Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Andlát Ólafía D. Þorsteinsdóttir, sem andaðist í sjúkrahúsinu á Selfossi 30. nóvember, verður jarðsungin frá Sel- fosskirkju laugardaginn 6. desember kl. 13.30. Guðmundur Björgúlfsson, frá Neskaupstað, andaðist í Landa- kotsspítala þriðjudaginn 2. desemb- er. Gísli Pálmason, fyrrverandi kjall- arameistari Nausts, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni föstudag- inn 5. desember kl. 13.30. Tryggve D. Thorstensen prentari, Bústaðavegi 101, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. desember kl. 15. Jensína Arnfinnsdóttir, frá Brekku, Nauteyrarhreppi, er andað- ist í Borgarspítalanum þann 30. nóvember sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. des- ember kl. 10.30. Jón Svan Sigurðsson, frá Nes- kaupstað, Hjallaseli 55, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 5. desember kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufunes- kirkjugarði. Björn Bergsteinn Björnsson, Sól- heimum 30, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 5. des- ember kl. 15. Tilkyimiiigar Vímulaus æska Skrifstofa foreldrasamtakanna Vímulaus æska, Síðumúla 4. Opið mánudaga kl. 13-16, þriðjudaga kl. 9-12, miðvikudaga kl. 9-12, fimmtudaga kl. 9-10, föstudaga kl. 9-12. Sími 82260. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík verður með jólakvöld fímmtudaginn 4. desember nk. kl. 20.30 að Hallveigarstöð- um. Sýnikennsla á jólaföndri, einnig verður efnt til skyndihappdrættis. Lionsklúbburinn Víðarr gefur út almanak. Undanfarin þrjú ár hefur Lionsklúbburinn Víðarr stutt málefni hjartasjúklinga með því að gangast fyrir Ijáröflunum og verja ágóðanum til hjartalækninga. Enn sem fyrr er ætlunin að styðja þetta málefni oog hefur klúbburinn gefið út skemmtilega hannað almanak sem er í senn heimilis- almanak og skemmtileg vinargjöf. Almanakið er skreytt líflegum myndum eftir hinn kunna listamann Brian Pilking- ton. Nk. laugardag, 6. desember, mun Lionsklúbburinn Víðarr bjóða það til sölu og hefur fengið skólaböm úr grunnskólum Reykjavíkur til að aðstoða við söluna. Ágóðanum verður varið til að stuðla að lækningu hjartasjúklinga og til efíingar fræðslu um orsakir og afleiðingar sjúk- dómsins. Verð almanaksins er kr. 200 og er þess vænst að vel verði tekið á móti sölubömum er berja að dymm í Reykjavík á laugardaginn kemur,- 17. ársfundur MFA Valddreifing eða miðstjórnarvald? Er rétt að dreifa valdinu eða Ieggja áherslu á aukið miðstjórnarvald félaga, landssam- banda og ÁSÍ? Þetta verður m.a. til umræðu á 17. ársfundi Menningar- og fræðslusambands alþýðu 5. desember. Árs- fundur MFA er kjörinn vettvangur um mál er snerta verkalýðshreyfmguna, starfshætti hennar, skipulag og áhrif í þjóðfélaginu en í daglegu starfi verkalýðs- félaganna gefst of sjaldan tækifæri til skoðanaskipta sem þó em mikilvæg. Að þessu sinni verður í raun fjallað um grund- vallaratriði í stefnumótun verkalýðshreyf- ingarinnar og skipulagi sem ræður miklu um hvernig henni tekst að ná árangri í starfi sínu. Framsögumenn á ársfundinum verða þrír, þ.e. Hákon Hákonarson, for- maður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri, Karl