Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Spumingin
Hvað langar þig að fá í jóla-
gjöf?
Friðrik Pétursson, starfar í Trygg-
ingastofnuninni: Það má guð vita,
það hef ég ekki hugmynd um enda
kemur líka svo margt til greina. Ég
yrði samt sáttur við að fá einhverja
góða bók svo sem Ljóri sálar minnar
eftir Þorberg Þórðarson.
Guðrún Sigurðardóttir: Ég yrði alla
vega ánægð ef ég fengi skrifborðs-
lampa því mig bráðvantar hann. Það
er náttúrlega margt annað er ég
gæti þegið en ég ætla mér að eftir-
láta væntanlegum gefendum valið.
Brynjar Valdimarsson framkvæmda-
stjóri: Ja, nú vandast múlið, ég hef
nú ekkert hugleitt það sérstaklega
en ef betur er að gáð vantar mig
reyndar úlpu og það væri nú ekki
af verra taginu ef hún væri úr dúni.
Það er líka alltaf gaman að fá ein-
hverja góða bók.
Baldvin Karlsson nemi: Mér er eigin-
lega alveg sama, bara eitthvað. Mér
væri nú ekkert á móti skapi að fá
plötuna með Bubba. Og eins lengi
og ég fæ nógu mikið verð ég ánægð-
ur.
Pétur Hannesson sendill: Bara allt
sem fólk vill gefa mér. Annars vantar
mig skíðagræjur og nýtt dekk á hjól-
ið mitt og svo má alltaf bæta pening-
um við.
Sveinsína J. Jónsdóttir húsmóðir:
Ég bý nú það vel að mig vantar bók-
staflega ekki neitt. Maður getur nú-
samt alltaf þegið einhverja skemmti-
lega og fræðandi bók og líst mér
einna best ú bókina um Þuríði Páls-
dóttur.
Lesendur
Þingmenn
spreða
sköttunum
í vitleysu
Skattborgari skrifar:
Jónas Kristjánsson kom inn á mjög
þýðingarmikið mál í leiðara fyrir
nokkru. Að nefiid hefði átt að rann-
saka mistök sem átt hafa sér stað í
stórum stíl hjá þingmönnum sem
spreða út sköttunum okkar í fyrir-
framséða vitleysu. Jónas bendir á
Kröflu og graskögglaverksmiðju, en
Krafla er óborguð og bömunun okkar
ætlað að borga þau mistök. Ef mistök
af þessari stærðargráðu miðað við
höfðatölu hefðu komið upp í Dan-
mörku og Englandi eða einhverju öðru
Evrópulandi hefðu allir þeir þingmenn
er að því stóðu neyðst til að segja af
sér eftir að rannsóknamefnd hefði far-
ið í saumana á slíku máli.
Ef bera ætti saman hið íslenska
„þingmanna samtryggingarkerfi“, það
er hér þrífst, verðum við að leita til
Afríku þar sem herforingjaklíku-
stjómir ráða landi og lýð sem við
lesum um og hneykslumst á.
Þingmenn okkar segja að við fellum
dóm okkar á fjögurra ára fresti en
almennt segir fólk að það sé sami rass-
inn undir þeim öllum; því skiptir engu
máli hvað ég kýs. Oft kýs fólk það
sama aftur og aftur, það þorir kannski
ekki að missa þau pólítísku klíkusam-
bönd sem það hefur kannski fengið
fyrirgreiðslu hjú en er þó í raun sáró-
ánægt.
Einnig væri hægt að hafa þjóðarat-
Fólk getur verið með frá byrjun því
að ef keypt er fyrir meira en eina viku
í senn er hægt að hafa símasamband
við íslenska getspá.
Lottó um
allt land
J.J. hringdi:
Mig langar til að vita hvort lottó-
miðarnir frá Islenskri getspá verða
ekki til sölu um allt land.
Við höfðum samband við fslenska
getspá og fengum þær upplýsingar að
ætlunin væri að dreifa lottóinu um
allt landið. í byrjun er því aðeins
dreift á stærri staðina en það verður
í síðasta lagi í febrúar sem þetta verð-
ur komið í gagnið á allri landsbyggð-
inni. Á minni stöðum landsins verður
komið upp greiðslukerfi sem vinnur í
samvinnu við sölustaðina á stærri
stöðunum.
