Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
7
Fréttii
Friðrik Stefánsson, skipstjóri á Þorra, að skera nokkrar sildarbröndur sem
hann ætlar að salta.
Gámaútflutningur
skilar meiru
en fiystur fiskur
Við úttekt, sem Benedikt Valsson,
hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun,
hefur gert um tekjur af botnfiski, eftir
því hvort hann er unninn hér heima
eða fluttur út ferskur í gámum, kemur
fram að áætlað framlag af gámaút-
flutningi til vergrar landsframleiðslu
er 18% hærra en af framleiðslu freð-
fisks.
Margir hafa haft hom í síðu útflutn-
ings á ferskum fiski og þeir hinir sömu
óttast um afkomu frystihúsanna í
landinu ef svo fer fram sem horfir að
útflutningur á ferskum fiski vaxi. Ben-
edikt bendir á í sinni úttekt að líta
beri á gámaútflutninginn sem við-
bótarleið til tekjuöflunar sjávarút-
vegsfyrirtækja en ekki sem skerðingu
á tekjum þeirra ef rétt er á málinu
haldið.
Benedikt bendir á að þau fyrirtæki
sem em bæði í útgerð og fiskvinnslu
geti stýrt vinnslu hér heima og út-
flutningi á sem allra hagkvæmastan
hátt. Þau geta þó staðið frammi fyrir
því að sjómenn mótmæli þar sem
skiptaverð til þeirra miðast við verð-
lagsráðsverð en ekki söluverð gáma-
fisks erlendis. Raunar hefur þetta mál
þegar valdið deilum. Aftur á móti er
staða þeirra fyrirtækja sem bara em
i vinnslu mun erfiðari. Þau verða að
halda uppi vinnslu og geta því trauðla
staðið í gámaútflutningi nema í afar
litlum mæli.
Að lokum bendir Benedikt á að
stofnun fiskmarkaða hér á landi geti
orðið góð lausn á ýmsum vanda varð-
andi þetta mál. -S.dór
Moksfld á Austfjörðum:
Bátarnir fljót-
ir að fylla
kvótana
Ægir Kiistinssan, DV, Fáskniðsfirðt
í hinni miklu síldveiði, sem hefur
verið á Austfjörðum undanfama daga,
em bátar fljótir að fylla kvóta sína,
síldartunnur fyllast óðfluga og síldar-
söltun er brátt lokið. Þorri SU hefur
þegar lokið við að veiða sinn kvóta
og var síðasta farmi landað hjá Pólar-
síld í dag. Er þá nótin tekin í land og
skipverjar taka síldardælu og annað
sem síldveiðunum viðkemur í land.
Kokkurinn á Þorra er nýsjálensk
stúlka, Bemi Alcock, en hún byrjaði
sem kokkur á Þorra á síðustu vetrar-
vertíð. Aðspurð sagði Bemi að það
væri skemmtilegt að vera á síldveiðum
og strákamir væm bara ágætir. Hún
hefði upphaflega komið hingað til að
vinna i frystihúsi á sl. vetri en fyndist
þessi vinna skemmtilegri. Sólborg SU
hefur einnig lokið sínum kvóta, hjá
Sólborgu hf. hefur verið saltað í um 5
þúsund og fimm hundmð tunnur.
Kanínuullar-
verksmiðja
keypt
frá
Þýskalandi
Keypt hefur verið verksmiðja frá
Þýskalandi til að vinna kanínuull sem
menn kalla nú „fiðu“. Það em kanínu-
ræktarbændur, Álafoss hf., Byggða-
stofiiun og Kanínumiðstöðin sem
stofhuðu og eiga þetta nýja hlutafélag.
Hér er um að ræða spunaverksmiðju,
prjóna- og saumastofu og er kaup-
verðið 36,9 milljónir króna sem greðist
á 5 áram. Gert er ráð fyrir að 10-12
manns vinni hjá fyrirtækinu þegar
fullum afköstum er náð. Verksmiðjan
verður til húsa í leiguhúsnæði að Ála-
fossi.
Gengið var frá kaupunum á verk-
smiðjunni 28. nóvember sl. og Fínull
hf. svo stofhuð 1. desember. Gengið
hefur verið frá samningi við kanínu-
ræktarbændur um að kaupa af þeim
alla fiðu sem þeir framleiða, annað-
hvort til vinnslu eða endursölu.
Móttaka á að hefjast upp úr áramótum
en verksmiðjan tekur til starfa í mars.
Hlutafé Fínullar hf. em 22 milljónir
króna og á Álafoss 8 milljónir, kanínu-
ræktarbændur 8 milljónir, Byggða-
stofnun 4 milljónir og Kanínumiðstöð-
in 2 milljónir króna. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins hefur verið ráðinn
Kristján Valdimarsson textiltækni-
fræðingur. -S.dó-
BÍLTÆKI MEÐ FM-STERIO, MW, LW, SJÁLFLEITARA, MINNI O.FL.
STAÐGREIÐSLUVERÐ AÐEINS KR. 9.950-
FM-STERIO, LW, MW, SJÁLFLEITARI, MINNI O.FL.
, STAÐGR.VERÐ KR. 12,599,-
FM-STERIO, LW, MW, SJÁLFLEITARI, MINNI O.FL.
STAÐGR.VERÐ KR. 13.000.-
I I
- ... FISIIFK
FISHER
HÁTALARAR STAÐGR.VERÐ KR. 1.520,-
SJÖMVARPSBÚDIN hf.
HÖFÐATÚNI 2 sími 622555