Steinar Guðnason, vara- ^formaður Verkamannasambands Islands, “ og Vilborg Þorsteinsdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Snótar í Vest- mannaeyjum. Að loknum framsöguræðum verða almennar umræður en ársfundur MFA er opinn áhugafólki um efnið. Fund- urinn verður haldinn í Sóknarhúsinu, Skipholti 50A, og hefst kl. 14. Æskilegt er að tilkynningar um þátttöku berist skrif- stofu MFA, sími 84233. Félag harmóníkuunnenda í Rangárvallasýslu heldur harmóníkukvöldvöku í Gunnars- hólma laugardaginn 6. desember kl. 21. Kynning á tölvuneti og fjar- vinnslu. í gær var opnuð kynning á tölvuneti Pósts og síma og fjarvinnslu að Háaleitisbraut 11 á vegym Tölvuþjónustu sveitarfélaga. Kynningin er sérstaklega ætluð sveitar- stjómarmönnum og starfsmönnum sveit- arfélag;:. Þeir geta þá einnig sótt ráðstefnu Skýrslutæknifélagsins nk. föstudag um tölvunetið til að öðlast dýpri þekkingu á málinu og heyrt um reynslu annarra af því. Kynningin er opin kl. 9.30-12 og lýkur henni á morgun, föstudag. Maria Sólveig Héðinsdóttir. I>v María Sólveig Héðinsdóttir kennari „Vel aðra kosti“ í gærkvöldi horfði ég á fréttimar í sjónvarpinu, sem ég geri oftast, þær eru ágætar. Eirrnig horfði ég á í takt við tímann sem ég hef ekki séð áð- ur. Hann minnti mig á þátt sem ég sá í Danmörku sem heitir Channel to og tyve. Auk þess horfði ég á byrjunina á Sjúkrahúsinu í Svarta- skógi. Hann er eflaust ágætur ef maður er i þeim stellingunum. Það er alltaf gaman að hlusta á eitthvert annað tungumál en það sem oftast er í fjölmiðlunum. Ég beið eftir Vökulokum, enda vom skólamálin í brennidepli, um- ræða um einkaskóla og ríkisskóla. Formið á umræðum á Bylgjunni er ágætt, þ.e. að blanda saman tali og tónum, en þessi tími hentar mér ekki. Ég vildi helst vera farin í háttinn svona seint á kvöldin. Ég hlusta ekki mikið á útvarpið, en ef ég vil hafa eitthvert hljóð í kringum mig verður Bylgjan helst fyrir valinu. Það em tveir dagskrár- liðir sem ég læt ekki fram hjá mér fara, það em fréttimar í Ríkisút- varpinu og þátturinn með Einari, útvarpsstjóra Bylgjunnar, á sunnu- dagsmorgnum. Einnig hlusta ég oft á Svæðisútvarpið i Reykjavík seinni part dags þegar vinnu er lokið. Þar er oft útvarpað frá borgarstjómar- fundum og fjallað um annað sem tengist málefnum borgarinnar. Annars verð ég að segja að ég er illa að mér í dagskránni og hef eflaust misst af mörgum góðum þátt- unum en manni stendur svo margt annað til boða og ég hef einfaldlega valið aðra kosti. Áhugahópur um byggingu náttúrufræðihúss Sýningu áhugahópsins á íslenskum flétt- um, sem sett var upp af Herði Kristinssyni grasafræðingi, og sýninguá sauðarvölum, sem sett var upp af Sigurði Sigurðarsyni dýralækni, lýkur á föstudag. Sýningarnar eru opnar frá kl. 14 til kl. 22 daglega í anddyri Háskólabíós. Bækur lagðar fram til bók- menntaverðlauna Norður- landaráðs1987 Dómnefndir bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs leggja að þessu sinni fram eftirtaldar bækur: Danmörk: Requiem eftir Peer Hultberg, skáldsaga, og Suk Hjerte eftir Dorrit Will- umsen, skáldsaga. Finnland: Min bror Sebastian eftir Annika Idström, skáldsaga, og Vattenhjulet eftir Solveig