Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Stjómmál Vamar- liðinu heimilað að byggja 250 íbúðir Bandaríkjaher og Atlantshafe- bandalaginu voru heimilaðar talsverðar framkvæmdir á Kefla- víkurflugvelli érið 1987 á árlegum fundi íslenskra stjómvalda með byggingardeild sjóhersins í Nor- folk í október síðastliðnum. Kom þetta fram í svari sem utan- ríkisráðherra, Matthías Á. Mathi- esen, gaf á Alþingi við fyrirspum Steingríms J. Sigfussonar, Al- þýðubandalagi. Þassar framkvæmdir voru heim- ilaðar: 250 íbúðir, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Vegagerð, bifreiðastæði og veitukerfi fyrir nýtt 250 íbúða hverfi. Húsnæði fyrir fjármála- og bók- haldsdeild flughersins, um 550 fermetra. Félagsheimili, um 400 fermetra. Bygging húsnæðis fyrir hús- næðisskrifetofú Vamarliðsins, um 300 fermetra. Verkstæði við flugskýli númer 885, um 180 fermetra. Tvær nýjar vararafetöðvar við byggingu kafbátaleitareftirlitsins. Framhaldsframkvæmdir vegna nýju flugstöðvarinnar, við flug- hlað, akstursbrautir og flugvallar- veg. Viðgerð á akstursbrautum S-2 og S-3. Fram kom einnig í svari utanrík- isráðherra að vamarmálaskrif- stofa ráðuneytisins væri að gera úttekt á hugsanlegri aðild íslands að mannvirkjasjóði Atlantshafe- bandalagsins. Er gert ráð fyrir að þeirri úttekt verði lokið í febrúar og þá verði hægt að meta kosti og galla hugsanlegrar aðildar íslend- inga að sjóðnum. . -KMU Reglur Mannvirkjasjóðs: Flugvöllur yrði að falla undir sljóm NATO á ófriðartímum Mannvirkjasjóður Atlantshafe- bandalagsins, sem rætt er um að kosti gerð varaflugvallar á Islandi og íslendingar gerist aðilar að, hefur til umráða á sex ára tímabili, 1985 til 1990, 7.850 milljónir Bandaríkja- dala. Jafiigildir það 318 milljörðum króna eða 53 milljörðum króna á ári. Fjárlög íslenska ríkisins eru upp á 40 milljarða króna. I ritgerð öryggismálanefndar, sem Gunnar Gunnarsson er höfúndur að, er gerð grein fyrir meginreglum Mannvirkjasjóðsins. Gunnar segir: „Veita má fé úr sjóðnum til mann- virkja, sem em annaðhvort nýtt sameiginlega af aðildarríkjum eða þar sem þau hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta; falla undir stjóm NÁTO á ófriðartímum og teljast. til eftirfarandi 14 flokka mannvirkja: Flugvellir, fjarskipti, eldsneyti, bækistöðvar sjóherja, aðvörunar- kerfi, þjálfun, stjómstöðvar á stríðs- tímum, loftvamarflaugar, birgða- stöðvar í framvamarstöðu, skotfærageymslur, flugskeyti (surface-to-surface), loftvamamann- virki á jörðu (t.d. styrkt flugskýli, ratsjár), mannvirki til stuðnings við liðsflutninga, annað.“ Með vísan til ákvæðisins „mann- virki til stuðnings við liðsflutninga" getur sjóðurinn kostað gerð þjóð- vega. I ritgerð Gunnars kemur einnig fram hvemig hin 13 aðildarríki sjóðsins greiða til hans. Bandaríkin greiða mest, 27,4%. Vestur-Þýska- land greiðir 26,5% og Bretland 12%. Noregur greiðir 3,1% og Lúxemborg 0,2%, svo dæmi séu tekin. Framlag Lúxemborgar er þannig um 100 milljónir króna á ári. -KMU Stefán Valgeirsson hefur um nóg að hugsa þessa dagana. Hann er að setja saman framboðslista og fá meðmælendur. DV-mynd GVA Alvarlegt ef okkur verður neitað um BB - segir Stefán Valgeirsson alþingismaður „Við þurfúm að koma listanum upp. Við þurfum að fá meðmælendur. Fyrr þýðir ekki að sækja um að bjóða fram undir BB,“ sagði Stefán Valgeirsson alþingismaður um sérframboð í Norð- urlandi eystra. „Stjóm kjördæmissambands Fram- sóknarflokksins fiallar um þetta fyrst og hefur um þetta ákvörðunarvald. Hins vegar er hér um að ræða mjög stóran hóp af stuðningsmönnum Framsóknarflokksins þannig að ef því verður neitað heima fyrir þá verður farið með þetta til framkvæmdastjóm- ar flokksins og jafnvel miðstjómar. En okkur liggur á þessu vegna þess að það verður ekki hætt við að fara fram, þó að því yrði neitað. Ég trúi því ekki að þessu verði neitað en það væri alvarlegt." - Þá kemur til greina samvinna við Samtök um jafhrétti milli landshluta. „Ekki beinlínis við Samtökin, ekki stjóm þeirra, heldur hafa einstakling- ar innan þeirra rætt við mig um möguleika á slíku framboði, - ein- staklingar en ekki formlega þeirra stjóm," sagði Stefán. -KMU Látum ekki bendla okkur við framboð Stefáns Ján G. Haukssan, DV, Akuieyri: „Við viljum ekki láta bendla okkur við framboð Stefáns Valgeirssonar. Samtökin bjóða ekki fram. Það er alveg á hreinu. Þau vinna ekki þannig,“ sagði Ámi Steinar Jó- hannsson, sem