Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
17
Lesendur
Af hverju er ekki eitthvað spilað við allra hæfi? Það vantar alveg þungarokksþætti á útvarpsstöðvarnar.
Meira þungarokk
Stebbi hringdi:
Ég vil koma þakklæti mínu á fram-
færi til Stöðvar 2 því hún sinnir
þungarokkinu meira en segja má um
þessar blessaðar útvarpsstöðvar okk-
ar. Rás 2 hætti að sinna þungarokksá-
hugamönnum og Bylgjan hefur
reyndar aldrei byrjað.
Finnst mér að útvarpsstöðvamar
geti teki Stöð 2 til fyrirmyndar því hún
er með fastan þátt um þungarokk er
kemur okkur þungarokksaðdáendum
mjög vel. Hvemig væri nú að útvarp-
stöðvamar tækju sig til og spiluðu
eitthvað handa öllum, þar með talið
þungarokk.
Samræmdu préfin
fallgiyfja
„Ég fer bara frain á eina breylingu, að samræmdu prófin verði með
sama fyrirkomulagi og áður, þ.e. 4 fallgreinar."
Binna skrifar:
Ég get nú ekki orða bundist lengur
um samræmdu prófin. Það er nú
meiri vitleysan að vera breyta regl-
unum um samræmd próf þannig að
bara megi falla í tveimur greinum.
Það hefur aldrei verið svona fyrr og
ég skil ekki hvers vegna er þá verið
að breyta því allt í einu núna? Það
mætti halda að tilgangurinn með
þessu breytta fyrirkomulagi væri að
reyna fella krakkana. Til dæmis með
blessaða dönskuna, til hvers er verið
að kenna dönsku? Ekki læra Danir
íslensku. Þetta er eintómt hrogna-
mál sem er leiðinlegt að læra, hvað
þá reyna tala það.
Þá er nú eðlisfræðin ekki skárri.
Er ekki nóg að læra stærðfræði sem
kemur að mun meiri notum en eðlis-
fræðin. Ég tel eðlisfræðina vera
kennda í þeim tilgangi einum að fella
fólk. Ég hélt að það væri öllum til
heilla að læra þó ekki sé verið að
reyna gera þetta allt erfiðara með
því að fella fólk að óþörfu. Ég fer
bara fram á eina breytingu, að sam-
ræmdu prófin verði með sama fyrír-
komulagi og áður, þ.e. 4 fallgreinar.
ATH. Hárgreiðsla!
Vegna flutninga eru eftirtaldir hlutir til sölu:
1 hárþurrka á standi, 3 hárgreiðslustólar með pumpu,
2 rúlluborð, 3 speglar með Ijósum, 1 þvottabakki.
Þessir hlutir eru þriggja ára og í mjög góðu ásig-
komulagi.
Upplýsingar í síma 688110 og 42437 eftir kl. 18.
i
ÓDÝRI
SKÓMARKAÐURINN
Hverfisgötu 89.
Gott úrval af ódýrum skóm, m.a. kuldaskóm.
Skómarkaðurinn, Hverfisgötu 89.
2001 skáktölvan er
glæsileg jólagjöf!
Með stórmeistara
í stofunni!
2001 skáktölvan er einstök í
sinni röð, sannkallaður stór-
meistari skáktölvanna.
• Hún býr yfir 12 styrkleikastigum.
• Hún er eldfljót að hugsa.
• Hún er 100% sjálfskynjandi (enginn þrýsting-
ur á reiti þegar leikið er). Hún er skýr og
skemmtilegur heimilisvinur sem öll fjölskyld-
an á eftir að hafa gaman af.
• Verð kr. 16.935,-
• Útsölustaðir í Reykjavík: Rafbúð Sambands-
ins, Bókabúð Braga, Skákhúsið og Hjá
Magna.
• Söluaðilar úti á landi óskast.
Marco hf.,
Langholtsvegi 111. Símar 687970/71.
HADST- TILBOfi
ALLT AðI jl J/j]AFSLÁTTUR
AF FÚAVARNAREFNUM
ALLT AÐ
AFSLATTUR
AF MALNINGU
Nú bjóðum við VISA
korthöfum stað-
greiðsluafslátt (háð
upphæð) eða rað-
greiðslukerfi, jafnvel
án útborgunar.
Allt að 12 mánaða
greiðslutími á tepp-
um, mottum og gólf-
dúk.
nrnmnm
V/SA
HHIbyggingavöbBbI
Allt að 9 mánaða
greiðslutími á eldhús-
innréttingum, fiisum,
hreinlætistækj um,
parketi, panil, máln-
ingarvörum o.fi.
Allt að 4 mánaða
greiðslutími á grófari
byggingarvörum, t.d.
timbri, stáli, rörum,
fittings o.fl.
• Fullur staðgreiösluafsláttur.
• Afsláttur við helmingsútborgun, en
raðgreiðslur i 2-12 mánuði.
• Þægilegur og ódýr greiðslumáti.
2 góðar byggingavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100
Hringbraut, sími 28600.
OPIÐ KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
—J
3i v>l fíbíisa