Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
31
Iþróttir____________________
Gotffréttir:
ísland
með næst
Næsta heimsmeistarakeppni
áhugamannalandsliða í golfi fer
fram dagana 14. til 17. september
1988. Þessi HM-keppni, sem ber
nafnið Eisenhoverkeppnin, mun
fara fram í Svíþjóð og er þá nokk-
uð víst að ísland sendir lið á
mótið enda stutt að fara.
Við höfum ekki tekið þátt í
Eisenhoverkeppninni síðan 1982
er hún fór fram í Sviss. 1984 var
hún í Hong Kong og nú á þessu
ári í Caracas.
Þeir eru dýrir þeir bestu
Nú hefur komið opinberlega
fram að bestu golfleikarar heims
mæta ekki í almenn mót nema fá
fyrir það mikla pcninga - og þá
fyrir það eitt að mæta. Þeir dýr-
ustu eru úr röðum þeirra bestu í
Bandaríkjunum og Evrópubú-
arnir Baliesteros og Langer.
Taka þeir 90 þúsund dollara fyrir
það eitt að mæta og fá ferðir og
frítt uppihald þar að auki.
Thorpe vann Tucson open
Bandaríkjamaðurinn Jim
Thorpe sigraði í Tucson open sem
lauk um síðustu helgi. Þetta er í
annað sinn sem hann sigrar í
þessari sömu keppni - hann fór
einnig létt með það i fyrra. Núna
fékk hann fyrir sigurinn „litla“
180 þúsund dollara.
Myndin um íslandsmótið
að koma
Þeir hjá Golfklúbbi Suðurnesja
sáu um Islandsmótið í golfi í sum-
ar og gerðu það með slíkum
glæsibrag að um var talað - jafn-
vel í öðrum löndum. Þeir létu
gera videomynd um mótið og
hafa margir beðið spenntir eftir
henni. Myndin mun nú vera til
að verður frumsýnd einhvern
næstu daga og þá trúlega í hinu
nýja glæsilega klúhbhúsi þeirra
Suðurnesjamanna.
Mundi ekki hvað mótið hét
í sumar héldu Svíar mikið golf-
mót, eins og fyrri sumur, þar sem
boðið er þeirra bestu mönnum og
einnig frægum kylfingum víða að
úr heiminum. Eru þeir mjög stolt-
ir af þessu móti sínu, sem þeir
nefna SEO, enda er- það eitt af
14 mótum á Evróputúr atvinnu-
manna.
Sá sem sigraði í því í sumar var
Ástralíumaðurinn Mike Har-
wood - sá hinn sami sem kom í
veg fyrir sjöunda sigur Greg Nor-
man í röð um síðustu helgi. Eftir
þann sigur var viðtal við Har-
wood sem kom m.a. í Reuters-
fréttum. Þar sagðist hann aðeins
hafa sigrað í einu golfmóti í sum-
ar. Það hefði verið í Svíþjóð en
hann myndi ekkert hvað það héti.
Fór þetta heldur betur fyrir hjart-
að á þeim sænsku og er nú ekki
víst að Harwood verði boðið
þangað aftur á SEO.
Meiri aurar á Evróputúrinn
Búið er að tilkynna að verð-
launaupphæðin á Evróputúmum
í golfi næsta sumar verði samtals
sjö milljón sterlingspund. Er það
einni milljón pundum meira en
síðasta keppnistímabil sem lauk
nú um mánaðamótin.
Mótin á Evróputúrnum eru alls
14. Það fyrsta er í Róm 2.-5. apríl
en það síðasta í Bandaríkjunum
—já Evrópumót í Bandaríkjunum
- 24.-27. september.
Loks sigur hjá Hayes
Bandaríkjamaðurinnn Mark
Hayes sigraði í Tallahassee open
golfmótinu sem fram fór um síð-
ustu helgi. Það og Tucson open
voru síðustu opinberu mótin á
bandaríska túmum í ár. Hayes,
sem ekki hefur sigrað í atvinnu-
mannamóti í golfi síðan 1977, lék
á samtals 273 höggum eða 15
undir pari. Annar varð Russ Coc-
hran á 275. -klp-
George Graham og ungu
barónamir á Highbuiy
- táningalið Arsenal hefur komið skemmtilega á óvart í Englandi
J ýlHilÉl
• Charlie Nicholas og George Graham, framkvæmdastjóri Arsenal.
