Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Síða 7
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986.
47
UF02 eftir sigurinn á Paul Ricard kappakstursbrautinni þar sem eyðslan samsvaraði þvi að bíllinn kæmist 746
kilómetra á einum bensinlítra eða hringveginn um island á tveimur litrum.
UF02 - sigurvegarinn í sparakstri:
Kæmist hring-
veginn á tveimur
Umsjón:
Jóhannes Reykdal
metra á einum bensínlítra sem byggt
var á þremur hringferðum um braut-
ina á aðeins 29 mínútum. Sömuleiðis
tókst þessu ökutæki að ná í þann
titil sem svndi bestu orkunvtinguna
miðað við hraða.
Þessi keppni á Paul Ricard braut-
inni. „Marathon Shell L'Automobile
Magazine". gaf ekki vonir um nein
heimsmet í þessari sérstæðu keppnis-
grein. Þar eru of miklar mishæðir.
krappar bevgjur og svo er yfirborð
brautarinnar alltof gróft til að skapa
aðstæður til slíks. Að sögn Eric
Banks. sem leiðir hópinn sem stend-
ur fvrir UF02. er mun líklegra aö
það takist að slá gildandi heimsmét.
sem er 0.0-196 lítrar á lnindraðið. á
„Shell/Motor Mileage Marathon"
sem haldið veröur á Silverstone
kappakstursbrautinni nú í júli.
Keppnisliíllinn UF02 er lítið
breyttur frá árinu 1985. en þó voru
ýmsar breytingar gerðar til að ná
fram betri árangri. Þvngdin var
minnkuð úr 29 í 26 kiló. Glugginn
var stækkaður til að gela meira út-
sýni. en „glerið" or aðeins einn
millimetri á þvkkt og gert úr sér-
stöku plastefni.
Vélin er aðeins 15 rúmsentimetrar
að stærð og framleiðir 540 vött við
5000 snúninga á mínútu. Nú í ár var
oins strokks vélinni hallað um 15
gráður til að ná fram betri olíu-
smurningi. Stýrið er eftirlíking úr
ekta kappakstursbíl til að mynda
sem minnstan titring og til að hjólin
hafi ávallt réttan snertiflöt við jörð-
ina.
í keppninni nú voru ökumenn
t-veir. báðir konur, Debbie Gould, 24
ára, sem er aöalökumaður. og Mic-
helle Marrion 19 ára. Báðar eru þær
160 sentímetrar á hæð og vega aðeins
45 kíló.
bensínlítrum
Sífellt keppa bílaframleiðendur að
minni eldsneytiseyðslu bíla sinna og
stunda ýmsar tilraunir í þá átt. Einn
liður Fordverksmiðjanna í þessari
þróun er smíði og tilraunaakstur á
farartæki sem þeir kalla UF02,
(UFO = Ultimate Fuel Optimiser).
Þessi „bíll" vann sigur á 23 keppi-
nautum frá fimm löndum á Paul
Ricard kappakstursbrautinni í
Castelet í Frakklandi nýlega.
Ford UF02 náði fyrsta sætinu með
því að komast sem svarar 746 kíló-
ökumennirnir, Debbie Gould og Michelle Marrion, standa hér við „bilinn"
sem þær óku til sigurs. Samtals er bill og ökumaður aðeins 71 kíló að þyngd.
Bílar
Betra að vita
hve hratt má aka
Æ fleiri íslendingar fara nú í frí til
útlanda með þeim hætti að taka sé':
bílaleigubíl og aka sem leið liggur
í fríið. I langflestum löndum Evr-
ópu eru umferðarreglur nær þær
sömu og hér hjá okkur. Einstaka
merki. sem lítt eða ekki eru notuð
hér. sjást þar til leiðbeiningar en
aðalmunurinn liggur í hraðatak-
mörkunum. Margir ökumenn
halda að það sé aðeins hér á landi
sem ökuhraðinn er takmarkaður
en því fer víðs fjarri. í flestum lönd-
um má sjá leiðbeiningarmerki sem
gefa til kynna hámarkshraða. og
það er aðeins á þýsku hraðbraut-
unum eða autobahn þar sem
enginn hámarkshraði fyrirfinnst.
Eitt þeirra landa sem íslenskir
ökumenn hafa lagt leið sína til
undanfarin ár. ýmist á eigin bíl
með ferjunni Xorröna eða á bíla-
leigubílum. er Danntörk.
Þar bregður svo við að engin
merki gefa til kynna hámarkshraða
á vegurn og því betra að vera vel á
verði hvað það varðar. A hrað-
brautunum er hámarkshraðinn 100
krn á klukkustund. A þjóðvegum
utan þéttbýlis er hámarkshraðinn
S0 knt og í þéttbýli 50 knt. Þéttbýli
er skilgreint á þann hátt að rnerki
er með nafni viðkomandi bæiar og
skuggamynd af húsum. Þegar ekið
er út úr viðkomandi þéttbýli birtist
santa skiltið aftur en nú með nafn-
inu yfirstrikuðu. Þar á eftir tekur
við So km hámarkshraði aftur.
Þetta ættu ökumenn á leið til Dan-
merkur að leggja á ntinnið þvi þaö
er ekkert grín að eyðileggja sum-
arfríið með þvi að kornast í kast
við umferðarlögregluna sem er
nokkuð mikið strangari en við eig-
um að veniast hér á landi þótt
mörgum þyki nóg um.
í Danmörku eru ekki merki sem gefa til kynna hver hámarkshraðinn er
á hverjum stað svo betra er að kynna sér það áður en lagt er upp i
ökuferð.
Svíþjóð:
Beltisskylda
Frændur vorir Svíar ganga ávallt
lengra en margir aðrir til að
tryggja öryggi i umferðinni. Frá
og með 1. iúlí síðastliðnum verða
SAAB sækir
Saabverksmiðjunum sænsku geng-
ur vel að selja bíla sína í Bandaríkj-
unum. A fyrstu þremur mánuðum
í aftursæti
allir farþegar í aftursæti bifreiða.
15 ára og eldri. að nota öryggis-
belti.
á í USA
ársins jókst sala þeirra þar unt 15.
9°0 úr S6S4 bílum 'S5 í 10063 bíla í
ár.
50 milljón Toyotabílar
í Japan hetur Toyota haldið upp á 50 milljón bílar hafa verið fram-
það eftir 50 ár og átta mánuði að leiddir í verksmiðjum þeirra.
Japanir kaupa ítalska bæi
ltalía á heldur betur upp á pall-
borðið hjá japanska bilaframleið-
andanum Nissan. Nissan hefur
nefnilega „kevpt" flestar þekkt-
ustu borgir og bæi á Italíu á 60.000
krónur stykkið.
Þetta þýðir þó ekki að ekki megi
aka á Alfa Ronteo og Fiat um stræti
og torg í þessum bæjum heldur
náðu þeir sér í einkalevfi á notkun
á nöfnunt þessarra bæja á fram-
leiðslu sína. Nissan hefur þegar
kallað einn bíla sinna eftir ítalskri
borg. Nissan Milanó. og í framtíð-
inni má búast við Nissan Roma og
Nissan Napoli.
Einkalevfið var skráð í Tokvo og
á rætur í mikilli velgengni ítal-
skrar hönnunar urn allan heirn. Nú
er bara spurningin hvort aljap-
anskur bíll verður betri þótt hann
beri ítalskt nafn.