetta eina ár hefur fært honum
það mikinn auð að það ætti að
endast honum út æfina.
-SMJ