„Við höfum leikið gegn Liverpool,
Nottingham Forest og Everton. Ars-
enal er í sama gæðaflokki og þessi
félög þrátt fyrir að með liðinu leiki
stór hópur af ungum leikmönnum.
Þeir em fljótir, hugmyndaríkir og vel
agaðir," sagði Lennie Lawrence, fram-
kvæmdastjóri Charlton, eftir að
Arsenal hafði lagt Charlton að velli,
2-0, um sl. helgi. „Það þýðir ekkert
að fara að byggja loftkastala þó okkur
hafi gengið vel að undanfömu - unnið
sex leiki í röð. Við erum í góðu formi
um þessar mundir en allt getur breyst
á stuttum tíma. Ég yrði ánægður ef
við lentum í sjötta til áttunda sæti
þegar upp verður staðið,“ sagði Ge-
orge Graham, framkvæmdastjóri
Arsenal.
Arsenal-liðið hefur komið skemmti-
lega á óvart fyrir skemmtilega knatt-
spymu og stóran hóp leikmanna sem
em aðeins 19-20 ára. „Arsenal-liðið
leikur mjög vel skipulagða knatt-
spymu. Það taka allir leikmenn liðsins
þátt í vöm og sókn. Ég hef ekki séð
neitt lið vinna knöttinn eins vel aftur
og Arsenal gerir síðan Terry Venables
var með QPR áður en hann fór til
Barcelona," sagði Lawrence sem átti
fá orð til að lýsa hrifningu sinni á
táningaliði Arsenal.
„Við höfum lagt hart að okkur við
æfingar og Graham hefur náð að
hleypa nýju lífi í herbúðir okkar,“
sagði David O’Leary, miðvörðurinn
gamalkunni hjá Arsenal.
„Það er ekki að mínu skapi að leika
vamarknattspymu. Ég vil tefla djarft
og taka áhættu. Það er sigur út af
fyrir sig,“ sagði Graham, maðurinn
sem sumir segja að hafi náð að tæla
Arsenal-liðið út úr skotvamarbyrginu.
Blásið til sóknar.
„King George“
Hver er maðurinn sem hefur breytt
Arsenal-liðinu svo mikið á aðeins
þremur mánuðum? Allir á Highbuiy
þekkja hann því að hann er einn af
bestu lærisveinum félagsins og lék
lykilhlutverk í Arsenal-liðinu 1971
þegar Arsenal vann tvöfalt í Englandi
- bæði deild og bikar á aðeins sex
dögum. Á mánudagskvöld varð Arsen-
al meistari með því að leggja Totten-
ham að velli, 1-0, á White Hart Lane
og laugardaginn eftir vannst bikarinn
á Wembley þar sem Arsenal vann sig-
ur, 2-1, yfir Liverpool.
Graham kom með aga til Arsenal
og hann losaði sig fljótt við leikmenn
sem litu stórt á sig, eins og Tony
Woodcock og Paul Mariner, ensku
landsliðsmennina. „Strákamir hér
þekktu mig og mínar reglur þegar ég
kom aftur til Highbury. Þannig að
þeir vissu hvað ég vildi og vom alls
ekki hræddir. Ég er þó ekki maður
með jámaga og refsingar. Ég vil að
leikmenn mínir komi fram sem full-
þroskaðir menn - fullir metnaðar og
leggi sig alla fram fyrir Arsenal. Ef
erfiðleikar koma upp þá leysum við
þá. Já, það er mitt verkefhi að sjá til
þess að ekkert vandamál komi upp.
Það er Ijóst að 95% af knattspymu-
mönnum vantar stjómanda sem gefur
dagskipanir. Leikmenn þurfa að fá að
vita hvemig þeir eiga að haga sér á
leikvelli og utan. Við vitum hvemig
fór fyrir Charlie Nicholas þegar hann
braut reglumar. Hann var sjálfum sér
verstur," sagði George Graham.
Ein er sú regla sem Graham fyrir-
skipar að verði aldrei brotin. Það er
reglan um klæðnað leikmanna þegar
þeir mæta til leiks. Þegar Arsenal leik-
ur á útivöllum mæta allir leikmenn í
fötum félagsins, bláum jakka, gráum
buxum og skyrtu. Þegar leikið er á
Highbury mæta leikmenn í jakkaföt-
um, með stífþressaðan flibba og bindi.
