Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 21
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
21
íþróttir
KR hefur fengið góðan liðsstyrk:
„Það verður skemmtilegt
að spreyta sig með Kk
- sem er með ungt og efnilegt lið, segir Andri Marteinsson
„Ég hef ákveðið að ganga til liðs við
KR-inga og leika með þeim,“ sagði
Andri Marteinsson, landsliðsmaður í
knattspymu úr Víkingi, sem hefur
skrifað undir félagaskipti í vestur-
bæjarliðið. Andri hefur æft með
KR-ingum að undanfömu. „Ég kunni
vel við mig í herbúðum KR-inga þar
sem mér var vel tekið. Næsta takmark
mitt er að tryggja mér sæti í KR-liðinu
og sanna mig í hinni hörðu 1. deildar
keppni," sagði Andri sem hefur leikið
tvo landsleiki og sex leiki með 21 árs
landsliðinu.
Andri, sem er 21 árs, hóf að leika
með Víkingsliðinu 1983 og hefur verið
einn af lykilmönnum liðsins siðan -
skorað mikið af mörkum. Hann er
leikinn, fljótur og hefur næmt auga
fyrir samleik. Það þarf ekki að fara
mörgum orðum um að Andri mun
koma með að styrkja KR-liðið mikið.
„Ég hlakka til að leika með KR-lið-
• Pétur Ormslev.
DV-mynd Brynjar Gauti
ru eftir í leik þeirra gegn Haukum
inu. Það eru margir ungir og efiiilegir
leikmenn hjá KR sem eiga eftir að
láta mikið að sér kveða í framtíð-
inni,“ sagði Andri.
Allir þeir leikmenn sem léku með
KR-liðinu sl. keppnistímabil, nema
Gunnar Gíslason sem fer til Moss í
Noregi, verða áfram í slagnum. Undir
lok keppnistímabilsins léku KR-ingar
mjög vel og fengu þá ungir leikmenn,
eins og Heimir Guðjónsson, Stefán
Steinsen og Gunnar Skúlason, að
spreyta sig. Þá voru strákar eins og
Þorsteinn Guðjónsson og Rúnar
Kristinsson í keppnishópi KR.
Hefur Andri hug á að fara út í at-
vinnumennsku þegar fram líða stund-
ir? „Það er draumur allra ungra
knattspymumanna hér að gerast at-
vinnumaður. Ég verð fyrst að standa
mig í 1. deildar keppninni hér heima
áður en ég fer að hugsa um atvinnu-
mennsku," sagði Andri. -SOS
Péturá
sjúkrahúsi
Pétur Ormslev, landsliðsmaður í
knattspyrnu úr Fram, er nú kominn á
spítala. Pétur hefur átt við meiðsli að
stríða í liðþófa. Ástæðan fyrir því að
Pétur var lagður inn á sjúkrahús er
að það á að spegla hné hans.
-SOS
• KR-ingar taka hér tast á Birni Jónssyni, aðalskyttu Breiðabliks.
DV-mynd Brynjar Gauti
Spennuleikur í Höllinni
- þegar Blikamir lögðu KR-inga, 19-18
„Ég er virkilega stoltur yfir að strák-
amir skyldu vinna svona leik, að snúa
leiknum við nánast á lokamínútunum
sýnir svo ekki verður um villst að það
býr mikið í þessu liði. Allir í liðinu
stóðu sig mjög vel og við erum stað-
ráðnir í því að halda áfram á sömu
braut,“ sagði Geir Hallsteinsson, þjálf-
ari Breiðabliks, eftir að lið hans hafði
sigrað KR-inga með 19 mörkum gegn
18 i æsispennadi leik þar sem úrslit
réðust ekki fyrr en á síðustu sekúnd-
unum í Laugardalshöll í gærkvöldi.
KR-ingar byrjuðu leikinn af miklum
krafti og sýndu mjög góðan leik í fyrri
hálfleik og höfðu alltaf forystu. Mestur
var munurinn fimm mörk, 11-6, og
átti Breiðablik ekkert svar við stórleik
KR-inga sem léku við hvem sinn fing-
ur, nokkuð sem ekki hefur sést fyrr
hjá þeim í vetur enda kom Hans Guð-
mundsson inn í liðið á nýjan leik eftir
meiðsli sem háð hafa honum í síðustu
leikjum liðsins og frískaði endurkoma
hans mikið upp á KR-liðið. KR-ingar
höfðu fjögur mörk yfir í hálfleik, 12-8.
í seinni hálfleik snerist dæmið alveg
við, það var rétt aðeins í byrjun sem
KR-ingum tókst að halda sínum góða
leik áfram en þegar staðan var 13-10
þeim í hag hmndi leikur þeirra gjör-
samlega saman og leikmenn Breiða-
bliks fóm þá virkilega að sýna sínar
réttu hliðar og skomðu flögur mörk í
röð og breyttu stöðunni í 13-14.