von Schoultz, ljóðabók. íslahd: Sagan öll eftir Pétur Gunnarsson, skáldsaga, og Gulleyjan eftir Einar Kára- son, skáldsaga. Noregur: Ved foten av kunnskapens tre eftir Terje Stigen, skáldsaga, og Hudlös himmel eftir Herbjörg Wassmo, skáldsaga. Svíþjóð: Sánger eftir Lars Forssell, ljóða- bók, og Sju vise mástare om kárlek eftir Lars Gyllensten, frásagnir. Verðlaun hafa nú verið hækkuð frá því sem áður var, eru 125.000 danskar krónur. Fulltrúar Islands í bókmenntaverð- laimanefnd Norðurlandaráðs eru rithöf- undamir Jóhann Hjálmarsson og Sveinn Eiþarsson. Nefndin kemur saman til fundar í Stokk- hólmi 19.-20. janúar 1987. 20. janúar verður tekin ákvörðun um hver fær verð- launin. Gjafir til Krabbameinsfélagsins Á sl. hausti barst Krabbameinsfélaginu peningjagjöf til minningar um hjónin Sig- ríði Guðmundsdóttur og Guðmund Eggertsson sem bjuggu á Nýp á Skarðs- strönd í Dalasýslu. Gjöfin er frá syni þeirra hjóna, Guðlaugi, og konu hans, Jónu Guð- rúnu Stefánsdóttur, til minningar um að 100 ár eru liðin frá fæðingu Sigríðar og 95 ár frá fæðingu Guðmundar. Nýlega barst svo félaginu önnur minningargjöf áf sama tilefni frá Gesti, syni þeirra hjóna frá Nýp, og konu hans, Kristínu Katarín- usdóttur. Krabbameinsfélagið færir hlut- aðeigandi innilegar þakkir fyrir þessar góðu gjafir. íbúðargjöf. Nýlega hlaut Krabbameinsfélagið í arf eftir Oktavíu Sólborgu Sigursteinsdóttur íbúð sem hún átti á Hringbraut 111 hér í borg. Sólborg lést í júlí 1986, en eríðaskrána gerði hún 1975. Hún átti enga skylduerfingja á lífi. Flóamarkaður hjá klúbbnum Þú og ég verður haldinn laugardaginn 6. desember að Mjölnisholti 14, 3. hæð frá kl. 13-15. Fundir Kirkjufélag Ásprestakalls heldur jólafund sinn fimmtudaginn 4. des- ember kl. 20.30 í safnaðarheimilinu, Bjamhólastíg 26. Fjölbreytt dagskrá. Kirkjufélag Digranes- prestakalls heldur jólafund sinn í kvöld, 4. desember, kl. 20.30 í safnaðarheimilinu, Bjarnhóla- stíg 26. Fjölbreytt dagskrá. Sýningar Síðustu sýningar á „Hin sterkari og Sú veikari" Síðustu sýningar Alþýðuleikhússins á ein- þáttungum Augusts Strindberg og Þor- geirs Þorgeirssonar, „Hin sterkari og Sú veikari" verða í kjallara Hlaðvarpans að Vesturgötu 3 í dag, 4. desember, og sunnu- daginn 7. desember kl. 21. Leikarar eru Margrét Ákadóttir, Anna Sigríður Einars- dóttir, Elfa Gísladóttir og Harald G. Haraldsson. Leikstjóri er Inga Bjarnason og Vilhjálmur Vilhjálmsson sá um leik- mynd og búninga. l’yrir sýningar og í hléi leikur Páll Eyjólfsson gítarleikari verk eftir Misti Þorkelsdóttur og Femando Sor. Bornar eru fram veitingar sem eru innifaldar í miðaverði. Upplýsingar um miðasölu eru í síma 15185 kl. 14-18 daglega í skrifstofu Alþýðuleikhússins að Vestur- götu 3 (fremra húsi). Jólasýning Gallerís Borgar í dag, fimmtudaginn 4. desember, opnar Gallerí Borg jólasýningu sína í ár með því að bjóða viðskiptavinum sínum, gestum og gangandi, upp á jólaglögg. Á jólasýn- ingu Gallerís Borgar kennir ýmissa grasa. Þar verður að sjá megnið af þeirri nýju grafík, sem fram hefur komið í ár, nýjar og gamlar vatnslita-, pastel- og olíumynd- ir. Þá verður einnig til sýnis og sölu keramik og gler og sitthvað eftir lifandi