Gefur strákunum tækifæri
Það vakti mikla athygli fyrir þetta
keppnistímabil að George Graham
keypti enga stórstjömu í staðinn fyrir
Woodcock og Mariner. Hann keypti
aðeins einn leikmann. Perry Groves
frá Colchester á aðeins 50 þús. sterl-
ingspund. Og þrátt fyrir að Charlie
Nicholas, Graham Rix og Stewart
Robson hafi meiðst þá tók hann ekki
upp peningabudduna til að kaupa
reynda leikmenn. Hann gaf ungu leik-
mönnum tækifæri. David Rocastle (19
ára), Niall Quinn (20), Martin Hayes
(20), Guy Caesar (20), Tony Adams
(20) og Perry Groves (21).
„Mitt starf hér er að byggja upp lið
en ekki að kaupa og kaupa leikmenn.
Það hefur sýnt sig að ungu strákamir
sem hafa fengið tækifæri hafa staðið
sig vel. Þeir hafa ekki valdið mér von-
brigðum," sagði Graham.
„Ég er ekki að gera lítið úr David
Pleat hjá Tottenham þegar ég bendi á
að hann keypti leikmenn fyrir 1,6
millj. sterlingspunda á fyrstu þremur
vikum sínum hjá félaginu. Það getur
verið að ég kaupi leikmann eftir þrjá
eða sex mánuði. Ég er ekki enn farinn
að hugsa um að kaupa leikmann.
Fólk hér gagnrýndi mig fyrir að
kaupa ekki frægan sóknarleikmann
fyrir keppnistímabilið til að taka stöðu
Woodcock og Mariners. Ég vildi bíða
þar sem við vorum með hóp af ungum
leikmönnum sem höfðu ekki fengið
tækifæri til að spreyta sig. Ég vildi
gefa þeim tækifæri áður en ég færi að
kaupa leikmenn. Það er auðvelt að
kaupa leikmenn. Jafnvel leikmenn
sem maður sér eftir að hafa keypt eft-
ir aðeins tvo mánuði. Nei, ég kaupi
ekki leikmenn aðeins til að kaupa.
Var nærri búinn að selja Hayes
Það munaði ekki miklu að ég gerði
mistök fljótlega eftir að ég kom til
Arsenal. Ég hafði þá hug á að selja
Martin Hayes til Huddersfield á 25
þús. pund. Hayes hefur staðið sig vel
að undanfömu - skorað sex mörk í
síðustu sex leikjum okkar. Ef mér
væru nú boðin 25 þús. pund fyrir hann
væri svar mitt nei. Hann fékk tæki-
færi og hann tók því með trompi,"
sagði Graham.
Þegar hann var spurður hvort
áhangendur Arsenal ættu von á meist-
aratitli í vetur svaraði hann: „Ég veit
Iþróttir
• Jespsr Olsen.
Atkinson rekinn
frá Man. Utd
Ajax vildi fa
Jesper
Forráðamenn hollenska félagsins
Ajax Amsterdam hafa haft samband
við stjórana hjá Manchester United
og boðist til að leigja danska lands-
liðsmanninn Jesper Olsen af þeim
út þetta keppnistímabil.
Ástæðan er sú að Ajax er í vand-
ræðum með að fylla í liðið hjá sér
um þessar mundir þar sem sumir af
bestu mönnum þess eru meiddir eða
fá ekki almennilega tíma til að gróa
sára sinna vegna manneklu. Þar sem
verið er að berja Danann litla þarna
í Manchester - og það meðspilararn-
ir hans hjá United - þótti ekkert úr
að lani
vegi að kanna með að fá hann lánað-
an. Olsen var seldur frá Ajax til
United og í Hollandi er hann í miklu
uppáhaldi.
Þeir hjá United svöruðu þessari
kurteislegu beiðni þeirra Ajaxmanna
heldur kuldalega að áliti Amster-
dambúa sem allir standa með sínu
Ajax-liði. „Ef Ajax vill fá Jesper Ols-
en þá er hann til sölu en ekki til
láns,“ sagði Martin Edwards. for-
maður Manchester United, og skellti
símanum á hollenska blaðamanninn
sem hringdi. -klp-
•Tony Adams, leikmaðurinn
snjalli, sést hér með FIAT-
skjöldinn sem hann fékk fyrir að
vera útnefndur besti ungi leik-
maðurinn i Englandi í október.
að það eru engir bjánar hér. Það er
enginn sem krefst þess að ég nái að
vinna meistaratitil mitt fyrsta keppn-
istímabil hjá Arsenal. Sjáðu, það hefur
ekkert félag frá S-Englandi náð að
vinna meistaratitilinn síðustu fimmt-
án árin.“ Þá var Graham spurður: „En
eftir tvö ár?“ „Það er önnur saga. Ég
stefhi að því byggja hér upp sterkt lið
sem getur orðið meistaralið á tveimm-
árum.“
Graham veit að það tekur tíma að
byggja upp góða liðsheild. „Baráttan
er hörð hér í Englandi. í dag getur
allt gengið upp en á morgun getur
allt verið komið í rúst. Munurinn er
ekki svo mikill á liðunum. Topplið
þarf ekki annað en að tapa tveimur
leikjum þá er það komið langt niður
stigatöfluna," sagði Graham.