KR-ingar vom samt ekki alveg af
baki dottnir og með mikilli baráttu
tókst þeim að komast yfir á nýjan leik,
18-17, og upp frá því hófust æsispenn-
andi lokamínútur sem lyktaði með
sigri Breiðabliks þegar Jón Þórir
Jónsson innsiglaði sigurinn með
marki úr hraðaupphlaupi þegar örfáar
sekúndur vom eftir og fögnuður þeirra
var gífurlegur í lokin.
Mörk KR: Konráð 5, Guðmundur
A. 5, Hans 3/1, Guðmundur P. 2/1,
Ólafur 1, Jóhannes 1, Þorsteinn 1.
Mörk UBK: Bjöm 4, Aðalsteinn 4,
Jón 4/2, Magnús 3, Kristján 1, Svavar
1, Þórður 1, Sigþór 1. -JKS
• Klaus-Jörgen Hilpert.
Hilpert
„stjóri"
hjá Bochum
Klaus-Jörgen Hilpert, fyrrum
þjálfari Skagamanna í knatt-
spymu. hefúi- verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri v-þýska félagsins
Bochum. 'Hilbert mun ekki þjálfa
leikmenn Bochum heldur mun
hann sjá um fjárhag félagsins og
skipuleggja starf Bochimr sem
leikur í „Bundesligunni". -SOS
Keflavíkur-
liðið til
Manchester
Keflvíkingar hafa ákveðið að
fara með leikmenn 1. deildar liðs
síns í knattspymu til Englands
fyrir næsta keppnistímabil - í æf-
ingabúðir. Keflvíkingar ætla að
æfa í Manchester undir stjóm Pet-
ers Keeling sem hefur verið ráðinn
þjálfari Keflavíkurliðsins. -SOS
Celtic tapaði
Ein umferð fór fram í skosku
úrvalsdeildinni í gærkvöld. Þar
bar helst til tíðinda að Celtic tap-
aði 1-0 á útivelli fyrir Hearts.
Abeixieen vann Falkirk, 1-0, og
Dundee United sigraði Mother-
well, 2-0. Þá vann Rangers St.
Mirren 2-0. -SMJ
Napoli býður
Diego Maradona
nýjan samning
„Það getur vel farið svo að ég
verði hér ári lengur en sanuiingur
minn segir um.“ sagði Diego Mara-
dona, knatfspymukappinn kunni,
í gærkvöldi. Napoli bauð honum
eins árs lengri sanming, til 1989,
en Maradona skrifaði undir þegar
félagið keypti hann frá Barcelona
1984. -SOS
Staðan
Staðan i 1. deild karla í blaki er þessi:
Þróttur, Rvík.
Fram
Vikingur
ÍS
HK
Þróttur. Nes.
HSK
KA
5 5 0 15- 3 10
6 5 1 17-7 10
7 5 2 16- 9 10
6 3 3 12-13 6
6 3 3 10-12 6
6 1 6 10-17 2
6 1 5 6-17 2
4 0 4 4-12 0
- KMU
Fram óvænt á toppnum eftir sigur á Víkingi
Ekkert blaklið hefur komið eins
mikið á óvart í vetur og karlalið
Fram. Eftir sigur á Víkingi í Haga-
skóla í gærkvöldi er Fram í öðm
sæti á íslandsmótinu með jafhmörg
stig og Þróttur en eitt tap meðan
Þróttarar eru taplausir.
Framarar hófu leikinn af krafti í
gærkvöldi, komust í 1H. Með seiglu
sigu Víkingar fram úr og sigmðu
15-12 í fyrstu hrinunni. Víkingar
komust svo í 14-12 í annarri hrinu
og héldu sig með unninn leik. En
það var öðm nær.
Frískir Framarar komust í mikinn
ham, kreistu fram 16-14 sigur í ann-
arri hrinu. Tóku þá þriðju 15-10,
æsispennandi fjórðu hrinu, 15-13, og
leikinn þar með, 3-1.
Tvö efstu liðin í kvennablakinu,
íþróttafélag stúdenta og Víkingur,
mættust einnig í gærkvöldi. Fyrstu
tvær hrinumar vom jafiiar en ÍS
sigraði í þeim báðum, 16-14 og 15-11.
Skyndilega var sem allt loft færi úr
Víkingsstúlkunum í þriðju hrinu.
Hún varð aðeins 9 mínútna löng og
lauk með 15-2 sigri ÍS, sem er nú
eina liðið án taps.
Kvennalið Breiðabliks og HK
mættust í Kópavogi. Þar varð ein-
stefha. UBK-stúlkumar sigmðu 3-0;
134, 15-0 og 15-3.
-KMU