Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Síða 9
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
9
Verðfall
á dónskum
kjötafurðum
Haukur L. Haukascm, DV, KaupmJiöb;
Töluverð verðlækkun hefur átt
sér stað á kjöti í Danmörku undan-
farið og hefur svínakjöt, kjúkling-
ar og nautakjöt ekki verið ódýrara
hér í langan tíma.
Sláturhúsin lækkuðu verðið á
kílói af svínakjöti um eina krónu
fyrir skömmu og hefur verðið
lækkað um 25 prósent írá því í
fyrra. Nautakjöt er nú 7 til 8 pró-
sent ódýrara en í fyrra. Verðfallið
orsakast einna mest af minnkandi
útflutningi landbúnaðarvara.
Verðfall Bandaríkjadollars síðustu
mánuði hefur gert sölu á dönsku
kjöti til Japan og Bandaríkjanna
nánast ómögulega. Japansmark-
aður fyrir kjöt er auk þess staðnað-
ur og niðursuðuvörur seljast illa á
Bandaríkjamarkaði um þessar
mundir.
Auk þessa hefur Efnahags-
bandalagið fyrirskipað minnkaða
mjólkurframleiðslu sem aftur þýðir
aukna slátrun á mjólkurkúm.
Því hefur framboð kjötmetis au-
kist og ásamt falli Bandaríkjadoll-
ars leitt til þessarar verðlækkunar.
Sænskur professor:
Svíar feimnir
og þunglyndir
Svíar eru feimnir, þunglyndir,
innhverfir og umgangast helst fé-
laga sína á skógargöngu. Það er
aðeins þegar þeir eru drukknir eða
í rúminu sem þeir bijótast út úr
skel sinni.
Hin yfirvegaða framkoma Bjöms
Borg á tennisvellinum og einangi’-
unartilhneiging Gretu Garbo hefur
svo sem gefíð umheiminum tileíhi
til slíkra vangaveltna en nú hefúr
sænskur prófessor í þjóðháttafræði
komist að sömu niðurstöðu. Byggir
hann rannsóknir sínar á viðtölum
við sænska stúdenta og innflytj-
endur. Það sem kemur á óvart er
að hann telur, vísindalega séð,
Svía engu feimnari en Bandaríkja-
menn sem alltaf hafa verið álitnir
opinskáir og málglaðir.
Sænskur prófessor i þjóðhátta-
fræöi fullyrðir að Svíar séu
innhverfir og feimnir. Einangr-
unartilhneiging Gretu Garbo er þá
líklega sænskt fyrirbæri.
Útlönd
Bandarísk vopn flutt með
dönskum skipum til íran?
Henrik Berlau, varaformaður
danska sjómannasambandsins, hafði
það eftir sjómönnum í morgun að
dönsk skip hefðu flutt bandarísk vopn
til fran. Kvað hann geta verið sam-
band á milli vopnaflutninganna og
lausnar bandarískra gisla í Líbanon.
Orðrómur um slíka flutninga í skipt-
um fyrir gísla hefur áður heyrst firá
Washington, Evrópu og ísrael. Banda-
rísk sjónvarpsstöð sagði frá því í
gærkvöldi að Reagan hefði sjálfur
samþykkt slík skipti án þess að ráð-
færa sig við ríkisstjómina.
Berlau skýrði frá því að í síðustu
viku hefði danskt flutningaskip flutt
26 gáma með 460 tonnum af vopnabún-
aði frá Eilat í ísrael til Bandra Abbas
í fran. Þó að hann hefði engar upplýs-
ingar um hvar vopnin hefðu verið
framleidd sagði hann að sjómenn
hefðu greint frá því að bandarísk vopn
hefðu verið í síðustu sendingu. Hann
skýrði einnig frá því að mörg dönsk
skip hefðu allt frá byrjun Persaflóa-
stríðsins siglt frá hafnarborgum í
Evrópu til Bandra Abbas og hefði
þessum siglingum flölgað síðastliðið
ár.
Samkvæmt fréttum í bandarísku sjón-
varpsstöðinni CBS í gærkvöldi voru
send vopn frá Bandríkjunum til þess
að fá þrjá bandarísk gísla í Líbanon
leysta úr haldi þá Benjamin Weir,
Lawrence Jenco og David Jacobsen
en sá síðastnefndi fékk frelsi á laugar-
daginn.