Arsenal leikur mjög þýðingarmikinn
leik á Highbury á morgun. Hinir ungu
leikmenn liðsins fá þá West Ham í
heimsókn. -SOS
Góður sigur
gegn Ítalíu
íslenska kvennalandsliðið í handknattleik
sigraði Ítalíu, 23-21, í c-keppni heimsmeist-
arakeppninnar á Spáni í gærkvöldi. Leikur-
inn var um 5.-6. sætið í keppninni og var ■
mjög jafn framan af þar sem þær ítölsku I
höfðu forystu í hálfleik, 11-10. Unr miðbik
seinni hálfleiks tókst íslensku stúlkunum |
að ná undirtökum í leiknum og höfðu á .
tímabili fiögur mörk yfir en þeim ítölsku |
Itókst undir lok leiksins að minnka muninn. ■
Mörkin skoruðu: Erla 9, Guðríður 5, Katr- I
Iín, Eiríka og Guðný 2 hver, Ema, Arna og I
^^Björg 1 hver. -BD
Ron Atkinson, framkvæmdastjóri Manchester United, var rek-
inn frá félaginu í gær eftir stjómarfund á Old Trafford. Einnig
var Mick Brown, aðstoðarmaður hans, látinn taka pokann sinn.
Manchester United hefur gengið illa að undanfömu og þegar
félagið var slegið út, 1-4, af Southampton'í ensku deildabikar-
keppninni sl. þriðjudagskvöld þótti flestum nóg komið.
Þrátt fyrir að Atkinson hafi keypt og keypt leikmenn undan-
farin ár hefur félagið ekki náð að tryggja sér Englandsmeistara-
titilinn. United vann titilinn síðast 1967 eða fyrir 19 árum.
Enn er ekki vitað hver tekur við af Atkinson. Það eru ekki
margir snjallir „stjórar" á lausu í Englandi. -SOS
300 Júgóslavar koma til
að sjá Stjömuna leika
Mikill áhugi er í Júgóslavíu fyrir Ev- stemmningu í Laugardalshöllinni.
rópuleik Stjömunnar og Dinov Slovanm Leikmenn Dinov og áhangendur liðs-
sem fer fram í Reykjavík 21. nóvember. ins koma hingað til lands í tveimur
Um 300 stuðningsmenn júgóslavneska leiguflugvélum. Stjaman leikur fyrri
liðsins koma hingað til lands til að sjá leik sinn í Júgóslavíu 15. nóvember.
leikinn og má því búast við mikilli -SOS
„Frábært ef við
næðum 4. sæti“
- Sveit GR tekur þátt í EM í gotfi
„Undirbúningurinn hjá okkur hefur
verið eins góður og hægt er. Það er
auðvitað erfitt að standa í þessu hér
á landi á þessum árstíma vegna veðr-
áttunnar. Við stefnum hins vegar að
því að ná svipuðum árangri á mótinu
og í fyrra og við yrðum mjög ánægðir
með ef það tækist," sagði golfleikarinn
Ragnar Ólafsson í samtali við DV í
gærkvöldi en á morgun heldur sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur til Spánar þar
sem hún tekur þátt i Evrópumóti
klúbbliða í golfi. GR-sveitin var einnig
með á móti þessu í fyrra og hafnaði þá
í 4. sæti eins og frægt er orðið.
Sveitin, sem skipuð er þeim Ragnari
Ólafssyni, Einari L. Þórissyni, Hann-
esi Eyvindssyni og Sigurði Péturssyni,
hefur undanfamar vikur æft í miklu
undratæki í keilusalnum í Öskjuhlíð
sem kallað er „golfhermir". „ Þetta er
stórkostlegt tæki en það kemur ekki
í ljós fyrr en í keppninni sjálfri hvort
það hefur hjálpað okkur. Þó tel ég svo
vera. Maður er alltaf að slá og hugsa
um léið og þetta er mjög svipað því
að leika utan dyra. Við verðum bam
að vona það besta. Við erum ákveðnir
í að gera góða hluti," sagði Ragnar
Ólafsson.
