Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Neytendur
Einstaklega falleg
og vönduð plöntuhandbók
Nú er komin ný bók á markaðinn
og nefhist hún Plöntuhandbókin,
Blómplöntur og byrkningar. Bókin er
tekin saman af Herði Kristinssyni,
prófessor í grasafræði, sem er okkar
virtasti vísindamaður á þessu sviði
hérlendis.
í bókinni eru 382 litmyndir af 365
tegundum plantna, auk korta og
teikninga. Þama geta eigendur bók-
arinnar fundið allt sem þá langar til
að vita, þ.e. einkenni, útlit, blómgun-
artíma, stærð, umhverfi og út-
breiðslu.
Notaðir eru sérstakir myndlyklar
þar sem plöntunum er raðað eftir
blómlitum og öðrum áberandi ein-
kennum og getur þá hin almenni
notandi, sem ekki þekkir plöntukerf-
ið, fundið plöntumar á auðveldan
hátt í bókinni.
Bókin er samin með það fyrir aug-
um að auðvelt sé að læra að þekkja
Hér má sjá helluhnoðra
DV-mynd BG
villtar, íslenskar plöntur og auðvelt
að fletta þeim upp.
Hún er einstaklega þægileg í með-
förum, fræðandi og skemmtileg fyrir
alla aldurshópa og er prýdd afar fall-
egum myndum sem gefa góða mynd
af útliti plöntunnar.
Bókin er tilvalin fyrir alla fjöl-
skylduna til að taka með sér í
ferðalagið eða sunnudagsbíltúrinn
og til að fræðast í sameiningu um
okkar fjölbreytta og fallega plöntu-
líf.
Hér kemur dæmi úr bókinni
Helluhnoðri
Sedum acre
Blómin em 1-1,5 sm í þvermál,
fimmdeild. Krónublöðin odddregin,
lensulaga, gul. Bikarblöðin stutt (3
mm), sporbaugótt, snubbótt í end-
ana. Fræflar 10. Frævur fimm, hver
um sig með einum stíl. Blöðin stutt
(3 4 mm) og gild, nær sívöl, safarík,
lléréur Kristirnst>n
Plöntu
handbókin
Blómplöntur og birkningar
fslewk náttúta If
Svona lítur bókin út, tilbúin til lestrar.
fagurgræn, þéttstæð á mörgum,
stuttum blaðsprotum. H: Myndar
þéttar, jarðlægar breiður. K: Melar,
áreyrar og klettar, oft þar sem
áburðar gætit frá fuglum. Alg. L:
Skriðuhnoðri (166). Helluhnoðrinn
þekkist einkum á hinum fjölmörgu,
blómlausu greinum eða blaðsprot-
um; hefur einnig stærri og litsterkari
blóm með breiðari krónublöð. B:
júlí-ágúst. (Hnoðraætt.)
(Bókin er komin í allar bókaversl-
anir og kostar 2750 kr. -BB
Ráðstefha
um öiyggis-
mál í
umferðinni
„Fararheill" nefhist ráðstefna sem
bifreiðatryggingafélögin efha til um
öi-yggismál í umferðinni næstkom-
andi miðvikudag. Ráðstefhan er
haldin að Hótel Loftleiðum og hefet
kl. 9 um morguninn og stendur til
kl. 17.
Ráðstefna þessi er liður í átakí
bifreiðatiyggingafélaganna í um-
ferðarmálum sem nú stendur yfir.
Reynt verður að svara spuminum
eins og hvert sé hlutverk skólanna,
hlutverk ökukennslu, löggæslu og
hlutverk vega- og gatnagerðar. Eru
það bæði skólamenn, fóstrur og nem-
endur sem taka þátt í þessum
umræðum og einnig verkfræðingar
vegagerðar, læknar og leikmenn. Þá
verður erindi um umferðarslys, or-
sakir þeirra og afleiðingar og
rannsóknir á þeim. Eitt erindið nefri-
ist áróðurinn og gildi hans. Ráð-
stefnunni lýkur á pallborðsumræð-
um um hfutverk fjölmiðla og loks
er pallborðsumræða um hvað sé til
ráða. í þeirri umræðu taka þátt Val-
garður Briem, formaður Umferðar-
ráðs, og forstjórar fjögurra
tryggingaféiaga.
'Ráðstefhustjórar verða Bjami
Þórðarson og Jóhann E. Bjömsson.
-A.BJ.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð J>ér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
frölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks________
Kostnaður í október 1986:
Matur og hreinlætisvörur kr. ______________
Annað kr. __________
Alls kr. ___
Frjálst.óháð dagblaö
Efnalaug
Suðurlands af
„svarta listanum“
I nýútkomnu Neytendablaði er að
finna dúlk sem heitir „Fyrirtæki sem
Neytendasamtökin geta ekki mælt
með“, sem í máli manna er kallaður
„svarti listinn", eins og við höfum
greint frá hér á Neytendasíðunni.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
steins V. Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra er eitt af þessum
fyrirtækjum, Efnalaug Suðurlands,
ekki lengur á listanum.
Eigendaskipti urðu á fyrirtækinu
í sumar og á nýi eigandinn ekki sök-
ótt við Neytendasamtökin. Hann
hefur lýst því yfir að hann muni
leysa á sanngjaman hátt ágreinings-
mál sem upp kunni að koma og virða
milligöngu Neytendasamtakanna.
Glaðningur
í morgunmatnum
Fjöldi manns víðsvegar af landinu
hafði samband við DV nú um helgina
vegna dollaraseðils í Cheeriospakka.
Allt hafði þetta fólk fengið glaðning í
morgunmatnum. Fyrstu viðbrögð
fólksins voru að halda að seðillinn
væri spilapeningur en eftir ítarlega
skoðun kom í ljós að seðillinn er ekta.
Sigvaldi, 12 ára, var einn af þeim
heppnu. í samtali við DV sagði Sig-
valdi að hann hefði átt pening og hefði
hann farið og keypt sér þrjá pakka
af Cheerios og fékk hann seðil í tveim-
ur pökkum af þremur. Sigvaldi var
mjög ánægður en sagði að hann hafi
verið efins fyrst um að seðlamir væm
ekta. Nú hefur hann sett seðlana í
ramma og hanga þeir nú uppi á vegg
í herberginu hans.
-BB
Hér má sjá þá félaga Olaf Birgi Georgsson og Kjartan Guðmundsson með dollaraseðilinn hans Ólafs en hann var einn
af þeim heppnu. Hann var að vonum glaðuren Kjartan sagðist ennekki hafa fengið seðil en hann beið spenntur að sjá
í næsta Cheeriospakka.