Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
15
Gróf mismunun
gagnvart konum
„Konur við verslunarstörf og í verksmiðjuvinnu ná hins vegar ekki 30 þús.
kr. markinu. Eins og þama má sjá er launamunurinn milli kynja aideilis
hrikalegur og lægstu launin neðan við ailt velsæmi."
A Alþingi höfum við Guðrún
Helgadóttir flutt tillögu um úttekt
á mismunun gagnvart konum
hérlendis. Tillaga þessi var flutt
á síðasta þingi en hlaut þá ekki
afgreiðslu.
Úttekt á alþjóðlegum
skuldbindingum
Það er sannarlega ástæða til að
flytja þessa tillögu öðru sinni því að
það efhi sem hún íjallar um er í síst
skárra horfi nú en fyrir ári.
Tillagan gerir ráð fyrir að félags-
málaráðherra og Jafnréttisráði verði
falið að gera sérstaka úttekt á því,
hvað skorti á að ísland uppfylli skil-
yrði alþjóðasamnings um afnám
allrar mismununar gagnvart konum
sem ísland gerðist formlegur aðili
-að 18. júní 1985.
Þar er jafhframt gert ráð fyrir að
skipuð verði samráðsnefhd til að
fylgjast með þessari vinnu og í henni
verði fulltrúar frá öllum þingflokk-
unum á Alþingi. Gert er ráð fyrir
að kostnaður við þessa úttekt verði
greiddur úr ríkissjóði og skiptir það
auðvitað verulegu máli. í því sam-
bandi bendi ég á mjög knöpp fjárráð
Jafnréttisráðs sem er sá opinberi
aðili sem á. ekki síst að vinna að
þessum málum lögum samkvæmt, en
hefur engan veginn getað gegnt lög-
boðnu hlutverki vegna naumra
fjárráða.
Fjárveitingar til dagvistunar-
stofnana lækka um helming!
Við athugun kemur í ljós hversu
víðs íjarri er að ísland standist þann
mælikvarða sem lagður er á aðildar-
ríki þessa alþjóðasamnings. Ekki er
að vísu ætlast til þess að allt sé kom-
ið í horf þegar samningurinn sem
þessi er undirritaður, en hins vegar
tökum við á okkur skuldbindingar
að ná þeim markmiðum sem þar er
kveðið á um.
KjaUarinn
Hjörleifur
Guttormsson
Ég bendi m.a. á þær ráðstafanir
sem gera skal samkvæmt þessum
samningi til að afnema mismunun
gagnvart konum á sviði launamála
og til að tryggja rétt til sömu at-
vinnutækifæra, þar með talið að
beitt sé sama mælikvarða við val
starfsmanna og rétt til sömu umbun-
unar, að fh'ðindum meðtöldum.
Einnig er þar kveðið á um að koma
í veg fyrir mismunun gagnvart kon-
um vegna hjúskapar- eða móður-
hlutverksins og að framfylgja
raunverulegum rétti kvenna til
vinnu. Þar eiga aðildarríkin að gera
allar viðunandi ráðstafanir og eins
og segir í samningnum: „Sérstaklega
með því að stuðla að stofnun og þró-
un sem flestra bamagæslustofnana."
Ég vek athygli á þessum þætti
m.a. með tilliti til þess sem við lesum
í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta
ár. Ætli ríkisstjóm Islands sé þar að
koma til móts við ákvæði þessa
samnings og skuldbindingar með því
að lækka um helming í krónum talið
framlög til dagvistarstofnana í
landinu?
Ég held að við þurfum að gæta
þess, þegar verið er að samþykkja
samhljóða á Alþingi alþjóðlegar
skuldbindingar eins og gert hefur
verið með samþykkt þessa samnings,
að efndir fylgi orðum.
