Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Iþróttir
Hefðugottaf
einni viku hér
- segir Nico Cleasen
Kristján Bemburg, DV, Belgíu;
„Æfingamar hér í Englandi
eru ekki svo erfiðar. Það er hins
vegar þessi mikli leikjafjöldi sem
er þreytandi," segir belgíski
landsliðsmaðurinn Nico Cleasen
sem leikur með Tottenham
Hotspur.
Cleasen hefur staðið sig vel hjá
Tottenham og hefur þegar unnið
sér fast sæti í liðinu. „Ég vona
að vera mín hér hjá Tottenham
verði stökkpallur fyrir mig til
ítah'u eða Spánar. Ég hugsa ekki
lengur til Vestur-Þýskalands.
Atvinnumennimir þar iíta á sig
sem goð. Þar i landi líta leik-
menn til dæmis ekki við öðrum
tegundum bifreiða en BMW eða
Benz. Hér hjá Tottenham fá leik-
menn Ford Escort ZRi og eru
ánægðir með það. Atvinnumenn-
imir í Þýskalandi hefðu gott af
því að vera hjá Tottenhi
öðm ensku félagi í eina
segir Nico Cleasen.
m
eð
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Aðalstöðvar HM á skíð-
Dæma tveir í fótbolta?
- umræður í gangi vegna aukinnar hörku
„Nú verðum við að koma á tveggja
dómara kerfi í knattspymunni eins
og í handbolta, körfubolta og öðmm
alvöm boltagreinum íþróttanna,"
sagði v-þýski landsliðsþjálfarinn í
knattspymu, Franz Beckenbauer, í
viðtali í þýska sjónvarpinu á dögun-
um. Var þar verið að ræða dómara-
vandamálin í knattspymunni í
Vestur-Þýskalandi en þar er hald
manna að dómararnir hafi aldrei
dæmt eins illa og í haust. Aldrei fyrr
hafa eins mörg gul og rauð kort ver-
ið á lofti í knattspynunni þar og í
haust og aldrei orðið eins margir
árekstrar á milli Ieikmanna og þjálf-
ara við dómara.
Beckenbauer og fleiri, sem fjölluðu
um málið, segja að þeir efist ekki um
að dómararnir geri sitt besta eins og
áður. Málið sé einfaldlega þannig
vaxið að leikurinn sé að verða hrað-
ari og harðari og þeir geti ekki fylgst
með þessum mikla hraða lengur.
f flestum tilfellum geti dómarinn
ekki unnið á þessum hraða í 90 mín-
útur. Hann geti aldrei slakað á
þennan tíma en það geti leikmenn-
irnir þó inn á milli. Það svæði sem
dómarinn þurfi að fara yfir í hverjum
leik sé mun stærra en þeirra. Dóm-
arastarfið sé auk þess áhugastarf -
dómaramir æfi ekki nálægt því eins
og atvinnuleikmenn og því sé ekki
að sökum að spyrja. Að lokum er
bent á að mistök dómara séu yfirleitt
mun fleiri í lok fyrri hálfleiks og
undir lok leiksins. Þeir séu þá orðnir
þreyttir og einbeitingin farin að
minnka hjá þeim.
Beckenbauer vill að tekið verði
upp tveggja dómara kerfi í Vestur-
Þýskalandi til reynslu. Skipti þá
dómaramir vellinum á milli sín og
hafi einn línuvörð sér til aðstoðar á
sínum vallarhelmingi.
-klp.
