Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
33
Nauðsyn að þekkja
starfsstellingar
„Ég vildi kynna mér það sem nám-
skeiðið bauð upp á þar sem ég vinn á
sjúkrahúsi og þar eru margir aldraðir.
Auk þess er ég í nefnd á Patreksfirði
sem sér um heimilishjálpina þar og
hún felst að stórum hluta í aðstoð við
aldraða sem eru heima,“ sagði Lilja
Jónsdóttir þegar við spurðum hana
um ástæðu þess að hún sótti námskeið
Rauða krossins í síðustu viku.
En fannst henni hún læra mikið á
námskeiðinu. „Já, mér finnst margt
hafa bæst við en ég vinn sjálf á sjúkra-
húsi þannig að ég kannast við ýmislegt
sem hefur verið kennt hér. Af fenginni
reynslu tel ég mjög mikilvægt að
kunna réttar starfsstellingar og það
hefur verið farið mjög vel í það hér,“
sagði Lilja.
Eins og fram hefur komið kom Lilja
frá Patreksfirði á námskeiðið og var
önnur kona þaðan með henni á nám-
skeiðinu. Lilja taldr mjög mikilvægt
fyrir þær að kynnast því sem kennt
væri þama, ekki síst þar sem til stæði
að auka þjónustu við aldraða í heima-
húsum á Patreksfirði en þar er ekkert
öldrunarheimili enn sem komið er.
-SJ
í síðustu viku hélt Rauði kross
íslands námskeið þar sem aðstand-
endur aldraðra og sjúkra fengu
kennslu í hvemig þeir ættu að bera
sig að við aðhlynningu sjúklinga í
heimahúsum.
Það vom þær Ásgerður Þórisdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur hjá Rauða
krossinum, og Hallbera Friðriks-
dóttir, hjúkrunarfræðingur í
Múlabæ, sem skipulögðu námskeið-
ið. Þátttakendur nú voru aðeins 10,
en þær Ásgerður og Hallbera sögð-
ust hafa búist við mun betri aðsókn
þar sem nú væri mjög algengt að
aðstandendur þyrftu að annast aldr-
aða og sjúka í heimahúsum. Ráðgert
er að halda sams konar námskeið
eftir áramót og sögðust þær stöllur
vonast til að fleiri hefðu tækifæri til
að koma þá. En þær töldu að ein
ástæða þess að svo fáir þátttakendur
sóttu námskeiðið væri einfaldlega"
sú að margir þeirra hefðu ekki kom-
ist út af heimilunum á námskeiðið
vegna þess að enginn var til að sjá
um sjúklinginn heima.
Fólk er sent snemma heim
af sjúkrahúsum
„Það er algengt að fólk sé sent
snemma heim af sjúkrahúsum og það
getur verið sjokk að fá sjúkt fólk inn
á heimili. Þjónusta á vegum hins
opinbera inni á heimilum er mjög
takmörkuð, en er góð svo langt sem
hún nær og það er Ijóst að af hálfu
hins opinbera hefur þjónusta við
aldraða ekki haldist í hendur við þá
öru fjölgun sem hefur átt sér stað í
samfélaginu á undanfömum árum,“
sagði Ásgerður, aðspurð um ástæður
þess að Rauði krossinn stóð fyrir
þessu námskeiði.
- En er Rauði krossinn þá ekki að
bjarga hinu opinbera sem þú gagn-
rýnir við að sjá um þessa fræðslu?
„Rauði krossinn hefur oft gripið inn
í með þjónustu sem aðrir hafa ekki
sinnt. Til dæmis má nefna námskeið
á vorin þar sem stúlkur, sem ætla
að passa böm á sumrin, fá leiðbein-
ingar um hvemig þær eigi að bera
sig að. Það er verið að ýta þessu af
stað hér hjá okkur og svo er aldrei
að vita nema aðrir aðilar komi síðar
til sögunnar." sagði Ásgerður og
Hallbera bætti þvi við að eitt af
markmiðum Rauða krossins væri að
taka þátt í alls kyns hjálparstarfi og
ef aðhlynning aldraðra félli ekki
undir þá skilgreiningu vissi hún ekki
hvað gerði það í dag.
Aukið öryggi við aðhlynningu
Að sögn þeirra Ásgerðar og Hall-
bem er eitt af markmiðum nám-
skeiðsins að veita þátttakendum
aukið öryggi við aðhlynningu án
þess þó að taka á sig meiri ábyrgð
en fyrir er. Þær töldu að eins og
ástandið væri í dag hvíldi nú þegar
mikil ábyrgð á herðum þeirra sem
væm heima og hugsuðu um aldrað
fólk sem gæti litla björg sér veitt. r
Á námskeiðinu var meðal annars
fyrirlestur læknis um öldrun, leið-
beint var um meðferð lydja í heima-
húsum, næringarfræði, skyndihjálp
og hvemig koma ætti í veg fyrir slys
í heimahúsum. Ennfremur kynnti
iðjuþjálfi ýmis hjálpargögn sem
hægt er að fá og létta undir við að-
hlynningu og gera sjúklinga meira
sjálfbjarga. En þess má geta að það
kostar ekkert fyrir sjúklinga að fá
ýmis hjálpargögn heim frá Hjálpar-
tækjabankanum og geta þau oft
gjörbreytt öllum aðstæðum hvað
varðar aðhlynningu. Loks má nefna
að þátttakendur fengu leiðbeiningar
hjá sjúkraþjálfara um rétta líkams-
beitingu við umönnun sjúkra. Við
litum einmitt inn á námskeiðið þegar
sú kennsla stóð vfir í húsakynnum
Sjúkraliðaskólans. Námskeiðið stóð
yfir í fjóra daga og var þátttökugjald
1.000 krónur.
-SJ
Dægxadvöl
Hér er Gunnar sjukraþjálfari að sýna nemendum hvernig á aö flytja sjúkl-
ing úr stóli í rúm. Það er Lilja Jónsdóttir sem er í hlutverki sjúklingsins
að þessu sinni.
DV-myndir GVA
Með stuðningi Gunnars ris Lilja úr sætinu og upp i rúmið fór hún þrátt fyrir
að sjúkrarúmið í Sjúkraliðaskólanum væri fullhátt miðað við sjúkrarúmin
sem nú tíðkast.
Ástralska gripið nefnist þessi aðferð sem hægf er að nota til að flytja sjúklinga milli staða. Það er Asgerður
Þórisdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Rauða krossinum, sem er hér í hlutverki sjúklingsins. DV-mynd GVA
Aðstandendur aldraðra og sjúkra á námskeiði hjá Rauða krossinum:
„Getur verið
sjokk að fá sjúkt
fólk heim“