Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Blaðsíða 16
60 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986. Sérstæð sakamál Cheryl Pierson með lögregluþjóni. Cheryl Pierson með föður sínum í afmælisveislunni sem hann hélf henni þegar hun varð 16 ára. Sumir trúa Cheryl Pierson en aðrir ekki. Þeir sem telja að hún hafi sagt sannleikann líta svo á að hún hafi verið hjálparlaust fórnardýr en þeir sem gera það ekki segja að hún eigi heima i fangelsi. Cheryl fékk ungan mann til þess að myrða föður sinn sem hún segir að hafi misboðið henni kynferðis- lega. Þá segist hún hafa óttast að það sama myndi koma fyrir systur hennar. Á undanförnum árum hefur borið æ meira á því að börn kvarti undan óeðlilegri framkomu foreldra við sig en grunur leikur þó á að í meirihluta tilvika segi börn aldrei frá því þótt foreldrar fái þau til samræðis við sig. Óttist þau bæði umtal og hefnd for- eldranna. „Auðvitað trúi ég henni,“ segir bróðir hennar, James Pierson yngri, sem er tvítugur. „Hvernig ætti hún að búa svona lagað til?“ „Það þarf enginn að segja mér að sonur minn hafi getað gert þetta,“ sagði Virginia Pierson, móðir föður- ins sem var skotinn. „Enginn. Kæmi María guðsmóðir til mín og segði mér að hann hefði gert þetta þá myndi ég segja: „Ég get ekki trúað þér, guðsmóðir." “ „Fólk spyr mig hvers vegna ég hafi ekki leitað eftir hjálp," segir Cheryl. „Ég gerði það ekki af þvi enginn hefði trúað mér. Og þó ein- hver hefði gert það þá veit ég ekki hvað hann hefði getað gert.“ „Bróðir minn á ekki heima í gröf- inni,“ segir Marilyn Adams, frænka Cheryl. Hún vill að unga stúlkan verði send í fangelsi. „Hún hefði get- að sagt einhverjum frá þessu. Hver heldur hún að hún sé? Guð?“ Að morgni dags í febrúar Atburðurinn, sem hér um ræðir, gerðist í bænum Selden á Long Is- land í Bandaríkjunum 5. febrúar 1985. James Pierson, faðir Cheryl og tveggja annarra barna, James yngri og JoAnn sem var þá.átta ára, var að ganga út úr húsinu heima hjá sér á leið til vinnu er hann var skotinn til bana. Viku síðar var Sean Pica, sem sat við hlið Cheryl í skólanum, hand- tekinn. Hann er nítján ára. Hann féllst á að skjóta föður Cheryl gegn greiðslu eftir að hafa hrifist af blaða- grein um konu sem hafði fengið leigumorðingja til þess að drepa mann sinn. Lögreglan segir að Sean hafi staðið á bak við tré skammt frá heimili Piersonfjölskyldunnar og skotið James Pierson fimm sinnum með ’22 hlaupvíddar riffli. Vinur Cheryl borgaði Cheryl sagði Sean aldrei frá því hvers vegna hún vildi föður sinn feig- an. Lögreglan segir að hún hafi hvorki sagt ættingjum, vinum né nágrönnum frá framkomu föðurins. Sá eini sem hún sagði frá gerðum hans við sig var vinur hennar, Ro- bert Cuccio. Hann var á sama aldri og Cheryl. Að beiðni hennar greiddi hann Sean 400 dali fyrir morðið. Ekkjumaður James Pierson hafði búið í Selden síðan hann var drengur. Hann var rafrnagnsmaður og hafði meðal ann- ars unnið að uppsetningu sjónvarps- tækja. Hann sá vel fyrir fjölskyldu sinni íjárhagslega en var strangur. Kona hans, Cathleen, veiktist 1979 af nýrnasjúkdómi og lést í febrúar 1984. Hún hafði þá lengi verið veik. Cheryl segir hins vegar að faðir sinn hafi verið farinn að koma óeðlilega fram við sig er hún var aðeins ellefu ára en þá hafði móðir hennar verið veik í um það bil ár og ljóst að hún gekk með ólæknandi sjúkdóm. Var hún þá á sjúkrahúsi. Cheryl segir að í fyrstu hafi hún verið ánægð yfir því að faðir sinn skyldi fara að veita sér meiri athygli en áður. Hafi það byrjað með því að hann fór að horfa á sjónvarp með henni uppi í rúmi en svo hafi hann farið að hegða sér einkennilega. Hún hafi þó ekki sagt neitt, sumpart af því að hún hafi verið hrædd og sum- part af því að hún hafi ekki viljað leggja meira á mömmu sína en hún þurfti þegar að bera vegna sjúk- dómsins. Þá hafi faðir hennar sagt sér að enginn myndi trúa henni ef hún