Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÖSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 500 kr. Verð i lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Tvíeggjuð prófkjör Niðurstöður prófkjörs og forvals stjórnmálaflokka um síðustu helgi hafa eflt stuðning við tillögu um breytt kosningalög, sem Jón Skaftason alþingismaður flutti fyrir tæpum áratug og Magnús H. Magnússon og fleiri alþingismenn hafa nú lagt fyrir Alþingi. DV hefur frá upphafi stutt þessa hugmynd, sem felur í sér, að prófkjör verði sameinuð kosningum, þannig að kjósendur raði sjálfir frambjóðendum þess lista, sem þeir kjósa. Þessi aðferð er heimil í Danmörku og hafa flestir stóru flokkarnir notað hana með góðum árangri. Aðferðin tryggir, að ekki hafi aðrir afskipti af vali frambjóðenda á lista en þeir, sem kjósa listann. Hún tryggir að allir frambjóðendur berjast fyrir framgangi listans, einnig þeir, sem fara halloka í númeraröðinni, sem kjósendur ákveða í kosningunum. Önnur hugmynd gerir ráð fyrir, að flokkarnir samein- ist um prófkjör og hagi því þannig, að hver kjósandi geti aðeins tekið þátt í prófkjöri eins flokks. Þetta mun þó ekki hindra, að stjórnmálamenn háfi svigrúm til að fara í fýlu og sérframboð, sem spilli fyrir flokkunum. Óraðaðir listar eru ekki allra meina bót. Búast má við, að áfram reyni einstakir frambjóðendur að vekja athygli á sér umfram aðra frambjóðendur á sama lista. Þannig má gera ráð fyrir, að umstang og kostnaður prófkjörs leggist ekki niður við breytinguna. Persónulegar auglýsingar og kynning einstakra frambjóðenda mundu þó falla í ramma kosningabaráttu viðkomandi flokks og þannig væntanlega hafa á sér annan og mildari svip en hefur að undanförnu verið á baráttu einstakra frambjóðenda í prófkjöri. Ekki má heldur líta svo á, að persónuleg spenna sé eingöngu af hinu illa. Prófkjör hafa ekki dottið úr lausu lofti ofan á flokkana. Þau eru komin til sögunnar, af því að flokkarnir þurftu.að finna leiðir til að velja fram- bjóðendur, er sem flestir væru sáttir við. Prófkjör hafa í mörgum tilvikum gefizt vel. Þau hafa stundum beinlínis verið nauðsynleg, sérstaklega eftir tímabil prófkjörsleysis. Þau hafa skorið úr, hvort valda- mynztur flokksins í kjördæminu væri eðlilegt eða hvort gera þyrfti á því umtalsverðar breytingar. Þegar Sjálfstæðisflokknum láðist fyrir fjórum árum að hafa prófkjör á Vestfjörðum, leiddi það til vandræða og sérframboðs. í þetta sinn var haft prófkjör og verður ekki betur séð, en allt hafi fallið þar í ljúfa löð. Þannig geta prófkjör gert flokkum mikið gagn. En það er eins og þau henti stundum og stundum ekki. í sumum tilvikum skilja þau flokka eftir í rúst. Og það virðist ekki fara eftir aðferðinni, sem notuð er. Allar aðferðir geta reynzt vel eða illa, eftir því hvernig á stendur. Um þetta höfum við nýleg dæmi. í Norðurlandi vestra bjó Framsóknarflokkurinn til prófkjörsreglur, er áttu að hindra allt það böl, sem kom- ið hefur óorði á prófkjör. Niðurstaðan var þveröfug á við það, sem til var ætlazt. Reglurnar framkölluðu harð- vítug bræðravíg, sem tekur langan tíma að jafna. Framsóknarflokkurinn liggur í sárum eftir prófkjör í nokkrum kjördæmum. Klofningsframboð Stefáns Val- geirssonar er boðað á Norðurlandi eystra. Þingmaður flokksins í Reykjavík er kolfallinn og kennir um vond- um og ríkum öflum, sem hafi hertekið flokkinn. Að fenginni prófkjörsreynslu má vona, að smám sam- an sé að mótast pólitískur vilji á Alþingi fyrir, að teknir verði upp óraðaðir listar í alþingiskosningum. Jónas Kristjánsson „E< Alþingi, sveitarstjórnir, tryggingafélög og slysa- og björgunarfélög sameinuðust um það, ásamt lögreglu- yfirvöldum, að gera umferðina auðvelda eins og þekkt er frá fjölmörgum öðrum löndum og að endurhæfa vegfarendur skipulega á 2-4 misserum, myndum við spara minnst helminginn a< núverandi umferðarfórnum.