Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Spumingin
Finnst þér rétt að hafa próf-
kjör hjá flokkum?
Guðrún Þórhallsdóttir: Mér er alveg
sama, ef fólk ætlar að kjósa á annað
borð held ég að það skipti ekki máli
hvernig þeir raða á listana.
Gústaf Óskarsson kennari: Já, mér
finnst rétt að hafa lokað prófkjör því
að flokksmenn hljóta að eiga að ráða
því hverjir fara í framboð.
Hrönn Albertsdóttir húsmóðir: Já,
en mér finnst að prófkjör eigi að
vera opið öllum því þetta er hags-
munamál allra en ekki bara flokks-
bundinna meðlima stjórnmálaflokk-
anna.
Friðrik Guðmundsson ellilífeyris-
þegi: Mér finnst kominn tími til að
strika yfir prófkjörin, þetta er orðin
svo mikil vitleysa, fólkið á bara að
kjósa þann sem því líst best á í það
og það skiptið.
Ingólfur Pálmason, fv. kennari: það
fer allt eftir því hvemig að prófkjör-
inu er staðið en mér finnst fráleitt
að hafa opið prófkjör því þá getur
hver sem er tekið þátt í því hver sem
tilgangurinn er.
Ingibjörg Pétursdóttir nemi: Mér
fmnst rétt að hafa prófkjör ef það
er opið því þá geta allir ráðið því
hverjir fara í framboð.
Lesendur
ísraelar rændu landi
annarrar þjóðar
Ásgeir Ó. Pétursson skrifar:
Ég vil svara grein Huldu Jensdóttur
sem birtist á lesendasíðunni þann 28.
október síðastliðinn og jafnframt
styðja grein Guðjóns Guðmundssonar
frá 20. október.
Ég tek það skýrt fram að ég er ekki
gyðingahatari eða kynþáttahatari
yfirleitt. Ég held að Guðjón sé það
ekki heldur. Það sem einna helst virð-
ist fara fyrir brjóstið á Huldu er að
Guðjón kallar það „djöfullega
grimmd" að ræna landi annarrar þjóð-
ar og myrða þúsundir manna þegar
þeir reyna að ná rétti sínum. Fram-
koma gyðinga gagnvart öðrum íbúum
Palestínu getur í mínUm huga ekki
talist annað en djöfulleg grimmd.
Hulda segist oft hafa farið til ísraels.
Þá vildi ég spyrja hana hvort hún
hafi farið út fyrir landamærin og séð
flóttamannabúðimar og þorpin sem
ísraelsmenn varpa sprengjum á með
fárra vikna millibili. Einnig vildi ég
spyija hana hvort hún hafi farið til
Beirút, fyrrverandi „Parísar Austur-
landa“ sem ísraelar lögðu í rúst árið
1982.
Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs
er ekki aðeins öfgamönnum utan Isra-
els að kenna, eins og Hulda segir,
heldur ekki síður þeim sem þar fara
með völdin. f því sambandi nefhi ég
tvö dæmi; þá Menachem Begin, fyrr-
verandi forsætisráðherra ísraels, og
Ariel Sharon, fyrrverandi landvamar-
Palestinuaröbum tekur engu tali.'
„Meðferð gyðinga á
ráðherra. Sharon, sem var brjálaður
glæpamaður, fyrirskipaði meðal ann-
ars morð á 70 Palestínuaröbum þegar
hann gegndi herþjónustu og ræður
Begins í ísraelska þinginu minna
óneitanlega á múgæsingar Hitlers og
annarra álíka.
Þegar alþjóðasamtök gyðinga mót-
mæla ófrelsi íbúa Sovétríkjanna
hlýtur það að teljast hræsni ef þeir
líta ekki í eigin barm. Meðferð gyð-
inga á Palestínuaröbum tekur engu
tali, og er á engan hátt hægt að bera
mannréttindabrot í Sovétríkjunum
saman við hana.
Slysagildra
á leikvelli
Áslaug hringdi:
Gamli leikvöllurinn við Hring-
braut, þar sem styttan er af Héðni
Valditoarssyni, þarfnast endurbóta
og er stórhættulegur eins og hann
er í dag. Það er gamall steyptur
veggur þama sem er kominn að
hruni og gæti auðveldlega valdið
slysi ef ekkert, verður að gert. Ég á
sjálf böm og hef stranglega bannað
þeim að leika sér þama af ótta við
að þau slasi sig. Vil ég vara böm
við að leika sér þarna þar til eitt-
hvað hefur verið gert til að vama
slysum með því að lagfæra vegg
þennan.