Jim hefur
ofnæmi
fyrir grasi
I
I Jim Melrose, sóknarleikmaður
Ihjá Charlton, hefur lengi þjáðst
af alls kyns kvillum sem læknum
I hefur gengið erfiðlega að átta sig
! á. Hann hefur oft fengið mikil
I útbrot og verkjaköst. Nú er loks-
Iins komin skýring á þessum |
krankleika. Melrose er með of- ■
I næmi fyrir grasi! Til að fá |
| lækningu á þessu hafa gárung- ■
Iamir stungið upp á því að hann I
flytji sig til QPR en sem kunnugt ■
I er þá er heimavöllur þeirra lagð- I
■ ur gervigrasi. -SMjJj
Vignir ráð-
inn til ÍK
Vignir Baldursson, sem leikið
hefur í áraraðir með Breiðabliki
í knattspymu, hefur verið ráðinn
þjálfari fK í Kópavogi fyrir
næsta keppnistímabil. Vignir,
sem einnig mun leika með liðinu,
er gamalreyndur knattspymu-
maður, veröur 30 ára á næsta ári
og vænta ÍK-menn góðs af störf-
um hans.
• Annar Bliki, einnig snjall
knattspymumaður, mun leika
með fK næsta sumar. Það er
Steindór Elísson en honum tókst
ekki að komast í aðallið Blik-
anna á síðasta keppnistímabili.
Báðir munu þeir Vignir og
Steindór styrkja ÍK-liðið mikið.
-SK.
Keppnin í heimsbikarkeppninni á
skíðum þrjú síðustu árin hefúr svo til
eingöngu staðið á milli þeirra Marc
Girardelli frá Luxemburg og Sviss-
lendingsins Pirmin Zurbriggen. í ár
er hins vegar búist við því að keppnin
verði jafnari.
í kvennakeppninni er einnig spáð
heilmikilli keppni þó eitt sé talið víst
fyrirfram - heimsmeistari kvenna
verður frá Sviss. Það miklir hafa yfir-
burðir svissneskra skíðakvenna verið
undanfarin ár.
Zurbriggen vann heimsmeistaratitil-
inn 1984 en Girardelli, sem er reyndar
fæddur í Austurríki, hefur unnið hann
tvö síðustu ár. Sigur hans á síðasta
ári var mjög naumur en þá sigraði
hann í aðeins einu móti en náði þó
Verður keppnin harðari í ár?
Þó að flestir séu sammála um að
þeir Girardelli og Zurbriggen verði
með í baráttunni í ár þá er það hald
manna að þeir fái mun harðari keppni
nú. „Wasmaier verður með í keppn-
inni núna,“ sagði Schoenhaar um
möguleika V-Þjóðveijans Markus
Wasmaier sem varð í þriðja sæti í
stigakeppninni á síðasta tímabili. Þá
er talið öruggt að Rok Petrovic frá
Júgóslavíu blandi sér í keppnina.
Einnig Austum'kismennimir Hubert
Strolz og Gúnter Mader sem þykja
hafa tekið miklum framforum frá síð-
asta ári.
Og síðan eru það „gamlingjamir"
sem greinilega ætla ekkert að gefa
eftir. Ingemar Stenmark er þegar bú-
inn að vinna eina keppni, brunmenn-
imir frá Austurríki, Leonard Stock og
Anton Steiner, em enn á fullu og einn-
ig svigmennimir Paul Frommelt frá
Liechtenstein og Bojan Krizaj frá
Júgóslavíu. Steiner og Stock em 28
ára en hinir em þrítugir. „Frammi-
staða þeirra á síðasta keppnistímabili
var þessum gömlu keppnismönnum til
sóma. En hins vegar er greinilegt að
endumýjunin meðal afreksmanna í
skíðaíþróttinni er ekki sem skyldi,"
sagði Schoenhaar.
Girardelli, sem vann 11 mót þegar
hann sigraði með yfirburðum í keppn-
inni 1985, var ekki í sem bestu formi
á síðasta ári. Hann vann aðeins eina
keppni en varð hins vegar 17 sinnum
meðal fimm efstu. Þessi stöðugleiki
færði honum titilinn. Hann er fyrst
og fremst svigmaður en hefur tekist
ágætlega við að þjálfa upp hinar grein-
amar, bmn, stórsvig og risastórsvig,
en samanlögð útkoma í þessum grein-
um veitir heimsbikartitilinn.