“ Af umférðar- martröðinni Yfirleitt heflir fólk fengið að slas- ast og deyja í umferðinni hér á landi í friði fyrir svo ábyggilegu fólki sem stjórnmálamönnum og trygginga- rekendum. Það er venjulega upptek- ið af öðru en því sem skiptir máli fyrir vegfarendur og ökutækjaeig- endur, þótt þeir séu raunar öll þjóðin. Stjómmálamenn leggja metnað sinn og heiður undir í próf- kjörum. Tryggingamenn eiga afar annasama daga við að sanna verð- lagsyfirvöldum nauðsyn iðgjalda- hækkana. Óvænt afbrigði Verðmætatjón í umferðinni hér á landi er einhvers staðar á milli tveggja og þriggja milljarða króna á ári. 30 mannslíf og örkuml annarra 30 meðtalin. Skýrslur um þetta eru raunar að stórum hluta feluleikur og ómerki- legur flótti frá raunveruleikanum. En það er rækilega undirstrikað með þeim hégómlegu aðgerðum í um- ferðaröryggismálum sem Alþingi og tryggingafélög hafa rekið áratugum saman. Slysavama- og björgunarfélög eru meira að segja á sama fleka, sem er jafnvel enn ótrúlegra. Nú alveg óvænt hafa trygginga- rekendur fitjað upp á því nýmæli að fjárfesta í umferðaröryggi. Út af fyr- ir sig er þetta sögulegur atburður. Það, að þessir menn uppgötva arðs- vonina í spamaði jafhgilda arðsvon- inni í eyðslu, er stórmerkilegt eftir allt sem á undan er gengið. Rausnin Ég ætla aldrei að gera lítið úr þess- um sinnaskiptum eða þessari vitmn. Samt hvarflar að mér sú hugsun að hér hafi skammsýnir menn vaknað illa af vondum draumi og rokið til að kaupa sér sálarfrið. Hugsum okkur hvemig hægt er og hvað það kostar að ná inn með rekstri fyrirtækis tveim milljörðum króna á ári, bjarga þar að auki 30 manns frá dauða og öðrum 30 frá limlestingum eða heilaskemmdum og 300-500 manns frá margra mán- aða sjúkrahúsdvöl.____________ KjáUarinn Herbert Guðmundsson blaðamaður 60 alþingismenn munu væntanlega ákveða það bráðlega, allir eða meiri- hluti þeirra, að leggja 12,5 milljónir króna í það sérstaka verkefni að minnka þetta þjóðarböl. Það er svona álíka og vonbiðlar til fram- boðs í næstu alþingiskosningum eyða til þess að fegra sig í augum prófkjörskjósenda, líklega þó minna en meira. Annað eins framlag frá trygginga- félögunum er sem sagt um 12,5 milljónir króna. Þótt það sé stór- merkilegt nýmæli, er það eins og framlag Alþingis öldungis fyrir engu nema skyndiplástrum á holsár. Þessi fjármálaspeki er hörmulegur áfellis- dómur um hégóma, takmarkalítið skilningsleysi og algert stefnuleysi í umferðaröryggismálum þjóðarinnar. Og þá er það síður en svo einstakt dæmi um hugsunarlausan og heimskulegan rekstur þj óðfélagsins. í umferðarmálunum kostar það miklu meira en næstum ekkert að , spara þjóðinni að einhverju marki þá blóðstrauma sem fljóta núna um allar götur og gættir. Með 25 milljónum í peningum sax- ast ekkert á milljarða böl. Með 250 milljónum gæti það minnkað um svo sem helming. Svo arðbær fjárfesting er vandfundin. Hér liggur hún á borðinu. Umferðarbyltingin Ég á auðvelt með að sanna kenn- ingar mínar í þessum efhum. Við breytingu í hægri úr vinstri umferð og á norrænu umferðaröryggisári fyrir skemmstu dugðu heldur smá- vægileg átök til þess að minnka fómir og blóðfómir í umferðinni svo miklu munaði. Ef Alþingi, sveitarstjómir, trygg- ingafélög og slysa- og björgunarfélög sameinuðust um það, ásamt lög- regluyfirvöldum, að gera umferðina auðvelda eins og þekkt er frá fjöl- mörgum öðmm löndum og að endurhæfa vegfarendur skipulega á 2-4 misserum, myndum við spara minnst helminginn af núverandi umferðarfómum. Núverandi umferðarkerfi er hrein hraksmán, því miður hvergi hraks- mánarlegra en í höfuðborginni. Og angamir teygja sig út og suður, út um allt. Umferðarmenningin er ekki menning, heldur alger ómenning. Það ríkir sorglegt kunnáttu- og til- litsleysi. Þetta er vesöld sem er dýrari en tárum taki og heimsku- legri en svo að almennilegt fólk sætti sig lengur við hana. Er ekkert al- mennilegt fólk í þingsölum og sveit- arstjómum eða í slysavamafélögum? Herbert Guðmundsson „í umferðarmálunmn kostar það miklu meira en næstum ekkert að spara þjóðinni að einhverju marki þá blóðstrauma sem fljóta núna um götur og gættir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.