Vopnaflutnigar til íran em opin-
berlega bannaðir í Bandaríkjunum
eftir að ráðist var á bandaríska sendi- gíslatökunnar sem fylgdi i kjölfarið. rískum uppmna og vantár þá nú
ráðið í Teheran árið 1979 og vegna Vopn írana em aðallega af banda- tilfinnanlega varahluti.
Danskir sjómenn hafa greint frá því að bandarískur vopnabúnaður sé fluttur með dönskum skipum til írans en írani
vantar nú tilfinnanlega varahluti. Fullyrt er að Bandaríkjamenn skipti á vopnum og gíslum sem eru i haldi í Líbanon
á vegum múhameðstrúarmanna sem fylgja íran að málum.
Enginn árangur viðræðna
Shultz og Sévardnadse í Vín
Eftir fimm klukkustunda viðræður
í Vínarborg í gær komu utanríkisráð-
herrarnir George Shultz frá Banda-
ríkjunum og Sévardnadse út úr
fundarherberginu og sögðu að ekkert
hefði áunnist.
Sovéski utanríkisráðherrann sagði
að Bandaríkjamenn „vildu helst
gleyma Reykjavíkurfúndi leiðtoganna
aftur eins fljótt og auðið yrði“. Kvaðst
hann hafa „óbragð í munninum" eftir
fundinn með Shultz í gær. - Banda-
rískir fúlltrúar á öryggismálaráðstefh-
unni í Vín segja að Sovétmennirnir
virðist þangað komnir til „að hefja
nýja áróðursherferð" en ekki finna
lausnir á deilumálunum.
Shultz utanríkisráðherra sagðist
hafa gert sér vonir um að þeir Sé-
vardnadse gætu gert úttekt á því hvað
áunnist hefði á fundi þeirra Reagans
og Gorbatsjovs í Reykjavík á dögunum
en Sévardnadse hefði ekki um annað
viljað tala en geimvarnaráætlun Re-
aganstjómarinnar.
Sagðist Shultz þó vona að afvopnun-
arviðræðumar mundu þokast áfram
og eftir fjögur til fimm ár mundu menn
líta um öxl til Reykjavikurfundarins
og þykja þá sem hann hefði markað
tímamót. Hann viðurkenndi þó að
mikill ágreiningur ríkti milli Sovét-
manna og Bandaríkjamanna varðandi
vopnatakmarkanir.
Þeir hafa ekki einu sinni orðið ásátt-
ir um hvað það var sem samkomulag
varð um á fundi leiðtoganna í Reykja-
vík.
Minnihlutastjóm fram í desember?
Björg Eva Erlendadóttir, DV, Osló;
Norska ríkisstjómin er tryggari í
sessi en menn hugðu. Þingið hefur enn
ekki komið sér saman um fjárlaga-
frumvarp fyrir næsta ár. Fimm
mismunandi tillögur um frumvarp
hafa verið lagðar fram en ekki er
meirihluti fyrir neinni þeirra.
Búist var við að borgaralegu flokk-
amir, Hægri, Kristilegi þjóðarflokkur-
inn og Miðflokkurinn, myndu
sameinast um eina tillögu en viðræður
þeirra fóm í hnút og því er nú fátt sem
ógnar minnihlutastjóm Verkamanna-
flokksins þessa stundina.
Hún situr tryggt að minnsta kosti
fram í desember er endanlega þarf að
ganga frá fjárlagafrumvarpinu.
Þingið er allt sammála um að íjár-
mál norska ríkisins séu í mesta ólestri.
Hins vegar er ekki útlit fyrir að það
vilji sameinast um neina eina lausn á
vandamálinu.
Ejerinn verður opinn
tiorgun frá kl. 10-16. Þar eru til sölu með
í
ríflegum afslætti
ýmsar gerðir af gólfteppum, flísum,
lureinlætistægmi^g^íðinMnbjcgincgvöimn
Látið ekki happ úr hendi sleppa
2 góðar byggingavöruverslanix.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 621100-Hringbraut, sími 28600.
OPIÐ KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA