Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986. Fréttir Ólgufundur hjá Byggung: Stjórnarförmaður hrópaður niður Guðmundur Karlsson framkvæmdastjóri Byggung talar yfir bálreiðum húsbyggjendum á ólgufundinum í gærkvöldi. DV-mynd KAE. Formaður stjómar Byggung, Ámi Þór Ámason, var hrópaður niður í upphafi fundar hjá byggingarsam- vinnufélaginu í gærkvöldi sem haldinn var til að skýra bakreikn- inga sem íbúar við Seilugranda og Rekagranda hafa verið að fá í hend- ur að undanfömu. Stjómarformað- urinn hafði tilnefnt sjálfan sig fundarstjóra, lagt fram drög að skipulagi fundarins og óskað eftir að fréttamenn DV yrðu látnir víkja af fundi þegar fúndarmenn tóku af honum völdin. Var skipaður nýr fundarstjóri og stjómarformaðurinn settur út í sal. Ibúar í Byggungblokkum úti á Granda hafa verið æfir að undanf- ömu vegna bakreikninga sem þeim hafa borist og nema frá 200 þúsund krónum og upp í rúma milljón. Una íbúamir þessu illa og neita að greiða. Stórslys? Á fundinum í gærkvöldi var stjóm Byggung og endurskoðendur harð- lega gagnrýndir fyrir vinnubrögð sem flestum fundarmönnum þóttu fyrir neðan allar hellur: „Við ættum ekki að þræta um hvemig tölur em framreiknaðar og upphæðum deilt niður á íbúðir. Miklu nær er að reyna að fá botn í hvemig stendur á þessum gífurlega byggingarkostnaði hjá Byggung," sagði einn fundarmanna. „Hér hljóta að hafa orðið stórfelld mistök eða stórslys. Stjómarformanni væri nær að biðjast afsökunar frekar en ráð- ast á viðstadda blaðamenn. Stjómin er ekki starfi sínu vaxin né frekar endurskoðendur. Við ættum að af- skrifa þá vegna þess að þeir kunna ekki til verka. Byggung er að verða brandan." Nauðsyn að rukka Nýráðinn framkvæmdastjóri Byggung var harðlega gagnrýndur á fundinum en hann varðist fimlega og sagði meðal annars: „Ég er ný- kominn til starfa og þekki ekki byggingarsögu þessa hóps sem hér um ræðir. Ég veit það eitt að þegar ég fór að líta á bókhald fyrirtækisins varð mér ljóst að einhverja varð að mkka. Það er erfitt að fá upplýsing- ar um hvemig staðið hefur verið að þessu í upphafi vegna þess að fyrrum framkvæmdastjóri og stjómarfor- maður (Þorvaldur Mawby, innsk. DV) og endurskoðandi (Helgi Magn- ússon, innsk. DV) em báðir hættir störfum.“ Fé flutt tll í máli fulltrúa endurskoðunar- skrifstofu Helga Magnússonar, er mættur var á fundinn, kom meðal annars fram að oft væri erfitt að sjá hvar greiðslur frá byggjendum lentu í stórfelldum framkvæmdum fyrir- tækisins. Hann viðurkenndi að fyrir kæmi að greiðslur væm fluttar á milli áfanga til að halda verkum gangandi. Kjörinn endurskoðandi húsbyggjenda sjálfra upplýsti á fundinum að hann hefði skrifað und- ir ársreikninga Byggung í trausti þess að stjómendur fyrirtækisins væm sómamenn sem mætti treysta. Og hann bætti við: „Það er margt ótrúlegt sem maður hefur séð í þess- um reikningum." Endurskoðun samþykkt I fundarlok var tillaga íbúa, um að hlutlaus aðili yrði fenginn til að endurskoða bókhald Byggung og uppgjöri frestað þar til niðurstaða lægi fyrir, -amþykkt mótatkvæða- laust. Ólgufundinn hjá Byggung í KR- heimilinu sátu um 200 manns. -EIR Útvarpsumræðumar: Deilt um góðærið Kaupmáttur tekna heimilanna er sá mesti sem hann hefur verið í sögu þjóðarinnar, sagði forsætisráðherra á alþingi í gærkvöldi. Ráðherrann flutti þar stefnuræðu sína og boðaði áfram- haldandi efnáhagsbata og að verð- bólgan verði innan við fimm af hundraði á næsta ári enda verði þá reynt að stemma stigu við auknum útgjöldum, vérðhækkunum og launa- hækkunum að sama skapi. Fjármálaráðherra kynnti tillögur sínar um lægri skattahlutföll og hærri skattleysisþrep. Gerði hann ráð fyrir að hjón með tvö börn, sem hafa 60 til 70 þúsund króna mánaðarlaun, muni ekki greiða tekjuskatt og útsvar á næsta ári. Stjórnarandstæðingar gerðu harða hríð að ríkisstjóminni og kváðu hana leggja meira upp úr tölum og talna- kúnstum heldur en kjörum fólksins. Hinn almenni launamaður hefur skap- að góðærið en hefur ekki fengið að njóta þess, sögðu stjómarandstæðing- ar. Ríkisstjómin er að sporðreisa landið með því að flytja bæði fólk og fjármagn af landsbyggðinni til þétt- býlisins. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir lýsti yfir því að Kvennalistinn ætti enn fullt erindi í stjómmálum og mundi bjóða fram í næstu þingkosningum. Óttast um leHaimenn Leitarflokkar á Bláfiallasvæðinu lentu í vandræðum er þeir hugðust snúa til byggða eftir að lík rjúpnaskyt- tunnar fannst skömmu fyrir klukkan 16 í gær. Þá skall á óveður og á tíma- bili var sambandslaust við tugi leitar- manna. Yfirstjóm leitarstarfsins var með töluverðan viðbúnað vegna þessa og hafði snjóbíl í viðbragðsstöðu í aðalstöðvum sínum í Reykjavík. Á tímabili var óttast um á annað huncfrað leitarmenn en þeir skiluðu sér einn af öðrum. Vom þeir taldir inn í bíla jafhóðum og þeir birtust og síð- asti maður var kominn í bíl um klukkan 7.30 í gærkvöldi. -EIR Rjúpnaskyttan fannst látin síðdegis í gær. Leitaiflokkarnir gengu þrisvar framhjá staðnum Nær þúsund manns tóku þátt í leitinni að ijúpnaskyttunni á Blá- fjallasvæðinu frá því á miðnætti i fyrrinótt og þar til leitin bar árangur klukkan 15.45 í gærdag. Leitarflokk- ar úr Reykjavík, af Suðumesjum, úr Borgarfirði og allt frá Hvolsvelli unnu sleitulaust við leit í tæpar 16 klukkustundir og auk þess slógust vinnufélagar hins týnda frá Flug- leiðum í hópinn og vom með þar til yfir lauk. Rjúpnaskyttan fannst liggjandi á grúfu í mosavöxnu hrauni í hlíðum Vífilfells en þaðan var aðeins um fímmtán mínútna gangur í jeppann er hinn látni hafði yfirgefið árla miðvikudagsmorguns. Þó krufning liggi enn ekki fyrir er talið líklegt að rjúpnaskvttan hafi fengið aðsvif og orðið bráðkvödd þar sem hún fannst. Eng- ir áverkar vom á líkinu og við hlið þess lá byssa og fjórar ijúpur í plast- poka. „Við vorum búnir að fínkemba þetta svæði og höfum vafalítið geng- ið þrisvar framhjá manninum án þess að verða hans var. Hann var í steinblárri úlpu og féll inn í lands- lagið,“ sagði einn leitarmanna í samtali við DV að leit lokinni. Tvær þyrlur frá landhelgisgæsl- unni tóku þátt í leitinni og auk þess flaug Ómar Ragnarsson í flugvél yfir svæðið aðfaranótt fimmtudagsins og lýsti upp hlíðar fjallanna með lend- ingarljósum vélar sinnar. Hinn látni hét Ásgeir Ásgrímsson til heimilis að Hraunbraut 36 í Kópa- vogi. Hann var 55 ára að aldri. -EIR Bill rjúpnaskyttunnar í sandgryfju rétt ofan við Sandskeið. Leitarmenn fínkemba svæöiö allt um kring. DV-mynd GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.