Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986.
51
Karl Brandt við stríðsglæparéttarhöldin i Ntirnberg.
Fullorðnir næstir á dagskrá
Þegar í október 1939 gaf Hitler út
tilskipun sem heimilaði „líknardráp“
á íúllorðnum. í henni var Karl
Brandt og Philip Bouhler falið að
„auka vald lækna, sem tilgreindir
skyldu með nafni, til þess að binda
enda á líf sjúklinga, sem samkvæmt
besta mati á heilsu þeirra teldust
vera ólæknandi, með líknardauða".
Sérstakri stofnun var komið á fót
til að sjá um framkvæmd þessa hluta
áætlunarinnar um „endanlega
lausn“. Hét hún Vinnuhópur heilsu-
og hjúkrunarheimila ríkisins. Lét
hún útbúa spurningalista eins og
gert hafði verið til að afla upplýsinga
um sjúk og vanheil börn.
Velferðarsjúkraflutningaþjónust-
an hét hlutafélag sem sett var á
laggirnar til þess að flytja þá sem
ekki voru taldir verðskulda að lifa.
SS-menn óku vögnunum sem fólkið
fluttu og voru þeir stundum klæddir
eins og læknar, hjúkrunarkonur eða
sjúkraliðar. Þannig eru til skýrslur
um menn sem gengu í SS-stígvélum
en voru í hvítum sloppum. Tjaldað
var svörtu fyrir glugga þessara bíla
og sjúklingunum var að sjálfsögðu
ekki sagt frá áfangastöðunum.
Komið var á fót sex aflífunarstöðv-
um frá því í janúar 1940 og fram í
janúar 1941. Allar voru á fáförnum
slóðum og umgirtar háum veggjum.
Voru sumar þeirra gamlir kastalar.
Skriffinnar Þriðja ríkisins létu svo
líta út að allt væri með felldu og
héldu uppi bréfaskriftum sem áttu
að sannfæra ættingja um eðlilega
legu á sjúkrahúsum og svo eðlilegan
dauðdaga. Stundum urðu þó mistök
eins og þegar fólk, sem botnlanginn
hafði fyrir löngu verið tekinn úr, var
sagt hafa látist úr botnlangabólgu.
Læknar að verki
Einn af æðstu embættismönnum
Þriðja ríkisins, Viktor Brack, sem
hafði yfirumsjón með hluta áætlun-
arinnar um „endanlegu lausnina",
hafði komist að þeirri niðurstöðu að
sprauta mætti ekki vera í annarra
höndum en lækna. Þótt oftast væri
notað gas þá átti þessi ákvörðun
hans sinn þátt í því að læknar komu
svo mikið við sögu þessara drápa.
Reyndar lenti það mest á ungum
læknum að aflifa fólkið. Einn þeirra
manna, sem störfuðu i útrýmingar-
stöðinni í Brandenburg að loknu
læknanámi, var Aquilin Ulrich.
Hann var aðeins 26 ára er hann kom
þangað. Er fram fór rannsókn á hluta
útrýmingaráætlunarinnar 1961
skýrði Ulrich frá því að læknisfræði-
menntunar hefði þó vart verið þörf
þar. Starfið hefði verið fólgið í „yfir-
borðskenndri" skoðun nakins fólks
í herbergjum fyrir framan gasklef-
ana. Læknarnir sáu svo um að skrifa
flest dánarvottorðin og höfðu sér-
stakar leiðbeiningar verið útbúnar
svo vottorðin litu sennilega út frá
sjónarhóli þeirra sem báru eitthvert
skynbragð á læknisfræði.
Gyðingar hluti fórnardýranna,
og svo...
Áætlunin um dráp fullorðinna náði
í rauninni strax til gyðinga þótt ekki
væri farið að drepa þá í stórum stíl
fyrr en i apríl 1940 er gefin var út
tilskipun um að skrá skyldi alla
sjúka gyðinga innan þriggja vikna.
í júní það ár voru svo 200 gyðingar
teknir af lífi í Brandenburg. Frekari
aftökur fóru svo fram í júlí.
Það sem á eftir fylgdi er þekktur
hluti sögu Þriðja ríkisins.
Þýð.: ÁSG.
Áklæðin eru hlý og teygjanleg.
Fjölbreytt litaúrval.
Motturnar fást í rauðum, bláum, brúnum og gráum litum.
Kynnið ykkur verð og gæði.
FÁST Á NÆSTU
SHELL BENSÍNSTÖÐ
✓
autostar %
ÁKLÆÐI 0G GÓLFMOTTUR
í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA
BRAUTARHOLTI33 - SIMI695660.
VW Jetta GL árg. 1985, ekinn Toyota Tercel 4x4 árg. 1986, ekinn
22.000 km. Verft kr. 400.000,- 22.000 km. Verð kr. 540.000,-
Audi 100 CC árg. 1984, ekinn . Toyota Landcruiser árg. 1985,
34.000 km. Verð kr. 650.000,- ekinn 18.000 km, einn með fillu.
Verð kr. 760.000,-
ú
| Subaru station 1800 4x4 árg. 1983,, Range Rover árg. 1984, ekinn
| ekinn 73.000 km. Verð kr. 380.000,- 65.000 km. Verð kr. 1.000.000,-
Sjálfskiptur. Sjálfskiptur.
G0TT ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á
STAÐNUM TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA
RUMGOÐUR SÝNINGARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30.
Laugard. kl. 10.00-17.00.