Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986.
57
Þiykk eftir Magnús Kjartansson
Á næstu vikum og fram að áramótum mun DV gera tesendum sinum kleift
að eignast grafisk þrykk eftir einn af virtustu myndlistarmönnum okkar af
yngri kynslóð, Magnús Kjartansson, á gjafverði.
Myndin, sem ber nafnið „Timaþjófurinn“ (1984) er fjórlita þrykk, 78 x 58
cm. á stærð, prentuð i 200 eintökum. Sérhvert eintak hefur verið áritað
og númerað rómverskum tölustöfum af listamanninum sjálfum.
Það sem gefur þessum þrykkjum sérstakt gildi, er að við gerð þeirra
breytti listamaðurinn hlutföllum i litablöndun með reglulegu millibili, þann-
ig að engin tvö þrykk eru eins í útliti. Hér er því um 200 einstök listaverk
að ræða. Þau verða til sölu á aðeins 2200 krónur hvert eintak.
Þessi grafísku þrykk er hægt að fá á smáauglýsingadeild DV, Þverholti
11,105 Reykjavik, til áramóta, eða eins lengi og upplagið endist. Þeir sem
búa utan Reykjavíkur geta pantað mynd eða myndir gegnum síma og
greitt með VISA korti eða Eurocard. Einnig er hægt að tryggja sér eintök
með því að senda pöntun merkta „Myndlistartilboð DV“ á smáauglýsinga-
deildina. Pöntuð þrykk verða síðan send fólki í sérstökum plastumbúðum,
eins fljótt og auðið er, gegn póstkröfu.
Verði þessari tilraun DV til listmiðlunar vel tekið af lesendum, íhugar
blaðið frekari útgáfu eða sölu grafískra listaverka á næsta ári. En við vilj-
um ítreka, að þrykkin eru aðeins 200 og verða þau afgreidd i sömu röð
og þær pantanir sem berast. Þeir sem safna sérstaklega númeruðum
þrykkjum, eða vilja velja sér eintak í vissum litum, ættu að snúa sér beint
til smáauglýsingadeildarinnar, en þar er eitt eintak af „Timaþjófi“ Magnús-
ar Kjartanssonar til sýnis. -aj
Magnús Kjartansson - Timaþjófurinn, 1984.
Magnús Kjartansson myndlist-
armaður.
Óvenju-
legar
list-
gáfur
Magnús Kjartansson er fædd-
ur 1949. Hann lauk stúdentsprófi
frá MIÍ árið 1969 og námi frá
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands árið 1972. Að því loknu var
Magnús við Listaháskólann í
Kaupmannahöfn í þrjú ár, undir
handleiðslu hins víðfræga
danska listmálara, Richards
Mortensen.
Magnús vakti snemma á sér
athygli fyrir óvenjulega miklar
listgáfur. Á námsárum sínum við
Myndlista- og handíðaskólann
vann hann til alþjóðlegra verð-
launa listaskólanema, og var
boðið að sýna'á Norræna grafík-
bíennalinum í Reykjavík árið
1971 og á Alþjóðlega grafíkbí-
ennalinum í Lubljana í Júgó-
slavíu ári seinna.
Magnús hefur tekið þátt í (jöl-
mörgum samsýningum, bæði
heima og erlendis, til dæmis var
hann einn þriggja fúlltrúa ís-
lands á Alþjóðlega listabíennal-
inum í Sao Paulo, Brasilíu, árið
1985.
Listamaðurinn hlaut Menn-
ingarverðlaun DV fyrir myndlist
á síðastliðnum vetri.
Magnús hefur haldið sex
einkasýningar, að Kjarvalsstöð-
um 1976, Gallerí Sólon íslandus
1978, Gallerí Djúpinu 1979, List-
munahúsinu 1982, Gallerí Borg
1983 og Listmunahúsinu 1985.
Auk þess hefur hann haldið
tvær sýningar á höggmyndum,
unnum í samvinnu við Áma Pál
Jóhannsson og vinnur nú að sýn-
ingu á listaverkum úr leir í
samvinnu við Kolbrúnu Björg-
ólfsdóttur.
Verk eftir Magnús er að finna
í eigu Listasafns íslands, Reykja-
víkurborgar, Listasafris Kópa-
vogs og fjölda einkasafna.
-ai