Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Page 9
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986.
53
Billie Holiday stóð uppi í hárinu á
umboðsmönnunum.
fyrir vikið að flytja oft án þess að
Frances eða systur hennar vissu
hvers vegna. Hún varð fræg 13 ára
gömul og varð snemma kynþroska.
Öll unglingsár sín varð hún að leika
kynbombu og tvítug fór hún fyrst í
fóstureyðingu. Á 15 árum lék hún í
28 kvikmyndum án þess að hafa
nokkurn tíma nokkur rúð um hvað
hún lék. Hún leiddist út í lyfjaát til
að sætta sig við lífíð. Framleiðendur
myndanna græddu vel en sjálf bar
hún lítið úr býtum.
Á ævi sinni eignaðist hún þrjá eig-
inmenn en bjó alla tíð við ofurvald
umboðsmanna sem þrælkuðu hana
og tryggðu um leið framhald á fram-
anum. Hún var alla tíð skuldbundin
þeim.
Judy Garland var drykkju- og eit-
urlyfjasjúklingur. Það gengur
kraftaverki næst að hún skyldi lifa
fram á fertugsaldur. En hún vildi
hætta áður en allt var um seinan.
Hún hefði ef til vill aldrei byrjað ef
móðir hennar hefði ekki ýtt henni
af stað.
Sterkar blökkukonur
Allar stjörnur, bæði karlar og kon-
ur, verða að bera sömu byrðarnar
af að viðhalda ímynd sinni og auka
helst frama sinn ár frá ári. Sannar
stjörnur eru þó þær sem haldið hafa
persónuleika sínum á framabraut-
inni. Sá árangur er m.a. eignaður
Billie Holiday og Bessie Smith. Þær
sungu aðeins þau lög sem þær töldu
sína list.
Billie Holiday fædist árið 1915. Þá
var móðir hennar aðeins 13 ára. Hún
átti erfiða æsku og sat tvívegis inni
á ævinni. Hún fór alltaf sinar eigin
leiðir og gerði vinsæl lög sem um-
boðsmennirnir töldu vonlaus. Hún
lést árið 1959, þá farin að kröftum.
Eitt sinn áti hún að hafa sagt: „Það
er eins og þeir segja. Það er, fjandinn
hafi það, ekkert sem jafnast á við
skemmtanabransann. Það dugar
ekkert annað en að brosa og reyna
að æla ekki.“ Hún vissi um hvað
hlutirnir snerust.
Archer heldur því fram að það hafi
öðru fremur gert konum erfitt fyrir
að lifa með frægðinni að hvað fer
illa saman við móðurhlutverkið.
Niðurstaðan varð' oftst sú að þær
urðu stjörnur að aðalstarfi og mæður
í hjáverkum.
Þær eru margar stjörnurnar sem
hafa lent í þessari togstreitu. Edith
Piaf er ein þeirra. Svo virðist sem
hún hafi á ferli sínum risið upp gegn
Judy Garland fékk aldrei tækifæri til aö hætta.
karlveldinu og hafnað þeirri ímynd
sem ætlast var til að hún tæki upp.
Hún var fædd árið 1915. Móðir henn-
ar var 16 ára gömul söngkona og
eiturlyfjaneytandi. Hún yfirgaf dótt-
ur sína á unga aldri og eftir það ólst
Edith upp nánast á flakki. Hún eign-
aðist barn 18 ára gömul en það dó í
frumbernsku. Tvítug var hún upp-
götvuð sem söngkona.
Vonlaus barátta
Piaf var ekki glæsileg á að sjá og
gekk aldrei í hlutverk kynbombunn-
ar. Hún var fyrst og fremst söngkona.
Hún lifði hátt og réð sér sjálf þar til
öll sund lokuðust að endingu. Hún
fór sínu fram með glæsibrag allt til
dauða.
Öðru máli gegnir um Marilyn
Monroe. Hún var kynbomba sem lék
hlutverk heimsku ljóskunnar sam-
kvæmt fyrirfram gefinni forskrift.
Hún átti alltaf í baráttu fyrir að fá
að vera hún sjálf og var öll áður en
að því kom.
í sögu Monroe kemur enn fram að
erfið æska setur mark sinn á stjörn-
una. Móðir hennar var geðveik. Það
var í ættinni. Monroe sá frægðina
sem leið til að bæta sér upp allt sem
hún fór á mis í æsku. Hún giftist oft
og átti marga elskhuga en náði aldr-
ei að verða það sem hún vildi. Hún
brann út áður.
Nancy Reagan á að hafa líkt
stjörnunum við tepoka - eða var það
ræðuskrifari hennar sem fann upp
þá líkingu - og sagði: „Það sést ekki
fyrr en búið er að hella heitu vatninu
yfir pokann hve sterkt teið verður."
Lík þessu eru oft örlög stjarnanna.
Þýtt
Heilbrigðisfulltrúar
Stöður tveggja heilbrigðisfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkursvæðis eru lausar til umsóknar. Stöðurnar
veitast frá 15. desember nk. Laun samkvæmt kjarasamn-
ingi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um menntun,
réttindi og skyldur fer samkvæmt reglugerð nr. 150/1983
ásamt síðari breytingum. Umsækjendur skulu hafa lokið
háskólaprófi í heilbrigðiseftirliti eða skyldum greinum svo
sem líffræði, matvælafræði, dýralækningum, hjúkrunar-
fræði eða hafa sambærilega menntun.
Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu
hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavíkursvæðis
(borgarlækninum í Reykjavík) fyrir 1. desember nk. en
hann ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits veitir
nánari upplýsingar.
Borgarlæknirinn í Reykjavík
Viltu veita stuðning?
Guðmundur G. Þórarinsson
í OPMU prófkjöri / "
FramsóKnarfloKKsins í ReyKjavíK.
SÍMARSTUÐmnQSMAMriA
68-88- 17^Qei68-88-4>
SÝNING
í dag, 15. nóv., kl. 10-16
Gjörið svo vel og lítið inn.
Við sýnum eldhúsinnréttingar, innihurðir, fataskápa,
viðarþiljur eða allt í íbúðina eða húsið. Notum ein-
göngu 1. flokks hráefni. Vönduð vinna, sérsmíðum.
Fagmenn með 20 ára reynslu verða á staðnum.
Við sýnum einnig hin vönduðu vestur-þýsku
Miele
eldhústæki.
JPinniéttingar
Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 -31113