Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986. Utlönd Knattspymuaðdáendur ganga berserksgang Verða hollensk knattspymufélög látin taka þátt í kostnaði vegna eftirlits á leikjum? Sigrún Haröardóttir, DV, Amsterdam; Mikil ólæti urðu eftir knatt- spymuleik hollensku fyrstu deildar liðanna Ajax og Feyenoord síðast- liðinn sunnudag er Ajax sigraði með þrem mörkum gegn tveimur. Alls handtók lögreglan 39 manns eftir slagsmál og ólæti áhangenda liðanna. Ólæti eru orðin fastur liður eftir leiki þessara félaga hér í Hol- landi. Stuðningsmenn Ajax lögðu í rúst einn lestarvagn í lest þeirri er flutti þá á leikinn og handtók jámbrautar- lögreglan þar tíu áhangendur. Að leik loknum kom til töluverðra átaka milli stuðningsmanna Fey- enoord og lögreglu í nágrenni vallarins, íjöldi bifreiða var skemmd- ur og þrír lögreglumenn særðust lítilsháttar. Á lestarstöðinni hér í Amsterdam var heldur ekki friður því stuðnings- menn Feyenoord létu grjóthríð dynja yfir lestum stuðningsmanna Ajax, bmtu 26 rúður í lestinni og særðust þar nokkrir. Venjuleg áætlunarlest átti leið um jámbrautarstöðina er orrahríðin stóð sem hæst og skemmdist hún töluvert auk þess sem henni seink- aði. Dómsmálaráðherra Hollands, Blóðug slagsmál og óeirðir eru orðnir fastir liðir eftir leiki vissra félagsliða í fyrstu deild hollensku knattspyrnunn- ar. Hart er nu deilt um það í Hollandi hvort stjómvöldum beri nú að skylda þarlend knattspyrnufélög til að taka þátt i kostnaði við löggæslu á knattspymuleikjum. Corthals Altes, sagði í viðtali við NCRV útvarpsstöðina á sunnudags- kvöld að 350 manna lögreglulið, er kostar ríkiskassann 150 þúsund hol- lensk gyllini, tæpar þrjár milljónir íslenskra króna, við gæslu vegna knattspyrnuleiks, væri gersamlega út í hött. Ef knattspymuleikir þurfa á svona íjölmennu lögregluliði að halda verður að grípa til einhverra ráðstaf- ana, banna slíka leiki eða að hluti kostnaðar vegna löggæslu verði greiddur af félögunum sjálfúm, sagði Altes. Dómsmálaráðherrann sagðist enn- fremur ekki skilja hvers vegna reglan um að skemmdarvargur borgi eigi ekki við á knattspymuleikjum. Þingmaður Frjálslynda flokksins, sem er til hægri í hollenskum stjóm- málum, Hans'Dijcstra, er ósammála dómsmálaáðherra og segist ekki sjá hvemig hægt sé að fara fram á það við knattspymufélögin að þau beri hluta kostnaðar af löggæslu, fremur en ýmsir hópar og félög, er staðið hafa fyrir aðgerðum er leitt hafa af sér átök og óeirðir, og taldi hann þessa hugmynd dómsmálaráðherra fráleita. Engar ákvaðamir hafa enn verið teknar um þetta mál en það er nú til umfjöllunar á þingi. Vilja alþjóðlegan dómstól til að dæma um stríðsátök Yuri Oriov skorar á þjóðir heims að sækja Sovétmenn til saka fyrir ábyrgð þeirra í Afganistan Sovéski andófsmaðurinn Yuri Orlov, er sleppt var úr haldi í sové- skum fangabúðum fyrr á þessu ári og leyft að flytjast til Israel, og Ni- kolai Movchan, fyrrum liðsmaður Rauða hersins í Afganistan, er hljópst undan merkjum og barist hefúr með afgönskum frelsissveitum undanfama þrettán mánuði, skor- uðu í gær á þjóðir heims að koma á laggimar sérstökum alþjóðlegum dómstól er sækja myndi til saka þá sem ábyrgir em fyrir átökunum í Afganistan. Orlov neitaði því aðspurður að áskorun þeirra byggðist á hlut- drægni og andúð í garð Sovétríkj- anna og sagði að hlutverk slíks alþjoðadómstóls væri einnig að lög- sækja þá er ábyrgir væm fyrir styijöldinni í Víetnam og grimmdar- verkum í Kampútseu. Áskorun Orlovs og Movchan kom fram á blaðamannafundi Freedom House mannréttindasamtakanna í Vínarborg í gær. Blaðamannafund- urinn var haldinn steinsnar frá Hofburghöll, vettvangi öryggismála- ráðstefnu Evrópu, sem nú er um það bil að ljúka. Með dvöl sinni í Vínarborg kváð- ust Orlov og Movchan vilja minna þátttökuríki öiyggismálaráðstefn- unnar á áframhaldandi stríðsað- gerðir Sovétmanna í Afganistan. Áróðursbragð „Við verðum öll að krefjast tafar- lauss brottflutnings sovéskra her- sveita frá Afganistan," sagði Orlov á fundinum og kvað síðustu yfirlýs- ingar sovéskra ráðamanna um brottflutning Rauða hersins frá Afg- anistan í áfóngum hreint áróðurs- bragð er ríkisstjómir á Vesturlönd- um mættu ekki láta blekkjast af. „Það er lítill munur á því hvemig hersveitir nasista hegðuðu sér í okk- ar eigin landi á dögum síðari heimsstyrjaldar og því hvemig við hegðum okkur í Afganistan,“ sagði Movchan, er hljópst undan merkjum í Rauða hemum árið 1983 og gekk til liðs við frelsissveitir afganskra skæruliða. Movchan sagði að sovéskir fjöl- miðlar reyndu að búa til þá ímynd í huga sovéskra borgara að í Afgan- istan fagnaði afganskur almenning- ur hermönnum Rauða hersins með blómum og að þeir byggðu hús fyrir innfædda og aðstoðuðu þá við upp- byggingu lands síns eftir eyðilegg- ingu af völdum skæruliða er nytu aðstoðar Vesturlanda í baráttunni gegn réttmætum valdhöfúm í Kabúl. Almenningur óttast Sovét- menn Sagði Movchan að sannleikurinn væri sá að afganskur almenningur hraeddist hermenn Rauða hersins og óttaðist að láta sjá sig á götum borga og bæja ef sæist til Sovétmanna. Movchan taldi skæmliða afg- önsku frelsissveitanna hafa að minnsta kosti tvö hundruð hermenn Rauða hersins í haldi og að skæm- liðar gerðu æ meiri usla í röðum sovéska innrásarhersins. Vestrænir hemaðarsérfræðingar áætla heildarfjölda sovéskra her- manna í Afganistan nú rúmlega hundrað og fimmtán þúsund. „Við verðum öll að krefjast tafarlauss brottflutnings sovéskra hersveita frá Afganistan," sagði sovéski andófsmaðurinn Yuri Orlov á fundi mannrétt- indasamtaka i Vínarborg í gær, þar sem hann skoraði á þjóðir heims aö setja á laggimar alþjóðlegan dómstól til að dæma þá sem ábyrgir em fyrir stríðsátökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.