Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986.
47
J afnr étti í upp vaskinu
Þegar ég var að þvo upp fyrir
konuna mína ekki alls fyrir löngu
fór ég að hugsa um jólagjafirnar í
ár og vegna þess að ég er hvorki
hjálparstofnun né útgerðarfyrir-
tæki setti að mér hroll við til-
hugsunina og það sló út á mér
köldum svita í miðju góðærinu því
að mér var ekki alveg ljóst hvernig
ég ætti að íjármagna fyrirtækið.
Mér er til dæmis sagt að það
gangi ekki að gefa fólki eitthvað
sem setur mann ekki á höfuðið því
að þá móðgist viðkomandi og tali
aldrei við mann framar og gæti það
komið sér verulega illa ef viðkom-
andi væri bankastjóri því að þeir
eru mennirnir sem lána okkur fyrir
jólagjöfunum sem fara illa með
fjárhaginn og fá menn til að svitna
yfir uppvaskinu.
Bankastjórar eru nefnilega farnir
að segja já jafnoft og þeir sögðu
nei áður og ef maður biður um tíu
milljónir til að kaupa jólagjafir fyr-
ir og býst við að fá kannski fimm
bjóða þeir manni tuttugu, bara að
fylla út blað og fá tvo ábyrgðar-
menn sem hafa hvorki setið í
fangelsi né farið á hausinn, að
minnsta kosti ekki oft, og þetta
verður komið inn á reikninginn
þinn á morgun.
En það átti fleira eftir að angra
mig þennan dag en hugsunin um
jólagjafirnar því að táningurinn
þurfti aðstoð við dæmi sem ég gat
ekki reiknað frekar en hann og
sagði honum því að ég mætti ekki
vera að þvi að hjálpa honum þar
sem ég væri að þvo upp fyrir
mömmu hans og þegar ég væri
búinn að því þyrfti ég að ryksuga
fyrir hana og bóna húsgögnin.
- Þú ert ekkert að þvo upp fyrir
mömmu, segir táningurinn þá og
það kemurí ljós að í staðinn fyrir
Háaloft
Benédikt Axelsson
að læra í stærðfræðinni um breytur
og jöfnur og aðra illskiljanlega
hluti hefur honum verið kennt að
þegar maður sé á annað borð að
þvo upp sé maður sko ekki að gera
það fyrir hana mömmu sína.
- Fyrir hvern þá? spyr ég og á
erfitt með að leyna undrun minni
yfir þessari fáránlegu staðhæfingu
táningsins.
- Auðvitað fyrir sjálfan þig, segir
táningurinn og hefur líka lært
þetta í skólanum.
- Þú ætlar kannski að halda því
fram að ég sé heldur ekki að ryk-
suga fyrir hana mömmu þina og
bóna húsgögnin, segi ég með hæðn-
istóni í röddinni.
- Já, segir táningurinn og skilur
auðvitað ekki hvað þetta svar get-
ur fækkað mikið þeim skiptum sem
ég hjálpa honum við breyturnar og
jöfnurnar og prímtölurnar.
- Fólk á að hjálpast að á heimil-
inu, bætir hann svo við. - Það
stendur í jafnréttislögunum.
Nú er það svo með þessi blessuð
börn okkar hjónanna að þau hafa
gáfurnar og fríðleikann frá kon-
unni minni, að minnsta kosti þegar
þau segja eitthvað af viti, en flest
annað frá mér en þó veit ég ekki á
þessari stundu hvaðan táningurinn
hefur lögfræðina.
- Ætlarðu að fara að segja mér
að það standi í einhverjum and-
skotans lögum að maður megi ekki
þvo upp fyrir konuna sína ef manni
býður svo við að horfa, segi ég al-
veg sallarólegur við táninginn og
hugsa með mér að það skuli verða
bið á því að ég svari spurningunni
í samfélagsfræðinni um hvers
vegna Skaftfellingar hafi ræktað
korn á átjándu öld. Þótt.ljótt sé
að segja frá því nýt ég þess að búa
til í huganum alls konar hefndar-
ráðstafanir vegna þeirrar ósvífni í
táningnum að reyna að ræna mig
þeirri gleði að láta eitthvað gott
af mér leiða á heimilinu og hefði
ég þó sjálfsagt notið þess enn betur
ef ég hefði vitað svarið við spurn-
ingunni hvers vegna Skaftfellingar
ræktuðu kornið.
- Ekki bjó ég til þessi lög, segir
táningurinn og er ekki alveg eins
kotroskinn og áður.
- Það eru ekki þeir sem búa til
lögin sem eiga sökina, segi ég -
Þetta samtal okkar varð ekki
lengra en um kvöldið kom i ljós
að mæðginin höfðu talað eitthvað
saman um jafnréttislögin því að
þegar ég bauðst til að þvo upp fyr-
ir konuna mína eftir kvöldmatinn
setti hún upp svip og sagði að ég
gæti svo sem vaskað upp ef mig
langaði til en ég skyldi gera mér
grein fyrir því að ég væri ekki al-
deilis að gera það fyrir sig. Ég
væri að gera það fyrir sjálfan mig.
Og héðan i frá geri ég ekki neitt
fyrir neinn nema sjálfan mig sam-
kvæmt lögum um uppvask.
Kannski það sé líka bannað sam-
kvæmt þessum lögum að elska aðra
en sjálfan sig.
Kveðja
Ben.Ax.
heldur þeir sem eru svo vitlausir
að fara eftir þeim.;
Finnurðu
átta breytingar?
18
Merkið umslagið:
„Átta breytingar- 18“ c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykja-
vík.
NAFN
HEIMILISFANG
PÓSTNÚMER
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á
neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða
breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að
finna þessar breytingar en ef íjölskyldan sameinast um
að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dag-
ar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum
og veitum þrenn verðlaun: Vasadiskó frá Radiobúðinni
h/f (verðmæti kr. 2.990,-), heyrnartói (Headphone) frá
Radiobúðinni h/f (verðmæti kr. 1.980,-) og nuddpúða frá
Radiobúðinni h/f (verðmæti kr. 1.400,-).
í þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna
heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Verðlaunahafar reyndust vera: Kristrún Einarsdóttir,
Brekkutanga 36, 270 Varmá (vasadiskó); Sesselja Þórðar-
dóttir, Faxabraut 36 b, 230 Keflavík (heyrnartól); María
Jensdóttir, Hafnartúni 10, 580 Siglufirði (nuddpúði).
Vinningarnir verða sendir heim.
-------------------------------------------1