Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Qupperneq 18
62
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986.
Popphljómsveitir frá Norðurlöndunum hafa ekki verið ýkja hátt
skrifaðar á heimskort poppsins gegnum tíðina og Abba verið
nánast ein um það að benda poppunnendum á það að Norður-
löndin hafi uppá slíka tónlist að bjóða. Poppið er auðvitað orðið
alþjóðleg söluvara fyrir margt löngu og í seinni tíð hafa hljóm-
sveitir og einstaklingar utan enskumælandi þjóðanna - Bretlands
og Bandaríkjanna - í auknum mæli slegið í gegn á alþjóðamark-
aði, Þjóðverjar, Austurríkismenn, Hollendingar, Svisslendingar -
og tvær hljómsveitir frá Norðurlöndunum, norska tríóið A-ha og
sænska hljómsveitin Europa.
Þrátt fyrir mikla fjölgun poppflytjenda frá löndum Evrópu ann-
arra en Breta heldur enskan velli sem „móðurmál” poppsins.
Hvað sem mönnum annars finnst um slíkt er sú fullyrðing ein-
faldlega sannleikanum samkvæm.
og leiðin liggur um Sviss, Frakk-
land, Þýskaland, Belgíu, Holland,
Danmörku og í lok mánaðarins
verða hljómleikar í Svíþjóð, bæði
í Stokkhólmi og Gautaborg. í des-
ember iiggur leiðin til Stóra-Bret-
lands, fyrst spilað fyrir Skota og
síðan helstu borgir Bretlands
þræddar, lokatónleikar fyrir og eft-
ir jól í Lundúnum. Meðal annars
verða norsku strákarnir á sviðinu
í Hammersmith Odeon í Lundúnum
sex kvöld í röð.
Fyrsta breiðskífa A-ha, Hunting
High And Low, hefur í Evrópu
einni selst í 1,5 milljónum eintaka
og. viðtökurnar við nýju plötunni,
Scoundrel Days, hafa verið mjög
góðar. Önnur smáskífa af þeirri
plötu er væntanleg meðan á hljóm-
leikaferðinni stendur.
-Gsal.
Sænska hljómsveitin Europe hef-
ur á undanfömum vikum skotist
uppá topp fjölmargra vinsældalista
í álfunni sem hljómsveitin heitir í
höfuðið á - og innan skamms verð-
ur lagið þeirra, The Final Count-
down, gefið út í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Sigurför þessa lags er
eitthvert það óvæntasta sem gerst
hefur í poppinu þetta árið, ekki
ósvipað og þegar A-ha skaust í ein-
um grænum hvelli uppá stjömu-
himininn með Take On Me.
Velgengnin hefur bæði komið
hljómsveitarmeðlimum Europe og
umboðsmönnum á óvart og til
dæmis breyttist kynningarfundur
um hljómsveitina í Þýskalandi á
dögunum uppí sigurhátíð því í
sömu vikunni hafði The Final
Countdown hreppt toppsætið. Þar
með hefur lagið náð efsta sæti í
Svíþjóð, Hollandi, Sviss og Þýska-
landi og komist inná topp-tíu á
listunum í Austurríki, Belgíu,
Frakklandi, Noregi og Finnlandi.
í Svíþjóð hefur Europe haft á sér
ímynd táningahljómsveitar og
hermt að vinsældir á heimaslóðum
megi fyrst og fremst rekja til þess
hversu snoppufríðir strákamir em.
Þessu neitar söngvarinn og aðal-
lagasmiður Europe, Joey Tempest,
og segir að þó þessi ímynd hafi að
einhverju leyti hjálpað uppá vel-
gengnina sé miklu meira í hljóm-
sveitina spunnið einsog sannast
muni á hljómleikum og þeir líti á
tónlist sína sem melódískt þunga-.
rokk.
Efasemdir um hæfni hljómsveit-
arinnar á sviði munu hafa verið
áberandi meðal umboðsmanna í
Evrópu en á hljómleikum nýverið
í Þýskalandi máttu menn éta slíkar
efasemdir oní sig: hljómsveitin stóð
sig blátt áfram skínandi vel.
Hljómleikaferð er fyrirhuguð um
Evrópulönd í byrjun næsta árs en
áður verður gefin út önnur smá-
skífa með laginu Rock The Night
og viðtökurnar við því lagi munu
að einhverju leyti skera úr um það
hvort Europe er komin til þess að
dvelja - eða gleymast.
Byrjunin á ferli Europe er hins
vegar einstök.
Fleiri járn í eldinum
Joey Tempest, forsprakki
Europe, hefur fleira á sinni könnu
en hljómsveitina. Hann er upp-
tökustjóri og tónskáld og maður-
inn bak við vinsældir sænsku
rokkstelpunnar Tone Norum.
Þessi sænska stelpa hefur gefið
út tvær smáskífur, Can’t You Stay
og Strandet sem báðar komust í
gullsölu í Svíþjóð og fyrsta breið-
skífan er nýkomin út, heitir One
Of A Kind. Öll lög plötunnar eru
eftir Joey Tempest og upptöku-
stjórn í hans höndum. Hermt er að
það sé aðeins tímaspursmál hvenær
vinsældir hennar berist út til ann-
arra landa.
-Gsal.
og tryggan aðdáendahóp og lög
þeirra fara undantekningarlaust
inná topp tuttugu í Bretlandi, síð-
ast I’ve Been Losing You af nýju
plötunni Scoundrel Days.
Hljómsveitin hóf hljómleikaferð á
laugardaginn var og spilar um
þessa helgi í París. Þetta er fyrsta
hljómleikaferð A-ha og því eldskírn
hennar á sviði, ferðinni lýkur ekki
fyrr en um áramót og stendur því
í samfellt tvo mánuði. Fyrstu tón-
leikarnir voru í Vin á laugardaginn
Norska tríóið A-ha er ótvírætt sú
hljómsveit frá Norðurlöndunum
sem hæst ber í alþjóðapoppinu um
þessar mundir. Eftir stóru bomb-
una Take On Me voru margir
þeirrar skoðunar að A-ha væri
skólabókardæmi um hljómsveit
sem ætti einn smell og síðan ekki
söguna meir. Slíkum hrakspám
hefur A-ha gefið langt nef og fjöldi
laga tríósins á vinsældalistum er
auðvitað gleggsta sönnun þess að
A-ha hefur jafnt og þétt styrkt
stöðu sína í poppinu.
Reyndar hefur hljómsveitin ekki
komist í efstu sæti lista frá Take
On Me ævintýrinu en norsku
strákarnir virðast eiga orðið stóran