Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Qupperneq 2
46
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986.
Fátækt í
frægðinni
Jason nokkur Starkey hefur á Eng-
landi verið fundinn sekur um að stela
stereoútvarpi úr bifreið. Verknaður-
inn var framinn í ölæði og var hinn
seki tekinn daginn eftir gleðskapinn
þar sem hann lá á þýfinu.
Fvrir brot sitt hefur Starkey verið
dæmdur til að greiða 7200 krónur í
sekt. Er það nokkuð þungur dómur
þegar 19 ára atvinnulaus unglings-
piltur á í hlut. Ekki veldur þó sektin
því að Starkey hefur komist í frétt-
irnar heldur það að faðir hans er
Ringo Starr sem um skeið lék með
Bítlunum.
Breiðsíðunefndin hefur aldrei verið
mikið gefin fyrir siðapredikanir en
getur þó ekki látið hjá líða að minna
alþýðu manna á að líf fræga fólksins
er alls ekki eftirbreytnivert.
Óskarsverð-
launa-
hafi í þjóð-
frelsisbaráttu
. „Hér er allt mitt fólk og eini stað-
urinn þar sem ég á raunverulega
heima,“ sagði Haing S. Ngor þegar
hann kom að landamærum Kamp-
útseu Tælandsmegin. Nú er ár síðan
hann vann óskarsverðlaunin fyrir
hlutverk ljósmyndarans í Vígvöllun-
um sem sýnd var við mikla aðsókn
víða um heim.
Ngor er nú við upptökur á heimild-
armynd fyrir sjónvarp um átökin í
Kampútseu. „Ég vil að það komi
fram hvað fólkið mitt hefur orðið að
þola,“ segir Ngor. Hann heldur því
fram að ógnarstjórnin í heimalandi
hans sé síst minni nú undir stjórn
Heng Samrin og bandamanna hans
frá Víetnam en var í tíð hins ill-
ræmda Páls Pot. „Það er verið að
útrýma þjóðinni,“ segir Ngor.
Lauper tjaldar öllu sem til er.
Slagur milli
Madormu
og Lauper
„Hér er ég rétt eins og ég sagði að
ég mundi vera,“ syngur Cyndi Lau-
per á nýju plötunni sinni. Hún leggur
nú hart að sér að viðhalda frægðinni
sem hún öðlaðist árið 1983. Allt
bendir til að það ætli að takast þvi
lögin af plötunni stefna óðfluga að
toppi allra helstu vinsældalista í
heiminum.
Lauper er þessa dagana á Ítalíu við
upptökur á myndbandi til að auka
sölu plötunnar. Lauper er nefnilega
af myndbandakynslóðinni í poppinu.
1 myndböndin eyðir hún milljónum
neðan helsti keppinauturinn, Ma-
donna, hefur fundið ódýrari leið til
að kynna sig.
Madonna fann upp á því að efna
til samkeppni um hver gæti gert
besta myndbandið við lag með henni.
í verðlaun var heitið einni milljón
króna. Um eitt þúsund tillögur bár-
ust. Myndbandið sem valið var til
fyrstu verðlauna er í svart/hvítu og
þykir bara nokkuð gott. Hins bíða
menn nú hvað mótleik Lauper getur
fundið.
ER BLAÐIÐ FYRIR ALLA
Fæ enn fiðring ... segir Páll Þorsteinsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar, í Viku-
viðtalinu.
Ný framhaldssaga, skrifuð af Gunnari Gunnarssyni rithöfundi fyrir Vikuna.
Spennusagan Lifandi lík hefst í þessu tölublaði. Fylgist með frá byrjun.
★
Öldrunarmál á íslandi. Dögg Pálsaóttir lögfræöingur gjörþekkir þennan víðamikla málaflokk og skrifar fyrsta
þátt af tíu í Vikunni nú.
Leiklist í Lindarbæ og Leikslok í Smymu.
í skák getur allt gerst, segir Margeir Pétursson, íslandsmeistarinn í skák 1986. Hann er nafn Vikunnar.
Vetrartískan.
Lúða með broccoli í Viku-eldhúsinu.
Lifa hratt, deyja ungur, gleymast aldrei. James Dean.
í gegnum
þagnar-
múrinn
Meðan Dustin Hoffman, Warren
Beatty og Isabelle Adjani vinna að
töku myndarinnar Ishtar í New York
má ekkert kvisast út um viðfangsefni
þeirra. Allir þeir sem vinna að mynd-
inni hafa orðið að sverja þess eiða
að segja engum frá efni myndarinn-
ar.
Þetta uppátæki hefur þó reynst hin
mesta firra því sjaldgæft er að svo
margar slúðursögur hafi myndast
vegna töku einnar myndar. Ein sag-
an hermir að Adjani eigi að leika
ungan mann og óttast menn að það
fari hinni ungu leikkonu afar illa.
Hörðustu aðdáendurnir segjast þó
ekkert óttast því þessi saga sé upp-
spuni og Adjani muni ekki birtast í
dulargervi í myndinni heldur rétt
eins og hún á að sér að vera.
Önnur saga, sem spurst hefur út
fyrir þagnarmúrana, er að þess verði
nú skammt að bíða að Adjani og
Beatty gangi í það heilaga. I mynd-
inni eigi þau að leika kærustupar og
farist það bara vel úr hendi því þegar
hafi tekist miklar ástir með þeim.
Adjani litur um öxl.