Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Side 4
48
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1985 á eigninni Kársnesbraut 38, hluta, tal. eign Maríu Guðrúnar
Waltersdóttur, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs, skattheimtu ríkissjóðs
í Kópavogi, Landsbanka islands og Veðdeildar Landsbanka íslands á eign-
inni sjálfri miðvikudaginn 19. nóvember 1986 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 18„ 20. og 22. tölublaði Lögbírtingablaðsins 1984 á eign-
inni Skeljabrekku 4, þingl. eign Blikkvers hf., fer fram að kröfu skattheimtu
ríkissjóðs í Kópavogi, Póstgíróstofunnar, Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl.
og Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 19. nóvember
1986 kl. 15.45.
___________________________Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 56., 61. og 64. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Kársnesbraut 115, þingl. eign Þorvaldar R. Jónassonar, fer fram að kröfu
Bæjarsjóðs Kópavogs, Veðdeildar Landsbanka íslands og skattheimtu ríkis-
sjóðs í Kópavogi á eigninni sjálfri miðvikudaginn 19. nóvember 1986 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara, sem auglýst var í 56., 61. og 64. tölublaðí Lögbirtingablaðs-
ins 1986 á eigninni Reynistað v/Nýbýlaveg, þingl. eign Páls Dungal, fer fram
að kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi, Bæjarsjóðs Kópavogs og Veð-
deildar Landsbanka islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. nóvember
1986 kl. 10.00.
__________________________Bæjarfógetinn í Kópavogi
Sigrún og Auðbjörg á leið til Kashmir. Þarna fengu þær kærkomna hvíld frá indverskum dans- og söngva-
myndum í langferðabifreiðinni.
Ferðalangar D V í ævintýrum á Indlandi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 56., 61. og 64. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Nýbýlavegi 12 A, hluta, þingl. eign Kristmanns Þ. Einarssonar, fer fram
að kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands, Bæjarsjóðs Kópavogs og Inn-
heimtustofnunar sveitarfélaga á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. nóvember
1986 kl. 10.15.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara, sem auglýst var í 56., 61. og 64. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1986 á eigninni Þverbrekku 2, hluta, þingl. eign Óskars Smith Grímssonar,
fer fram að kröfu Guðmundar Jónssonar hdl., Bæjarsjóðs Kópavogs, skatt-
heimtu ríkissjóðs í Kópavogi og Veðdeildar Landsbanka islands á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 20. nóvember 1986 kl. 10.30.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 79., 80. og 82. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign-
inni Smiðjuvegi 20, hluta, þingl. eign Þórarins Þórarinssonar, fer fram að
kröfu Landsbanka íslands og Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn
20. nóvember 1986 kl. 11.00.
___________________________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 20., 31. og 33. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Digranesvegi 36, þingl. eign Jóhanns Hákonarsonar, fer fram að kröfu
skattheimtu ríkissjóðs i Kópavogi og Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 20. nóvember 1986 kl. 11.30.
______________________Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Þinghólsbraut 74, þingl. eign Óla Hákonar Herterwig fer fram að
kröfu Skúla J. Pálmasonar hrl. og Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 20. nóvember 1986 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara, sem auglýst var í 136., 143. og 147. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1985 á eigninni Engihjalla 3, hluta, tal. eign Halldóru Guðmunds-
dóttur, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands, Ásgeirs Thoroddsen
hdl., Bæjarsjóðs Kópavogs og Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 19. nóvember 1986 kl. 14.15.
___________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 123., 128. og 133. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Reynigrund 75, þingl. eign Gunnars Steins Pálssonar, fer fram að
kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands, skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi og
Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 19. nóvember 1986
kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara, sem auglýst var í 116., 119. og 122. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1983 á eigninni Marbakkabraut 13, hluta, þingl. eign Hermanns
Sölvasonar, fer fram að kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 19. nóvember 1986 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn I Kópavogi
Já, þetta var árás á öll skilningar-
vit. Evrópa líktist nú helst barna-
leikvelli í samanburði við Indland.
Við þóttumst færar í flestan sjó eftir
erfiðan skóla síðustu tveggja mán-
aða og með heilræði og fróðleiksmola
reyndra Indíafara í fórum okkar en
samt sem áður vorum við ekki undir
það búnar sem beið okkar. Indland
er langt frá því að vera auðveldasta
land í heimi til að ferðast í. Þetta
er enginn sunnudagsbíltúr að Gull-
fossi og Geysi. Það er sagt að
annaðhvort elski fólk þetta land eða
hati af öllum lífs og sálar kröftum
en eitt er víst að Indland lætur engan
ósnortinn.
Ferð í járnbraki
Þegar við lentum í Nýju-Delhi var
hitinn aðeins 38°C og fór síhækkandi
eftir því sem leið á daginn. Ferðin
frá ílugvellinum inn í borgina, sem
var farin í einhverju járnbraki sem
með jákvæðu hugarfari mátti kalla
rútu, leið hjá í hálfgerðri móðu vegna
hita og þreytu og það sem fyrir augu
bar var engu öðru líkt. í hótelher-
berginu var nánast ólíft, 42°C hiti
og ofsarok af völdum viftunnar.
Fyrsta sólarhringnum í Indlandi var
eytt undir sturtunni milli þess sem
tugir lítra af ódrykkjarhæfu klór-
vatni voru svolgraðir.
Daginn eftir ákváðum við að fara
í smá„skemmtigöngu“ um götur Del-
hí-borgar og þar kom menningar-
áfallið (kúltúrsjokkið) fyrst fram.