-SMJ
Beveren fékk
fulltafseðlum
Kristján Bemburg, DV, Belgiu;
Eins og fram hefur komið i
fréttum er lið Guðmundar Torfa-
sonar, Beveren, talið eiga mikla
möguleika á að komast í 8-liða
úrslitin í UEFA-keppninni í knatt-
spymu. í fyn-i leik sínum í 16-liða
ilrslitunum lék Beveren gegn Tor-
ino frá Ítalíu og lauk þeim leik
með sigri Torino, 2-1.
Síðari leikur liðanna fer fram 10.
desember og hefur honum verið
flýtt til hálfsex. Ástæðan er sú að
ítalska sjónvarpið hafði gífurlegan
áhuga á að kaupa einkaréttinn á
sýningum frá leiknum og segja
fróðir menn hér í Belgíu að Bever-
en hafi fengið mjög mikla peninga
fyrir „greiðann“.
Blaðamenn spurðu mikið
Guðmundur Torfason hefur vak-
ið mikla athygli hér í Belgíu.
Blaðamenn hafa spurt mikið um
Guðmund og þar á meðal þjálfara
Beveren. Einn blaðamannanna
bað þjálfara Beveren að segja álit
sitt á Guðmundi. Hann sagði;
„Guðmundur hefur aðeins leikið í
fimmtán mínútur og frammistaða
hans lofaði góðu. Annars eru
fimmtán mínútur alltof lítill tími
til að dæma einstaka leikmenn."
-SK.
• Dómarar veröa oft fyrir aðkasti leikmanna auk þess sem þeir eiga erf-
itt með að fylgjast með öllu því sem gerist á vellinum.
• Vignir Baldursson þjálfar IK
að verða á undan Zurbriggen. Fékk
296 stig á móti 284 stigum Zurbriggens.
„Þetta var í raun slæmt ár hjá Marc
og Zurbriggen var meiddur hluta af
keppnistímabilinu," sagði Harald
Schoenhaar, þjálfari bandaríska
skíðalandsliðsins. „Ef Zurbriggen
hefði verið heill allt tímabilið hefði
hann örugglega unnið titillinn. Satt
best að segja var síðasta tímabil alls
ekki nógu skemmtilegt.“
Karlakeppnin hófst með tveim
keppnum í bruni í Argentínu í ágúst
en síðan var langt hlé þar til nú um
helgina að keppni hófst i svigi með
móti í Sestriere á Ítalíu. Þar vann In-
gemar Stenmark sinn 84. sigur i
heimsbikarkeppninni, hreint ótrúlegt
afrek. Svigkeppni kvenna hófst einnig
nú um helgina og þar sigraði sviss-
neska stúlkan Corinne Schmidhauser.
• Ingemar Stenmark hefur byrjað vel i ár.
um bmnnu til grunna
Milljónatjónvarð þegar aðalstöðvar
heimsmeistaramótsins í alpagreinum á
skíðum í Crans Montana í Sviss
brunnu til kaldra kola í síðustu viku.
Ýmsir hópar, sem fæstir höfðu heyrt
nefnda, sendu frá sér tilkynningu um
að þeir hefðu staðið fyrir þessum
bruna. Voru ástæðumar sagðar allt
frá þvi að mótmæla keppninni og
íþróttakeppni yfirleitt upp í að heimta
hærra kaup. Lögreglan segir að engin
samtök hafi staðið fyrir þessu. Kvikn-
að hafi í út frá rafmagni.
Forráðamenn heimsmeistarakeppn-
innar segja að bruninn muni ekki tefja
neitt undirbúning fyrir mótið. Það
verði á sínum stað á sínum tíma, eða
frá 25. janúar til 8. febrúar.
-klp.
Margir kallaðir - fáir útvaldir
- verða Girardelli og Zurbriggen áfram einráðir?