Sívaxandi launamunur
milli kynja
hrikaleg mynd og öfugþróun, sem
enn er í gangi samkvæmt opinberum
upplýsingum. Ef litið er á meðallaun
eftir kynjum fyrir unnin ársverk á
árinu 1984 blasir við, að launamun-
urinn í rauntekjum var þá 56,5% og
hefur vaxið frá því árið á undan, en
þá var hann 54%. Samkvæmt könn-
un sem gerð var á vegum Alþýðu-
sambands Islands í apríl sl. ná
launatekjur í kvennastörfum eins og
fiskvinnslu, verslun og almennum
iðnaði ekki 30 þús. kr. markinu, en
enginn áttar sig í rauninni á, hvem-
ig hægt er að skrimta á íslandi fyrir
þær tekjur. Heildarlaun í almennri
verksmiðjuvinnu em t.d. 27.862 kr.
og föstu launin ennþá lægri, en með
bónusálagi og eftirvinnu tekst kon-
um nokkum veginn að tvöfalda þessi
laun með óheyrilegum þrældómi.
Konur við verslunarstörf og í verk-
smiðjuvinnu ná hins vegar ekki 30
þús. kr. markinu. Eins og þama má
sjá er launamunurinn milli kynja
aldeilis hrikalegur og lægstu launin
neðan við allt velsæmi.
Tvöfalt vinnuálag
Hvemig ætli sé svo aðstaða
kvenna til að taka raunverulega
þátt í opinberum störfum og félags-
störfum almennt, kvenna sem þurfa
líka að sinna heimilisstörfunum og
gera það í reynd að vfirgnæfandi
hluta, þrátt fyrir allan áróður fýrir
jöfnun á stöðu kynjanna? Það er
gífurlega mikið verk að vinna í þess-
um efnum og þó að konur hafi
leiðrétt sinn hlut eitthvað formlega
séð er þetta innbyggða misrétti enn
til staðar í landinu. Þar reynir auð-
vitað á karla, þar sem þeir eiga
stóran hlut að máli og gætu ef raun-
vemlegur vilji væri til staðar bætt
til muna úr þessu misrétti. Það skipt-
ir miklu máli að haldið sé uppi
fræðslu og áróðri til að breyta við-
horfum æskufólks. Skólamir hafa
þar hlutverki að gegna og námsefhi
um starfsval kynjanna, eins og
Námsgagnastofnun gaf út á síðasta
ári er góðra gjalda vert.
Þótt benda megi á jákvæða þróun
á nokkrum sviðum jafnréttismála,
m.a. í þátttöku kvenna í félagsmál-
um, miðar alltof hægt í að draga úr
kynbundnu misrétti. Því er full
ástæða til að fylgja eftir alþjóða-
samningi um afnám mismununar
gagnvart konum eins og tillaga okk-
ar Guðrúnar Helgadóttur mælir fyrir
um.
Hjörleifur Guttormsson.
þingmaður fyrir
Alþýðubandalagið
I launamálum liggur skýrt fyrir
„Þótt benda megi á jákvæða þróun á
nokkrum sviðum jafnréttismála, m.a. í
þátttöku kvenna í félagsmálum, miðar allt-
of hægt í að draga úr kynbundnu misrétti.“
Niðuriæging
Mér óar við að sjá hvilík skömm,
hvílík niðurlæging þingmenn Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks (í
dag), fyrrum þingmenn Bandalags
jafhaðarmanna, gera kjósendum sín-
um með aðferðum sem jafhgilda að
lýðræðinu sé fleygt fyrir björg. Fyrr-
um þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna sýna þeim landsmönnum,
sem kusu þá á þing forðum daga,
dæmalausa eiginhagsmunapólitík.
Já, er það ekki furðulegt að menn
og konur eins og fyrrum þingmenn
Bandalags jafnaðarmanna, sem tal-
andi voru um breyttar forsendur,
breytt skilyrði, lýðræðisleg skilyrði
og bætt þjóðfélag, skuli snúa sér til
flokkakerfisins sem bindur, heftir og
breytir ekki neinu og skuli ekki
lengur geta starfað í þágu þeirra er
kusu þá á þing. Ekki starfað fyrir
þá sem kusu þau til að reyna að
hafa áhrif á gang mála i þjóðfélag-
inu.