Það sem bar fyrir augu okkar þennan
dag var ótrúlegra en orð fá lýst. En
greinarinnar vegna verðum við að
lýsa þessu eftir bestu getu. Það að
nokkur maður skuli komast lifandi
út úr indverskri umferð er kraftaverk
út af fyrir sig. Á götunum ægir öllu
saman; bílum, rútum, vörubílum, litl-
um hjólum, geitum, heilögum kúm,
uxavögnum, hjólum, handvögnum og
milljón manns gangandi, hlaupandi,
liggjandi og sitjandi. Það er engin
leið að skilja hvemig þetta er hægt.
Hér verður maður vitni að hinni
hrikalegustu fátækt sem hægt er að
ímynda sér. Hreysin, kofarnir, hrúg-
öldin, sem fólkið hefur klambrað upp
úr því sem hendi er næst, pappa, trjá-
greinum, efnislufsum, eru hræðileg
að sjá. Alls staðar þar sem nokkurt
pláss er hafa hinir heimilislausu
komið sér fyrir á gangstéttarbrúnum,
í húsasundum, jafnvel á ruslahaug-
um. Lyktin er sérstakur kapítuli,
súr, stingandi rotnunar- og reykjar-
þefur. Mengunin frá hinni gífurlegu
umferð borgarinnar er óhugnanleg,
þykkt mistur liggur yfir henni. En
það sem slær mann mest við fyrstu
sýn er þessi eymd sem alls staðar
virðist ríkja.
Hrífandi ringulreið
Þó furðulegt megi virðast þá er um
leið eitthvað hrífandi við þessa ógnar
ringulreið. Allt þetta mannlíf: kon-
urnar klæddar sari og silkifötum í
öllum regnbogans litum, skreyttar
skartgripum allt frá nefi niður að
tám. Karlmennirnir eru minna áber-
andi, að undanskildum marglitum
vefjarhöttum síkanna, og þvílíkar
horrenglur hafa sjaldan sést á götum
Reykjavíkur. Lítil lörfum klædd
börn, sem hvergi virðast eiga sama-
stað, hlaupa um göturnar og sýni
eitthvað manni þörfina á náunga-
kærleikanum þá eru það betlararnir
sem eru á hveiju götuhorni. Pláss-
nýtni Indverja er með eindæmum og
ekki er óalgeng sjón að sjá uxa, sem
eru lítið annað en beinahrúgur,
draga lítinn vagn sem á voru pabbi,
mamma og átta krakkar ásamt
ömmu og afa í móðurætt og allri
búslóðinni. Venjulegt reiðhjól gegnir
hlutverki fjölskyldubílsins, ákjósan-
legt 4-5 manna farartæki.
Við brugðum okkur síðan í dags-
ferð til borgarinnar Agra - í loft-
kældri rútu. Agra er ein af þekktustu
borgum landsins og enginn getur
komið til Indlands án þess að fara
þangað. Borgin er stór þáttur í sögu
Indverja og var m.a. höfuðbo.'g á 16.
og 17. öld á tímum mógúl-keisara-
veldisins. Á sama tíma var frægasta
bygging landsins reist - bygging sem
þýðir það sama fyrir Indland og t.d.
Eiffeltuminn fyrir Frakkland - Taj
Mahal. Ekki ófrægari eru Rauða
virkið og eyðiborgin Fathepur Siki.
DagaríTaj Mahal
Taj Mahal var fyrsti staðurinn sem
við heimsóttum í Agra. Það var eins
og að ganga á vegg að stíga út úr
loftkældri rútunni. Hitinn var lam-
andi, 45°C, og sólin hellti sér misk-
unnarlaust yfir okkur. En vanlíðan-
in vegna hitans hvarf skjótt því sú
sjón sem mætti okkur var gjörsam-
lega yfirþyrmandi. Til þess að njóta
töfra Taj Mahal til fullnustu er þörf
á að dvelja nokkra daga í Agra því
þetta er ein bygging við sólarupprás,
önnur við sólsetur og enn önnur í
tunglsljósi. Við vorum staddar þarna
um miðbik dagsins og hvítur, útskor-
inn marmarinn stafaði blindandi
birtu. Taj Mahal er sagt vera stærsta
og dýrasta minnismerki sem byggt
hefur verið um ástina. Shajan keis-
ari byggði það til minningar um
konu sína sem lést þegar hún fæddi
14. barn þeirra hjóna. Alls tók bygg-
ingin 22 ár og skyldi maður ætla að
minningin um hina fomu ást hafi
aðeins verið farin að fölna! Keisarinn
ætlaði reyndar að byggja annað
minnismerki um sjálfan sig - Taj
Mahal - úr svörtum marmara hinum
megin árinnar, sem hefði vissulega
verið stórkostleg sjón, en áður en sú
bygging náði að rísa var honum
steypt af stóli af syni sínum sem blö-
skraði þetta minnismerkjaæði og
peningaeyðsla gamla mannsins.
Og áfram var haldið um Agra í
hita og þunga dagsins, til Rauða
virkisins og fleiri staða. Hitinn var
orðinn óbærilegur og vökvatapið í
samræmi við það - svitaholumar
líktust helst Þjórsá í vorleysingum.
Okkur gat ekki staðið meira á sama
um öll rauð virki í veröldinni og
löngu dauða kalla. - Huggun okkar
var flaskan - vatnsflaskan - og loft-
kælda rútan.
Menningarreisa
Hér var ekki verandi lengur, við
ákváðum hið snarasta að halda upp
til fjalla - til Kashmir. Okkur til
hrellingar lentum við í svokölluðum
videolangferðabíl og sýndar voru á
leiðinni 4 indverskar dans- og
söngvamyndir sem auðheyrilega áttu
hug og hjörtu farþeganna því allir
Indverjar í rútunni sungu og trölluðu
fullum hálsi. Þrátt fyrir jákvæðan