og liðna meistara íslenskrar listsköpunar. Sýningin í galleríinu verður breytileg, þ.e. í hvert sinn sem eitthvað er selt og tekið úr húsi kemur annað og nýtt þess í stað. Sýning þessi er að sjálfsögðu sölusýning. Gallerí Borg er opið á venjulegum verslun- artímum í desember, þ.e. frá kl. 10, en frá kl. 12 á mánudögum. Ferðalög Útivistarferðir Fimmtudagur 4. des. kl. 20.30. Mynda- og aðventukvöld í Fóstbræðra- heimilinu, Langholtsvegi 109. Dagskrá: fyrir hlé mun ljósmyndarinn góðkunni Lars Björk sýna bráðskemmtilega mynda- syrpu af fólki í ferðum. Frábærar kaffiveit- ingar. Eftir hlé verður dansað. Allir velkomnir, jafnt félagar sem aðrir. Dagsferð sunnudaginn 7. des. kl. 13. Vatnsendaborg-Vífilsstaðahlíð. Gengið verður í Selgjá sem er framhald' Búrfells- gjár og með fornum seljarústum. Verð 250 kr. frítt f. böm m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Áramótaferð Útivistar í Þórsmörk 31. des. 4 dagar. Brottför kl. 8, gist í Útivistarskálanum Básum. Pantanir óskast sóttar í síðasta lagi um miðjan desembér. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Sjáumst. Ferðafélag íslands Dagsferð sunnudaginn 7. desember. Kl. 13 verður gengið á Helgafell(340) í suðaustur frá Hafnarfirði. Auðgengið er á Helgafell að norðaustan og þótt gangan sé stutt og létt er nóg fyrir augað að skoða þar sem veðrað móbergið tekur á sig ótal myndir. Verð kr. 350. Brottför frá Um- ferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmið- ar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorð- inna. Ath., myndakvöld miðvikudaginn 10. desember. Tónleikar Tónleikar á Hótel Borg í kvöld, fimmtudag. Fjölbreytt dagskrá: Bjarni Tryggva og Ný augu kynna nýtt og gamalt. Bubbi Mortens og MX 21 kynna „Frelsi til sölu“. Trúbadorar: Bjarni Tryggva, Guðjón Guðmunds og Bergur Isleifs fíytja frumsamda trúbadortónlist. Húsið opnað kl. 21. Miðaverði stillt í hóf, aðeins kr. 450. Sólrún Bragadóttir syngur með Sinfóníu- hljómsveit íslands Á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Islands á sjöttu áskriftartónleikum vetrarins á fimmtudagskvöld verða tvö verk, Sinfónía nr. 39 í Es-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Sinfónía nr. 4 í G-dúr eftir Gustav Mahler. Einsöng í sinfóníu Mahl- ers syngur Sólrún Bragadóttir og stjórn- andi tónleika Sinfóníunnar að þessu sinni er Gabriel Chmura, en hann er aðalstjórn- andi Fílharmóníusveitarinnar í Bochum í Þýskalandi. Tapað - Fundið Síamsfressköttur týndur Ómerktur síamsfressköttur, eins og hálfs árs gamall, tapaðist frá Tjarnargötu 42 16. nóvember sl. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Kattavinafé- lagið eða Jóhann í síma 19492. fundarlaun. í gærkvöldi Kjarval. Hin kortin eru: Sjálfsmynd (1920), Fyrstu snjóar (1953), Bláskógaheiði (1953), Snjór og gjá (1954), Skjaldbreiður (1957), Bleikdalsá (1957) og Krítik (1945-50). Einnig hefur Litbrá gefið út sem jólakort 3 vatnslitamyndir eftir Svein Kaaber, klippimyndir eftir Guðrúnu Geirsdóttur og landslagsljósmyndir eftir Rafn Haf- fjörð. Kortin eru til sölu í flestum bóka- og gjafavöruverslunum. hár, svo sem kiippingar, lagningar, blástur strípur, permanent, glansskol, næringar- kúra