Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Norðuriand vestra:
Stefán glím-
ir við Pál
Þingmenn Framsóknarflokksins á
Norðurlandi vestra ætla sér báðir efsta
sætið á framboðslista flokksins til Al-
þingis. Stefán Guðmundsson skellir
sér af þunga í glímu við Pál Péturs-
son, sem nú skipar efsta sætið og hefur
gert það í tvö kjörtímabil.
„Þetta kemur mér mjög á óvart, Stef-
án hefur ekki sagt mér frá þessu,“
sagði Páll i morgun. „Þessi staða getur
engum komið á óvart, það var kosið
á milli okkar Páls á kjördæmisþingi
fyrir síðustu kosningar, þetta er þvi
ekkert nýtt,“ sagði Stefán aftur á
móti. „En þá voru aðrar aðstæður,"
sagði Páll.
Stuðningsmenn Stefáns hafa opnað
skrifstofu á Sauðárkróki. Páll ætlar
" »ikki í skrifstofuslag. Stefán sagði að
auðvitað væru ástæður fyrir því að
hann sæktist eftir fyrsta sætinu og
léti sér ekki nægja annað sætið, þótt
það væri einnig öruggt þingsæti. Hann
vildi ekki tjá sig um þær nú. „Prófkjör-
inu lýkur nú ekki fyrr en 23. nóvember
svo að það er nægur tími. Það á vafa-
laust eftir að segja ýmislegt þangað
til fyrst þetta fer svona af stað,“ sagði
Stefán.
„Það hlýtur að vera mikil ástæða á
bak við þetta,“ sagði Páll, „en örlög
> -okkar eru í höndum kjósenda, að
minnsta kosti mín. Ég neita því ekki
að ég áliti það vantraust á mig ef ég
yrði færður til á listanum.
_________________________HERB
Eyðni á Vogi
„Hér hafa verið í meðferð einstakl-
ingar sem í hefur mælst mótefni gegn
eyðni, því get ég ekki neitað," sagði
Valur Júlíusson, læknir á sjúkrastöð
SÁÁ á Vogi. „Ég vil og get ekki gefið
upp fjölda þeirra."
Eins og greint var frá i fréttum DV
í gær fiúði eyðnisjúklingur, kven-
maður, til Spánar fyrr í vikunni eftir
að á hana féll grunur um að hafa
. Stenitáð fjölmarga með gáleysislegu
kynlífi sínu. Samkvæmt heimildum
DV var umrædd kona til meðferðar á
Vogi fyrir skömmu.
„Eg get hvorki játað þessu né neit-
að,“ sagði Valur Júlíusson aðspurður.
-EIR
Leiðinliggurí
AIIKLAG4RD
LOKI
Ekki segir ofsögum af
ástum samlyndra
framsóknarmanna!
Fáskrúðsfjórður:
Samið um 30 þúsund
króna lágmarkslaun
Verkalýðsfélag Fáskrúðsfjarðar
hefur gengið frá nýjum kjarasamn-
ingi við sveitarfélagið þar sem
lágmarkslaun starfsmanna eru 30
þúsund krónur á mánuði. Auk þess
var samið um miklar launaflokka-
breytingar sem hækka fólk i launum.
Samningurinn gildir frá 1. október
til 31. janúar á næsta ári.
„Ég treysti því að 1. febrúar verði
búið að gera nýja kjarasamninga í
landinu og að þá verði enginn maður
með lægri laun en 30 þúsund krónur
á mánuði,“ sagði Eiríkur Stefánsson,
formaður Verkalýðsfélags Fá-
skrúðsfjarðar, í samtali við DV í
morgun.
Eirikur sagðist veramjög ánægður
með þennan nýja samning, ekki síst
vegna þess hve margt fólk vinnur
hjá sveitarfélaginu, ekki bara verka-
fólk heldur fólk úr fjölmörgum
öðrum starfsstéttum. Hann sagðist
vona að þessi nýi kjarasamningur
yrði stefnumarkandi í kjaramálaá-
lyktun Alþýðusambands Austfjarða
en þing sambandsins verður haldið
nú um helgina. -S.dór.
Sigriöur Duna Kristmundsdottir, þingkona Kvennalistans, kom aftur til starfa á Alþingi í gær eftir leyfi frá
þingstörfum og þaö er vart hægt að segja annað en að henni hafi verið vel fagnað af Guðrúnu Agnars-
dóttur samflokkskonu sinni. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Kolnandi
veður
Norðanátt um allt land. Snjó-
koma fyrir norðan en léttir til á
Suðurlandi. Kólnandi veður. Hiti
verður á bilinu -2 til 2 stig.
Pétur
í uppskurð
„Það er ákveðið að ég fer í uppskurð
á mánudaginn og svo gæti vel farið
að keppnistímabilið væri þar með úr
sögunni hjá mér í vetur," sagði Pétur
Guðmundsson, atvinnumaður í körfu-
knattleik hjá bandaríska liðinu Los
Angeles Lakers, í samtali við DV.
„Ég er með bijósklos í baki og eina
leiðin til að fá sig góðan er að gang-
ast undir uppskurð. Ég verð ekki
settur á sölulista hjá Lakers. Ég fer á
sjúkralista og fer svo aftur inn í liðið
um leið og ég verð orðinn góður. Það
gæti hugsanlega orðið fyrir lok keppn-
’istímabilsins. Það fer allt eftir því
hvemig til tekst á mánudaginn.
Þetta er gífurlegt áfall. Ég hef aldrei
verið skorinn upp áður og þetta er því
alveg ný reynsla fyrir mig. Það eina
sem ég get gert núna er að biðja til
Guðs um að ég nái mér fljótlega eftir
uppskurðinn,“ sagði Pétur Guð-
mundsson.
-SK
Kratar bíða:
Bretta upp
ermarnar
Enn er beðið eftir því að kjömefrid
Alþýðuflokksins í Reykjavík ákveði
með hvaða hætti verði stillt upp á
framboðslista til Alþingis. Þótt jafnvel
sé búist við einhvers konar prófkjöri
hefur formaður flokksins róið að því
í margar vikur að ná saman álitlegu
herforingjaliði.
Þannig krækti Jón Baldvin Hanni-
balsson fljótt í nafna sinn Sigurðsson,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar, í efsta
sæti listans. Jóhönnu Sigurðardóttur
er ætlað annað sætið og Jón Baldvin
ætlar að fylla það þriðja. Alþýðuflokk-
urinn hefur nú tvo þingmenn úr
Reykjavík svo að þriðja sætið er engan
veginn ömggt þingsæti.
Þá hefur verið fast lagt að Lám V.
Júlíusdóttur, lögfræðingi Alþýðusam-
bandsins, að taka fjórða sæti á
framboðslistanum, ekki síst eftir að
Stefón Benediktsson heltist úr lest-
inni. Lára og Jón Sigurðsson segjast
ekki taka endanlega afstöðu til fram-
boðs fyrr en leikreglur þess liggi fyrir.
Engu að síður hafa þeir Jónar ásamt
Jóhönnu myndað eins konar leitar-
flokk, sem farið' hefur á fjörumar við
fólk í næstu sæti', þar á meðal Lám.
Þetta er óneitanlega sérkennileg
biðstaða og óhætt að segja að menn
hafi þrátt fyrir hana brett upp ermar
og ætli sér pláss á þjóðarskútunni.
-HERB