Finnst þér ekki, þú sem kaust og,
studdir þetta afl til dáða, mál að
leggja orð í belg. Er það bara sjálf-
sagt að menn, sem bera uppi mál,
sem þúsundir manna eru sammála
um, ákveði einn dag að vera ekki
lengur merkisberar og baráttumenn
Bandalags jafnaðarmanna? Þeir
ákveði að leggja niður störf og hug-
sjónir þúsunda manna til að samein-
ast þeirri flokksvél sem Bandalag
jafnaðarmanna afheitaði á sínum
tíma.
Að sameinast á ný
Það mætti halda að fyrmm þing-
menn Bandalags jafhaðarmanna
teldu að spilling og þau málefni, sem
til umræðu voru, væru ekki til stað-
ar lengur. Að hugsjón Vilmundar
Gylfasonar, markmið, ásetningur og
kosningasigur Bandalags jafnaðar-
manna á sínum tíma eigi ekki við í
dag. Skoði hver sem vill. Eru menn
búnir að gleyma? Ef svo er, skal ég
minna á nokkur atriði úr stefhuskrá
Bandalags jafnaðarmanna.
Ríkisbankamir verði seldir al-
menningshlutafélögum.
Kosningalögum verði breytt þann-
ig að kjósendur geti kosið einstaka
frambjóðendur á fleiri en einunr
lista.
Forsætisráðherra (ríkisstjóm)
verði kjörinn beinni kosningu.
Ýmsir helstu embættismenn ríkis-
ins verði kjömir beinni kosningu.
Útvarpað verði beint frá Alþingi.
Nefndir Alþingis starfi fyrir opnum
tjöldum.
Fjármál stjómmálaflokka verði
opinber.
Útvarpsráð verði lagt niður.
Að færa vald heim í hémð.
Bandalag jafnaðarmanna er
til
Þetta vora nokkur atriði úr stefnu-
skrá Bandalags jafhaðarmanna sem
em í fullu gildi í dag. Ætla menn
og konur, já stuðningsmenn þessa
stjórnmálaafls, að sitja aðgerðalaus
og hlíta skoðunum fjögurra þing-
manna sem ekki gátu staðið við
skoðanir sínar gagnvart kjósendum.
Ekki trúi ég að þetta sama fólk kjósi
þessa menn til ábyrgðarstarfa eða
þá annað fólk úr öðrum flokkum
geti treyst þeim.
KjáHariiin
Guðmundur Óli
Scheving
vélstjóri
Bandalag jafhaðarmanna er til í
dag. Þó svo þessir menn og konur
fæm frá stjómarstörfum er það
þeirra persónulega ákvörðun. Þau
geta ekki dæmt og ákveðið um örlög
stjómmálaafls að mínu mati, sem
þúsundir manna og kvenna studdu.
Þvi segi ég, þú sem ert jafhaðarmað-
ur í raun. Þú sem lest þessa grein,
hafðu samband, skrifstofa Bandalags
jafnaðarmanna er í Templarasundi
3 og þar er allt í fullum gangi að
endurbyggja það sem niður var rifið.
Landsmenn, sameinumst um stjóm-
málaaflið Bandalag jafriaðarmanna.
-Guðmundur Óli Scheving.
„Ætla menn og konur, já stuðningsmenn þessa stjórnmálaafls, að sitja
aðgerðalaus og hlíta skoðunum fjögurra þingmanna sem ekki gátu staðið
við skoðanir sínar gagnvart kjósendum. Ekki trúi ég að þetta sama fólk
kjósi þessa menn til ábyrgðarstarfa eða þá annað fólk úr öðrum flokkum
geti treyst þeim.“
„Fyrrum þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna sýna þeim landsmönnum, sem kusu
þá á þing forðum daga, dæmalausa eigin-
hagsmunapólitík. ‘ ‘