Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Page 13
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986.
53
Rilen Cathey.
Rilen Cathey í gervi kvenmanns.
manninn sem sat fyrir framan þá.
Þeir höfðu rannsakað mörg morðmál
en aldrei heyrt neitt slíkt fyrr.
Stone bætti því nú við að kista
Torrez væri í Stockton. „Cathey
sagði mér að hann hcfði falið Tony
á bak við gervivegg í húsvagninum
sínum,“ sagði hann.
Húsvagninn finnst
Smith ogFreelaríd íóru nú flugleið-
is til Stockton þar sem þeir fundu
húsvagninn. Þeir hófu þegar leit og
þar reyndist allt vera eins og Stone
hafði sagt þeim. Þeir fundu kistuna
og í henni voru jarðneskar leifar
Torrez. Líkið hafði verið afklætt að
hluta til og bökunarsóti notaður til
þess að kæfa nálykt.
Næst var haldið til kirkjugarðsins
þar sem Torrez hafði verið jarðaður.
Við gröfina var engin þau ummerki
Sérstæð sakamál
að sjá sem gáfu til kynna að kistan
hefði verið grafm upp en uppgröftur
leiddi í ljós að gröfin var tóm. Þótti
það með ólíkindum að einum manni
skyldi hafa tekist að fiarlægja kist-
una.
Þungt grafarlok
Það tók grafarana þrjá stundar-
fjórðunga að vinna verkið með
skóflum og hökum en kistan hafði
verið lögð í steinsteypt hylki og var
lokið á því um 400 kílógrömm.
Kirkjugarðsstjórinn varð mjög
undrandi er hann sá að kista Torrez
hafði verið fjarlægð. „Það var ekki
að sjá að neitt hefði verið hreyft við
gröfinni," sagði hann. „Það hefur þó
verið gert en augljóst er að sá sem
það gerði hefur farið mjög gætilega
að.“
Alls tók það grafarana hálfa aðra
klukkustund að opna gröfina og loka
henni en þetta virðist Cathey hafa
gert einn, á einni nóttu.
Réttarhöldin hefjast
Réttarhöldin yfir Cathey hófust i
ágúst 1982. Verjandi hans, Charles
Gessler, lýsti þá yfir því að skjól-
stæðingur hans hefði ráðið Anthony
Torrez af dögum. Hann hélt því þó
fram að Cathey hefði ekki framið
morð af ásettu ráði heldur hefði hann
ekki þolað að sjá fyrrverandi elsk-
huga sinn standa nakinn í svefnher-
bergi frænku hans með vinkonu sína
við hlið sér þar sem hún hefði verið
að skipta um umbúðir á sári hans.
Vitni héldu því fram að enginn
vafi léki á því að Cathey hefði verið
mjög ástfanginn af Torrez. Hefði
Cathey viljað gera sig sem kvenleg-
astan og meðal annars tekið kven-
hormóna í því skyni. Eitt vitnanna
var þannig kona sem kvaðst að
minnsta kosti fjórum sinnum hafa
greitt hár Cathey á kvenlegan hátt
áður en hann hefði farið að snæða
kvöldverð með Torrez.
„Hann sagði mér að hann elskaði
Torrez meira en nokkurn annan sem
hann hefði nokkru sinni kynnst,"
sagði hún. „Og hann lærði allt sem
konur gera svo sem að prjóna og
sauma. Þá fór Torrez með hann eins
og konu.“
Stormasamt „hjónaband“
Fram kom við réttarhöldin að sam-
band þeirra Torrez og Cathey
einkenndist oft af deilum og eitt sinn
hafði Torrez tekið upp skammbyssu
og ógnað Cathey með henni. Þá hafði
vinur þeirra hins vegar verið við-
staddur og hafði honum tekist að
sparka byssunni úr hendi Torrez.
Loks kom það í h!ut kviðdóms að
komast að niðurstöðu í málinu. Sak-
sóknari lagði að kviðdómendum að
finna sakborning sekan um að hafa
myrt Torrez af ásettu ráði. Kvið-
dómendur voru hálfan annan dag að
fjalla um málið en loks tilkynntu
þeir þá niðurstöðu sína að þeir fyndu
Cathey sekan um morð af fyrstu
gráðu. Jafnframt fundu þeir hann
sekan um ólöglegan vopnaburð.
Cathey var klæddur í bláar galla-
buxur og bláa skyrtu er úrskurður
kviðdómenda var lesinn upp. Hann
beit á vörina en leit aldrei á tólf-
menningana sem fjallað höfðu um
málið.
Löng fangelsisvist
14. september kvað Edward M.
Ross dómari upp þann dóm að Cath-
ey skyldi sitja í fangelsi ekki skemur
en 33 ár og ef til vill allt til æviloka.
Það táknar að hegðan fangans ráði
miklu um hve löng vistin verður.
Dómarinn hafði orð á því að Cat-
hey væri það vel efnaður að rétt
væri að hann greiddi fimm þúsund
dali í málskostnað og til að bæta að
nokkru leyti þeim sem við sögu máls-
ins hefðu komið það tjón sem þeir
hefðu orðið fyrir.
Rilen Cathey situr nú 1 fangelsi í
Kaliforníu. Hann getur sótt um náð-
un er hann hefur setið inni í sautján
;ir.
Verkamenn óskast
Verkamenn óskast, mikil vinna.
Upplýsingar í síma 50877.
Loftorka
Til sölu Audi Quattro 4x4 tur-
bo árg ’83, með beinni innspýtingu, 220 ha mótor,
læstu drifiTlæstum millikassa, aflstýri, aflbremsum og full-
komnum stereotaekjum.
Bíllinn er leðurklæddur með tölvumælaborði með erisku
tali.
Hann er eins og nýr, ekinn aðeins 29.000 km, erlendis.
Uppl. í síma 687-577.
Starfsfólk óskast í eftirtaldar stöður:
Bókari
með góða bókhaldskunnáttu fyrir eina af aðaldeild-
um Sambandsins. Ráðningartími sem fyrst.
Skrifstofufólk
til starfa við útreikninga og almenn skrifstofustörf.
Ráðningartími frá 1. september næstkomandi.
Sölumann
á sviði matvara, æskileg reynsla í sölu og verslunar-
störfum. Ráðningartími sem fyrst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfsmanna-
stjóra sem gefur nánari upplýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
LINDARGÖTU 9A