á sæti í framkvæmda- nefhd Samtaka um jafhrétti á milli landshluta, við DV í morgun. Ámi sagði að samtökin ynnu þver- pólitískt, þau skipuðu fólk úr öllum flokkum. Þetta væri hreyfing sem vildi hafa áhrif á sem flesta stjóm- málamenn. Hann ítrekaði að samtökin væru á engan hátt tengd framboði Stefáns I dag mælir Dagfari Dagsbrún dregur sig í hlé Sú var tíðin að Verkamannafélag- ið Dagsbrún stóð í fararbroddi í verkalýðsbaráttunni. Þar vom kröf- umar mótaðar og lagt á ráðin um baráttuaðferðir. Þaðan komu forin- gjamir sem bitu í skjaldarrendur og mddu brautina. Dagsbrún var höf- uðvígi íslenskrar alþýðustéttar, lengst af fjölmennasta verkalýðs- félagið með afl og áhrif langt út fyrir sínar eigin raðir. Þetta var í þá daga þegar verkamenn vom verkamenn og verkalýðsforingjamir uxu upp úr röðum hinna óbreyttu félagsmanna, hertir í eldi hins daglega þrældóms. Þá ólst verkalýðurinn upp á eyr- inni, þoldi saman súrt og sætt og vann fyrir lúsarlaunum í sveita síns andlitis. En nú er öldin önnur. Samkvæmt nýjustu upplýsingum treystir Dags- brún sér ekki lengur til að standa í kjarabaráttu. Samningaviðræður em alltof flóknar fyrir forystu Dags- brúnar og allar tillögur þokukennd- ar. Þar að auki liggur samninga- mönnum yfirleitt þessi reiðinnar ósköp á þannig að það er ekki fyrir nokkum venjulegan Dagsbrúnar- mai.n að fylgjast með. Þetta er eins og Kleppur hraðferð, segir Guð- mundur jaki og hefur ekki lengur tíma til að fá sér i nefið. Niðurstaðan hefur því orðið sú að Dagsbrún hefur dregið sig í hlé úr verkalýðsbar- áttunni og er farin heim. Einhvem tímann í síðustu viku bárust þær fréttir til Dagsbrúnarfor- ystunnar að Alþýðusambandið og vinnuveitendur stæðu í leynimakki og væm um það bil að semja um eitthvað sem Dagsbrún skildi ekki. Þá tóku þeir til síns ráðs að draga sig út úr viðræðunum. Gallinn var hins vegar sá að þeir gleymdu að láta jakann vita og í tvo, þrjá daga tvísté hann í báðar áttir og vissi ekki frekar en Hamlet hvort hann ætti að vera eða vera ekki. Sem ekki er nema von, því Guðmundur er af gamla skólanum og kann ekki hag- fræði eins og framkvæmdastjórinn og hafði ekki áttað sig að því að pólitíkin hjá Dagsbrún er fólgin í því að draga sig í hlé. Fljótlega náði þó framkvæmdastjórinn í formann- inn í gegnum síma og gat komið vitinu fyrir hann. Þá tók Guðmund- ur saman pjönkur sínar og fór heim. Hætti. Nú sitja vinnuveitendur með öðr- um verkalýðsforingjum og þykjast vera að semja um kaup og kjör. Það kemur ekki mál við Dagsbrún. Dags- brún tekur ekki lengur þátt í samningum sem hún skilur ekki og vill ekki skilja meðan hún fær ekki að ráða. Annað kemur líka til. Mennimir eru sífellt að tala um að bæta iægstu kjörin og hækka lág- markslaunin. Slíkir samningar eru Dagsbninarmönnum óviðkomandi. Þetta eru taxtar sem Dagsbrúnar- fólk er löngu vaxið upp úr og hvers vegna ætti þá Dagsbrún að vera semja um eitthvað sem he'nni kemur ekki við? í raun og veru fer að verða spum- ing um það hvort Dagsbrún eigi ekki að segja sig úr Alþýðusamband- inu. Þessi tvenn samtök eiga ekki neina samleið í kjaramálum og alls enga í pólitík. Guðmundur joð er hættur við að bjóða sig fram til þings fyrir Alþýðubandalagið eftir að það var ljóst að Alþýðubandalagið var á móti honum. Þröstur framkvæmda- stjóri gerði tilraun til að setjast í sæti Guðmundar en í prófkjörinu kom í ljós að Alþýðubandalagið var líka á móti honum. Alþýðubandalag- ið vill ekkert með Dagsbrún hafá og kemur sennilega að því að Þröstur dregur sig í hlé eins og formaðurinn. Þá eru ekki aðrir eftir enda þekkist ekki lengur í Dagsbrún eða Al- þýðubandalaginu að fúlltrúar verkalýðsins séu verkalýður. Ás- mundur er hagfræðingur og Þröstur er líka hagfræðingur og ef frá eru taldir Guðmundur formaður og Þröstur framkvæmdastjóri er ekki vitað um nokkum Dagsbrúnarmann sem hefur minnsta áhuga á pólitík eða allaböllum. Niðurstaðan verður væntanlega sú að nýir kjarasamningar verða gerðir án þess að Dagsbrún verði með. Og á næsta ári verður gengið til kosninga án þes að Dagsbrún verði með. Dagsbrún er með öðrum orðum stikkfrí í þjóðfélaginu og er þá eiginlega ekki annað eftir en að skipuleggja ferðir félagsmanna til Florida. Spumingin er eingöngu sú hvort einhver velunnari félagsins, ráðherra eða skipafélag, hafi ekki eitthvað aflögu ef út í það fer. Guð- mundur joð verður fararstjóri. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.