Björgúlfur Lúðvíksson, fyrirliði
sveitarinnar, sagði í gær, þegar DV
leit inn á æfingu hjá sveitinni, að
strákamir hefðu lagt sig alla fram við
undirbúning og hann væri bjartsýnn
á góðan árangur sveitarinnar á Spáni.
-SK
StórsigurgegnUSA
Island vann stóran sigur gegn
Bandaríkjamönnum á alþjóðlega mót-
inu í handknattleik í Hollandi í
gærkvöldi, 21-15, eftir að hafa verið
yfir í hálfleik, 12-7.
Bjami Guðmundsson og Júlíus Jón-
asson skomðu 6 mörk hvor, Steinar
Birgisson 3, Jakob Sigurðsson 2, Geir
Sveinsson 1, Ámi Friðleifeson 1, Aðal-
steinn Jónsson 1 og Þorgils Óttar
Mathiesen 1 mark. Kristján Sig-
mundsson varði mjög vel í leiknum.
Af öðrum úrslitum á mótinu má nefha
sigur Hollendinga yfir ísrael, 22-17,
sigur u-21 árs liðs Hollendinga gegn
Noregi, 24-23, sigur Noregs gegn USA,
23-14, og loks sigraði A-lið Hollands
yngra liðið með 28 mörkum gegn 16.
ísland og eldra lið Hollands em efet á
mótinu með 4 stig.
• Liðsmenn sveitar Golfklúbbs Reykjavíkur hefja hér fyrirliða sinn, Björgúlf Lúðviksson, á loft. Þeir eru talið frá
vinstri: Hannes Eyvindsson, Ragnar Ólafsson, Sigurður Pétursson og Einar L. Þórisson. Það er vonandi að strákarn-
ir handleiki kylfurnar jafnauðveldlega á Spáni og liðsstjóra sinn á myndinni. DV-mynd Brynjar Gauti
12,8 billjónir sáu leikina á HM í Mexíkó
580 milljónir manna sáu úrslitaleik
síðustu heimsmeistarakeppni í knattr
spymu samkvæmt upplýsingum sem
fram koma í nýjasta fréttabréfi FIFA.
Þetta er nýtt met og ekki margir við-
burðir í sögunni sem dregið hafa til
sín Ðeiri sjónvarpsáhorfendur ef þá
nokkur.
Þegar úrslitaleikur heimsmeistara-
keppninnar árið 1982 fór fram í Madrid
á Spáni milli Itala og Vestur-Þjóðverja
var tala þeirra sem sáu leikinn í sjón-
varpi 450 milljónir. Framangreindar
tölur koma fram í nýlegu fréttabréfi
FIFA og þar kemur einnig fram að
12,8 billjónir sjónvarpsáhorfenda
fylgdust með knattspymuleikjum frá
Mexíkó á meðan að keppnin fór fram
dagana 31. mai til 29. júní. Leik Vest-
ur-Þjóðverja og Mexíkó í 8-liða úrslit-
unum sáu sautján milljónir í sjónvarpi
í Vestur-Þýskalandi einu saman.
-SK
„Er mjög bjartsýnn á
að Webster verði lög
legur í landsliðinu
- segir Bjöm Björgvinsson, form. KKÍ. FIBA kannar málið þessa dagana
„Ég er mjög bjartsýnn á að þeir
taki okkar rök til greina og að leyf-
ið fáist frá alþjóða körfuknattleiks-
sambandinu," sagði Björn Björg-
vinsson, formaður Körfuknattleiks-
samband íslands, í samtali við DV í
gærkvöldi. Eins og íþróttaunnendur
vita hefur ívar Webster körfuknatt-
leiksmaður,- sem nú leikur með og
þjálfar Þór frá Akureyri, ekki fengið
leyfi til að leika með íslenska lands-
liðinu en nú eru sem sagt miklar
líkur taldar á að leyfið komist í höfh
og Webster verði því löglegur með
landsliðinu.