segði frá því sem hann gerði við hana. Síðustu tvö árin hafi hann svo átt reglulegar samfarir við sig. Er hún hafi loks hótað honum að segja frá því hafi hann sagt að það skyldi hún ekki gera því hún myndi sjá eft- ir því. „Ég var þá bara að hugsa um að láta þetta halda áfram þar til sá dag- ur kæmi er aðstæður leiddu til þess að hann yrði að hætta þessu. Þegar ég reyndi að segja nei þá varð hann oft mjög skapillur og það bitnaði á öllum á heimilinu. Ég lét því meðal annars undan honum til þess að bæta ástandið heima." Þótti vænt um föður sinn en... Cheryl segir að sér hafi þótt vænt um föður sinn og hafi ekki skilið hvernig hann gat í senn verið gjaf- mildur við hana og misnotað hana kynferðislega. „Hann var oft í upp- námi þegar hann kom heim af spítalanum frá mömmu. Þá vildi hann vera með mér. Ég gat ekki skil- ið hvernig hann gat elskað móður mína svona mikið en þó komið svona fram við mig.“ Þegar Cheryl varð 16 ára voru liðn- ir þrír mánuðir síðan móður hennar dó. Þá hélt Pierson afmælisveislu fyrir dóttur sína og tók í þeim til- gangi á leigu veitingasal í nágrenn- inu. Leikið var þekkt lag frá sjötta áratugnum, „Sixteen Candles", en svo dansaði faðirinn við afmælis- barnið. Síðar um kvöldið fór Cheryl svo að dansa við vin sinn, Robert Cucc- io. Hann var fyrsti pilturinn sem hún hafði sýnt nokkurn verulegan áhuga. Þau voru mikið saman og hjálpaði hann henni að taka gleði sína aftur eftir fráfall móðurinnar. í fyrstu hafði faðir Cheryl á móti því að þau væru tvö ein saman, hún og Robert, en þar kom þó að hann leyfði þeim að fara út um helgar ef hún stæði við að vera komin heim fyrir klukk- an ellefu á kvöldin. Áhyggjur af yngri systurinni Cheryl hefur skýrt svo frá að þegar hún hafi farið að vera með Robert þá hafi hún farið að hafa áhyggjur af því að faðir hennar færi eins að við yngri systur sína, JoAnn, og hann hafði gert við hana. Einkum hafi áhyggjur sínar vaxið er hún hafi komið að föður sínum undir sæng með JoAnn fyrir framan sjón- varpstækið. „Ég var alltaf hrædd eftir þetta,“ segir Cheiyl, „því ég man eftir hvernig þetta byrjaði með mig.“ Vikurnar áður en Pierson var skot- inn íhugaði Cheryl að leita eftir aðstoð. Hún reyndi að herða upp hugann til þess að ræða við sérstak- an skólaráðgjafa sem ræddi við nemendur vandamál sem þeir gátu ekki eða vildu ekki ræða við foreldra sína. Hún sagðist þó bæði hafa ótt- ast að sér yrði ekki trúað og að ráðgjafinn eða aðrir starfsmanna skólans myndu hafa samband við föður hennar. Bróðirinn gengur á systurina Um jólaleytið 1984 gekk Jim Pier- son á systur sína og spurði hana hvort eitthvað gengi að henni því honum fannst útlit hennar undar- legt. Hún segist þá hafa sagt honum að sér líkaði ekki þau afskipti sem faðir þeirra hefði af sambandi hennar og Roberts Cuccio. Dagarnir fyrir morðið voru erfiðir dagar fyrir Cheryl. Þá taldi hún að hún væri orðin ólétt. Hún segir að faðir sinn hafi þá komist úr jafnvægi og farið að velta því fyrir sér hvar væri hægt að fá framkvæmda fóstur- eyðingu. Eftir jarðarförina Jarðarför James Pierson var haldin 8. febrúar og um 150 manns voru við hana. Daginn eftir hringdi Sean Pica til Cheryl og bað hana um að hitta sig á veitingastað í bænum. Fór hún þangað með Robert vini sínum. Segir hún að Sean hafi þá sagt að hann væri ekki ánægður með þá 400 dala greiðslu sem hann hefði fengið. Það fé var komið úr peningaskáp föður hennar en hún hafði fengið Robert til að greiða Sean það. Vildi Sean nú fá meiri peninga til að kaupa mótorhjól. Nokkrum dögum síðar hringdi svo einhver nemandi skólans, sem Cher- yl var í, í lögregluna og sagði að Cheryl hefði verið að leita að manni til þess að myrða föður sinn. Leiddi þetta til handtöku hennar og játn- ingar. Þá frétti bróðir hennar fyrst um þær fúllyrðingar systur sinnar um að faðir þeirra hefði misboðið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.