Á þeim stöðum á landinu þar sem
getspáin er ekki komin í gagnið, getur
fólkið samt verið með frá byijun. Ef
keypt er fyrir meira en eina viku í
senn er hægt að hafa símsamband við
íslenska getspá og þar merktar inn
tölumar fyrir viðkomandi, síðan síms-
endir viðkomandi getspánni þá
upphæð sem spilað er fyrir og fær
senda kvittun um greiðslu til baka.
kvæðagreiðslu um stórmál, sbr. nýju
ratsjárstöðvamar og fleira. Hins vegar
er talað um þjóðaratkvæðagreiðslu
um bjór, hvort við óvitamir treystum
okkur til að blanda brennsann við
Frystum
laun þing-
manna
Verkamaður hringdi:
Ég hef hlustað á umræður undanfar-
ið um kjarasamninga sem áttu að
ganga í gildi 1. desember og nú er
verið að tala um hvort eigi að fara
semja um fjóra mánuði, þangað til ný
ríkistjóm tekur við eða eftir næstu.
Mér finnst við sem erum meðal lægstu
láglaunahópanna ekki geta beðið eftir
næstu ríkisstjóm. Við getum heldur
ekki sætt okkur við það að þessi ríkis-
stjóm semji til langs tíma. Það væri
heppilegast að það væri tekið á málun-
um núna með því að lægstlaunuðu
hópamir fengju kjarabætur strax.
Til þess að fólk geti skrimt í þessu
dýrtíðarþjóðfélagi þarf það að hafa
35.000 króna lágmarkslaun en jafh-
framt á að stoppa allt launaskrið
þeirra er hafa hærri laun þangað til
að ný ríkistjóm tekur við en þá er
hægt að semja til lengri tíma.
Að lokum finnst mér að stoppa eigi
hækkun á launum þingmanna í ríkis-
stjóm í að minnsta kosti 2 ár, þeir
hafa nú þegar meira en nóg.
Gala-
dinner á
Kvosinni
Félagar í klúbbi ungra fram-
reiðslu- og matreiðslunema skrifa:
Félagar í klúbbi ungra fram-
reiðslu- og matreiðslunema héldu
„galadinner" 4. nóvember síðastlið-
inn við góðar undirtektir.
Vildum við koma á framfæri sér-
stökum þökkum til ýmissa fyrir-
tækja er gerðu það mögulegt að
hafa svona kvöld. En án þeirra
stuðnings hefði þetta stórkostlega
kvöld aldrei orðið að vemleika. Vilj-
um við þakka eftirfarandi fyrirtækj-
um fyrir greiðvikni og hjálpsemi er
kom okkur sérlega vel.
bjórinn.
Jónas Kristjánsson, ég vona að þú
beitir þér að því að rannsóknamefndir
athugi mistakastaflann og misheppn-
aðar framkvæmdir þingmanna og
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
Oft er þörf en nú er svo sannarlega
nauðsyn að kvarta yfir helgardagskrá
ríkissjónvarpsins. Hafið þið virkilega
ekki upp á neitt annað að bjóða um
helgar en einhverjar eldgamlar graut-
fúlar bíómyndir eða hundleiðinlegar
austantjaldsmyndir sem em bara alls
ekki mönnum bjóðandi er fjölskyldan
vill kannski vera í rólegheitunum
heima og horfa á sjónvarpið og þá
náttúrlega eitthvað sem hægt er að
horfa á og hafa gaman af? Það er sko
ekki fræðilegur möguleiki að maður
fái að njóta þess ætli maður sér að
horfa á ríkissjónvarpið. Maður hrein-
lega leggst í þunglyndi þó maður geri
ekki meira en að lýna rétt svo í imba-
kassann og á það sérstaklega við á
föstudögum. Það hlýtur að vera algjör
firra að vera að kynna dagskrána í
opinberra stofnana. Aðhald er nauð-
syn því ekki virðist vera nóg að kjósa
atvinnukjaftaska á fjögurra ára fresti,
samtryggingin skapar hljóð, samanber
Kröflu.
næstu viku er fólk vill horfa á eitt-
hvað gamansamt afþreyingarefni eða
góðar spennumyndir, en það virðist
harla erfitt að sjá slíkt í ríkissjón-
varpinu, það hefur allavega alveg farið
ffarn hjá mér.
Að öðm leyti er ég mjög ánægð með
frammistöðu ríkissjónvarpsins og
finnst mér fréttamennimir eiga lof
skilið fyrir skemmtilega útfærslu á
fféttunum og góðan fréttalestur.
En í fyllstu alvöm, þið verðið að
bjóða upp á betra efni um helgar. Það
hlýtur að þykja lítið sæmandi fyrir
ríkissjónvarpið ef maður þarf að heim-
sækja kunningja um helgar til þess
að horfa á Stöð 2 sem er með virkilega
gott efiii þá, bæði hvað varðar spenn-
andi bíómyndir og annað skemmtilegt
afþreyingarefhi.
Til þess að fólk geti skrimt í þessu dýrtiðarþjóðfélagi þarf það að hafa 35.000
króna lágmarkslaun en jafnframt á að stoppa allt launaskrið þeirra er hafa
hærri laun.
Glötuð helgar-
dagskrá
sjónvarpsins