Ódývar
videospólur
Ólafur Þórhallsson hringdi:
Ég vil lýsa yfir ánægju minni á
videbleigunni í Ármúla 20, bæði er
þjónustan mjög góð og einnig finnst
mér videospólumar alveg sérstaklega
ódýrar þama en spólan kostar ekki
nema kr. 80,00 og verður það að telj-
ast mjög gott verð miðað við það sem
gerist annars staðar.
Rekslur
Hjálparstofnunar
kirkjunnar
3164-4917 skrifar:
Hlutverk og tilgangur Hjálparstofn-
unarinnar, að hjálpa þeim er minna
mega sín, finnst mér mjög gott og þarft
málefni. Hef ég því og fleiri stutt
Hjálparstofnunina með framlögum,
náttúrlega í þeirri von að þau geti leitt
eitthvað gott af sér og í þeirri trú að
stofhunin sé vel rekin og sinni sínu
verksviði vel.
Skýrsla rannsóknamefiidarinnar,
sem kirkjumálaráðherra skipaði fyrir
skömmu, olli mér og öðrum því mikl-
um vonbrigðum og vantrú á rekstri
stofhunarinnar og sýnir glöggt hve
mjög hefur verið bmðlað með fjármuni
sem vom ætlaðir sveltandi fólki úti í
heimi. Þó að lokaorð skýrslunnar séu
„þrátt fyrir gagmýni hafi stofnunin
unnið gott starf' þá finnst mér alls
ekki rétt hjá stjóminni að nota það
sem vemdarvæng og telja sig þar með
afeakaða. Neikvæðu punktamir em
mun fleiri í skýrslunni og þá ber al-
menningi að skoða, því auðvitað
gengur maður út frá því, telur það
sjálfsagðan hlut, að starfsfólk á fullum
launum og meira en það leýsi sinn
starfa svo af hendi að um „gott starf
sé að ræða“.
Mér finnst fólk almennt búið að
missa trú á Hjálparstofhunina og það
hlutverk sem hún á að gegna og það
þurfi að skipta um stjóm og fram-
kvæmdastjóra til að endurvekja traust
það er almenningur hafði á þessari
stofnun. Það eina sem starfsmennimir
geta hampað sér yfir og vitna óspart
í em lokaorðin, svo reyna þeir að
breiða yfir misfellur sínar með því að
segja að það sé gott að fá gagnrýni.
En af hverju er stofnunin gagnrýnd
upphaflega, gagnrýni er venjulega
undirrót óánægju og ef verið er að
gagnrýna á annað borð þá táknar það
að reksturinn er ekki eins og skyldi!
En hefði ekki verið mun betra fyrir
þetta fólk að fá „hrós“ fyrir vel unnin
störf og skipulagða og vel rekna stofn-
un, er sýnir að hæfir menn gegna
þessum störfum og þeir hafi unnið
gott starf er ekki þyrfti að gagnrýna.
Við hljótum að ganga út frá þvi að
störfin séu vel unnin en ekki slælega,
ekki er hægt að segja að þessir menn
séu á neinum sultarlaunum, svo það
ætti að vera hægt að fá hæfara fólk í
þetta er veit hvað það er að gera og
hversu mikilvægar stofnanir sem þess-
ar em til að þær verði ekki fyrir
skakkaföllum.
Mér finnst engan veginn nóg eða er
sátt við þau svör forráðamanna stofn-
uninnar, eftir réttmæta gagnrýni frá
nefndinni, „að nú ætli þeir að lagfæra
það sem betur mætti fara“. - Það þarf
að gera gott betur en það, þessir menn
hafa sýnt og sannað að þeir em engan
veginn hæfir né ábyrgir í forsvari fyr-
ir Hjálparstofhunina og því er lang-
réttast og sanngjamast fyrir alla aðila
að þeir víki sæti og léyfi hæfari mönn-
um að komast að, þeir em búnir að
fá sitt tækifæri en hafa svo sannarlega
skolað því í vaskinn.
Það er engan veginn nóg að afsaka
sig eins og lítil böm: Æ, mamma, nú
ætla ég að vera góður strákur það sem
eftir er og snarhætta að sóa peningum
í vitleysu. Til þess að stofhunin geti
haldið áfram því verkeftii sem henni
er og var ætlað, verður að vekja traust
almennings á stofhuninni aftur og það
gerum við ekki nema með því að skipta
um stjóm og framkvæmdastjóra - það
er til hæfara fólk til að gegna störfum
sem þessum.