Samkvæmt reglum FIBA, þurfa að
h'ða þrjú ár frá því að leikmaður
skiptir um ríkisborgararétt þar til
hann má leika með landsliði við-
komandi lands. Þessi tími er liðinn
og gott betur í tilfelli Ivara en að
sögn Bjöms var það kannski klaufa-
skapur og þekkingarleysi KKÍ sem
orsakaði það að FIBA var ekki til-
kynnt tmi að Webster væri orðinn
íslenskur ríkisborgarari ó sínum
tíma. Staðan í þessu mikilvæga máli
í dag er sú að nýverið sendi KKÍ
bréf til FIBA þar sem sambandið
viðurkenndi fáfræði sína og bað um
náð og miskunn eins og Bjöm orð-
aði það. Svar barst frá FIBA í þessari
viku þar sem alþjóðasambandið bað
um frekari upplýsingai- og þvkir það
góðs viti. Þessar nánari upplýsingar
eru nú á leið til FIBA og í næsta
mánuði ætti það að komast á hi-eint
hvort ívar Webster verður löglegur
með landsliðinu en óneitanlega
verða líkumar að teljast mjög mikl-
ar. „Við trúum okki öðru en FIBA
taki okkar sterku rök til grcina í
þessu móli. Við erum með alveg
hreint mál og erum mjög bjartsýnir
á farsæla lausn,“ sagði Bjöm Björg-
vinsson.
Mjög mikill styrkur
1 gegnum órin hefur lítil hajð
landsliðsmanna okkar einna holst
staðið í vegi fyrir frekari framgangi
landsliðsins á alþjóðlegum vett-
vangi. Koma Websters í liðið yi'ði
því ómetanlegur styrkur. Webster,
sem er um 2,10 metrar á hæð, er
snjall leikmaður sem myndi styrkja
íslenska landsliðið gífurlega mikið í
komandi stói-verkefnum. Islenska
landsliðið vann sig sem kunnugt er
•ivar Webster sem leikur með
og þjálfar Þór frá Akureyri. Nú
hillir undir landsleiki fyrir islands
hönd hjá kappanum.
upp í b-riðil á síðasta óri og nú
streyma boð liðinu til handa víða
að úr heiminum. Siðasta tilboðið
kom frá Möltu en þeir Möltubúar
bjóða landsliðinu á mót þar í landi
milli jóla og nýárs. -SK
0
21stigssigur
ÍBK gegn Val
Magnús Gíslason, DV, Suöumesjum:
„Við héldum þokkalegum stíganda í
þessum leik og Valsmenn náðu aldrei að
setja okkrn- út af laginu,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson, þjálfari Keflvíkinga, í körfu-
knattleik eftir að hans menn höfðu krækt
sér í toppsæti úrvalsdeildarinnar með sigri
yfir Valsmönnum í Keflavík, 71-50. Staðan
í leikhléi var 36-27, ÍBK í hag.
Sigur Keflvíkinga var aldrei í hættu í þessum
leik og það gefur auga leið að lið sem ekki skor-
ai- meira en 50 stig i heilum leik fer vart með
sigui' af hólmi. Mestur munur í fyrri hálfleik var
10 stig, 32-22 en Valsmenn náðu að klóra í bakk-
ann fyrir leikhlé. Stórgóður leikur Sigurðar
Ingimundarsonar í síðari hálfleik innsiglaði síð-
an stóran sigur heimamanna og eitthvað virðist
Valsmönnum vera farið að fatast flugið.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 18, Sigurður Ingi-
mundarson 14, Hreinn Þorkelsson 13. Ólafur
Gottskálksson 9, Gylfi Þorkelsson 8, Guðjón
Skúlason 5, Falur Harðarson 2 og Guðbrandur
Stefánsson 2.
Stig Vals: Torfi Magnússon 14, Leifur Gústafsson
9, Sturla Örlygsson 6, Tómas Holton 6, Björn
Zoega 6, Páll Amar 5, Guðmimdur Hallgrimsson
2 og Einar Ólafsson 2.
Kristbjöm Albertsson og Ómar Schewing
dæmdu leikinn og voru með bestu mönnum á
vellinum.
Ferguson til Utd?
Steön Már Amarsson, DV, Engiandi:
Forráðamenn Manchester United hafa
þegar hafið leitina að framkvæmdastjóra í
stað Rons Atkinson sem rekinn var frá fé-
laginu í gær. I gærkvöldi var greint frá því
í sjónvarpinu hér að forráðamenn United
ættu nú í viðræðum við Alex Ferguson,
framkvæmdastjóra Aberdeen í Skotlandi.
Hann hefur óður verið orðaður við liðið og
eru taldar miklar líkur á því að hann taki
við stjóminni á Old Trafford. -SK