og fleira. Eigandi Hárgreiðslustof- unnar Evítu, Lára Ilavíðsdóttir hár- greiðslumeistari, hefur rekið hárgreiðslu- stofur í mörg ár og sótt fjölda námskeiða, bæði hér heima og erlendis. Nýtt Kjarvalskort Prentsmiðjan Litbrá hefur gefið út nýtt kort eftir meistara Kjarval. Það er eftir málverki ffá 1950 sem er 75x100 sm að stærð og heitir Sólþoka. Myndin er í eigu frú Eyrúnar Guðmundsdóttur, ekkju Jóns Þorsteinssonar en þau hjónin áttu mikið og merkilegt safn mynda eftir Kjarval. Þetta er 8. kortið sem litbrá gefur út eftir Hárgreiðslustofan Evíta flutt Hárgreiðslustofan Evíta, sem áður var í Mosfellssveit, hefur flutt starfsemi sína í Ystasel 15, Reykjavík. Nýtt símanúmer Evítu er 77919. Hárgreiðslustofan býður eins og áður alla almenna þjónustu fyrir Kór Langholtskirkju endurflytur argentínsku messuna Misa Criolla Kór Langholtskirkju flutti sl. laugardag argentínsku messuna Misa Criolla eftir Ariel Ramiréz fyrir fullu húsi. Vegna ein- dreginna tilmæia hefur verið ákveðið að endurflytja messuna nk. Iaugardag, 6. des., kl. 17 í Langholtskirkju. Miðar eru seldir hjá ístóni, Freyjugötu 1, í Langholtskirkju og við innganginn. Fataúthlutun hjá Hjálpræðishernum. Á morgun, föstudaginn 5. desember, verð- ur fataúthlutun hjá Hjálpræðishemum í Kirkjustræti 2. Mikið úrval af góðum fatn- aði. Öllum er velkomið að líta inn, opið verður milli kl. 11 og 18. Athygli er vakin á að úthlutað verður aðeins þennan eina dag. Jólasnjór, ný hljómplata. Út er komin hljómplatan Jólasnjór með Guðmundi R. Lúðvíkssyni. Lögin eru öll ný nema Heims um ból. Guðmundur samdi lögin ásamt Sigurbjörgu Axelsdóttur. Á plötunni syngur ásamt Guðmundi 10 ára drengur, FreyrFriðriksson. Upptökurfóru fram í stúdíói Stop, Vestmannaeyjum. Kvöldlokkur á jólaföstu Þriðjudaginn 9. desember kl. 20.30 verða Kvöldlokkur á jólaföstu í Áskirkju í Reykjavík. Blásarakvintett Reykjavíkur stendur fyrir þessum tónleikum ásamt ell- efu félögum sínum. Þetta er í sjötta sinn sem Kvöldlokkur á jólaföstu hljóma, nú í Áskirkju, en síðustu ár hafa þær heyrst í fimm öðrum kirkjum í Reykjavík. Á efnis- skránni verða eftirtalin verk: Kvintett í Es-dúr eftir Rösler og mun það vera einn elsti blásarakvintett sem vitað er um, fyrst gefinn út árið 1976, Sexdett í Es-dúr op. 816 eftir Beethoven fyrir tvö hom og strengi og Serenaða í d-moll op. 44 eftir Dvorák fyrir 10 blásara, celló og bassa. Flytjendur varða Bemharður Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Steven Eiggetts, Einar Jóhannesson, Ármann Helgason, Haf- steinn Guðmundsson, Björn Árnason, Rúnar Vilbergsson, Joseph Ognibene, Þorkell Jóelsson, Emil Friðfinnsson, Júl- iana Elín Kjartansdóttir, Sean Bradley, Anna Maguire, Carmel Russill og Páll Hannesson. Sovésk kvikmyndavika í Reykjavík Dagana 29. nóv.-5. des. verður sovésk kvikmyndavika haldin í Reykjavík. Eftir- taldar myndir verða sýndar: ,,Sú falleg- asta“, "Tækifærisgifting", „Frosin kirsuber“, „Það er tími til að lifa, það er tími til að elska“, „Jazzmenn" og Ég er að tala við þig“. Ástin, leit að hamingj- unni og tengsl karls og konu eru við- fangsefni myndanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.